Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Side 23
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
23
ísraelsmaðurinn Uri Amiram hefur komið fimm sinnum til íslands:
Eins og ég hafi átt
heima hér í fyrra lífi
„Þaö er eins og ég hafl átt heima
hér í fyrra lífi. Það eru margir staðir
hér sem mér finnst ég hafa verið á
áður,“ segir ísraelsmaðurinn Uri
Amiram. Hann er haldinn miklum
áhuga á öllu sem íslenskt er og er
kominn í sína fimmtu heimsókn til
íslands.
Uri var fjórtán ára þegar hann
ákvað að kynnast nánar landinu sem
hann hafði aðeins séð á landakorti.
„Ég hafði hvorki lesið um ísland né
séð myndir héðan. Mér fannst ég
samt verða að vita eitthvað um þessa
eyju. Ég hafði samband við ræðis-
mann íslands í ísrael og fékk heimil-
isfóng dagblaða. Ég óskaði eftir
Hrifnastur
afReykjavík
Uri er eiginlega hrifnastur af
Reykjavík þótt honum þyki margir
staðir á landinu fallegir. „Yfirleitt hef
ég ekki gaman af sagnfræði en ég hef
kynnt mér sögu Reykjavíkur. Þetta
er falleg borg, hún er bæði nýtískuleg
og gamaldags og útsýnið í allar áttir
er stórkostlegt."
Það hefur vakið athygh Michelle
að alls staðar skuli gert ráð fyrir
börnum. „Það eru barnastólar í
sturtuklefum sundlauga og inn-
kaupavagnarnir í stórmörkuðum
raula hefðbundna hebreska texta við
íslensk lög. Þetta fer mjög vel sam-
an.“
Það er hins vegar bara heimilisfað-
irinn sem er farinn að læra íslenska
tungu. „Ég kann svolítið og reyni að
lesa dagblöðin. Yfirleitt les ég alls
ekki skáldsögur heldur bara fræðirit
en ég hef lesið tvær bækur eftir Lax-
ness sem þýddar hafa verið á hebr-
esku og það nokkrum sinnum, það
eru Brekkukotsannáll og Atómstöð-
in.“
Uri segir að í hvert skipti sem hann
fari frá íslandi finnist honum eins
og verið sé að toga hann upp frá rót-
um. „Hér er allt svo afslappað en
nema tíu mínútna akstur inn í borg-
ina. „Sambandið milli ísraela í Efrat
og arabanna í þorpunum í kring er
almennt mjög gott,“ segir Uri en við-
urkennir að upp á síðkastið hafl þó
orðið nokkrir árekstrar. Hann er
vongóður um að samband ísraela og
araba geti orðið gott í framtíðinni.
Hann á samvinnu við araba í ferða-
þjónustunni og segir araba góða
handverksmenn sem ísraelar eigi
talsverð viðskipti við.
Uri og Michelle Amiram komu i brúðkaupsferð til Islands og nú eru þau komin hingað með börnin sín þrjú,
Merav, Binyamin og Dov. DV-mynd ÞÖK
pennavinum og fékk marga og þann-
ig lærði ég ýmislegt um landið,"
greinir Uri frá.
Hann kom í sínu fyrstu heimsókn
hingað 1981 þegar hann hafði gegnt
herþjónustu í Israel. „Ég var mjög
spenntur og þetta var mjög sérstakt.
Mér fannst ég tilheyra landinu. Ég
hef ferðast til margra landa en það
er ailt öðru vísi að koma hingað."
Brúðkaupsferðin
til íslands
Þegar Uri hafði kynnst konuefninu
sínu tilkynnti hann strax að brúð-
kaupsferðin yrði farin til íslands og
það varð úr. „Ég held að MicheUe
hafi líka strax orðið ástfangin af ís-
landi en hún bendir mér nú stundum
á það þegar ég er að lýsa hrifningu
minni á einhverju hér að hið sama
sé nú einnig að finna í öðrum lönd-
um.“
Michelle og Uri starfa bæði í ferða-
þjónustu, hún hjá ferðaskrifstofu og
hann hjá flugfélagi. Að sögn Michelle
er þekking Uris á íslandi orðin vel
þekkt í ísrael og leita menn oft til
hans í því samhengi.
Hann minnist á það í gríni að í
sumum tilfellum viti hann jafnvel
meira um ísland en íslendingar sjálf-
ir. „Það komu íslendingar til mín í
ísrael og ég spurði hvaöan þeir væru.
Þeir sögðust vera frá stað nálægt
höfuðborginni og héldu að ekki þýddi
að segja mér nánar hvar. Þegar ég
spurði nánar sögðu þeir að staðurinn
væri nálægt Keflavík og þá giskaði
ég á Njarðvík. Þeir urðu steinhissa
og enn meira þegar ég spurði hvort
þaö væri Ytri- eða Innn-Njarðvík.
Þeir sögðu að jafnvel íslendingar
sjálfir væru ekki vissir um hvort
væri hvað."
eru með sætum fyrir börn. Við höf-
um ekki séð þetta í öðrum Evrópu-
löndum sem við höfum komið til en
þetta er kannski líka svona annars
staðar á Noröurlöndunum." Þau
hjónin eru nú í fyrsta skipti með
börnin sín þrjú á íslandi. „Mér fannst
mikilvægt að þau kæmu hingað þar
sem þau heyra svo mikið talað um
ísland heima hjá sér. Þau eru viss
um að ísland sé þekktasta land í
heimi því þau hafa heyrt svo mikið
um það,“ segir Uri.
Og börnin hafa einnig kynnst ís-
lenskri tónlist heima hjá sér í ísrael.
„Þegar við sitjum og syngjum á sabb-
atsdaginn þá höfum við prófað að
og upplifou fjölbreytta ferðamögulefka.
Nýi bæklingurinn kemur út á þriðjudaginn.
Náðu þér í bækling á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum eða á feróaskrifstofunum.
FLUGLEIÐIR
Traustur tslenskur ferðafélagi
heima í ísrael er fólk miklu form-
legra og stressaðra. Héðan kemur
maður afslappaður til ísraels og það
tekur mann nokkra daga að skilja
af hverju allir eru svona æstir.“
Landnemar í Efrat
Fjölskyldan býr í Efrat sem er stórt
úthverfi Jerúsalemborgar og er
hverfið handan við hina svokölluðu
grænu línu, það er landamæri ísra-
els fyrir sex daga stríðið 1967. Þau
eru því landnemar en leggja áherslu
á að þau líti fremur á sig sem Jerú-
salembúa en landnema. Það sé ekki