Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
17
Fegrunaraðgerðir
ódýrastar á Islandi
Þeim hefur ekki fækkað sem láta
stækka á sér brjóstin, soga burt fitu
og lyfta maganum þrátt fyrir að
Tryggingastofnun taki ekki lengur
þátt í kostnaðinum. Fegrunaraðgerð-
irnar kosta flestar nokkra tugi þús-
unda en eru reyndar hvergi ódýrari
en á íslandi, að sögn Guðmundar
M. Stefánssonar, sérfræðings í lýta-
skurðlækningum.
„Það hefur nú verið rætt meira í
gríni en alvöru hingað til að það
væri hægt að auglýsa þessar aðgerð-
ir erlendis. Ég held að það sé alltaf
að koma betur og betur í ljós að þetta
væri vel hægt,“ segir Guðmundur.
Hann telur að almennt efnahags-
ástand á íslandi skýri það hversu
ódýrar fegrunaraðgerðir eru hér mið-
að við annars staðar. „Ég held að
menn hafi nú bara lagað sig að þess-
um íslenska markaði. Ég hef engar
aðrar raunhæfar skýringar á því. Það
hefur líka alltaf sýnt sig í að löndum
þar sem ríkið hefur borgað heilbrigð-
isþjónustu þýði ekki að koma með
þetta í neinum heljarstökkum."
Verð hjá lýtalæknum er mismun-
andi og efniskostnaður sömuleiðis.
Umfang aðgerðanna er mjög mis-
munandi. Það skiptir einnig máli
varðandi kostnað hvort viðskipta-
vinurinn er svæfður eða deyfður.
Flestir koma til að láta taka augn-
poka, strekkja andhtshúð, stækka
bijóst og soga burt fitu. Fitusogiö er
ein vinsælasta aðgerðin í dag. „Kven-
mannslíkaminn hefur ákveðna fitu-
dreifmgu og það eru ákveðnir staðir
þar sem fitan brennur af einhverjum
orsökum verr. Forðafitan vih bara
vera þarna. Þetta eru oft þau líkams-
svæði sem gefa konum kvenleg ein-
kenni, eins og til dæmis mjaðmir,
Það vakti athygli sænsku nektar-
dansmeyjarinnar Caroline hvað
fegrunaraðgerðir eru ódýrar á ís-
landi. Hún notaði því tækifærið til
að láta stækka á sér brjóstin.
DV-mynd GVA
læri, innanverð hné og neðanverður
kviður. Þrátt fyrir megrun, eróbikk
og annað slíkt gengur illa að ná fit-
unni af þessum svæðum. Það virðist
vera sem tískan krefjist þess í dag
að ekki sé fita þarna. Þetta á kannski
eftir að brevtast," tekur Guðmundur
fram.
Á meðan tískan ræður ferðinni
græða lýtalæknarnir en fjöldi að-
gerða er atvinnuleyndarmál. „Það
Hvað kosta
fegrunaraðgerðirnar?
Viðtalskostnaður 1.350
l-
Nefaðgerð
40-100 þús
I
Andlitsslípun
(húðslípun)
30-60 þús.
135
130-160
150 þús.
Eyrnaaðgerð
40-50 þús.
r i
Augnlok/pokar
1 par: 3040 þús.
pör: 60-75 þús.
Andlitslyfting
100-160 þús.
Fitusog
lítið: 30-50 þús.
stórt: 80-120
Magalyfting
140-180 þús.
JŒraL
Dæmi um kostnað vegna fegrunaraðgerða. Verð hjá lýtalæknum er mismun-
andi og efniskostnaður líka. Umfang aðgerða er einnig mjög mismunandi.
eru ekki til neinar tölur yfir þetta.
Þessu er haldið mjög leyndu. Þetta
er viðkvæmur bisness og læknar eru
ekki að bera sig saman. Maður veit
ekki um umfang hvers og eins,“ seg-
ir Guðmundur.
Körlum, sem koma í fegrunarað-
gerðir, hefur fjölgað þó enn séu kon-
urnar miklu fleiri. „Karlar koma
helst til að láta laga augnlok og í
andlitslyftingar. Þeir koma einnig í
fitusog. Það er töluvert um að bis-
nessmenn, sem eru orðnir þreytuleg-
ir en verða að líta vel út, komi í fegr-
unaraðgerðir."
Ekki er farið að lengja eða þykkja
typpi á íslandi. Slíkar aðgerðir hafa
verið gerðar í Danmörku í eitt og
hálft ár. „Ég held að þessar aðgerðir
séu á algjöru byrjunarstigi. Þetta
þarf að þróast í nokkur ár af nokkr-
um mönnum áður en þetta verður
algeng aðgerð," segir Guðmundur.
Það er fólk úr öllum stéttum og á
öllum aldri sem lætur gera á sér fegr-
unaraðgerðir. Flestir viðskiptavin-
anna eru á aldrinum 45 til 65 ára.
I> A
Allir vita að það er leikur einn \ þátttökuseðli sem fæst í
að grílla lambakjöt. Og næstu matvöruverslun.
c5móeam-
nú færist enn meira fjör gasgrill Þar með ertu með í potti
í leikinn því nú getur þú og átt möguleika á að vinna
glæsilegt Sunbeam gasgrill. Dregið
er tvisvar sinnum, 10 gasgrill í hvort
sinn. f fyrra skiptið
þann 7. júlí og
í seinna
skiptið þann
unnið þér inn glæsilegt
gasgrill í skemmtilegum safnleik.
Safnaðu 3 rauðum miðum sem
finna má á öllum grillkjötspökkum
með lambakjöti og sendu
pósthólf 7300,
127 Reykjavík ásamt
A
natturulegagott
11. ágúst