Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Page 32
44
LAUGARDAGUR 29. JÚLl 1995
Sviðsljós
Kærustupar á Englandi:
54 ára aldursmunur
Ástarsaga Emily Beam, sem
er tvítug, og Michaels Alexand-
ers, sem er 74 ára, hlýtur aö
gefa eldri mönnum smávegis
sjálfstraust. „Viö lítum kannski
út eins og Fríöa og dýrið,“ segir
Michael. „En Emily segir alltaf
að í hennar augum sé ég fálleg-
ur.“
Emily kynntist Michael í
einkaklúbbi í London. Þau
horfðu hvort á annað og hann
bauð henni á Ustsýningu. Þau
urðu góðir vinir en áttuðu sig
síðan á að vináttan hafði þróast
í ást. „Þegar við uppgötvuðum
að við ættum vel saman í rúm-
inu líka var ekki aftur snúið.
Við hófum búskap. Emily er
ung og vill ekki binda sig í
hjónabandi en við eigum vel
saman. Við ætlum fljótlega
saman til ítahu en síðan mun-
um við taka einn dag í einu,“
segir kærastinn aldni.
Þegar fréttist af kærustupar-
inu í Englandi urðu miklar
umræður í landinu vegna ald-
ursmunarins. Þau láta það þó
ekki á sig fá. Emily hefur ekki
hriflst af honum vegna pening-
anna því hann er ekkert sér-
staklega ríkur. Hún er heldur
ekkert heimsk þar sem henni
gekk mjög vel í þekktum einka-
skóla semhúnvarí.
Parið býr í íbúð Michaels í
London. Heimilið er hlaðiö hin-
um ýmsu húsgögnum, bókum
ogmyndum.
Emily hætti í háskóla til að
vera meira hjá Michael en
starfar á ritstjómarskrifstofu
tískublaðs. Þegar hún kemur
heim bíður Michael með drykk
handa henni og þau ræða máhn
meðan hún tekur til kvöldmat.
Michael hefur í gegnum tíðina
skrifað átta bækur og rekið tvö
veitingahús. Einnig gat hann
sér góðan orðstír í hernum. Um
þessar mundir er hann að
skrifa kvikmyndahandrit. Á
hverjum föstudegi fara þau
saman í hádegisverð og versla
síðan inn fyrir helgina. Þrátt
fyrir 54 ára aldursmun segjast
þau vera afar ástfangin.
Waris Dirie, ein eftirsóttasta fyrirsæta heims:
Reynt að selja hana
fyrir fimm kameldýr
Þegar fyrirsætan Waris Dirie var
þrettán ára reyndi faðir hennar aö
selja hana fyrir fimm kameldýr.
Núna er hún ein af eftirsóttustu fyr-
irsætum heims og geta dagslaun
, hennar numið allt að einni miUjón
króna á dag.
Waris Dirie, sem er frá SómaUu,
er dóttir geitahirðis og bjó við mikla
fátækt. Vendipunkturinn í lífi henn-
ar varð er hún var þrettán ára. Faðir
hennar reyndi þá að selja hana sex-
tugum manni fyrir fimm kameldýr
en hún flúði tU frænda síns tU Moga-
dishu, höfuðborgar Sómalíu.
Waris komst til Englands í gegnum
Waris hefur skreytt forsíður ýmissa
tískutímarita.
sambönd í sómalska sendiráðinu í
London og gerðist í fyrstu barn-
fóstra. Það var svo dag einn fyrir
tólf árum að tískuljósmyndarinn
Mike Goss kom auga á hana þegar
hún haUaði sér upp að skólanum sem
dóttir hans gekk í. Waris var aö bíða
eftir barni sendiráðsstarfsmanns.
Það er haft eftir Goss að hann hafi
strax tekið eftir óvenjulegu útliti
Waris. Hann var að búa tU nýja aug-
lýsingu fyrir myndastofu sína og
þótti Waris kjörin til að vera á aug-
lýsingunni. Að sögn Goss kom Waris
með miklu eldri mann með sér sem
hún kynnti sem frænda sinn. Ljós-
myndarinn gerði ráð fyrir að frænd-
inn heföi komið með til að fylgjast
með að ekki væri um ósiðsamlega
starfsemi að ræða.
Goss hvatti Waris, sem auk þess
að gæta barns afgreiddi á hamborg-
arastað, tU að fara á fund fleiri ljós-
myndara. Goss sá hana ekki aftur
fyrr en eftir tvö ár þegar hún heim-
sótti ljósmyndastofu hans. Er hann
spurði hvað hún hefði haft fyrir
stafni svaraði hún: „Æ, það hefur svo
sem ekki verið neitt sérstakt. Ég er
búin að leika í James Bond mynd og
vinna fyrir Pirelh.“
... að Andrew Shue, ein af sfjörn-
unum í Melrose Place, hefði far-
ið tii ísraeis í sumarfriinu sínu
til að slappa af. Hann skoðaði
grátmúrinn i Jerúsalem, baðaði
Sig við strendur Tel Aviv og lék
beduína i eyðimörkinni.
... að Rowan Atkinson væri orð-
inn leiður á herra Bean sem
hann hefur leikið siöan 1979. Það
er ekki sist vegna þess að sjálf-
um þykir honum gaman að tala
en herra Bean segir ekki orð.
Atkinson er einnig með bíladellu
en fær bara að keyra ryðgaðan
mlni í hlutverki Beans. Hann
kættist þvi þegar hann fékk að
leika aðalsmann með bíladeilu í
nýjum myndaflokki.
... að vel hefði farið á með Rac-
hel Hunter og Britt Ekland þegar
þær hittust á frumsýningu í Lon-
don á dögunum. Það sem þær
eiga sameiginlegt er Rod Stew-
art. Rachel Hunter er gift honum
en Britt Ekland bjó með honum
í mörg ár.
... að Diandra Douglas krefðist
nú forræðis yfir 1S ára syni sin-
um og Michaels Douglas.
Dlandra er búin að gefast upp á
kvennafari eiginmannsins sem
hún hefur verið gift í 18 ár. Auk
forræðis yfir syninum heimtar
hún að sögn milljarða króna.
... að í nýrri ævisögu sinni segði
Anthony Quinn frá því að hann
hefði átt vingott við Ingrid Berg-
man samtímis því sem hann var
í ástarsambandi við dóttur henn-
ar, Piu Lindström. Hvorug vissi
hvað um var að vera.