Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Síða 20
20
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
Dagur í lífi Áma Johnsens þingmanns:
í lífsins melódí
Árni Johnsen hefur veriö kynnir á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í tuttugu ár.
DV-mynd BG
Það er til mikils aö vinna ef hvert
örstutt spor má til auðnu verða en
mánudagurinn síðastliðinn var um
flest ósköp venjulegur, svo sem eins
og gerist í lífsins melódí, því allt er
þetta nú frekar smátt miðað við gang
himintungla.
Ég var enn á leið til Reykjavíkur
úr Landmannalaugum þegar mið-
nætti aðfaranætur mánudagsins
gekk í garð, hafði farið á Hrafntinnu-
sker og í íshellana, Landmannahelli
og Landmannalaugar á sunnudegin-
um með Þórði bónda í Köldukinn,
Ragnari Axelssyni Ijósmyndara og
fleiri góðum. Dagurinn byrjaöi sem
sagt áður en tími vannst til að krækja
sér í kríu.
Símtal til Taílands
Um áttaleytið á mánudagsmorgni
brá ég mér til Þorlákshafnar að sinna
erindum en fór síðan í það aö skoða
mál sem varða hraöari uppbyggingu
Holta- og Landvegar og vega í Gnúp-
verjahreppi vegna stóraukins álags
með vaxandi vikurflutningum. Bíla-
síminn er mikið þarfaþing og lengir
vinnudaginn raunverulega til mik-
illa muna. Meðal símtala sem ég
sinnti þennan morgun var samtal við
veiðistjóraembættið á Akureyri,
samtal til Taílands vegna vandræða
einstaklings, samtal til Grænlands
vegna fyrirhugaðs fundar Vest-nor-
rænu þingmannasamtakanna, þar
sem ég á sæti, en fundurinn verður
á Suðvestur-Grænlandi. Um hádegis-
bil var ég kominn í Þjóðleikhúsið þar
sem unnið er að ýmsum lagfæring-
um og endurbótum á vegum Bygg-
ingamefndar Þjóðleikhússins en ég
er formaður hennar og þarf að fylgj-
ast mjög vel með gangi mála. Þar er
nú verið að lagfæra aðgengi að hús-
inu, bæði með endurbyggingu á
tröppum, lagningu malbiks, gerð
bílastæða og gróöurreita. Þá er verið
að innrétta nýja kaffistofu fyrir Þjóð-
leikhúsið en sú gamla var í kola-
geymslu hússins niðri í kjallara,
gluggalaus, með tveggja metra loft-
hæð, og þannig hefur það verið í nær
hálfa öld. Vonandi fer betur um
starfsfólkið, gesti og gangandi í nýju
kafíistofunni og það er meira að segja
verið að setja upp lyftu í norðurhluta
hússins, það er að segja alvörulyftu
sem getur flutt fólk milli hæða og
ýmsar vörur. Ýmislegt fleira mætti
nefna en það er mikið verk óunniö
til þess að þjóðleikhús íslendinga
njóti þeirrar reisnar sem það á skilið
sem bygging meö eðlilegt viðhald.
Með frúnni í búðir
Upp úr hádegi skaust ég í Kringl-
una, fór með eldhúshnífana í brýn-
ingu og gamla límtrésborðplötu í
slípingu en Breki, sonur minn, ætlar
að nota hana í skrifborð þegar búið
verður að mála hana eftir kúnstar-
innar reglum auðvitað. Þá brá ég
mér í IKEA ásamt konunni og þar
fékkst með ágætum sem að var gáð
en þar sem ég fer hraðar um en hún
í verslunum þá notaði ég tækifærið
og skaust út á Gelgjutanga til að
skoða vatnsgeymi hjá Olíufélaginu,
10 tonna gamlan geymi sem hug-
myndin er að nota undir vatn í
Bjarnarey í Eyjum. Þegar ég kom
aftur hafði Dóra kona mín gefist upp
á að bíða, líklega vegna þess að hún
er ekki eins þolinmóð og ég, en þar
sem við vorum sitt á hvorum bílnum
kom þetta ekki alvarlega að sök.
Flogið til Eyja
Síðdegis var ég að afgreiða 23. sím-
talið í bílnum daginn þann auk ann-
arra þegar síminn hringdi enn eina
ferðina og tilkynnt var að orðið væri
fært til Eyja. Ég brenndi út á Reykja-
víkurflugvöll klukkan fimm en snar-
aðist í leiðinni inn í Teppabúðina við
Suðurlandsbraut til þess að taka
teppi sem átti að fara út í Eyjar. Síð-
an var flogið með Val Andersen til
Selfoss og út í Eyjar. Þar var tekinn
bryggjurúntur og rætt við sjómenn
og útgerðarmenn og næstu þrír
klukkutímamir fóru í að vinna að
undirbúningi dagskrárinnar á þjóð-
hátíð Vestmannaeyja um næstu
helgi. Þar er í mörg hom að líta enda
þjóðhátíðin éinstök hátíð með tugum
atriða og ríkum hefðum sem ekkert
fær haggað vegna þess að þannig og
nákvæmlega þannig vill fólk hafa
það. í knöpp 20 ár hef ég verið kynn-
ir á þjóðhátíð og stjómað dagskránni
með þjóðhátíðarnefndum og allt þarf
þetta að vera skothelt.
í lundaveislu
Um kl. 22.30 um kvöldið tók ég á
móti Flugleiðavél á Vestmannaeyja-
flugvelli því þar komu pappírar frá
Reykjavík sem mig vanhagaði um en
síðan var kósinn tekinn á bilnum
suður í Stórhöfða, þangað sem Álsey-
ingar ætluðu að sækja mig á gúmmí-
hraðbát. Meiningin var nefnilega að
gista í Álsey hjá vinum mínum,
bjargveiðimönnunum. Sveinn Val-
geirsson og Halldór Sveinsson
renndu að Stórhöfða á Álseyjargrána
og um miðnætti var ég kominn í
góðra vina hóp í veiðihúsinu í Álsey
þar sem veröldin er tímalaus og allt
verður að galdri. Það var spjallað og
spaugað, sungið og hlegið, farið í
gufubað og útisturtu og nóttin var
ung því þarna er lífið list og Sigur-
geir ljósmyndari Jónasson var sterk-
ur inni í myndinni, hrókur alls fagn-
aðar. Eftir gufubaðið var steiktur
lundi undir áhrifum teriakisósu,
púðursykurs og rjóma. Salatið
byggðist á ferskum perum, eplum og
melónu í sýrðum ijóma. 30 lundar
lágu í valnum á pönnunni og það var
orðinn albjartur dagur þegar menn
tóku á sig náðir eftir fuglaskoðun á
veröndinni þar sem fugl flaug við
fugl og sílislundinn linnti ekki látum
að bera í ungann. - Eyjunnar fugla-
kór og brimandi undir sjór en í svefn-
skála var hrotukórinn að komast í
stuð.
Finnur þú finun breytingar? 321
©PIB
CIM
Haitu fingrunum fyrir þig sjálfan, ungi maður!
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og
nítjándu getraun reyndust vera:
1. Gunnar Már Ólafsson 2. Hera Birgisdóttir
Laufskógum 3 Raftahlíð 33
810 Hveragerði 550 Sauðárkróki
Myndiraar tvær viröast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
TENSAI feröaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöö-
inni, Síöumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð-
laun heita Líkþrái maöurinn og Athvarf
öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cad-
fael, að verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun.
Vínningarnir verða sendii- heim.
Merkið umslagiö með lausninm:
Finnur þú fimm breytingar? 321
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
J!