Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Side 5
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
5
DV
^ Erlendfélöghugleiðabílatryggingar:
1 Fyrst verður
að fækka
slysum
- segir forstjóri Tryggingar hf.
Halldór Sigurðsson er löggiltur
tryggingamiðlari sem vinnur hjá
N.H.K. Intemational Limited, alþjóð-
legri tryggingamiðlun sem aöallega
miðlar sjótryggingum, eigna-,
ábyrgðar- og flugvélatryggingum.
Halldór segir að N.H.K. hafi verið að
kanna að koma inn í bílatryggingar
á íslandi. Þær séu reyndar á gráu
svæði, fyrirtækið hafi ekki haft af-
skipti af persónutryggingum, slysa-
eða innbústryggingum. Það var fyrst
í mars á þessu ári sem trygginga-
miðlarar fengu leyfi til starfsemi hér,
samkvæmt EES-samningnum.
„Við vinnum fyrir þann sem vill
tryggja en tryggingafélögin greiða
okkur laun. Við vorum búnir að gera
rannsókn í vor sem gaf alveg sömu
útkomu og athugun FÍB.
Til þess að koma upp bílatrygging-
um þarf að koma upp tjónstöð. Síðan
urðum við varir við að bíleigendur
eru svo háðir tryggingafélögunum
hér að við töldum markaðsaðstæður
ekki gefa tilefni til þess.
Tryggingafélögin veita
lán til bílakaupa
Mjög algengt er að tryggingafélögin
veiti einstaklingum lán til bílakaupa.
og loki þar með hluta markaðarins.
Þegar tekið er lán er viðkomandi
skuldbundinn til að tryggja hjá sama
félagi. Bíleigendur virðast fastir á
klafa tryggingafélaganna. Mér finnst
spuming hvort þetta stangist ekki á
við samkeppnislög.
Við erum afskaplega ánægðir með
þennan áhuga hjá bíleigendum sem
við höfum ekki orðið varir við fyrr
og þessi nýja umræða kemur málinu
kannski af stað aftur,“ sagði Halldór
Sigurðsson tryggingamiðlari.
Ágúst Karlsson, forstjóri Trygging-
ar hf., var spurður álits á athugun
FÍB varðandi bifreiðatryggingarnar.
„Mér líst afskaplega vel á hana og
það er gott að fá umræður um þessi
mál nú. Ég er feginn að umræöan
kemur eftir slysahelgi þar sem skýrt
er frá því í fréttum að 16-17 manns
hafi slasast í Hvalfirði, 8-9 manns í
Mosfellsbæ og 5 á Keflavíkurvegin-
um og sumt af þessu slasaða fólki
þurfti að klippa út úr bílflökunum."
Grimmari lögfræðingar
- Heldurðu að meira sé um slys
hér en í samanburðarlöndunum?
„Á því er ekki nokkur vafi, við
höfum hka grimmari lögfræðinga og
hærri bætur eru greiddar fyrir minni
háttar líkamstjón en tíðkast erlendis.
Mér blöskrar hve há tryggingaið-
gjöldin eru sem við sendum út til
bifreiðaeigenda en meðan við keyr-
um eins og níðingar á gesti og gang-
andi og nánast hvað sem er er ekki
hægt að lækka þessi gjöld. Iðgjöldin
munu hækka vegna allra þessara
slysa. Það er ekki hægt aö bera svona
lítið þjóðfélag eins og okkar saman
við milljónaþjóðfélög."
- Nú koma Færeyingar nokkuð vel
út í athugun FÍB.
„Það er nú ekki að marka, það kem-
ur í blöðunum þar ef slys verða, þau
eru svo sjaldgæf."
Fullir á hestbaki
- Hver heldurðu að sé ástæðan fyrir
þessum tíðu slysum hér?
„Við vorum of lengi á hestbaki,
karlarnir voru fullir á hestunum og
treystu á að þeir kæmu þeim heim,
þar tók húsmóðirin á móti þeim og
kom þeim í bælið. Svo halda menn
að bíllinn hugsi fyrir þá eins og hest-
urinn en hann gerir það bara ekki.
Það vill enginn erlendis endur-
tryggja bíla á íslandi - fyrst verður
að fækka slysum. Trygging hf. er
búin að tapa á bílatryggingum í mörg
ár og gerir enn, aðrar tryggingar
ganga mun betur.“
- Hvað um sjóðina sem þið eruð
sagðir eiga?
„Við erum meö svo mikið af óupp-
gerðum tjónum, það er lengi verið
aö gera upp mál, sérstaklega örorku-
tjón sem oft tekur mörg ár að fá botn
í. Við þurfum að ávaxta peningana
sem við höfum til að borga síðar til
sjúklinga sem slasast. Við reynum
að ávaxta þá peninga eins vel og við
getum. Það er sama hvaða trygginga-
grein spurt er um, hún verður að
Fréttir
Samanburður FIB á bílatryggingum í
nokkrum löndum
Grunniðgjöld ábyrgðartryggingar
- Meðaliðgjald án afsláttar í eitt ár -
Island |
FinnlandT 148.500
Lúxemborg I' ' ~l 47.939
Noregur I ~l 47.328
Færeyjar | 137.804
Svíþjóð I 124.640
78.826
'fc. .. sSáw-
Kostnaður við að tryggja Toyota Corolla í eitt ár
- Ábyrgðar-, slysa-, framrúðu- og kaskótrygging með ca 30 þús. króna sjálfsáhættu vegna kaskó-
tryggingar. Ársakstur 15 þús. km, eigandi fertugur og tjónlaus meö búsetu í 150 þús. manna borg -
56.150 56.181 57.104 58.091 56.181 „1S1 55.942
40.400 gg ■ É É ■ ■ É H
29.600 33 32°
22.500 r~—j
■ ii
*
v®-' <4?
^ </ V <4^
Heimild: Félög bifreiöaeigenda í viökomandi löndum.
w ## ^
SF1
&
w
%
DV
standa undir sér með eðhlegum hætti
og það er óhugsandi að bílatrygging-
ar geri það í sjáanlegri framtíð."
- Heldurðu að ökukennslan sé nógu
góð hérna?
„Nei, langt frá því, ef maður spyr
ungling hvað hann hafi tekið marga
kennslutíma segir hann gjarnan 8 til
10 og hælir sér af. Það er auðvitað
augljóst aö það er ekki nóg.
Þegar unglingarnir fara síðan út í
umferðina'er langt frá því að þeir
hafi næga þjálfun enda eru það ung-
ir ökumenn sem valda flestum tjón-
um,“ sagöi Ágúst Karlsson.
Innflutníngur hjálpar
ekki íslenskum
heimilum - Við höhm
reynsluna afCFTA!
Veljum ÍSLENSKT.
Herra- oq dömustell.
18 gira, verð frá kr. 20.900, sfgr. 19.855
21 gírs á alls konar verði.___y/
Topp merkin:
GIANT* SCOTT* BRONCO • SCHWINN
EUROSTAR • DIAMOND • ITALTRIKE • VIVI
Á FRÁBÆRU VERÐI!
Innkaupatöskur
á bögglabera,
verð kr. 2.900.
Bastkörfur,
þrjár gerðir,
verð kr. 790-1990,
stór karfa með
festingu á fjallahjól
kr. 2.900.
DÖMUHJOL
Verö frá kr. 3
450.
Án gíra, verð frá kr. 19.500 stgr. 18.522.
3.gíra, verð frá kr. 23.900, stgr. 22.705 (mynd)
18 gíra með öllu, verð frá kr. 28.900, stgr. 27.455.
Varahlutir og aukahlutir:
hjálmar, grifflur,
barnastólar, Ijós,
bjöllur, brúsar,
töskur, slöngur,
hraðamælar,
og flest
sem vantar
Kreditkort og greiðslusamningar
Ármúla 40
Símar: 553 5320
568 8860
l/erslunin
t annað Æ Æ Æ p
ntar á hjólið. j 'j IjK IJr
mmmmmáamammÆ W
BARNAHJÓL
Verb frá kr. 9.600,
stgr. kr. 9.120.
Um 150 mismunandi tegundir, stærðir
og litir af reibhjólum.
Vöndub og traust hjól frá vibur-
kenndum framleibendum.
Hjólin eru afhent samsett og stillt af
fullkomnu reibhjólaverkstæbi.
Á okkar hjólum er eins árs ábyrgb og
ókeypis upphersla eftir einn mánub.
RU BÚÐ AF