Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 Skák Síðasta vígið fallið Fyrir sjö árum fylgist þjóöin agndofa meö einvígi Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsnoj í Saint John í Kanada þar sem Jó- hann hafði sigur eftir afar spenn- andi baráttu. Eins og vera ber í slíku einvigi gekk á ýmsu, jafnt utan skákborösins sem innan. Frægt var t.a.m. þegar Kortsnoj blés tóbaksreyknum framan í Jó- hann er tímahrakið var í algleym- ingi þrátt fyrir reykbann við skák- borðiö. Þykkur tóbaksreykur hefur löng- um þótt einkenna langar setur við skákborð, eins og gjarnan má sjá á gömlum ljósmyndum. Fremstu skákmeistarar aldarinnar hafa heldur ekki bætt ímyndina; Emanuel Lasker með vindilinn öll- um stundum og síðar kappar og keðjureykingamenn eins og Tal og Kortsnoj. Nú er reykingabann við skák- borðið samkvæmt FIDE-reglum en mótshöldurum er þó gert að sjá til þess að tóbaksfíklar fái afdrep í sjónlínu við taflborðið til að stunda vafasama iðju sína. Þeir sem ekki reykja fá því loks að sitja í hreinu lofti og þykir öllum sjálfsagt, jafnt þeim sem reykja og hinum sem anda. Kortsnoj ánetjaðist tókbaksfíkn- inni fyrir yfir fjörutíu árum. í ný- legu viðtah í þýska skákritinu Schach sagði hann að sér hefði á stundum fundist sígarettan samof- in hugsuninni; aö hann ætti hæg- ara með að einbeita sér með vindl- ing í hönd. Svo fann hann verk fyr- ir brjósti einn góðan veðurdag fyrir skemmstu og ákvaö á stundinni að drepa í síðustu sígarettunni. Kortsnoj er sem sagt hættur að reykja og þykir þá mörgum skák- unnandanum siðasta vígi tóbaks- trúarinnar falliö. Ekki síst ef haft er í huga aö svo virðist sem Kortsnoj hafi aldrei teflt betur en eftir að þokunni létti. Fyrr á árinu sigraði Kortsnoj á sterku móti í San Francisco og i vor varð hann einn efstur á stór- móti í Madrid, af 16. styrkleika- flokki FIDE, en skákmót gerast vart öllu sterkari - meðalstig 2629 á Elo-kvarða. Kortsnoj þakkaði raunar ekki einvörðungu hreina loftinu sigurinn - nefndi einnig skokk og skíðagöngu og svartan kavíar við morgunverðarboröið. Kortsnoj hefur ávallt verið ákaf- lega kraftmikill skákmaður sem vílar ekki fyrir sér að taka áhættu og hefur ímugust á stórmeistara- jafnteflum - teflir allar skákir til vinnings. Enn teflir hann frísklega þótt kominn sé af léttasta skeiði. Lítum á sína hvora skákina frá mótunum í San Francisco og Madrid. Fyrst óvenjulegá skák Kortsnojs við stórmeistarann Ro- bert Hubner, sem varð að játa sig sigraðan með hvítu eftir aðeins 18 leiki. San Francisco 1995 Hvitt: Robert Hubner Svart: Viktor Kortsnoj Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 RfB 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Db6!? Ætlun svarts er að seilast eftir „eitraða peðinu" eftir 9. Dd2 Dxb2, sem leiðir til tvísýnnar baráttu. 9. Rcb5 a6 10. Rf5 Bc5 11. Bxc5 Dxc5 12. Rbd6 + Kf813. Dh5 Rd814. Rxg7 Þessi fórn er frá enska stórmeist- aranum og stærðfræðidoktornum John Nunn komin. Eftir 14. - Kxg7 15. Dg5+ Kf8 16. Dh6+ Ke7 17. Df6+ Kd7 18. Dxh8 Db4+ 19. c3 Dxb2 20. Bb5 + ! axb5 21. 0-0 náði Nunn betri stöðu gegn Zuger á skákmóti í Sviss fyrir fimm árum. Kortsnoj hefur náð að endurbæta þessa skák. 14. Db4 + ! 15. c3 Dxb2 16. Hdl Dxc3+ 17. Hd2 E A iAá A tbi * A A # §11 A A 2 A A & A n ABCDEFGH 17. - h6!! Með því að koma í veg fyrir aö drottning hvíts hreiðri um sig í ógnandi stöðu á h6 hrindir Umsjón Jón L. Árnason Kortsnoj frekari sóknaraðgerðum. Auðvelt er að láta sér sjást yfir svo lítinn og „ómerkilegan" peðsleik sem þó breytir stööunni í einni svipan. Hvíta staðan er einfaldlega töpuð. 18. Rge8 Re4 - Og Hubner taldi réttast að gef- ast upp. Madrid 1995 Hvitt: Viktor Kortsnoj Svart: Nigel Short Nimzo-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 b6 5. Re2 Ba6 6. Rg3 c5 7. d5 (M) 8. e4 He8 9. f3 d6 10. Be2 exd5 11. cxd5 Bxe2 12. Rxe2 b5 13. 0-0 a6 14. a4 Rbd7 15. axb5 Db6 16. bxa6 Hxa6 17. Hxa6 Dxa6 18. Rg3 Re5 19. Bg5 Rfd7 20. f4 Rc4 21. De2 f6 22. Bh4 Bxc3 23. bxc3 Da4 24. Hbl Rcb6 25. h3 g6 26. Dg4 Dc2 27. Hxb6! Rxb6 28. BxfB Kf7 29. Dh4! h6 30. fo Hg8 8 7 6 5 4 3 2 1 31. Bd8! Ddl+ 32. Kh2 g5 33. Dxh6! Hxd8 34. f6 Hg8 35. Dh7+ Kxf6 36. Dxg8 - Og þótt textaleikurinn sé vissu- lega síðri en 36. e5+ dxe5 37. Re4 mát, gafst Short upp. i % i iii i A m & & « A 4) A A ABCDEFGH Matgæðingur vikunnar Matarmikil súpa og salat Sigríður Halblaub, fyrrverandi tækniteiknari og húsmóðir í Breið- holti, er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. „Þó að réttirnir hjá mér séu ekki séríslenskir er ég af- skaplega hrifin af gamalli íslenskri matargerð, því súrmeti er afskap- lega hollur matur,“ sagði hún. „Uppskriftin, sem fer hér á eftir, er uþprunalega indversk og síðan koma tveir grænmetisréttir, enda er mikiö notað grænmeti á mínu heimili. Ég reyni að nota mikið ís- lenskt grænmeti í mína rétti.“ Mulligatawnysúpa -fyrir8-10manns 1 poki rauðar linsubaunir 1 kjúklingur 2-3 paprikur 2-3 gulrætur 2-3 tómatar 2 laukar 1 púrrulaukur 2-3 stengur sellerí 1/2 bolli rúsínur 1 dós tómatkraftur salt og pipar paprikuduft kj úklingakraftteningar Garam Masala karrí Ólívuolía Kjúklingurinn soðinn í 2 lítrum af vatni með' kjötkraftinum, salti Sigriður Halblaub. og pipar. Linsurnar soðnar í öðrum potti í 2 lítrum af vatni. Suðutími samkvæmt leiðbeiningum á um- búðum. Laukur skorinn smátt og soðinn í olíunni með karríinu. Allt saman ásamt öllu grænmetinu nið- urskornu og rúsínum sett saman við linsurnar og soöið áfram. Tóm- atkrafti og kryddi bætt í ásamt soð- inu af kjúklingnum og ef til vill meira af vatni. Bragðbætt meö rjóma. Súpuna má gjarnan setja í matvinnsluvélina, ef grænmetið er ekki smátt skorið, áður en kjúkl- ingurinn er settur smátt skorinn út í. Borið fram með heimabökuðu brauði og ef til vill hvítvíni. Kraft- mikil súpa sem gott er að borða þegar kalt er úti. Kínakálssalat Núna fæst gott nýtt íslenskt kína- kál og er salat úr því gott meðlæti með ýmsum réttum. Káliö skorið smátt og sett í skál og kryddað með Herbamare jurtakryddi (fæst í heilsubúðum og stórmörkuðum). Því næst er káhð stappað, til dæm- is með áhaldinu sem fylgir til að ýta ofan í hakkavéhna. Gott að láta bíða í ísskápnum í minnst 1/2 klst. Söxuð steinselja sett yfir áður en borið er fram. Annað gott salat er úr hráum rauðrófum. Ósoðin rauðrófa flysj- uð og rifin niður. Grænni ólívuolíu og safa úr sítrónu er blandað sam- an, kryddaö með Herbamare og hálfum smátt skornum lauk. Öllu blandað saman og látið bíða smá- stund í ísskápnum. í Austur-Evr- ópu er rauðrófan notuð mikiö í heilsufæði, ekki síst fyrir krabba- meinssjúka. Sigríður skorar á Sólveigu Ei- ríksdóttur, sem rekur matstofuna Grænan kost á Skólavörðustíg, að verða næsti matgæðingur. Að sögn Sigríðar lumar hún á mörgum góð- um uppskriftum. Eftir helgina má fá uppskriftina í símatorgi DV. Símanúmerið er 904-1700. Hmhlíðin Islenska lamba- kjötið og mjólkin - er í uppáhaldi hjá Viðari Oddgeirssyni, fréttaritara Sjónvarpsins Viðar Oddgeirsson, sem sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni, er fréttaritari ríkissjónvarpsins á Suðurnesjum. Fjölmargir hafa heyrt pistla frá Viðari en sjaldan séð manninn og kunna enn síður á honum nokkur deili. „Starf mitt sem fréttaritari hérna á Suðumesjum er alveg sérstak- lega líflegt og fjölbreytt," sagði Við- ar en hann myndar einnig töluvert fyrir Sjónvarpið fyrir utan frétta- ritarastarfiö. Fullt nafn: Viöar Oddgeirsson. Fæðingardagur og ár: 3. ágúst 1956. Maki: Edda Sólrún Einarsdóttir. Börn: Davíð, 16 ára, og Þórir, 11 ára. Bifreið: Dodge Aries 1989. Starf: Fréttaritari ríkissjónvarps- ins. Laun: Viðunandi. Áhugamál: íþróttir og stangaveiði. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Já, lítinn háskólavinning. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vinna með fólki sem kann til verka. Hvað fmnst þér leiðinlegast að gera? Strauja. Uppáhaldsmatur: íslenskt lamba- kjöt. Uppáhaldsdrykkur: Mjólk og kók. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Geir Sveinsson. Uppáhaldstímarit: Sportveiðiblaðiö. Viðar Oddgeirsson. DV-mynd Ægir Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Þær eru svo rosalega margar aö erfitt er að gera upp á milli. Ertu hlynntur ríkisstjórninni? Hlutlaus. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Körlu litlu, fósturbarn sem fiölskyldan á í Mexíkó. Uppáhaldsleikari: Alan Arkin. Uppáhaldsleikkona: Jamie Lee Curtis. Uppáhaldssöngvari: Anny Lennox. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tinni. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og íþróttir. Uppáhaldsmatsölustaður: Bautinn á Akureyri. Hvaða bók langar þig mest til að lesa? Enga sérstaka í augnablikinu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best: Rás 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- urður G. Tómasson á rás 2. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Geri ekki upp á milli þeirra á Sjónvarp- inu, þeir eru allir ágætir. Uppáhaldsskemmtistaður: Strikið í Keflavík og Kaffi Reykjavík. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Suður- nesjaliðin og þá sérstaklega Kefla- vík. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að halda því sem ég á og auka gæði þess eftir bestu getu. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Fara norður í land með fiöl- skylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.