Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Qupperneq 27
26
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
39
Hún er ung, sjálfstæð og hugrökk:
Vildi að Þráinn tæki myndina upp á nýtt
- segir Dóra Takefusa sem leikur eitt aðalhlutverkið í nýrri íslenskri bíómynd, Einkahfi
Dóra Takefusa ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundí Jónssyni gítarleikara, og syninum, Daníel.
En mér fannst ég alveg tilbúin að
fara út í lífið. Ég var þroskuð og sjálf-
stæð. Ég bjó hjá afa mínum í Reykja-
vík fyrstu mánuðina hérna og vann á
þremur stöðum til að ná endum sam-
an. Auk þess stundaði ég nám utan-
skóla enda gafst mér ekki tími til að
sitja á skólabekk. Á þessum tíma
starfaði ég í tískuverslun og vann á
bar á kvöldin. Einnig tók ég að mér
þáttagerð fyrir Sjónvarpið. Hrafn
Gunnlaugsson hringdi í mig og bauð
mér að taka við af Jóni Gústafssyni í
þáttunum Rokkararnir geta ekki
þagnað og Unglingamir í frumskóg-
inum. Hann hafði séð mig í mynd-
bandi með hljómsveitinni Rikshaw
þar sem ég kom fram sem kynnir. Ég
þáði boðið án þess að hugsa út í hvað
ég væri að gera, enda var ég einmitt
þannig á þeim tíma - ofsalega hug-
rökk.
Gift og skilin tvítug
En Reykjavík varð fljótt of lítil fyr-
ir mig líka og þá var haldið af stað út
í heim. Ég þvældist um Evrópu og
þegar mig vantaði pening fékk ég
mér vinnu einhvers staðar. í leiðinni
kynntist ég mannlífi og menningu
þess lands. Það má segja að ég hafi
verið á stöðugu flakki í tvö ár. Þegar
ég var sautján ára fékk ég nóg. Þá
var ég stödd í París og ákvað að
halda heim. Mér fannst ég tilbúin til
að ná mér í eiginmann og eignast
barn. Einnig hafði ég ákveðið að fara
til Bandaríkjanna í framhaldinu og
læra leiklist. Ég fann manninn fljót-
lega þegar ég kom heim. Hann heitir
Þórir Bergsson. Við vorum ofboðs-
lega ástfangin og yndisleg saman. Ég
var orðin átján ára þegar við gengum
í það heilaga og fljótlega eftir það
eignaðist ég soninn, Daníel, sem nú
er fnnm ára.
Áform mín um að fara til Banda-
ríkjanna stóðust en ég fór þó ekki í
leiklistarskóla heldur lærði fórðun.
Mér fannst, þar sem leiklistarnámið
er mjög erfitt og krefiandi, að það
væri betra að bíða með það þangað
til barnið yrði aðeins eldra. Hins veg-
ar fór Þórir í leiklistarnám þar sem
við bjuggum í Los Angeles. Hjóna-
bandið átti sér þó ekki framtíð og ég
var fráskilin og einstæð móðir tvítug.
En við Þórir höfum alltaf verið mjög
góðir vinir.
í nýjum
sjónvarpsþætti
Ég kom síðan aftur heim til íslands
og það var sannarlega erfið reynsla
að vera einstæð móðir. Ég tók að mér
hin ýmsu störf, svo sem á pitsustað,
á bar og þess háttar. Það fór heilt ár
í að vinna af fullum krafti tO að end-
ar næðu saman og borga skuldir. Síð-
an gerðist ég dagskrárgerðarmaður á
Aðalstöðinni eitt sumar og þá fór
boltinn að rúlla. Um haustið byrjaði
ég aftur hjá Sjónvarpinu með popp-
þættina.
í haust verð ég með í nýjum
magasínþætti fyrir ungt fólk. Þáttur-
inn verður einu sinni í viku og það
er mikil hugmyndavinna í gangi
núna. Ég er ánægð með það því ég
nærist á mikilli vinnu. Þó það sé
kannski ekki alveg á hreinu þá held
ég að þættirnir verði eftir fréttir á
fimmtudagskvöldum en Dagsljós
verði á sama tíma aðra virka daga.
Sú sem ritstýrir þættinum heitir Ás-
dís Ólsen en síðan er verið að ráða
ungan karlmann til að kynna þáttinn
með mér.
íslensk rokkópera
Þessa dagana er ég hins vegar að-
stoðarleikstjóri í nýrri íslenskri
rokkóperu, Lindindin, eftir Ingimar
Oddsson sem sett verður upp í ís-
lensku óperunni í september. Þetta
hálfgerður smáborg-
araháttur að vera sí-
fellt að fjalla um
nekt í íslenskum
bíómyndum. Það er
nekt og kynlíf í öll-
um myndum í sjón-
varpi og enginn
kippir sér upp við
það,“ segir hún enn
fremur.
Sambýlismaður
Dóru er Guðmundur
Jónsson gítarleikari
og lagasmiður Sálar-
innar. Þau hafa ver-
ið saman í þrjú ár
en hún segir að
hann hafi verið bú-
inn að ganga á eftir
sér í sjö. „Við
kynntumst fyrst fyr-
ir tíu árum. Þessi
elska var lengi bú-
inn að ganga á eftir
mér. Ég gaf honum
aldrei tækifæri. Fyr-
ir þremur árum
gafst hann upp á að
reyna við mig en þá
kynntumst við fyrst
og urðum vinir. Það
var einmitt þá sem
ég fékk áhuga á hon-
um,“ segir hún og
hlær. „Ég uppgötv-
aði að hann er ynd-
isleg manneskja.
Guðmundur er jarð-
bundinn og rólegur.
Hann hefur góð tök
á mér og tekst að
halda mér á jörð-
inni. Við erum ákaf-
lega hamingjusöm
og lífið gengur vel
hjá okkur,“ segir
Dóra Takefusa.
Dóra sem Magga í Einkalífi ásamt mótleikara sínum, Gottskálki Degi.
Bíómynd
í bíómynd
„Einkalíf fjallar um Nóa, Margréti
og Alexander. Margrét er kærasta Al-
exanders (Gottskálks) og Nói (Ólafur)
er vinur þeirra. Þríeykið ákveður að
búa til kvikmynd, nokkurs konar
heimildarmynd um fjölskyldu Alex-
anders. Vinirnir eru þó ekki alveg
sammála um uppbyggingu myndar-
innar og ýmsir árekstrar verða. I
myndinni eru skilnaðir, ástir, kynlíf,
glæpir, matur og allt það sem líf sér-
hvers manns inniheldur. Þráinn hef-
ur sérstaka hæfileika til að sjá það
skondna í hversdagslífinu sem aörir
taka ekki eftir. Mér fannst handritið
mjög skemmtilegt," segir hún.
„Það var mikil lífsreynsla að taka
þátt í þessu verkefni. Þetta er heil-
mikil og erfið vinna. Upptökur fóru
fram síðastliðið haust en tökudagar
voru þó ekki nema tuttugu og sex,
sem er í raun kraftaverk.“
Fékk að sanna sig
Dóra segist hafa beðið eftir tæki-
færi að sanna sig í bíómynd og henni
brá því óneitanlega þegar tölvu Þrá-
ins var stolið og kvikmyndahandrit-
inu með. „Ég hélt það yrði engin
mynd. Fólk var búið að sjá mig í
hlutverki Andreu í Veggfóðri og búið
að mynda sér ákveðnar skoðanir um
mig í gegnum hana sem ég var ekki
sátt við. Það var ekki auðvelt að leika
svona atriði eins og ég gerði í Vegg-
fóðri - í rauninni er slíkt hlutverk
eitthvað það erfiðasta sem leikari
lendir í,“ segir Dóra og vísar þar til
kynlífsatriðis í Veggfóðri. „Ég var
undrandi á hversu margir spurðu
hvort ég hefði virkilega gert það í al-
vöru. Fyrst fór það í taugarnar á mér
en síðan fór ég að velta fyrir mér
hvort það þýddi þá ekki að atriðið
hefði verið vel leikið.“
Er ekki spéhrædd
Það er einmitt ein mynd úr Einka-
lifi sem hvað oftast hefur birst að
undanfórnu en hún sýnir Dóru nakta
ásamt meðleikara sínum, Gottskálki
Degi. Dóru finnst sú ljósmynd ekki
gefa rétta mynd af Einkalífi. „Það er
eiginlega bara fyndið að sú mynd
skuli alltaf dúkka upp. Einkalíf er
ekki djörf mynd og þetta er ekki
Veggfóður 2. Að mínu viti á Einkalíf
eftir að koma fólki á óvart," segir
hún.
Dóra segist ekki vera spéhrædd og
þess vegna sé það ekki svo erfitt að
fækka fótum. „Þegar ég er að leika er
ég að leika,“ svarar hún. „Nekt skipt-
ir mig engu máli. Fólk liggur hálf-
nakið í sundlaugunum og engum
finnst það athugavert. Mér fmnst það
„Ég hef alltaf lifað hratt - raunar
má ég aldrei vera að því að bíða. Sem
barn var ég mjög sjálfstæð og á ung-
lingsárunum hugrökk," segir Dóra
Takefusa í viðtali við DV. Dóra hefur
verið áberandi í íslensku þjóðlífi á
undanförnum árum, sérstaklega
vegna þátta sinna um popp í ríkis-
sjónvarpinu. Hún vakti þó mikla at-
hygli sem Andrea í kvikmyndinni
Veggfóðri og þann 9. ágúst nk. mun
hún sjálfsagt vekja enn meiri athygli
sem Magga í kvikmyndinni Einkalíf
eftir Þráin Bertelsson.
„Ég er spennt en kvíði samt rosa-
lega fyrir frumsýningunni. Eiginlega
er ég með í maganum. Ég sá gróf-
klippt brot úr myndinni hjá Þráni og
varð svo um að ég næstum grátbað
hann um að taka myndina upp á
nýtt. Hann hló bara að mér og
sagði að flestir leikarar væru óá-
nægðir með sig þegar þeir sæju
sig í kvikmynd. Ég meinti það
þó fullkomlega að ég vildi leika
hlutverkið upp á nýtt - var viss
um að ég gæti gert betur,“ held-
ur Dóra áfram.
hún er uppalin. Reyndar var hún
bara fjórtán ára þegar sá staður var
orðinn of lítill fyrir hana og hún hélt
ein sins liðs til höfuðborgarinnar.
„Reykjavík varð fljótt lítil fyrir mig
líka þannig að ég hélt á vit ævintýr-
anna út í heim,“ útskýrir hún.
Austrænt útlit Dóru er arfur frá
fóður hennar sem er Japani. Hún seg-
ir að móðir sín og vinkonur hennar
frá Seyðisfirði hafi farið ungar til
Kaupmannahafnar til að vinna á hót-
eli. Þar kynntist hún foður Dóru sem
fluttist með henni til íslands. Þau
skildu síðan en faðir Dóru er kannski
þekktastur fyrir að hafa sett verslun-
ina Japis á fót i Reykjavík. Hann
er æðislega
skemmtileg vinna
og starfið heUl
andi. Leikstjóra-
starfið á mjög vel
við mig og er starf
sem ég gæti hugs-
að mér í framtíð-
inni. Þessa dagana
er allt á fullu í
undirbúnings-
vinnu og æfingum.
Margt ungt hæfi-
leikafólk tekur
þátt í þessari sýn-
ingu, t.d. Páll Rós-
inkrans og
Heiðrún Anna
Björnsdóttir. Guð-
jón Sigvaldason er
leikstjóri og Bryn-
dís Einarsdóttir
dansahöfundur.“
Önnur
kona
í hennar
líkama
Það er nóg um
að vera hjá Dóru
Takefusa þessa
dagana. Hlutverk
hennar i Einkalífi
er það stærsta sem
hún hefur fengist
við. Hún er í einu
af þremur aðal-
hlutverkunum,
hinir eru Gott-
skálk Dagur Sig-
urðarson og Ólaf-
ur Egilsson. „Ég
man eftir að þegar
ég fór á frumsýn-
inguna á Vegg-
fóðri leið mér
hræðilega. Mér
þykir óþægilegt að sjá einhverja
Andreu eða Möggu í mínum líkama.
Sjá konuna á hvíta tjaldinu segja ein-
hverjar setningar sem ég, Dóra,
myndi aldrei segja og hegða sér
þannig sem ég myndi ekki gera.
Þarna eru einhverjar manneskjur
sem ég þekki ekkert en samt í mín-
um líkama - það er mjög skrýtið.
Mér finnst allt öðruvísi að sjá mig í
sjónvarpi því þar er ég sjálf.“
Magga í Einkalífi og Andrea í
Veggfóðri eru þó ekkert líkar og með
þeim enginn skyldleiki. „Magga er
bara ósköp venjuleg manneskja,
ákveðin menntaskólastúlka, en Andr-
ea var algjör tæfa,“ heldur hún
áfram.
Dóra segist innst inni vera svolítið
feimin þó það sjáist kannski ekki á
henni í daglegri umgengni. „Ég gæti
örugglega ekki haldið ræðu án þess
að undirbúa mig vel,“ útskýrir hún.
Hið austræna útlit Dóru kemur frá Japan en þaðan er föðurætt hennar.
Á ættir að
rekja til Japans
Dóra Takefusa er
24 ára gömul. ,
Húnerfæddí
Reykjavík en /
fluttist fljót
lega til
Seyðisfjarð-
ar þar
sem
starfar nú sem bisnessmaður í Japan
og Dóra segist eiga ágætis samband
við hann þótt vegalengdin á milli
þeirra sé óneitanlega löng. Dóra á
þrjú hálfsystkin hér á landi og eitt
ársgamalt í Japan.
Listin átti hug hennar
Dóra Takefusa hefur fengist við
ýmislegt í gegnum árin en þessa dag-
ana er það kvikmyndin Einkalíf sem
á hug hennar enda styttist í frumsýn-
ingardag. Hún segist hafa verið ein af
nokkrum stúlkum sem Þráinn próf-
aði í hlutverkið en var sú heppna að
fá það. „Veggfóður var eina bíómynd-
in sem ég hafði leikið i og þar var ég
í litlu hlutverki. Ég er ekki lærð leik-
kona en hef alla tíð haft áhuga á leik-
list og sótt mörg leiklistarnámskeið.
Allt frá því ég var barn hef ég verið á
leiðinni í leiklistarskóla en ávallt hef-
ur eitthvað komið í veg fyrir að úr
því gæti orðið. Ég er enn þá með
drauminn í maganum og stefni á að
fara utan í skóla einhvern tíma.
Listaheimurinn hefur heillað mig frá
því ég var lítil. Ég hafði gaman af
söng, dansi og leiklist.
Unglingur með
sjónvarpsþátt
Þar sem ég gekk með
þennan draum fór
ég ekkií
mennta-
skóla. Ég
taldi að
skóli lífs-
ins
myndi
henta
leik-
kon-
unni
best. I
staðinn
fór ég á
flakk. Ég
var forvit-
in um fólk
ög staði. Minn
tími var kom-
inn þegar ég var
íjórtán ára. Ég
var að springa
af krafti og
forvitni
og
fannst
ég
þurfa
margt
að
gera.
Raun-
ar
mátti
ég
ekki
vera
að því
að
vera
ung-
lingur.
Á Seyð-
isfirði,
þar sem
ég er
alin
upp, tók
ég þátt
í
áhuga-
leik-
hús-
„Mér finnst það hálfgerður smáborgaraháttur að vera sífellt að tala um nekt
í islenskum bíómyndum," segir Dóra m.a. í viðtalinu. DV-myndir GVA