Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 37
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 51 Afmæli Steingrímur J. Sigfússon Steingrímur Jóhann Sigfússon, al- þingismaður og varaformaður Al- þýðubandalagsins, Gunnarsstöðum í Svalbarðshreppi í N-Þingeyjar- sýslu en dvalarstaður hans er að Brekkuseh 19 í Reykjavík, er fertug- urídag. Starfsferill Steingrímur er fæddur á Gunnars- stöðum og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1976, B.Sc,- prófi í jarðfræði frá HÍ1981 og prófi í kennslu- og uppeldisfræði frá HÍ 1982. Steingrímur var vörubifreiða- stj óri sumrin 1978-82 og við j arð- fræðistörf og jafnframt íþrótta- fréttamaður hjá Sjónvarpinu 1982-83. Steingrímur hefur verið al- þingismaður frá 1983. Hann var landbúnaðar- og samgönguráðherra 1988-91. Steingrímur var formaður þing- flokks Alþýöubandalagsins 1987-88 og hefur verið varaformaður Al- þýðubandalagsins frá 1989. Hann var fulltrúi nemenda í skólaráði MA 1975-76, í stúdentaráði 1978-80 og hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörf- um innan ungmenna- og íþrótta- hreyfingarinnar. Steingrímur var í stjórnamefnd ríkisspítalanna 1983-87. Hann var kjörinn 1984 í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum um sameiginleg hagsmunamál. Steingrímur sat í Vestnorræna þingmannaráðinu 1986-88 og aftur frá 1991. Hann sat allsherjarþing SÞ1991. Fjölskylda Eiginkona Steingríms er Bergný Marvinsdóttir, f. 4.12.1956, læknir á röntgendeild Landspítalans. For- eldrar hennar: Marvin Frímanns- son, bifvélavirki á Selfossi, og Ingi- björg Helgadóttir, húsmóðir. Synir Steingríms og Bergnýjar: Sigfús, f. 29.11.1984; Brynjólfur, f. 23.3.1988; Bjartur, f. 4.8.1992. Systkini Steingríms: Kristín, f. 13.3.1949, framhaldsskólakennariá Akureyri; Jóhannes, f. 14.5.1953, bóndi á Gunnarsstöðum; Árni, f. 22.7.1957, tæknifræðingur á Akur- eyri; Ragnar Már, f. 20.10.1959, bóndi á Gunnarsstöðum; Aðalbjörg Þuríður, f. 18.7.1967, húsmóðir á Sauðárkróki. Foreldrar Steingríms: Sigfús A. Jóhannsson, f. 5.6.1926, bóndi á Gunnarsstöðum, og Sigríður Jó- hannesdóttir, f. 10.6.1926, húsfreyja. /Ett Sigfús er sonur Jóhanns, b. í Hvammi í Þistilfirði, Jónssonar, b. og skálds í Hávarsstöðum, Samson- arsonar. Móðir Sigfúsar var Kristín Sigfúsdóttir, b. í Hvammi, Vigfús- sonar, b. í Hvammi, Sigfússonar, b. í Hvammi, Jónssonar, bróður Kat- rínar, langömmu Gunnars Gunn- arssonar rithöfundar. Sigríður er dóttir Jóhannesar, b. á Gunnarsstöðum, bróður Sigríðar, ömmu Björns Teitssonar, skóla- meistara á Ísaíirði. Bræður Jóhann- esar voru Gunnar, skrifstofustjóri hjá Búnaðarfélaginu, og Davíð, faðir Aðalsteins orðabókahöfundar. Syst- ir Jóhannesar var Ingiríður, jmma Árna Haröarsonar söngstjóra. Syst- ir Jóhannesar var einnig Sigríður, móðir Bjarna ráðunautar og verk- fræðinganna Guðmundar og Stein- gríms Arasona. Jóhannes var sonur Árna, b. á Gunnarsstöðum, Davíðs- sonar, b. á Heiði á Langanesi, Jóns- sonar. Móðir Árna var Þuríður, systir Jóns á Skútustöðum, langafa Þórs Vilhjálmssonar hæstaréttar- dómara. Jón var einnig langaíi Magnúsar Torfasonar hæstaréttar- dómara, Jónasar Jónssonar búnað- armálastjóra og Hjálmars Ragnars- sonar tónskálds. Þuríður var dóttir Árna, b. á Sveinsströnd í Mývatns- sveit, bróður Kristjönu, móður Jóns Sigurðssonar, alþingismanns á Gautlöndum, forföður Gautlanda- ættarinnar. Árni var sonur Ara, b. á Skútustöðum, Ólafssonar. Móðir Steingrímur J. Sigfússon. Jóhannesar var Ambjörg Jóhann- esdóttir, systir Árna, föður Ingi- mundar söngstjóra. Móðir Sigríðar var Aðalbjörg, systir Árna læknis á Vopnafirði, og Guðmundar kaupfé- lagsstjóra, afa Ármanns kaupsýslu- manns og Halldórs Reynissonar, prests í Hruna. Guðmundur er afi Kára Eiríkssonar hstmálara. Aðal- björg var dóttir Vilhjálms, b. á Ytri- Brekkum á Langanesi, Guðmunds- sonar, og konu hans, Sigríðar Dav- íðsdóttur. Steingrímur er í ijallgöngu á af- mælisdaginn. 80 ára Einar Sölvi Elíasson, Miðstræti 8a, Neskaupstað. Sigurður Kristinsson, Snorrabraut56, Reykjavik. mmm mm : Jr ' 75 ara Sveinn Pétursson, Boðahlein4, Garðabæ. Hanneraðheiman. Þorsteinn Svardaugsson, Víðilundi 21, Akureyri. Eyrún Guðmundsdóttir, Stigahhð 41, Reykjavik. 70 ára Margrét Einarsdóttir, Holtagerði 64, Kópavogi. Eyjólfur Egilsson, Hverahlíðl3, Hveragerði. Jarþrúður Guðmundsdóttir, Jöldugróf 22, Reykjavík. 60 ára Óskar Jón Konráðsson, Viðjugerði 2, Reykjavík. Þórir Sigurðsson, Nýbýlavegi 80, Kópavogi. Helga Aðalsteinsdóttir, Vogabraut 18, Akranesi. Jóhanna Rakel Jónasdóttir, Háaleitisbraut 105, Reykjavík. Saga Helgadóttir, Þorgautsstöðum, Hvítársíðu- hreppi. Systir Theresia Margr., Bárugötu 2, Reykjavík. GrettirPálsson, Teigaseh 1, Reykjavík. GuðmundurB. Guðmundsson, Fjörugranda4, Reykjavík. 50 ára Óiafur Rey nir Ólafsson, Botnahliö 12, Seyðisfirði. Baldur Snævaxr Tómasson byggingafulltrúi, Kjartansgötu 23, Borgarbyggð. Kona hans er Lilja Sigriður Guð- mundsdóttir. Þau taka á móti gestum á sveita- setri sínu, Hofi í Ólafsfirði, á af- mælisdaginn. Sigríður S. Jóhannsdóttir, Hraunhólum 13a, Garðabæ. Sigursveinn Guðjónsson, Lyngum, Skaftárhreppi. Gísley A. Þorláksdóttir bankastarfs- maður, Hamragerði2, Akureyri. Maðurhennar er Kristinn Örn Jónssonöku- kennari. Þaueruaö heiman. Jóhannes Sigurðsson, Grettisgötu 66, Reykjavík. Sigurjóna Guðnadóttir, Presthúsum, Garði. Pálmi Sigurðsson, Klúku, Kaldrananeshreppi. Magnús Björgvinsson, Krókvelh, Garði. Guðrún Blöndal (á afmæli 8.8), Krummahólum 6, Reykjavik. Eiginmaður hennarerGylfi Magnússon. Þautakaámóti gestum í sum- arhúsiRarikí Grímsnesi sunnudaginn 6. ágústeftirkl. 17. 40ára Jórunn Sigríður Birgisdóttir, Heiðarbraut 7c, Keflavík. Gísli Hlíðberg Guðmundsson, löggiltur endurskoöandi, Bakkaseli 27, Reykjavík. Ámi Frimann Jónsson, Laugarásvegi 40, Reykjavík. Gunnar Helgi Emilsson, Aratúni 17, Garðabæ. Karl Viggó Karlsson, Lindarbergi 70, Hafnarfirði. Axelina Maria Garðarsdóttir, Amartanga 6, Mosfeilsbæ. Magnús Rúnar Pétursson, Kársnesbraut 105, Kópavogi. Guðný María Amþórsdóttir, Langholtsvegi 169,Reykjavik. Baldur Jón Vigfússon, Bogahlíð 14, Reykjavík. Alma Eydís Ragnarsdóttir, Grensásvegi 60, Reykjavík. Stefán Jóhannsson Stefán Jóhannsson ráðgjafi, 340 Ha- verlake Circle Apopka, FLA 32712, Bandaríkjunum, varð sextugur í gær. Starfsferill Stefán er fæddur í Reykjavík. Hann nam rafvirkjun við Iðnskól- ann í Reykjavík og lauk sveinsprófi 1957 og fékk meistarabréf tveimur árum síðar en meistari hans var Jón Sveinsson. Stefán útskrifaðist úr rafmagnsdeild Vélskóla íslands 1965 en fékk lágspennulöggildingu 1964. Hann útskrifaðist sem ráðgjafi í áfengismeðferö frá Hazelden í Min- nesota 1981, lauk BA1993 og MA 1994 frá University of America. Stefán starfaði hjá Ljósvakanum 1957-70, Stefáni Jóhannssyni hf. 1970-78, ráðgjafi á Vistheimihnu Vífllsstöðum 1976-80, ráðunautur hjá Áfengisvarnarráði Reykjavíkur 1981-83, meðferðarstjóri Ithica Place í Flórída 1983-84 og framkvæmda- stjóri Cornerstone Institute, Florida, frá 1984. Fjölskylda Stefán kvæntist 1980 seinni eigin- konu sinni, Marion C. Jóhannsson, f. 6.2.1935 í Bandaríkjunum. Stefán var áður kvæntur (1956) Sveinsínu Tryggvadóttur, f. 30.11.1935 í Reykjavík, d. 19.11.1987. Þau skildu. Foreldrar Sveinsínu: Tryggvi Bjarni Kristjánsson, f. 2.9.1900 í Ólafsvík, d. 22.8.1964, verkamaður, og Magn- fríður Sigurbjarnardóttir, f. 22.11. 1907 á Hellnum í Breiðuvíkur- hreppi, d. 1993. Börn Stefáns og Sveinsínu: Lára, f. 9.3.1957, tölvufræðingur, maki Gísli Gíslason framkvæmdastjóri, þau eiga tvö börn, Hildi Jönu, f. 17.8. 1976, og Gísla Tryggva, f. 22.10.1986; Fríður Birna, f. 4.10.1960, sölumað- ur, hún á tvö böm, Martein Öm, f. 10.12.1979, ogKatrínuÝr, f. 30.9. 1981; Jóhann Gunnar, f. 21.4.1964, sölustjóri, maki Sigrún Dóra Jóns- dóttir, þau eiga tvo syni, Davíð, f. Stefán Jóhannsson. 17.12.1983, og Stefán Gunnar, f. 21.12.1990. Systkini Stefáns: Ingibjörg, dans- kennari í Reykjavík, maki Helgi V. Jónsson lögfræðingur; Jóhann, sölumaður í Reykjavík. Foreldrar Stefáns: Jóhann Gunn- ar Stefánsson, f. 21.7.1908 á Hvammstanga, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Olíufélagsins hf., og Lára Jóhannsdóttir, f. 23.9.1910 í Sveinatungu í Norðurárdalshreppi, d. 19.2.1973. Ævar Þ. Sigurvinsson Ævar Þór Sigurvinsson netagerðar- meistari, Hringbraut 77, Keflavík, erílmmtugurídag. Starfsferill Ævar er fæddur og uppahnn í Keílavík. Hann gekk í Bamaskól- ann, Gagnfræðaskólann ogsíðan Iðnskólann í Keflavík og lauk námi þaðan 1969. Hann varð meistari 1978. - Ævar hefur unnið við netagerð frá árinu 1962, í Keflavík, Vestmanna- eyjum og á Siglufirði. Hann var einnig til sjós af og til en vinnur núna hjá Hampiöjunni hf. í Reykja- vík. Hann hefur alla tíð búið í Kefla- vík nema árin 1977-1985, þá bjó hann í Garði. Ævar er meðeigandi með Ómari Einarssyni í mb. Skúmi KE122. Fjölskylda Ævar kvæntist 27.11.1965 Jennýju Steindórsdóttur, f. 25.12.1947, hús- móður. Þau slitu samvistum. For- eldrar hennar: Steindór A. Stein- dórsson og Elsa Guðmundsdóttir í Reykjavík. Sambýhskona Ævars er Bára Hauksdóttir, f. 9.1.1954, frá Stykkishólmi. Börn: Júlía Elsa, f. 21.5.1966, maki Ómar Ö. Borgþórsson, f. 29.12.1964, börn þeirra eru Jenný Hildur, f. 6.11. 1989, og Sunneva, f. 25.5.1994; Dag- björt Þórey, f. 23.11.1968, maki Hall- grímurl. Sigurðsson, f. 19.11.1965, börn þeirra eru Davíð Örn, f. 7.10. 1986, og Sigurður Þór, f. 30.9.1994; Franklín Steindór, f. 6.12.1970. Systkin Ævars: Guðfmnur, f. 6.7. 1936, skrifstofustjóri hjá Flugum- sjón í Keflavík; Agnar Breiðfjörð, f. 1.11.1940, flugvirki í Lúxemborg; Bergljót Hulda, f. 13.8.1942, húsmóð- ir í Mosfellsbæ; Ólafur, f. 21.12.1947, d. 7.8.1977, rakari, síðan lögreglu- maður á ísafirði; Ástríður Helga, f. Ævar Þór Sigurvinsson. 12.9.1953, húsmóðir í Keflavík; Páll Breiðfjörð, f. 22.12.1955, matsveinn í Danmörku. Foreldrar Ævars: Sigurvin Breið- fjörð Pálsson, f. 20.3.1910, d. 7.7.1987, vélstjóri og Júlía Guðmundsdóttir, f. 1.7.1915, húsmóðir. Þau bjuggu í Keflavík. Fööurætt Ævars Þórs er Helga- fellsætt (Stykkishólmi) og móður- ættin frá Eyrarbakka. Helga Ámadóttir Helga Arnadóttir húsmóðir, Vestur- götu 17a, Reykjavík, verður sextug á sunnudaginn. Fjölskylda Helga er fædd í Vestmannaeyjum en ólst upp í Ölfusinu og í Reykja- vík. Hún var í Húsmæðraskólanum áLaugarvatni. Maður Helgu var Sverrir Úlfsson, f. 10.11.1937, bifreiðarstjóri, þau skildu. Foreldrar Sverris: Úlf Jóns- son lögfræðingur og Vilborg Kol- beinsdóttir kennari, þau eru bæði látin, þau bjuggu á Ljósafossi. Böm: Ragna, húsmóöir í Borgar- firði, hún á tvö börn, maður Rögnu er Guðmundur Árnason; Kolbeinn, bifreiðarstjóri í Reykjavík. Systkini Helgu: Sigurður Kristján, f. 20.9.1925, húsasmíðameistari á Seltjarnarnesi; Ragnar Guðbjartur, f. 24.9.1926, verkamaður í Þorláks- höfn; Magnea Sveinbjörg, f. 12.9. 1930, húsmóðir í Reykjavík; Sigrún, f. 25.1.1932, búsett í Reykjayík; Ragnhildur, f. 6.8.1938, sjúkraliði í Reykjavík. Foreldrar Helgu: Árni Magnús- son, f. 17.2.1902, d. 1.10.1961, bóndi og sjómaður, ogHelga Sveinsdóttir, f. 10.8.1900, d. 2.8.1994, húsmóðir. Helga Arnadóttir. Þau bjuggu að Kröggólfsstöðum í Ölfusi og síðar í Þorlákshöfn. Helga verður að heiman á afmæl- isdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.