Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 11 Utlönd Friðarviðræður Krajina-Serba og stjómvalda í Zagreb fóm út um þúfur: Allsherjarstríð haf ið milli Króata og Serba Mikill fjöldi serbneskra flóttamanna er nú samankominn í bænum Banja Luka vegna sóknar stjórnarhers Króatíu gegn uppreisnarmönnum Serba I Krajina-héraði í Króatiu. Simamynd Reuter dv Stuttar fréttir Lyfgegnalnæmi Nýjar rannsóknir benda til þess aö „lyfjakokkteiH" úr samblandi af AZT og 3TC reynist betur i baráttunni gegn alnæmi en hvort lyf um sig. Jeltsínséstáný Boris Jeltsín, forseti Rússlands, lýsti því yfir í ræðu aö hann væri bjartsýnn á friðsamlega lausn deilunnar um Tsjétsjeníu en það var í fyrsta sinn sem Jeltsín sést opinberlega eftir vægt hjarta- áfall. Carter og Björk Jimmy Cart- er, fyrrum Bandaríkjafor- seti, veröur heiðursgestur á breskri listahá- tíð sem haldin verður í Wales þann 11. ágúst. Meðal annarra gesta á hátíðinni má telja Saiman Rushdie, Saul Bellow og Björk. Andsvar Frakka Frakkar svöruðu fyrir sig vegna mótmæla Ástrala gegn kjarnorkutilraunum þegar þeir kváðust mundu endurskoða marga viðskiptasamninga land- anna. Rifta ekkí samningum Ástralskir embættismenn sögð- ust sannfærðir ura að Frakkar myndu ekki rifta samningum um kolakaup og kaup á úraníum frá Ástralíu. Krefjastafsagnar Stjórnarandstæðingar Ernest- o’s Samper Kólumbíuforseta skora á hann aö segja af sér vegna þess að hann er talinn hafa þegið fé af kókaínbarónum. Ofbeldishrina Að minnsta kosti 22 hafa verlö drepnir í ofbeldishrinu í Karachi, höfuðborg Pakistans. Einangrunarstefna Warren Christopher, utanríkisráð- herra Banda- ríkjanna, hefur 'áhyggjur af þvi aö vaxandi ein- angrunarstetna Bandaríkjanna og spamaðaráform muni draga úr áhrifum landsins í Asíu. Þrælahald í Ameriku Sjö menn eiga yfir höföi sér ákæru í Bandaríkjunum vegna innflutnings á Tælendingum sem látnír vom vinna fyrír smánar- laun í fataverksmiöjum. Smygl á kjamorku Smygl á efnum til kjamorku- framleiðslu frá fyrmm Sovétríkj- unum hefur aukist mjög frá árinu 1994 og er orðin alvarleg ógnun við heimsfriðinn. Sprengja í Kína Heimatilbúin sprengja nítján ára unglings sprakk á markaði i borginni Guangzhou í Kína og slasaði þrjá lífshættulega. Reuter Króatíski herinn hefur hafið stór- sókn yfir vopnahléslínur Sameinuðu þjóðanna gegn uppreisnarmönnum Serba í Krajina-héraði eftir að friðar- viðræður þeirra fóru út um þúfur í Genf í Sviss í gær. Svo virðist sem Króötum hafi orðið nokkuö ágengt á fyrstu klukkustundum stríðsins. Friðargæsluliðar SÞ í Krajina sögðu aö stórskotaliössveitir Króata hefðu gert árásir á héraðið í dögun í morgunog að króatískt fótgöngulið og skriðdrekasveitir hefðu fylgt á eftir og gert árásir úr bæði noröri og vestri. Formælandi Sameninuðu þjóö- anna sagði að tuttugu króatískir skriðdrekar æddu í austurátt frá bænum Gospic yfir „aöskilnaðar- svæði“ SÞ og inn á Medak-svæðið sem er 65 kílómetra norðvestur af höfuðvígi Krajina-Serba í bænum Knin. Heimildarmenn innan króatíska stjórnkerfisins sögðu að megin- markmið sóknarinnar væri að gera flugskeytaskotpalla Serba, sem beint er gegn höfuðborginni Zagreb aðeins fimmtíu kilómetrum norðar, óvirka. Allt var með kyrrum kjörum í Zagreb í morgunsáriö. Stórskotaliðsbyssur króatíska stjórnarhersins létu skothríðina dynja á Knin og yfirmaður sveita SÞ þar sagði að svo virtist sem mann- fall hefði orðið í bænum. Ríkissjónvarpið í Króatíu lék ætt- jarðartónlist og Franjo Tudjman for- seti útvarpaði orðsendingum til Krajina-Serba, en uppreisn þeirra 1990-1991 varð upphafið að átökun- um í fyrrum Júgóslavíu, og sagði þeim að gefast upp gegn því aö þeim yrði veitt sakaruppgjöf. „Króatíska ríkið hefur neyðst til að grípa til hernaðaraðgerða til þess aö innlima aftur hernumiö land eftir Fjórðabarnið finnstmyrtíBret- landiáeinniviku Þrettán ára gamall drengur fannst myrtur á golfvelli á Norður-írlandi í gær, fjórða barnið sem myrt er í Bret- landi á einni viku. Það var belgískur ferðamaður sem fann nakið lík pilts- ins, Darrens Fawns, sem haföi verið saknað í þrjá daga. Annar skólapiltanna tveggja, sem voru myrtir um síðustu helgi í norð- vesturhluta Englands, var kyrktur en hinn var stunginn til bana. Þetta kom fram við réttarrannsókn í gær. Steven Heaney, 36 ára gamall verka- maður í verksmiðju, hefur verið ákærður fyrir morðin á piltunum tveimur. Maður, sem lögreglan í Wales yfirheyrði í tengslum við morðið á hinni sjö ára gömlu Sophie Hook, var látinn laus i gær en handtekinn strax aftur vegna annars máls. Morðin á börnunum hafa valdið miklu uppnámi meðal bresku þjóðar- innar. Reuter að allar tilraunir okkar til friðsam- legrar sameiningar, þar á meöal við- ræðurnar í Genf í gær, báru ekki árangur," sagði Tudjman. „Ég hvet sveitir Serba til að leggja niður vopn og gefa sig á vald króat- ískum yfirvöldum, með tryggingum fyrir þvi að þeim verður veitt sakar- uppgjöf í samræmi við króatísk lög.“ Bardagarnir í nótt og morgun hóf- ust aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Öryggisráð SÞ hvatti deiluað- ila til að forðast allsherjarstríð. Króatíustjórn hafði búið sig undir átökin með því að safna saman eitt hundrað þúsund manna liði með- fram vopnahléslínunni og með því að hertaka stór landsvæði Serba í Bosníu í síðustu viku. Hervé de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, fór í skyndingu heim frá fyrrum Júgóslavíu í morg- un án þess að hitta Franjo Tudjman Króatíuforseta að máli, eins og fyrir- hugað var. Reuter InnHutningur hjálpar ekki íslenskum - Við höfum reynsluna afEFTA! Veljum ISLENSKT. 25 ára 1991 Opið alla virka daga, laugardaga og sunnudaga kl. 8-21 Grunnfúavörn Metró verð frá kr. 3621. Terpentína Metró verð frá kr. 1431. Metró innimálning 10% glans, verð frá kr. 5951. Pallaolía, ljósgræn Metró verð frá kr. 4731. METRÓ - Málarinn, Skeifunni 8, sími 581 3500 JMlMnitó miðstöð heimilanna Metró útimálning Verð frá 585 1. Filtteppi Metró verð frá kr. 385 ferm. - Hallarmúla 4, sími 553 3331

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.