Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 20
20
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ1995
Á toppnum
Lagið A Girl Like You með
breska söngvaranum Edwyn
Collins lendir í toppsæti íslenska
listans þessa vikuna. Lagið, sem
er búið að vera í tvær vikur á list-
anum, var í 7. sæti í síðustu viku.
A Girl Like You nýtur vinsælda
víðar en á íslandi en það var m.a.
fjórða vinsælasta lagið í Bret-
landi í síöustu viku. Edwyn Coll
ins er ekki nýr í tónlistarbrans-
anum því hann var áður í hljóm-
sveitinni Orange Juice sem gerði
það gott upp úr 1980. Margir hafa
líkt Edwyn við ekki ófrægari
menn en David Bowie.
Nýtt
Lagið Engu er að kvíða úr söng-
leiknum Superstar, sem nú er
verið að sýna í Borgarleikhúsinu
við góðar undirtektir, kemur nýtt
inn á listann þessa vikuna og
lendir í 4. sæti. Það er söngkon-
an Guðrún Gunnarsdóttir sem
flytur lagið en hún fer með hlut-
verk Maríu Magdalenu í söng-
leiknum. Efnileg söngkona þar á
ferð sem vonandi á eftir að heyr-
ast meira frá.
Hástökk
Hástökk vikunnar er lagið
Scatman’s World með söngvaran-
um Scatman John. Lagið er búiö
að vera í tvær vikur á listanum,
var í 24. sæti í síðustu viku en er
nú komið í 9. sæti. Lagið er af
samnefndri plötu sem kom í
verslanir hér á landi fyrir
skömmu. Það veröur gaman að
sjá hvort lagið, sem á nú kannski
ekki upp á pallborðið hjá öllum,
kemst ofar á listann næstu vik-
urnar.
Lengi lifir í
gömlum
glæðum
Gömlu brýnin í Greatfúl Dead
eru enn að gera allt vitlaust vest-
anhafs þótt ætla mætti að aðdá-
endur þeirra væru flestir komn-
ir af léttasta skeiði. Þannig urðu
þeir á dögunum að aflýsa öðrum
tónleikum af tvenniun í Indiana
eftir að aðdáendur höfðu gengið
af göflunum á þeim fyrri. Varð að
kalla til lögreglu og dugði ekkert
minna en óeirðalögregla með
hunda, táragas og tilheyrandi.
Scott Wei-
land sleppur
Allar líkur eru á að Scott Wei-
land, söngvari Stone Temple Pi-
lots, sleppi við fangelsisvist þrátt
fyrir að hafa verið tekinn með
heróín og kókaín’í fórum sínum.
Skýringuna er að hluta til að
fmna í muninum á Jóni og Jóni
poppstjömu en til að losna við
dóm verður Weiland að gangast
undir meðferð vegna eiturlyfja-
fiknar af fúsum og frjálsum vilja.
A SIJMU
14.00
v ) 8 j jf r G! III I TIM T¥ 11' 1 é> 11 i jl i 1111 n i\ ii, • i & 4i 3Ö.7. 95 “ 5.3. 95
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á USTANUM TOPÍ* 4®
G> 7 2 -1VIKANR. 1- A GIRL LIKE YOU EDWYN COLLINS
2 2 1 6 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME, KILL ME U2
3 1 5 3 IT'S OH SO QUIET BJÖRK
o> 1 — NÝTT Á LISTA — ENGU ER AÐ KVÍÐA ÚR SUPERSTAR
NÝTT
G> 10 - 2 BOOM BOOM BOOM OUTHERE BROTHERS
6 14 - 2 '74-'75 CONNELS
7 3 9 3 SÖNGUR HERÓDESAR ÚR SUPERSTAR
8 4 2 5 COME OUT AND PLAY OFFSPRING
OL 24 2 ••• HÁSTÖKK VIKUNNAR ••• SCATMAN'S WORLD SCATMAN JOHN
Cip) 17 19 5 l'LL BE THERE FOR YOU THE REMBRANTS
11 5 3 8 THIS AINT A LOVE SONG BON JOVI
ra NÝTT 1 VILLIDÝR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
13 6 8 5 I DONT BELIEVE YOU CIGARETTE
Í14> 22 26 5 ALL IT TAKES HANNE BOEL
15 12 10 6 THINK OF YOU WHIGFIELD
GS> NÝTT 1 WATERFALLS TLC
17 8 6 8 SÖKNUÐUR SIXTIES
Cð> 20 21 3 SOMEWHERE SOMEHOW WET WET WET
19 9 4 7 END OF THE CENTURY BLUR
(2Q) 21 - 2 IN THE SUMMERTIME SHAGGY
d$ 22 (2> NÝTT 1 SAY IT AIN'T SO WEEZER
11 11 5 DECEIVED IN BLOOM
1 SEARCH FOR THE HERO M PEOPLE
24 15 13 5 FANNFERGI HUGANS SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
25 18 23 3 KORRIRÓ AGGI SLÆ & TAMLASVEITIN
26 1 SOMETHING FOR THE PAIN BON JOVI
27 16 17 6 IF YOU ONLY LET ME IN MN8
(3) 32 - 2 HUMAN NATURE MADONNA
(2S> 1 BEST OF BYLTING
30 (3 19J 12 5 EVERYBODY'S GOT TO LEARN SOMETIMES BABY D.
NÝTT 1 AFTER THIS LOVE IS GORTE EDDIE MONEY
(32> 34 - 2 NETFANGIN (REMIX) SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
(B 36 - 2 HOLD MY BODY TIGHT EAST 17
34 23 14 7 WHEREVER WOULD I BE D. SPRINGFIELD/D. HALL
(35) (35) NÝTTí 1 KEEP ON MOVING BOB MARLEY
NÝTTj 1 SHY GUY DIANA KING
(32) (35> (39) 39 2 ALL I WANT EKIN
NÝTTÍ NÝTT NÝTT 1 HERE FOR YOU FIREHOUSE
1 WHY DON'T YOU, WHY DON'T I ERIC GADD
1 A DAT IN YOUR LIFE MATT BIANCO
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Co/a á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DV i hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 3Sára aföllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, I textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt í vali “World Chart" sem framleiddur er af Radip Express I Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoöanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón meö framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnin Jón Axel Ólafsson
Def Jam fær
það óþvegið
Chuck D, forystusauður hljóm-
sveitarinnar Public Enemy, kom
rækilega á óvart á dögunum þeg-
ar hann úthúðaði opinberlega
æðstu mönnum hljómplötufyrir-
tækisins Def Jam, sem gefúr út
plötm- Public Enemy. Kallaði
hann þá drullusokka og annað
þaðan af verra og sagðist eiga þá
ósk heitasta að þeir losuðu sig
undan samningi við þá þar sem
þeir væru ekkert nema dragbít-
ar á listrænan þroska sinn. í
framhaldi af þessum ummælum
er talið að dagar Public Enemy
séu brátt á enda.
Courtney Love
í kýlingum
Courtney Love heldur áfram
að tryggja sér fasta umfjöllun í
þessum dálkiun og að þessu sinni
kemst hún í fréttir fyrir árás á
Kathleen Hanna, söngkonu
hljómsveitarinnar Bikini Kill.
Þær stallsystur komu báðar fram
á Lollapalooza tónleikum í Was-
hington en eitthvað samdi þeim
Ola og eftir að hafa sent hvor
annarri tóninn létu þær hendur
skipta og reyndist Hanna hafa
betur því daginn eftir var Love
ófær um að leika á gítarinn sinn
vegna sáraumbúða á handlegg.
Engu að síður hefúr Hanna kært
Love fýrir líkamsárás þótt vöm-
in hafi greinUega lukkast vel.
Ég fer í fríið
Sumarfri Marks Keds, gítar-
leikara hljómsveitarinnar Sens-
less Things, hefur sett ailt á ann-
an endann, bæði fyrir Sensless
Things og hljómsveitina The
WUdehearts. Málið snýst um það
að Keds er að hætta í Sensless
Things og ætlar aö ganga tU liðs
við The WUdehearts. Áttu býttin
að eiga sér stað á Phoenix-tón-
leikahátíðinni þar sem Keds ætl-
aði fyrst að leika á kveðjutónleik-
um með Sensless Things og því
næst að leika á fyrstu tónleikum
sínum með The WUdehearts. Að
undanfomu hefur Keds verið á
tónleikaferð með Sensless Things
í Japan en ákvað svo að skeUa sér
í frí og hefur ekkert heyrst tU
hans síðan. Fyrir vikið hafa æf-
ingar með The WUdehearts farið
í vaskinn og fór svo að báðar
hljómsveitimar neyddust tU að
aflýsa þátttöku í Phoenix-tón-
leikahátíðinni auk annarra tón-
leika. Bassaleikari The Wilde-
hearts hefur sagt að sumarfríið
góða muni kosta Keds stöðu hans
í hljómsveitinni.
Plötufréttir
Chuck D, liðsmaður Public
Enemy, er með sólóplötu í smíöum
og hefur hann látiö þau boð út
ganga að platan sé væntanleg á
markað í janúar á næsta ári. . .
Tha FaU er hins vegar tUbúin meö
nýja tvöfalda plötu sem inni-
heldur nýlegar Mjómleikaupptök-
ur . . . Og fregnir herma að hin
gamalkunna sveit OMD sé komin
í hljóðver eftir nokkurt hlé ...
-SþS-