Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
Erlend bóksjá
Afturtil
Nottingham
Alan Sillitoe viö skrifborðið á heimili sinu i London árið 1958 - þegar Sat-
urday Night and Sunday Morning hafði gert hann frægan.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáidsögur:
1. Tom Clancy;
Debt of Honor.
2. Celeb Carr;
The Alienist.
3. Carol Shíelds;
The Stone Diaríes.
4. John Grisham:
The Chamber.
5. Michaei Crichton:
Congo.
6. Mary Higgins Clark:
Remember Me.
7. NancyTaylor Rosenberg:
First Offense.
8. Sandra Brown:
Charade.
9. Anne Rivers Siddons;
Downtown.
10. Meave Binchy:
. Circle of Friends.
11. Steve Martini:
Undue Influence.
12. Jackie Colfins:
Hollywood Kids.
13. Elizabeth Lowell:
Only Love.
14. Jack Higgins:
On Dangerous Ground.
15. Peter Benchley:
White Shark.
Rit almenns eðlis:
1. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
2. Richard Preston:
The Hot Zone.
3. B.J. Eadie 8i C. Taylor:
Embraced by the Light.
4. Mary Pipher:
Revíving Ophelia.
5. Thomas Moore:
Care of the Soul.
6. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
7. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings.
8. M. Scott Peck:
The Road Less Travelfed.
9. M. Knox & M. Walker:
The Private Diary of an O J.
Juror.
10. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
11. Thomas Moore:
Soul Mates.
12. Delany. Delany & Hearth:
Having Our Say.
13. Nícholas Dawidoff:
The Catcher Was a Spy.
14. Nathan McCall:
Makes Me Wanna Holler.
15. Karen Armstrong:
A History of God.
(Byggt á New yofk Ttmas Book Review)
Undir lok sjötta áratugarins hófst
í Bretlandi bókmenntabylgja sem
kennd var viö unga reiða menn.
Áhrif hennar voru mikil næstu árin,
bæði í leikritun, þar sem John Os-
borne markaði brautina, og í skáld-
sagnagerö.
Sú breska skáldsaga sem vakti
hvað mesta athygli á þessum tíma
hét Saturday Night and Sunday
Morning. Hún kom út árið 1958.
Höfundurinn, þrítugur maður frá
verksmiðjuborginni Nottingham,
varð frægur á samri stundu því bók-
in seldist grimmt og var snarlega
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
kvikmynduð meö góðum árangri.
Hann hét Alan Sillitoe og hefur nú
nýverið sent frá sér sjálfsævisögu
sína. Hún heitir Life without Ar-
mour: An Autobiography (Har-
perCollings, 18,99 pund).
Verksmiðjupiltur
frá Nottingham
Alan Sillitoe fæddist í Nottingham
árið 1928. Faðir hans var ólæs,
drykkfelldur og ofbeldisfullur maður
sem barði konu sína ítrekað uns
blóðið lak úr henni. Hann var einnig
oft atvinnulaus og því var úr litlu að
spila á heimilinu.
Alan fór að vinna í reiðhjólaverk-
smiðju þegar hann var fjórtán ára
gamall. Þaðan lá leiðin í herinn þar
sem hann hlaut starfsþjálfun og svo
eldskím í stríösátökum á Malaga-
skaga, en þar særöist hann.
En áhuginn var alla tíð við bækur
og ritstörf. Hann fór því að semja
sögur um lífið í verksmiðjuborginni
sem hann þekkti svo vel. I Saturday
Night and Sunday Morning segir frá
ungum og uppreisnargjörnum
manni sem vinnur í verksmiðju og
hundleiðist. Það sem gerir líf hans
einhvers virði, að minnsta kosti um
stundarsakir, er hversu vel honum
gengur að fleka konur starfsfélaga
sinna.
Smásögur á
600 blaðsíðum
Sillitoe fylgdi þessari sögu eftir
næsta ár, 1959, með smásagnasafni
sem einnig sló í gegn. Það heitir The
Loneliness of the Long-Distance
Runner. í þessum smásögum íjallar
hann um svipuð viðfangsefni og í
fyrstu skáldsögunni.
Seinni verk hans hafa hins vegar
ekki náð til almennings með sama
hætti, þótt hann hafi alltaf haldið
áfram að skrifa. Það eru því fyrst og
fremst þessar tvær fyrstu bækur sem
halda nafni hans á lofti sem rithöf-
undar.
Lesendum gefst nú kostur á að
kynnast smásagnagerð hans í heild
í annarri nýútkominni bók: The
Collected Stories of Alan Sillitoe
(Flamingo, 16.99 pund). Þar er að
finna á um 600 blaösíðum allar smá-
sögur höfundarins.
Þessar tvær bækur, ævisagan og
sögusafnið, gefa að sögn enskra
gagnrýnenda góða heildarmynd af
manninum og rithöfundinum Alan
Silhtoe.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Patrícia D. Cornwell:
The Body Farm.
2. Anais Nin:
A Model.
3. Maeve Binchy:
The Glass Lake.
4. Gabriel Garcia Marquez:
Bon Voyage. Mr. President.
5. Italo Calvino:
Ten Italian Folk Tales.
6. Anton Chekhov:
The Black Monk.
7. Oscar Wilde:
The Happy Prince.
8. Stephen King:
Insomnia.
9. Patricia Highsmith:
Little Tales of Misogyny.
10. Roald Dahl:
A Lamb to the Slaughter.
Rit almenns eðlis:
1. Marcus Aurelius:
Meditations.
2. Albert Camus:
Summer.
3. Sigmund Freud:
Five Lectures on
Psycho-Analysis.
4. Virginia Woolf:
Killing the Angel in the House.
5. Elizabeth David:
ITI Be with You in the
Squeezing of a Lemon.
6. James Herríot:
Seven Yorkshire Tales.
7. Kahlil Gibran:
Prophet, Madman, Wanderer.
8. Paul Theroux:
Down the Yangtze.
9. Spike Milligan:
Gunner Milligan 954024.
10. Camille Paglia:
Sex and Violence, or Nature
and Art.
(Byggt & The Sunday Times)
Danmörk
1. Juliane Preisler;
Kysse Marie.
2. Jung Chang:
Vilde svaner.
3. Josteín Gaarder:
Sofies verden.
4. Jprn Riei:
En underlig duel.
5. Hanne-Vibeke Holst:
Til sommer.
6. Kirsten Hammann:
Vera Winkelwir.
7. A. de Saint-Exupéry:
Oen lille prins.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Genalækningar hafa hundraðfaldast á sex árum:
Margir telja æðibunu-
ganginn of mikinn
Genameðferð mun i framtíðinni lækna sjúkdóma þar sem skurðaðgerðir
eða hefðbundin lyfjameðferð dugar ekki.
Eistu nám-
urnar
Elstu neðanjaröarnámur Evr-
ópu er aö finna á Grikklandi. Þaö
eru jámgrýtisnámur á eyjunni
Þasos í norðurhluta Eyjahafsins.
Rannsóknir þýskra og grískra
visindamanna sýna aö námu-
vinnsla þar hófst á steinöldinni,
fyrir ura tuttugu þúsund árum.
Vísindamennirnir hafa rann-
sakað námuvinnslu á eyjunni frá
árinu 1982. Rannsóknir þeirra
hafa sýnt fram á að vinnan fór
fram með frumstæðum áhöldum
eins og meitlum úr dádýrshom-
um og hömrum úr stelni.
Bjarga þör-
ungarokkur?
Koltvísýringi (C02) er einkum
kennt um svoköiluð gróðurhúsa-
áhrif en lofttegund þessi myndast
m.a. viö bruna á kolum og bens-
íni. Þýski vísindamaðurinn Mic-
hael Melkonian hefur rannsakaö
hvemig hægt sé að binda C02 og
fyrir tilviljun datt honum í hug
að gefá lofttegundina þömngum
sem þurfa á henni að halda fýrir
efnaskipti sín.
í tilraunaofhi sínum gaf Mel-
konian þörungunum reykjarský
úr raforkuveri sem knúið er með
brúnkolum. Sér til undrunar
komust Melkoninan og félagar
hans að því að úrgangsloftiö var
aðeins 0,1 prósent en haföi oft
mælst 15 prósent áður.
Umsjón
Guðlaugur Bergrnundsson
Sex áru em nú liðin frá því svoköll-
uðum genalækningum var beitt á
sjúkling í fyrsta sinn. Á þeim tíma
hefur orðið gífurleg aukning í þess-
ari lækningaaðferð og er nú svo kom-
ið aö allt að sex hundruð sjúklingar
hafa tekið þátt í tilraunum og fengið
í sig gen sem eiga aö lækna sjúkdóma
á borö við fátíða galla í efnaskipta-
kerfinu eða ósköp venjuleg krabba-
mein. Nærri helmingur þessara
sjúklinga hefur tekið þátt í genameð-
feröinni á undanförnu hálfu ári, seg-
ir í grein í IHT.
En þrátt fyrir öll lætin hefur ekki
enn verið birt ein einasta grein um
sjúkling sem hefur fengiö bót meina
sinna með genameðferð. Og spurn-
ingar tæknilegs eðlis hafa hrannast
upp. Vísindamenn hafa til dæmis
uppgötvað að ónæmiskerfið ræðst
hugsanlega á og eyðileggur framur
sem gengust undir genameðferð þar
sem það lítur á þær sem aðskota-
hluti. Eða þá að ónæmiskerfið lítur
á frumurnar sem sýktar, í þeim til-
fellum þegar genin em flutt inn í lík-
amann með veirum.
Mikill fjöldi vísindamanna óttast
að fyrirtækin sem stunda tilraunir
með genalækningar fari of geist í
sakirnar. Annars vegar kunni það
að skýrast af því að vísindamenn
vilji vera með og hins vegar ráði ferð-
inni viðskiptahagsmunir sem komi
læknisfræði lítið við.
Þeir sem gagnrýna æðibunugang-
inn óttast að almenningur muni
verða genalækningum fráhverfur og
að líftæknifyrirtækin í greininni
muni fara á hausinn ef ekki fást skýr-
ar niðurstöður úr hverri skyndi-
rannsókninni á fætur annarri og ef,
eins og oft gerist í læknisfræði, ein-
hverjir sjúklingar bíða skaða af
óhöppum í meðferðinni. Aðrir álíta
að í lagi sé að æða áfram í jafn spenn-
andi grein og genalækningum.
Það sem horft er til í genalækning-
um er að hægt verði að lækna með-
fædda sjúkdóma, eins og slím-
seigjukvilla, sem orsakast af gölluðu
geni með því að koma fyrir leiðrétt-
andi genum í framum sjúklinganna.
Önnur tækni notar gen sem fá frum-
urnar til að eyða sjálfum sér. Vís-
indamenn vonast til að geta komið
genum þessum inn í krabbameins-
frumur eða frumur sem sýktar eru
af alnæmisveirunni.
Miklar vonir era bundnar viö
genameðferð þar sem hún gengur
miklu lengra en hetðbundnar lækn-
ingaaöferðir, eins og lyfiameðferð
eða skurðaðgeröir. Margir óttast
hins vegar aö þróun þessarar nýju
tækni sé ógnað með ótímabærum
væntingum um skjótan bata og með
tilraunum sem éru svo illa geröar
að þær hafa nánast ekkert gildi.
Vatn í and-
rúmsloftinu
ítalskir vísíndamenn hafa upp-
götvaö vatn í efstu lögum and-
rúmsloftsins á reikisfiörnunni
Júpíter. Þetta uppgötvaðist þegar
brot úr risahalastjörnu hrapaði
þar niöur í fyn-a.
Uppgötvun ítalanna ætti að
vekja áhuga þeirra vísinda-
manna sem hafa uppi kenningar
um að svipaöur árekstur hafi
skapað réttu skiiyrðin fyrir lífi á
jörðinni.
„Það sem kann að hafa gerst
hér fyrir fiórum milijörðum ára,
í kjölfar fiöldaárekstra haia-
sfiama, gæti hafa gerst og er
kannski enn að gerast í milljón-
um reikistjömukerfa sólkerfis-
ins,“ segja ítalirnir.
Rúmlega tuttugu brot úr hala-
sfiörnunni Shoemaker-Levy 9
rákust á Júpíter í júlí í fyrra,
hver þeirra meö afli á við miÚjón-
ir kjarnorkusprengna, og fylgd-
ust Italirnir með ósköpunum með
risastjömusjónauka sem há-
hraöa litrófssjá var tengd viö.
Alveg lyginni
líkast
Fisktegund ein í Suður-Amer-
• fku hefur þróað mjög sérstaka
aðferð til að tryggja að sæðis-
frumur úr hængnum frjóvgi
hrogn hrygnunnar. í stað þess að
gusa hvora tveggja „út í loftið"
og láta náttúruna um afganginn
fer hrygnan með munninn að
kynopi hængsins og losar hann
þá sæöisfrumur sínar upp í hana.
Sæöisfrumumar fara síðan um
þarma hrygnunnar og ná þannig
til hrognanna.