Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 44
I
56
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ1995
níllfl
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín
11 Fótbolti
2j Handbolti
3 [ Körfubolti
4! Enski boltinn
5 j ítalski boltinn
6 [ Þýski boltinn
7 j Önnur úrslit
8 NBA-deildin
1 [ Vikutilboð
stórmarkaðanna
21 Uppskriftir
1 j Læknavaktin
2 j Apótek
3 [ Gengi
1| Dagskrá Sjónvarps
2J Dagskrá Stöðvar 2
31 Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
; 5[ Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
j Tónlistargagnrýni
8 [ Nýjustu myndböndin
1\ Krár
21 Dansstaðir
3|Leikhús
4 | Leikhúsgagnrýni
_5J Bíó
6 j Kvikmyndagagnrýni
1\ Lottó
2 Víkingalottó
3| Getraunir
AÍllH
llll
904-1700
Verð aöeins 39,90 mín.
Menning
Galliard í Hlaðvarpanum
Tónleikar voru haldnir í Kafílleikhúsinu,
Hlaðvarpanum, sl. miðvikudag. Þar kom fram
hópur ungs fólks sem kallar sig Endurreisnar-
flokkinn Galliard, enda er hér um að ræða tón-
listarhóp sem ætlar að sérhæfa sig í flutningi
endurreisnartónlistar. Hópurinn er skipaður
þeim Birnu Helgadóttur, sópran, Guðrúnu Eddu
Gunnarsdóttur, alt, Erni Arnarsyni, tenór,
Tórúist
Askell Másson
Finni Bjarnasyni, bassa, og Arngeiri Heiðari
Haukssyni, lútuleikara, sem reyndar syngur
einnig þegar svo ber undir.
Hljómburðurinn í Kafíileikhúsinu er bæði sér-
kennilegur og í raun alltof þurr fyrir þessa teg-
und músíkur og gerði það hópnum erfitt fyrir
með „debút“ sitt hvað hljóminn varðar, en á
móti kom reyndar sérstök stemning hússins sem
t.d. býður upp á mikla nálægð við flytjendur.
Þessa nálægð nýttu flytjendurnir sér ágætlega
og voru m.a. með bæði skemmtilegar og fróðleg-
ar kynningar á efnisskrá sinni. Byijað var á
lútusöngvum Johns Dowlands úr First Book of
Airs og var mest sungið fjórradda. Einnig lék
Amgeir Pavan og Galliard á lútuna. Hópurinn
er greinilega skipaður hæfileikaríku tónlistar-
fólki og bendir þessi ágæta byijun þeirra tii
þess að þau hafi erindi til sérhæfingar í flutn-
ingi endurreisnartónlistar.
Eftir lútusöngva Dowlands fluttu þau madrig-
al eftir Orlando Gibbons og sungu fimmraddað,
Galliard-sönghópurinn.
en síðan kom eina lagiö á efnisskránni sem ekki
er talið vera samið á tímabilinu frá 1590-1610
og var það The Cares of Lovers eftir Henry
Purcell. Purceli á að hafa samið þetta lag í júní
fyrir réttum þrjú hundruð árum, en þeirrar
ártíðar hans er nú víða minnst og var svo einn-
ig hér með þessum hætti. Guðrún Edda altsöng-
kona flutti þetta mjög svo flúraða lag og var hún
bæði tónhrein og tónviss. Bassasöngvari hóps-
ins, Finnur Bjarnason, söng ennfremur Tobacco
Is Like Love eftir Tobias Hume og gerði bráð-
skemmtilega.
Eftir nokkur lög Dowlands flutti hópurinn
madrigala eftir Thomas Morley, m.a. Now Is the
Month of Maying sem var flutt meö skemmti-
legri tilfinningu fyrir textanum og af músík-
alskri nákvæmni. Voru þessir madrigalar Mor-
leys best flutti hluti efnisskrárinnar, en henni
lauk með vöggulagi eftir Pilkington, sem var
ljúflega flutt.
Andlát
Leikhús
Margrét Þórarinsdóttir frá Minna-
Knarrarnesi, Vatnsleysuströnd, lést
í Sjúkrahúsi Suðurnesja fimmtudag-
inn 27. júlí.
Sigurður B. Finnbogason rafiræð-
ingur, Mávahlíð 35, Reykjavík, and-
aðist 27. júlí á Hrafnistu í Reykjavík.
Tilkynningar
Sól Dögg á Akranesi
Hljómsveitin Sól Dögg mun spila á
skemmtistaðnum Pavarotti á Akranesi á
laugardagskvöld.
Myndlistarsýning á
hálendi íslands
í dag opnar Elias Hjörleifsson málverka-
sýningu í veitinga- og gistihúsinu á
Hrauneyjum við Hrauneyjafoss. Sýning-
in er samsett af olíumálverkum og verk-
um sem eru gerð á pappír. Sýningin
stendur út ágústmánuð.
Sýning í NLFÍ, Hveragerði
Á morgun kl. 15 opna Þorbjörg Pálsdóttir
og Hannes Lárusson sýningu í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði.
Hjónáband
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Stórasviðiðkl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
I kvöld 29/7, fáein sæti laus, fimmtud. 3/8,
fimmtud. 10/8, föstud. 11/8, laugard. 12/8.
Miðasalan er opin alla daga
nema sunnudaga, frá kl. 15-20
og sýningardaga til kl. 20.30.
Tekið er á móti miðapöntunum i sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar miðapantanir seldar sýning-
ardagana.
Gjafakort - frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Einkaumboð fyrir Uniroyal
TJARNARBIO
Söngleikurinn
JÓSEP
og hans undraverða skrautkápa
eftir Tim Rice
og Andrew Lloyd Webber.
Sunnud. 30/7, fjölskyldusýning kl. 17.00
(lækkaöverð).
Sunnud. 30/7 kl. 21.00, flmmtud. 3/8 -
miönætursýnlng kl. 23.30.
Miöasala opln alla daga i Tjarnarbíói frá
kl. 12.30-21.00. Miðapantanir
símar: 561 0280 og 551 9181, fax 551 5015.
„Það erlangtsíðan undirritað-
ur hefur skemmt sér eins vel í
leikhúsi. “
Sveinn Haraidsson,
leiklistargagnrýnandi Mbi.
Gúmmíviniiustofan hefur nú feng-
ið einkaumboð fyrir Uniroyal fólks-
og vörubílahjólbarða frá Evrópu. Af
því tilefni komu fulltrúar Uniroyal
til íslands og kynntu nýjungar í hjól-
barðaframleiðslu. Kynnt var ný lína
í vetrarhjólbörðum úr nýrri gúmmí-
blöndu sem gefur meira slitþol og
gerir hjólbarðana mjög hljóðláta.
Einnig voru kynnt sumardekk, sér-
hönnuð fyrir stöðugleika við ólíkar
aðstæður og hafa Norðmenn gefið
þeim nafnið „regndekk." Uniroyal
hjólbarðar hafa verið á íslenskum
vegum um árabil. Með tilkomu
einkaumboðs Gúmmívinnustofunn-
ar hefst nú beinn innflutingur frá
framleiðanda í Evrópu og hefur það
í för með sér verulega verðlækkun á
Uniroyal hjólbörðum.
Stórmót Bridgefé-
lags Sauðárkróks
Þann 1. júlí voru gefm saman í hjónaband
af séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni í Kópa-
vogskirkju Guðbjörg Ketilsdóttir og
Mikael Sigursteinsson. Heimili
þeirra er að Kópavogsbraut 85, Kópa-
vogi.
Ljósmyndastofa Reykjavíkur
Látum bfla ekki^O
vera í gangi aó óþörfu!' '
Utblástur bitnar verst
á börnunum
yU^FERDAR
Helgina 18.-20. ágúst stendur
Bridgefélag Sauðárkróks fyrir stór-
móti í bridge á Sauðárkróki. Mótið
samanstendur af barómeter-tví-
menningi, bikarkeppni sveita og eins
kvölds tvímenningi. Mótið hefst
klukkan 17.00 fóstudaginn 18. ágúst
og lýkur klukkan 18.00 sunnudaginn
20. ágúst.
Þátttökugjaldi er mjög stillt í hóf
og er aðeins 3.000 krónur fyrir mann-
inn allt mótið. Spilaö er um silfurstig
og veglega verðlaunagripi. Sú nýjung
verður í sveitakeppninni að lands-
liðsspilararnir Jón Baldursson, Sæv-
ar Þorbjörnsson, Guömundur Páll
Amarson, Þorlákur Jónsson, Matt-
hías Þorvaldsson og Jakob Kristins-
son verða til sölu og kostar hver spil-
ari 5.000 krónur.
Hótel Áning býður upp á svefn-
pokapláss í herbergi með aðgangi að
baði á kr. 1.500 nóttin og tveggja
manna herbergi á 3.380 krónur á
manninn. Einnig eru góð tjaldstæði
á Sauðárkróki. Flugleiðir bjóða upp
á hagstæö flugfargjöld vegna móts-
ins. Þar sem þátttaka er takmörkuð
borgar sig að skrá sig sem fyrst. Þátt-
tökugjaldið þarf að greiðast í síðasta
lagi 11. ágúst. Skráning og allar nán-
ari upplýsingar eru hjá Bridgesam-
bandi íslands í síma 5879360 og
Kristjáni Blöndal, hs. 4536146 og vs.
4535630.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
„JUJjraOAR