Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 38
54 FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 Afmæli DV Dóra Guðbj artsdóttir Dóra Guöbjartsdóttir. húsfreyja og ekkja Ólafs Jóhannessonar forsæt- isráöherra. Aragötu 13. Reykjavík. er áttræöídag. Starfsferill Dóra er fædd aö Laugavegi 30b í Reykjavík og ólst upp í höfuðborg- inni en hún var mörg sumur í sveit í Kollsvík á Rauöasandi hjá fööur- frændum sínum. Dóra varð gagn- fræðingur frá Gagnfræöaskóla Reykjavíkur 1932 og stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1935. Hún lauk prófi í forspjallsvísindum og sótti tíma í efnafræði fyrir lækna- stúdenta. Dóra starfaöi á atvinnudeild Há- skólans að loknu námi og þar til hún giftist. Dóra hefur starfað mikið í Fram- sóknarflokknum oger m.a. einn af stofnéndum Félags framsóknar- kvenna í Reykjavík. Hún hefur einnig starfað í Thorvaldsensfélag- inu. Fjölskylda Dóra giftist 21.6.1941 Ólafi Jó- hannessyni, f. 1.3.1913, d. 20.5.1984, lögfræðingi, prófessor, alþingis- manni og ráðherra. Foreldrar hans: Jóhannes Friðbjarnarson, bóndi og kennari, og kona hans Kristrún Jónsdóttir, húsfreyja. Börn Dóru og Ólafs: Kristrún, f. 6.3.1942, kennari við Vesturbæjar- skólann í Reykjavík, gift Einari G. Péturssyni, handritafræðingi við Árnastofnun, þau eiga tvo syni, Ólaf Jóhannes laganema og Guðbjart Jón menntaskólanema; stúlka, f. 15.3.1944, dó skömmu eftir fæðingu; stúlka, f. 15.3.1944, dó skömmu eftir fæðingu; Guðbjartur, f. 6.11.1947, d. 2.2.1967; Dóra, f. 22.3.1951, gjald- keri hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Systkini Dóru: Jón, f. 23.10.1913, d. 16.4.1979, framkvæmdastjóri hjá Kristjáni Ó. Skagtjörð, var kvæntur Unni Þórðardóttur, þau eignuðust tvö börn; Ólafur Hafsteinn, f. 23.3. 1917, húsgagnasmiður og bóndi í Kollsvík á Ráuðasandi, síðar búsett- ur í Reykjavík, var kvæntur Sól- rúnu Önnu Jónsdóttur, látin, þau eignuðust átta börn; Jóhanna Júl- íana, f. 26.9.1918, d. 11.2.1982, hús- freyja í Reykjavík, var gift Jean Emil Claessen, látinn, stórkaup- manni, þau eignuðust fjögur börn; Benedikt Ársæll, f. 1.1.1924, stýri- maður í Reykjavík, kvæntur Mar- gréti Maríu Pétursdóttur, þau eiga fjögurbörn. Foreldrar Dóru: Guðbjartur Ólafs- son, f. 21.3.1889, d. 15.5.1961, skútu- og togaraskipstjóri, hafnsögumaöur og forseti SVFÍ í nærri 20 ár, og kona hans, Ástbjörg Jónsdóttir, f. 25.8.1888, d. 1.11.1963, húsfreyja. Guðbjartur, sem var frá Keflavík í Rauðasandshreppi, var af Kollsvík- urætt en Ástbjörg, sem var frá Akranesi, var af Klingenbergs- og Deildartunguætt. Dóra tekur á móti gestum á heim- Dóra Guðbjartsdóttir. ili sínu frá kl. 16-19 á afmælisdag- inn. Einar J. Ingólfsson Einar Jónas Ingólfsson vélfræðing- ur, Stigahlíð 43, Reykjavík, er sex- tugur í dag. Starfsferill Einar er fæddur í Reykjavík og ólst upp þar og í Gufunesstöð. Hann lauk gagnfræðanámi frá Gagn- fræðaskóla Austurbæjar 1952 og stundaði nám í vélvirkjun í Vél- smiðjunni Héðni 1954-57. Einar lauk vélskólaprófi 1959 og prófi frá raf- magnsdeild sama skóla ári síðar. Einar var vélstjóri á skipum Jökla 1960-66 en starfaði síðan hjá Vél- smiðjunni Héðni til 1970 og svo hjá Fiskiðjunni Freyju á Súgandafirði. Hann stofnaði Vélsmiðju Jónasar 1976 og hefur rekið hana síðan. Fjölskylda Einar kvæntist 18.12.1957 Arndísi Ingunni Sigurðardóttur, f. 18.12. 1939, húsmóður. Foreldrar hennar: Sigurður Ingvarsson eldsmiður, og Svafa Magnúsdóttir, húsmóðir. Börn Einars og Arndísar Ingunn- ar: Unnur Sigríður, f. 27.6.1957, tiskuhönnuður í Reykjavík, maki Ásbjörn Jónsson, sonur Unnar Sig- ríðar er Árni Einar Birgisson, f. 5.2. 1975, nemi; Svafa Björg, f. 2.2.1961, glerlistarkona í Nottingham á Eng- landi, maki Lharne Tobías Shaw, þau útbjuggu menningarverðlaun DV1993, þau eiga son, Óskar Inga Shaw, f. 27.5.1990, dóttir Svöfu er Kristel Kristjánsdóttir, f. 30.8.1979; SigurðurEinar, f. 12.10.1962, renni- smiður í Reykjavík, maki Helga Guðmundsdóttir, þau eiga þrjá syni, Tryggvi, f. 10.7.1986, Einar, f. 18.3. 1991, og Guðmund, f. 7.2.1994. SystkiniEinars: Jónína, f. 12.3. 1939, starfms. Pósts og síma, Reykja- vík; Jóhannes, f. 9.11.1933, látinn, skipstjóri og síðar deildarstjóri Reykjavíkurhafnar. Foreldrar Einars: Ingólfur Matthí- asson, f. 15.9.1903, d. 18.6.1950, stöðvarstjóri stuttbylgjustöðvar í Gufunesi, og Unnur Sigríður Ein- arsdóttir, f. 6.8.1904, d. 26.2.1976, húsmóðir. Ætt Ingólfur var sonur Matthíasar Ól- afssonar og Marsibilar Ólafsdóttur. Þau bjuggu í Haukadal í Dýrafirði. Unnur Sigríður var dóttir Einars Einarssonar bátasmiðs og Jónínu Þorsteinsdóttur. Þau bjuggu í Reykjavík. Einar er aö heiman á afmælisdag- inn en afmælismóttaka er fyrirhug- uð síðar. Einar Jónas Ingólfsson. Gunnar K. Þorvaldsson Gunnar Kristinn Þorvaldsson, raf- magnseftirlitsmaður hjá Rarik í Árnessýslu, Arabæjarhjáleigu, Gaulverjabæjarhreppi í Flóa, verð- ur fimmtugur á morgun. Starfsferill Gunnar er fæddur í Lambhúskoti í Biskupsstungum og alinn upp í Syðri-Gróf í Villingaholtshreppi í Flóa til 16 ára aldurs en fluttist þá til Selfoss. Hann tók sveinspróf í rafvirkjun 1969. Gunnar vann hjá Mjólkurbúi Flóamanná frá 1961-64, hjá Raflögn- um sf. á Selfossi 1964-69, Lands- virkjun - Búrfelli 1970, hjá Skúla B. Ágústssyni rafvirkjameistara 1971-1973 og á eigin verkstæði á Eyrarbakka 1973-1977, var fanga- vöröur á Litla-Hrauni 1977-78 og hefur unnið hjá Rarik á Selfossi frá 1978. Gunnar bjó á Eyrarbakka frá 1973-78, á Selfossi 1978-90 og fluttist þá að Arabæjarhjáleigu. Gunnar var formaður Ungmenna- félags Eyrarbakka frá 1973-77, félagi í Flugklúbbi Selfoss frá 1975 og rit- ari þar um skeiö. Formaður Vélflug- deildar Flugmálafélags íslands 1985-93, sat í stjórn Félags rafiðnað- armanna á Suðurlandi um tíma og var í samninganefndum rafvirkja hjá Rarik. Fjölskylda Gunnar hóf sambúð 1990 með Guðríði Steindórsdóttur, f. 9.12. 1956, og kvæntist henni 15.8.1992, húsmóður og handverkskonu. Hún tók kennarapróf 1993. Foreldrar hennar: Steindór Marteinsson, f. 6.11.1923, gullsmiöur úr Reykjavík, og Jóhanna María Bjarnadóttir, f. 16.6.1919, d. 22.2.1992, húsmóðirfrá ísafirði. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík. Börn: Hafsteinn Þór, f. 26.6.1964. Börn með fyrri konu: Andrea, f. 24.11.1964, í sambúð með Sturlu Örlygssyni, þau búa í Reykjavík, hún á þrjú börn; Brynja, f. 8.12.1965, gift Ásbirni Morthens, þau búa á Seltjarnarnesi og eiga tvö böm. Börn Gunnars og Guöríðar: Þor- valdur, f. 19.6.1991; Gunnar Þor- björn, f. 13.6.1994; Steindór Kári, f. 13.6.1994, d. 14.6.1994; Fósturböm, dætur Guðríðar: Jóhanna M.E. Matthíasdóttir, f.11.7.1975; Sunja Gunnarsdóttir, f. 8.5.1985. Systkini Gunnars: Guðmundur Hafsteinn, f. 28.4.1931, fv. fram- Gunnar Kristinn Þorvaldsson. kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suður- lands, kvæntur Ragnhildi Ingvars- dóttur, f. 13.8.1929, þau búa á Sel- fossi; Eysteinn, f. 23.6.1932, lektor við Kennaraháskóla íslands; Svav- ar, f. 5.8.1937, sölustjóri hjá Blindra- vinnustofunni, kvæntur Hrafnhildi Árnadóttur, f. 27.8.1953. Foreldrar Gunnars: Þorvaldur Guðmundsson, f. 25.9.1900, d. 26.6. 1975, bóndi, og Lovísa Aðalbjörg Egilsdóttir, f. 7.9.1908, d. í febrúar 1994. Þau bjuggu lengst af á Suður- landi, síðustu árin á Selfossi. Gunnar verður að heiman. Sigurður Agnarsson Sigurður Agnarsson verkamað- ur, Skúlagötu 52, Reykjavík, verður fertugur á mánudaginn. Fjölskylda Sigurður er fæddur í Reykjavík. Hann hefur starfað hjá Reykjavík- urborgí22ár. Systkini Sigurðar: Sigurrós, f. 18.12.1956; Gísli Lindal, f. 13.7.1954; Karl Óskar, f. 19.6.1952; Daníel, f. 11.6.1960; Ragnar, f. 16.6.1962. Foreldrar Sigurðar; Agnar Lindal Hannesson, látinn, verkamaður hjá Eimskip, og Guðríður Karls- dóttir, látin, húsmóöir. Þau bjuggu íReykjavík. Sigurður dvelst í sumarbústaö á afmælisdaginn. Sigurður Agnarsson. afmælið 7. ágúst 100 ára Sigriður Jónsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 90ára Björn Egilsson, Sveinsstöðum, Lýtingsstaðahreppi. 80 ára Áki Kristján Jensson, Sólheimum 23, Reykjavík. Hreiðar Sigurjónsson, Baughóli 27, Húsavik. Elín Sigurðardóttir, Skaftahlíð42, Reykjavík. 70 ára Árni Baldur Bald vinsson, Hrafnistu, Reykjavík. Friðrik Jón Jónsson, Bárustíg 11, Sauðárkróki. Jón GeirÁgústsson, Hamragerði 21, Akureyri. Aðalheiður Daviðsdóttir, Heiöarbrún 18, Hveragerði. Karitas Sigurbjörg Melsteð, Ösp, Biskupstungnahreppi. 50 ára Guðbjörg Árnadóttir, Jömndarholti 106, Akranesi. Hrauntúni9, Vestmannaeyjum. Bára Hafsteinsdóttir, Bleiksárhlíö 29, Eskifirði. Sigurður Gislason, Garðhúsum 6, Reykjavík. Karl Guðmundsson bóndi, Bæ 2, Suöureyrarhreppi. Hanneraðheiman. Guðmundur Marísson, Kleppsvegi34, Reykjavík. Guðmundur örn Einarsson, Baldursgötu 10, Keflavík. Guðrún Magnúsdóttir, írabakka 4, Reykjavík. Örn Ingólfsson vörubifreiðar- stjóri, Faxabraut34d, Keflavik. Eiginkonahans erLovísa Guð- rúnJóhanns- dóttir, starfs- stúlkaHlé- vangs. Þaueruað heiman. 40ára Elisabet Sævarsdóttir, Fífumóa4,Njarðvík. Aðalheiður G. Hauksdóttir, Öldugranda 3, Reykjavík. Guðrún Bára Ólafsdóttir, Hiaröarbrekku 2, Heliu, Geir Sædal Einarsson, Háseylu 30, Njarðvík. Hrafnhildur Waage, Barmahlíð 52, Reykjavík. JónGunnar Jónsson, Sogavegi 88, Reykjavfk. Halldóra Lilja Júlíusdóttir, Faxabraut 65, Keflavík, ÞóraG.D. Þorsteinsdóttir, Móabarði 34, Hafnarflrði. Eyjólfur Bjarnason, Urðarvegi24, ísafiröi. PálIGislason, Setbergi, Sandgerði. Ólafur Kristmannsson, Tungubakka 8, Reykjavík. Bryndís H. Snæbjörnsdóttir, Lindarbraut29, Seltjarnarnesi. Sigurgísli Sveinbjörnsson, Miögerði, Eyjafjarðarsveit. Jónas Pétur Jónsson, Botnahlíö 7, Seyðisfirði. Freygarður E. Jóhannsson, Heiöarhrauni 54, Grindavík. Hjörleifur Kristinn Jensson, Búhamri 3, Vestmannaeyjum. Erna Arnardóttir, Stakkhömrum31, Reykiavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.