Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 8
8
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
Visnaþattur__________________
Árla nam ég
Eldans tal
Jón Eldon fæddist í Keldunesi 11. unglingsaldri, og lagði hún gott til
agúst 1851. Faðir hans var Erlend-
ur Gottskálksson og var hann hag-
mæltur vel og hefur verið getið fyrr
í þáttum þessum. Erlendur átti Jón
með fyrri konu sinni, Sigríði Finn-'
bogadóttur. Jón var næstelstur
þeirra systkina og þótti hann einna
gjörvulegastur þeirra. Snemma
byrjaði Jón að kveða og þannig
minnist Einar Benediktsson skáld
Jóns frá æskuárum sínum:
Árla nam ég Eldans tal,
ort var fram á vökur.
Þegar kvam í Kaldadal
kváðust gamanstökur. •
Jón var ekki við eina fjöhna felld-
ur. Fór hann víða um og eignaðist
mörg heimili. Var hann tíðum hús-
maður, þjónaði sjálfum sér og eld-
aði mat sinn. Fæddust honum börn
á víð og dreif þar sem hann fór því
fríður var hann og hrókur alls
fagnaðar hvar sem hann kom og
litu konur hann hýru auga.
Maður nokkur deildi á Jón fyrir
lauslæti og svaraði Jón þá:
Þetta enda álíst synd.
En ég stend ófeiminn.
Þótt ég endrum alvaldsmynd
út í sendi heiminn.
Jón kom á samkundu eina þar
er Jón nokkur Hörgur flutti mál
sitt af ákafa:
Hér eru orðin hjöluö mörg,
höftin tungu slitin.
Vitleysan úr herra Hörg
hrapar út um vitin.
Erlendur, faðir Jóns, og Benedikt
sýslumaður Sveinsson voru vinir
ágætir. Var Jón um skeið skrifari
sýslumanns þó ekki stæði lengi.
Segir sagan að sýslumaður hafi
verið með kvenmanni í afhýsi og
Jón ort þar út af þessa stöku:
Hringalind er hjá honum,
hann er girndum brenndur.
Meyjaryndið á honum
eins og tindur stendur.
Einar skáld, sonur sýslumanns,
nam á augabragði vísuna og eitt-
hvert sinn er sveinn reiddist foður
sínum hafði hann yfir vísuna í
hefndarskyni. Reiddist Benedikt
þessu og rak skáldið Jón í bræði
sinni.
Krákárbakki hét býli suður frá
Baldursheimi í Mývatnssveit og
stóð bærinn vestan Krákár, gegnt
Sellandafjalli, Tveggja tíma gangur
er frá Baldursheimi að Krákár-
bakka. Þama inni á heiðinni bjó
maður að nafni Páll Guðmundsson.
Einhvem tíma falaði Jón hús-
mennsku hjá Páli sem tók þvi
fjarri. Rósa hét dóttir Páls, þá á
með Jóni en ekki varð þó af samn-
ingum.
Er menn inntu Jón eftir hversu
samningar hefðu gengið millum
þeirra Páls svaraði hann:
Eg var að makka auðs um Bil,
ástin sprakk úr skorðum.
Páll á Bakka bjó mér til
blíðan sprakka forðum.
Einnig þessi:
Dælu táls ég dró um háls
draumabáls úr skorðum.
Dóttir Páls var mjúk til máls,
mælti frjálsum orðum.
Vfsnaþáttur
Valdimar Tómasson
Björg nokkur Friðriksdóttir bar
Jóni kaffi. Hann kvað þá:
Kaffið sýður könnum á,
kemur blíðan þarna.
Unaðsfríða auðargná
eg mun síðar barna.
Reyndist Jón sannspár því dóttir
Jóns og Bjargar hét Gerður og bjó
í Kelduhverfi.
Jón var mikill vinur Sveins á
Bjamarstööum í Bárðardal, Krist-
jánssonar. Voru borð dúklögð er
Jón bar að garði en síðar kólnaöi
vináttan og eitt sinn er Jón fór fram
hjá Bjarnarstöðum kvað hann:
Eitt sinn var ég hart nær hér
hita kærleiks brunninn.
Hnífapara öldin er
út í móa runnin.
Jón kvað að lokinni jaröarfor
umkomuleysingj a:
Hér er lagður Mðinn nár
lágt í grafar eyði,
falla engin, engin tár
ofan á þetta leiði.
Framkvæmdastjóri menningar-,
uppeldis- og félagsmála
Staða framkvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og fé-
lagsmála Reykjavíkurborgar er Iaus til umsóknar. Um
er að ræða nýja stöðu. Starfslýsing liggur frammi hjá
ritara borgarstjóra í Ráðhúsinu. Gerð er krafa um
háskólamenntun og reynslu á sviði stjórnunar. Ráðið
verður í stöðuna frá 1. október eða eftir nánara sam-
komulagi.
Skriflegum umsóknum með upplýsingum um menntun
og starfsferil skal skila til borgarstjóra, Ráðhúsi
Reykjavíkur, fyrir 14. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavík
júlí 1995
* Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að
auka hlut kvenna í stjómunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgar-
innar, stofnana hennar og fyrirtækja.
Matgædingur vikuiuiar
Hrísgrjóna-
bollur
og eplakaka
Freyja Magnúsdóttir, ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur í Hrafna-
gih í Eyjafjarðarsveit, er matgæð-
ingur vikunnar að þessu sinni. „Ég
er grænmetisæta og nota hvorki
sykur né ger og forðast unnar mat-
vörur þar sem ég er með ger-
sveppaóþol,“ segir hún.
„Ég hef verið að þróa þessa mat-
argerð í nokkur ár og hður miklu
betur. Þetta er vissulega meira
umstang en maður reynir að vinna
sér auðveldara með því aö gera
stóra skammta í einu og frysta.“
Hrísgrjónabollur
með karrísósu
500 g hýðishrísgijón
1 stór laukur
1 th 2 hvítlauksrif
1 stór bolli nýrnabaunir
(eða kjúkhngabaunir)
1 tsk. sjávarsalt
cayennepipar eftir smekk
Baunirnar lagðar í bleyti yfir
nótt og síðan soðnar í nýju vatni í
um þaö bil 11/2 klst. Grjónin skoluð
og soðin í 45 til 60 mínútur. Best
er að leggja þau í bleyti yfir nótt
og sjóða í nýju vatni.
Laukur, baunir og grjón hakkað
í hakkavél. Kryddi bætt í og hrært
vel saman, síðan mótað í litlar boll-
ur sem steiktar eru í ólífuolíu á
pönnu. Bomar fram með karrísósu
og gufusoönum kartöflum, rófum
og gulrótum.
Freyja Magnúsdóttir.
Karrísósa
3/4 bolli saxaður laukur
3/4 bohi saxað sellerí
3/4 bolli smátt skorin paprika (gul
eða græn)
1 pressað hvítlauksrif
biti af rifinni engiferrót
1 grænmetisteningur (sykur- og
gerlaus)
1 msk. karrí
4 bollar vatn
Laukur, hvítlaukur og karrí
mýkt í smjöri, engiferi bætt í og
látið krauma svolitla stund. Pa-
priku og selleríi bætt í og látið
krauma áfram nokkra stund. Vatni
bætt í, grænmetisteningurinn
brytjaður út í og hrært vel. Látið
sjóða í um það bil 5 mínútur. Þykk-
ið þá með maisenamjöli og saltið.
Eplabaka
3 stór eph
2 perur
5 döðlur
1 bohi kókosmjöl
hreinn ávaxtasafi
(t.d. Florida Sunnan 10)
1 dl vatn
Eph og perur afhýtt og sneitt
fremur þunnt í pott. Döðlum og
kókosmjöli ásamt ávaxtasafa og
vatni bætt í. Soðið þar til meyrt.
Sett í bökuform.
1 bolli heilhveiti
1 bolli haframjöl
1/2 tsk. neguh
2 tsk. kanell
1/2 tsk. natron
1/2 bolh olía (t.d. olífuoha)
1/2 bolli vatn (jafnvel meira)
Öllu blandað saman, hnoðað ör-
lítið, flatt út og lagt ofan á ávextina
í forminu eins og lok. Hökkuðum
hnetum stráð ofan á. Bakað við um
það bil 170 gráður í 20 til 25 mínút-
ur. Þeyttur rjómi borinn fram með
volgri kökunni.
Freyja skorar á Sigríði Halblaub
í Reykjavik að verða næsti mat-
gæðingur. „Hún lumar á mörgum
góðum uppskriftum."
Eftir helgina má fá uppskriftina
í Símatorgi DV. Símanúmerið er
904-1700.
Hinhliðin
Jólarjúpa og malt-
öl í uppáhaldi
- segir Ragnar Kjartansson í Kósý
Ragnar Kjartansson er einn af
fjórum piltum í unglingahljóm-
sveitinni Kósý. Hljómsveitin var
stofnuð fyrir níu mánuðum og hef-
ur vakið mikla athygli.
„Við höldum áfram á meðan það
verður jafn ljúft og það er núna.
Þetta er bara eins og kaffiboð hjá
okkur vinunum. Maður yfirgefur
þaö þegar það verður leiðinlegt,“
segir Ragnar sem útskrifast frá MR
næsta vor. í sumar starfar hann
hjá tómstundaráði.
Fullt nafn: Ragnar Kjartansson.
Fæðingardagur og ár: 3. febrúar
1976.
Maki: Kærastan mín er Elsa Eiríks-
dóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemi og dúllari.
Laun: Sæmileg.
Áhugamál: Tónhst og matur.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottó? Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Borða góðan mat með góöu
fólki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vera með hausverk.
Uppáhaldsmatur: Jólarjúpan.
Uppáhaldsdrykkur: Maltöl.
Hvaða íþróttamaður stendur
Ragnar Kjartansson.
fremstur í dag? Magnús Scheving.
Uppáhaldstímarit: Urval.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Sigríður
Hagalín heitin.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur, ég fíla þessi
rólegheit.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Ringo Starr.
Uppáhaldsleikari: í augnablikinu
er það Arnold Schwarzenegger.
Uppáhaldsleikkona: Uma Thur-
man, hún er beib.
Uppáhaldssöngvari: Kahled.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Andrés.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Simp-
sons.
Uppáhaldsveitingahús: Hótel Val-
höh.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Bók sem ég hef aldrei náð að klára,
fánareglubókina.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Hjálmar
og Goggi.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Jón
Ársæll.
Uppáhaldsskemmtistaður: Þeir eru
allir ósköp skemmtilegir.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að hafa það huggu-
legt.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég ætla að bregða mér til Lon-
don og Amsterdam.