Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 15 Neytendur Mesta ferðahelgi ársins fram undan: Sjúkrakassar geta bjargað mannslífum - ætti að vera skyldubúnaður í bílum, segir Freyr Einarsson hjá Landsbjörg »j irapúði S Mia, sKxrl •*S!ácair Mx - : W r/ f V ( Einfaldur bæklingur um fyrstu hjálp. Hlífðarhanskar. «•*>» Skæri og flísatöng. »* * Lítil sár: Sótthreinsandi grisjur, þurrkur og plástrar. star sar -Stór sár: Sðtthreinsaöar grisjur, - þurrkur og dauðhreinsaðar umbúðir. áheppi Stórir áverkar: —Ðauðhreinsaðar umbúðir, teygjanlegt sárabindi. Alteppi: Til að halda hita og forðast lost. .- m FYRSTA L HJÁLP ÍA DVj Þaö vakti athygli á dögunum, þegar ung kona lenti í árekstri í Hvalfirðin- um, aö nánast ómögulegt var fyrir hana að veröa sér úti um sjúkrabún- að til þess að hlynna að móður sinni. Hún var ekki með neinn slíkan í sín- um bíl og þeir fáu ökumenn annarra bíla sem áttu sjúkrakassa vildu ekki lána hann. Neytendasíðan fór því á stúfana og kannaði hvernig málum væri háttað með sjúkrakassa af þessu tagi. Hvar fást þeir, hvað kosta þeir og er ein- hver gæðamunur á þeim? Það eru aðallega tveir aöilar sem selja sjúkrabúnað af þessu tagi í bíla. Þaö er annars vegar Landsbjörg, landssamband björgunarsveita og hins vegar apótekin. Báðir þessir aðilar eru með nokkr- ar tegundir kassa á boðstólum, allt frá litlum kössum til þess að fara með í gönguferðir, upp í stórar sjúkratöskur sem duga á löngum ferðalögum í óbyggðum eða fyrir stór fyrirtæki. Það sem neytendasíðunni lék hins vegar forvitni á að vita er hvernig búnað er best að hafa í bílum til þess að geta veitt fyrstu hjálp ef óhöpp koma upp á og einnig hversu mikla hjálp slíkur búnaður getur veitt. Sjúkrapúðinn frá Landsbjörg „Árið 1987 fórum við af stað með fyrsta átakið okkar til þess að selja sjúkrapúðann svokallaða. Það er púöi sem rennt er í sundur og þá koma í ljós nokkur hólf þar sem bún- aður til fyrstu hjálpar er geymdur. Við hönnuðum þennan púða í sam- vinu við björgunarsveitirnar, sjúkraflutningamenn og skyndi- hjálparfólk eftir bandarískri fyrir- mynd,“ sagði Freyr Einarsson hjá Landsbjörg um sjúkrapúðann sem hefur mikið verið seldur í bíla. Hann sagði jafnframt að í púðanum væri allt það sem væri nauðsynlegt, auk lítils bækling sem kenndi fólki undirstöðuatriðin í skyndihjálp. Freyr sagði að einn helsti kostur sjúkrapúðans væri sá hversu auð- veldur hann væri í notkun. Á slys- stað væri ekki mikill tími til þess að lesa utan á umbúðum til hvers hlut- irnir væru. Hér á síðunni má sjá hvernig púðinn lítur út og hvernig hann er upp byggður. Viðameiri sjúkrakassar Þó svo að sjúkrapúðinn sé góður sem fyrsta hjálp, dugar hann tæplega í mjög löng ferðalög ijarri apótekum eða á meiri háttar slys. Við slíkar aðstæður þarf viðameiri búnað. Sigurður Wernersson hjá Ing- ólfsapóteki sagði að í nær öllum apó- tekum fengjust mjög góðir sjúkra- kassar á lágu verði, sem væru mjög hentugir í bíla og á ferðalögum. „Þessir kassar sem við érum að selja í bíla innihalda, auk þess brýn- asta í fyrstu hjálp, sótthreinsandi smyrsl, blóðstoppandi bómull, magnyltöflur og fleira," sagði Sigurð- ur. Bæði hjá Landsbjörg og í apótekun- um er svo hægt að bæta í kassana eins og menn vilja og þar fást líka stórir kassar sem innihalda nánast allt sem til þarf fyrir óformlega slysa- varðstofu. Hvar fást - hvað kosta? Sjúkrapúðinn frá Landsbjörg fæst á flestum bensínstöðvum og kostar frá tæpum 2000 kr. og upp í tæpar 3000 kr. Hann má einnig fá í Skáta- búðinni og á skrifstofu Landsbjargar. Nánast öll apótek selja sjúkrakassa og fyllingar í þá. Algengustu kass- arnir kosta þar frá tæpum 1800 kr. og upp í 2800 kr., en talsverður mun- ur er á gæðum kassanna eftir verði. Kaupið sjúkrabúnað Bæði Freyr og Sigurður vildu und- irstrika mikilvægi þesjs að fólk hefði einhvers konar sjúkrabúnað í bílum sínum. „Þaö eru alveg hreinar línur að lágmarks sjúkrabúnaður, eins og sjúkrapúðinn er, getur bjargað mannslífum. Það er í raun fáránlegt aö það skuh ekki vera skylda að fólk hafi þetta í bílum sínum,“ sagði Freyr og Sigurður bætti því við að slysin gerðu ekki boð á undan sér og það væri algert lykilatriði að allir bílar innihéldu einhvers konar sjúkra- búnað, hvaðan sem hann hefði verið keyptur. Post, nýi diskurinn meö Björk, fæst á tilboðsverði í Bónusi og einnig HlStory með Michael Jackson. Björk í Bónusi Verslanir Bónuss hafa nú um nokkurt skeið haft á boðstólum geisladiskasöfn á góðu verði. Þar hafa til dæmis verið ýmiss konar rokksöfn á nokkrum diskum, sem og nokkura diska pakkar af klassískri tónlist. Nú hefur Bónus hins vegar haf- ið sölu á nýjum diskum sem inni- halda popptónlist og það eru ekki minni spámenn en Björk Guð- mundsdóttir og Michael Jackson sem eru höfundar þeirra diska sem sem voru í tilboðunum sem verslunin sendi frá sér á dögun- um. Diskurinn með Björk kostar í Bónusi 1390 kr., miðað við 1899 kr. í einni af stærstu plötuversl- unum Reykjavíkur og þar kostar diskurinn með Michael Jackson 3299 kr. en aðeins 2490 í Bónusi. Tjöldogfleira átilboði Áfram með tilboð stórverslan- anna. Það vakti áthygli að í til- boðunum, sem birtust á neyt- endasíðunni í gær, var talsvert af ýmiss konar útileguvörum sem virðast jafnvel við fyrstu sýn ekki eiga heima með tilboðum mat- vöruverslananna. Það er hins vegar staðreynd að stórmarkað- irnir hafa í auknum mæli verið að prófa sig áfram á þessum markaði og í gær mátti sjá mikið úrval af grillum og grilláhöldum, tjöldum og svefnpokum, svo dæmi sé tekið. Þess ber þó að geta að tilboðin sem neytendasíðan birtir miðast fyrst og fremst við matvöru og stór hluti þeirra sérvara sem eru á tilboðsverði birtist því ekki í blaðinu, En neytendur ættu hins vegar að sjálfsögðu að kynna sér þessi tilboð vel áður en tjald eða annar útbúnaður er keyptur. Bílastæðasjóður hefur verið að sækja í sig veðrið hvað þjónustu varðar. Bílastæöasjóður: Aukin þjónusta Bílastæðasjóður hefur í sumar aukið þjónustu sína við neytend- ur talsvert og fleiri breytingar eru á döfinni. Nú er til dæmis ókeypis að leggja í öllum bílastæðahúsunum á laugardögum en til að byrja með var það gjaldskylt. Einnig hafa P-kortin svokölluðu verið lækkuð. Þau kort eru notuð í miðagjafamælana sem eru við stæði sem er gjaldskylda í en eng- inn stöðumælir. Miðagjafamælir- inn prentar út miða sem settur er í framrúðu bílsins. P-kortinu er stungið inn í mælinn sem prentar út miða fyrir umbeðna upphæð sem þá dregst af kortinu, svipað og með símakort. Þessi kort hafa nú verið lækkuð um 500 krónur, úr 2500 í 2000 kr., og er það meðal annars gert fyrir þá sem vinna í námunda við gjaldskyld stæði af þessu tagi. Til stendur einnig að lækka gjald fyrir kort í bílastæðahúsin sem gerir mönnum kleift að leggja þar á næturnar. Sú lækkun verður tilkynnt síðar. yilt þú feta í fótspor bróður Cadfaels? I TAKTU ÞÁTT í spennandi leik. Skilafrestur rennur út 9. ógúst Góturnar fjórar hafa þegar birst í DV og er einnig að finna ó síðu 699 í Textavarpinu. I.júlí-gáta 8. júlí-gáta 15. júlí-gáta 22. júlí-gáta Líki ofauldá Bláhjálmur Líkprái maðurinn Athvarf öreigans I Lausnir md senda inn ó úrklippum úr DV Aðalvinningur: Helgarferð fyrir tvo til Shrewsbury Úrvalsbækur að eigin vali. Bækurnar um bróður Cadfael fást á næsta sölustað og kosta aðeins 895 kr. og enn þá minna á sérstöku tilboði í bókaverslunum. FMAUt lflÓLMIDlMW HF. e gÓNWtPfÐ # EMERALD AIR \ I Imngrm tyrlr Immgrm rmrB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.