Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 / 21 Unga fólkið streymir á útihátíðimar: Margir ætla á Uxahátíð á Klaustri Kom meo á hagstæðum kjörum við allra hæfi. Nýi bæklingurinn kemur út á þriðjudaginn. Náóu þér í bækling á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboósmönnum eöa á feróaskrifstofunum. Verslunarmannahelgin, mesta ferðamannahelgi ársins, er að heíj- ast. Að venju eru skipulagðar útihá- tíðir á landsbyggðinni og þangað flykkist fólk í þúsundatali. í ár eru venju fremur fáar stórhátíðir og ekki nema þijár útihátíðir sem búa sig undir að taka á móti stórum hópum fólks. Þjóðhátíð í Eyjum er alltaf fastur punktur í tilverunni og mótshaldar- ar þar verða eflaust óánægðir ef tala gesta fer ekki að minnsta kosti yfir fimm þúsund. Bindindismótið í Galtalæk á dyggan stuðning fjöl- skyldufólks og hefur sjaldan brugð- ist. En það sem flestir virðast tala um nú er „Uxi“, tónleikahátíð sem haldin er á Kirkjubæjarklaustri. Svo virðist sem straumur fólks, aðaliega í yngri kantinum, liggi að mestu þangað. Enda er þar margt sem trekkir, íslenska alþjóðastjam- an Björk verður meðal gesta og fjöld- inn allur af íslenskum og erlendum poppsveitum. Veðurspáin spillir varla fyrir þó aö ekki sé búist við mikilli sól. Um leið og fréttist að straumurinn liggi á ákveðinn stað magnast bylgjan enn frekar með snjóboltaáhrifum og það virðist að einhveiju leyti eiga við um Uxahátíðina á Klaustri í ár. Blaða- maður hitti nokkra unglinga á aldr- inum 15-17 ára hjá Vinnuskóla Reykjavíkur að skógræktarstörfum í Heiðmörk og ræddi við þá um áætl- anir fyrir komandi helgi. Nikkan með í för „Ég fer á Uxa, það er engin spurn- ing. Það er allt of sjaldgæft núorðið að maður geti barið svona margar góðar sveitir augum á einum stað og ég læt það ekki fram hjá mér fara. Ég fer með rútuferðum BSÍ á hátíð- ina,“ sagöi Pétur Jökull Jónasson. „Ég er svo heppinn að fá far meö kunningjum mínum í bíl en auðvitað fer ég á Uxa, það er engin spurn- ing,“ sagði Sigurbjörn Orri Ólafsson. „Ætli maður taki ekki með sér sviða- kjamma, harðfisk og hákarl í nesti og einhverja drykki þarf maður víst að hafa með sér. Þó að það sé mikið af góðum hljómsveitum á svæðinu ætla ég að taka harmoníkuna með mér,“ sagði Sigurbjörn. „Ég fer á Uxa af því að straumurinn liggur þangað, þaö eru allir að fara þangað. Þetta er reyndar í fyrsta sinn sem ég fer á útihátíð um verslunar- mannahelgi," sagði Edda Kristins- dóttir. „Það verður mjög gaman að sjá Björk á Uxa en maður fer ekki ein- göngu út af henni því það verður fullt af öðrum góðum sveitum á Kirkjubæjarklaustri. Ég fer þangaö í bíl með vinum mínum. Vinirnir í mínum hópi skemmta sér væntan- lega án áfengis,“ sagði Harpa Ingólfs- dóttir. Einhverjir í hópi unglinganna í Heiðmörk höföu reyndar ekki gert ráð fyrir því að fara neitt út úr bæn- um. Sumir höíðu á orði að þetta væri of dýrt dæmi fyrir þá og hugð- ust eyða aurunum í annað. Harpa Sævarsdóttir var þó ekki á því og gat ekki hugsað sér að sleppa Uxahátíð- inni. Aðspurð hvort það væri ætlun- in að taka með sér einhverja sterkari drykki en te og gosdrykki sagði Harpa: „Það er bannað að spyrja unglinga sem ætla á útihátíðir svona spurninga." -ÍS FLUGLEIDIR Traustur íslenskurferðafélagi Pétur Jökull Jonasson og Sigurbjörn Orri Ólafsson ætluöu ekki að láta Uxahátíðina á Kirkjubæjarklaustri fram hjá sér fara. DV-myndir JAK Edda Kristinsdóttir, Harpa Ingólfsdóttir og Harpa Sævarsdóttir voru ákveðn- ar i þvi að fara á Uxa til að berja Björk og aðra listamenn augum og komast í góðan félagsskap jafnaldra sinna. ngju! Viö óskum vinningshafanum, sem vann rúmlega ~7, 6 milljónin knóna á laugandaginn var, til hamingju. Miðinn var seldur í Keflavík. Er röðin komin að þér? ^í>Ubúmirt»öfáÞérn,Í!a? Sendum landsmönnum bestu kveðjun á fnídegi venslunanmanna! -alla laugardaga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.