Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Page 24
24
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 T
Iþróttir
Stórskotahríð
Skagamanna
- glæsileg byrjun hjá tvíburunum
Akranes-Keflavík
(1-0) 8-2
1-0 Ólafur Þóröarson (22.) með skoti
úr aukaspymu sem fór af höfði Helga
Björgvinssonar og í netið.
2-0 Haraldur Ingólfsson (51.) úr vita-
spymu sem dæmd var þegar brotið var
á Amari Gunnlaugssyni.
3- 0 Ólafur Þórðarson (54.) með góðu
skoti úr vítateignum.
4- 0 Amar Gunnlaugsson (59.) með
skoti beint úr aukaspymu.
5- 0 Haraidur Ingólfsson (66.) með skoti
úr aukaspymu rétt utan teigs.
5- 1 Óli Þór Magnússon (70.) með skoti
inan teigs.
6- 1 Amar Gunnlaugsson (82.) meö
skalla eftir sendingu Bjarka Pétursson-
ar.
7- 1 Amar Gunnlaugsson (84.) með
skoti úr þvögu inann teigs.
7- 2 Óli Þór Magnússon (85.) eftir hom-
spymu Ragnars Margeirssonar.
8- 2 Stefán Þórðarson (90.) með hjól-
hestaspymu rétt utan teigs.
Lið Akranes: Þórður Þórðarson -
Sturlaugur Haraldsson (Pálmi Haralds-
son 67.), Alexander Högnason, Ólafur
Adolfsson Sigursteinn Gíslason ;•'< -
Kári S. Reynisson (Bjarki Pétursson 78.),
Sigurður Jónsson Bjarki Gunn-
laugsson Haraldur Ingólfsson (Stefán
Þórðarson 78.) - Ólafur Þórðarson
Amar Gunnlaugsson >\
Lið Keflavíkur: Ragnar Ragnarsson -
Kristinn Guðbrandsson Helgi Björg-
vinsson, Karl Finnbogason (Róbert Sig-
urðsson 17.) - Eysteinn Hauksson, Georg
Birgisson (Sigurgeir Kristjánsson 60.),
Ámi Vilþjálmsson (Ragnar Margeirsson
46.), Ragnar Steinarsson Jóhann B.
Guðmundsson - Kjartan Einarsson, Óli
Þór Magnússon ;.\
Akranes: 12 markskot, 7 hom.
Keflavík: 4 markskot, 3 hom.
Gul spjöld: Óli Þór, Sigurgeir, Helgi
B., allir úr Keflavík.
Rautt spjaid: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson sem
dæmdi vel.
Áhorfendur: 800.
Skilyrði: SV gola þvert á völlinn og
rigning. Völlurinn blautur.
_ Maður leiksins: Sigurður Jónsson
(ÍA). Afburðarmaður í uppbyggingu ó
spili og góðum sendingum.
KR-Leiftur
(1-0) 2-0
1- 0 Einar Þór Daníelsson (6.) tók bolt-
ann og afgreiddi glæsilega í netið vinstra
megin í teignum eftir góða sendingu frá
Heimi Guðjónssyni.
2- 0 Guðmundur Benediktsson (86.) tók
á rás upp völlinn og lék á einn vamar-
mann Leifturs og þramaði síðan knettin-
um í netið.
Lið KR: Krislján Finnbogason - Sig-
urður Ö. Jónsson, Óskar H. Þorvalds-
son, Þormóður EgilssonDaði Dervic
- Hilmar Bjömsson, Heimir Guðjónsson
Heimir PorchaEinar Þór Daníels-
son (Ásmundur Haraldsson 86.) -
Mihajío Bibercic, Guðmundur Bene-
diktsson
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson
(Friðrik Þorsteinsson 43.) - Sigurbjöm
Jakobsson Sindri Bjamason (Jón Þór
Andrésson 78.), Júlíus Tryggvason,
Nebojsa Soravic ;.'. - Ragnar Gíslason,
Sverrir Sverrisson, Gunnar Oddsson,
Páll Guömundsson, Baldur Bragason V.
- Gunnar Már Másson.
KR: 16 markskot, 5 hom.
Leiftur: 8 markskot, 4 hom.
Gul spjöld: Óskar H. (KR), Sindri
(Leiftri).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Ólafur Ragnarsson, átti náð-
ugan dag og lenti í engum vandræðum.
Áhorfendur: 519 borguðu sig inn.
Skilyrði: Blautur og þungur völlur,
meö ökkladjúpum polli nálægt miðj-
unni, en gott knattspymuveður.
Maður leiksins: Guömundur Bene-
diktsson, KR. Sivinnandi og kórónaði
góðan leik meö fallegu marki.
Akranes......11 11 0 0 28-5 33
KR...........117 1 3 15-10 22
Keflavík.....10 5 2 3 13-14 17
Leiftur......10 5 1 4 15-14 16
Breiðablik...11 4 2 5 15-14 14
Grindavík....11 4 2 5 14-14 14
ÍBV..........10 4 1 5 22-15 13
FH...........11 2 2 7 16-27 8
Fram.........10 2 2 6 10-22 8
Valur........11 2 1 8 10-25 7
Daníel Ólafeson, DV, Akranesi:
„Við erum ánægðir með sigurinn
og þaö er gaman að vera byrjaður
að spila með Skagamönnum og gam-
an að spila með liði sem spilar sókn-
arknattspyrnu þar sem allir leik-
menn eru virkir. Það er mikill mun-
ur að leika með Skagamönnum ann-
ars vegar og hins vegar Niirnberg
sem var í botnbaráttunni," sagði
Bjarki Gunnlaugsson, leikmaður IA,
eftir að Skagamenn höíðu unnið stór-
sigur á Keflvíkingum, 8-2. Þar með
unnu íslandsmeistararnir 11. sigur
sinn í röð í jafnmörgum leikjum og
aðeins kraftaverk getur komið í veg
fyrir að Skagamenn verði meistarar
ijórða árið í röð.
Þrenna hjá Arnari
Þaö má segja að endurkoma tvíbur-
anna, Arnars og Bjarka Gunnlaugs-
sona, hafi verið með glæsibrag en
þeir yoru að leika sinn fyrsta leik
með ÍA á íslandsmótinu í þrjú ár.
Arnar skoraði þrennu og hver veit
nema hann eigi eftir að verða marka-
kóngur mótsins?
Þó að aðstæður til að spila knatt-
spyrnu væru ekki upp á það besta
sýndu liðin bæði ágæt tilþrif. Fyrstu
10 mínútumar skiptust liðin á um
að sækja án afgerandi færa en eftir
það tóku Skagamenn völdin. Þeir
náðu þó aöeins að setja eitt mark í
hálfleiknum.
í síðari hálfleiknum héldu Skaga-
mönnum engin bönd. Þeir skoruðu
ijögur mörk á fyrstu 20 mínútunum
og eftir það var aðeins spuming
hversu stór sigur Skagamanna yrði.
Um Skagaliðið er það að segja að það
átti mjög góðan dag og tilkoma
bræðranna Bjarka og Arnars gerir
það að verkum að nú er bara spurn-
ing hvort liðið tapar leik á mótinu.
Sigurður Jónsson var bestur í jöfnu
liði. Arnar og Bjarki voru mjög góðir
og þeir Ólafur Adolfsson og Sigur-
steinn Gíslason vora sterkir.
Keflvíkingar vom einfaldlega
bornir ofurliði. í liðið vantaði tvo
sterka leikmenn, Marko Tanasic og
Ólaf Gottskálksson. Ragnar Ragn-
arsson, ungur markvörður, leysti
Ólaf af hólmi og verður hannn ekki
sakaður um mörkin. Óli Þór, Krist-
inn Guðbrandsson og Ragnar Stein-
arsson stóðu upp úr í liði Keflavíkur.
„Skref í áftina
að mark miðinu“
- sagöi Guöjón Þórðarson efdr sigur KR
Þóröur Gislason skriíar: i sannkoiiuou aauoatæri. KK-mgar vom aðgangsharðir allan fyrri
„Það var mikilvægt að vinna hálfleikinn og var Guömundur
vegna stöðunnar í deildinni. Bar- Ben. þar fremstur í flokki.
áttan er um annaö sætiö og við Leifturmenn komu mun ákveön-
ætlum okkur að halda því. Þetta ari til síðari hálfleiks og var hann
var skref í áttina að því mark- mun jafnari. Mönnum gekk illa að
miði,” sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, eftir góðan sígur á skapa sér færi fyrri hluta hans en síðustu fimmtán mínútumar var
Leiftri, 2-0, í gærkvöldi. Þeir hafa nú fimm stiga forskot á Keflavík- hann mjög opinn. Leiftursmenn náðu oft og tíöum ágætri pressu en
inga sem eru í þriðja sætinu. KR-ingar byijuðu með miklum skyndisóknir KR urðu þeim skeinuhættar. Upp úr einni slíkri
látum og vora rniklu betrí í fyrrí hálfleik. Bíbercic fékk gott færi i skoraði Guömundur seinna mark KR og gerði vonir Leiftursmanna
uppnaii ieiKs en porvaiuur sa vio honum. Strax í næstu sókn kom um stig i leiknum að engu. „Þetta var sex stigaleikur. Úrslit-
Lmat K-K yíit > L^lfíiu smemx kom* ust svo mjög óvænt tveír inn fyrír in eru vonbrigði fynr okkur því við ætluðum okkur sigur í kvöld,”
vom iviv exui io íxuii. igik. öðiuUi renndi boltanum út á Gunnar Má sem á ótrúlegan hátt skaut framhjá ScXgOl OSKul oÖIl| PjwXi ari Leiftursmanna.
• Sigurbjörn Bárðarson með sigurlaunin. Hann átti að keppa ásamt Hin-
riki Bragasyni i 250 metra skeiði í morgun. DV-mynd EJ
Valsmaðurinn Jón Grétar Jónsson hefur hér betur gegn Blikanum Hákoni Sverris
Enn tapa Vals
- nú fyrir Blikum og staöa Valsmanna á bot
Guðmundur Hilmarssan skrifer:
Eftir tap Valsmanna gegn Breiðabliki
í gær má segja að falldraugurinn sé al-
varlega farinn að gera vart við sig á
Hlíðarenda. Valsliðið er lánlaust leik eft-
ir leik en það er oft fylgifiskur falllið-
anna. Eftir leiki gærkvöldsins eru Vals-
menn komnir í erfiða stöðu á botninum
en þeir ásamt FH-ingum og Frömurum
eru að dragast aftur úr í neðstu sætun-
um.
Valsmenn voru síst lakari aðihnn gegn
Blikunum en eins og oft áður í sumar
var liðinu refsað fyrir vamarmistök og
marktækifærin sem liðið skapaði sér
voru ekki nýtt. Sóknir Blikanna voru
þó mun markvissari. Arnar Grétarsson
skapaði oft hættu með glæsilegum send-
ingum og Rastislav Lazorik gerði usla í
vörn Valsmanna. Vendipunkturinn í
leiknum kom á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks en þá gerðu Blikamir mark af
ódýrari gerðinni pg fóru með þægilega
stöðu í leikhléið. í síðari hálfleik héldu
Kópavogsbúarnir fengnum hlut þrátt
fyrir að Valsmenn reyndu hvað þeir gátu
til að minnka muninn.
Hið unga liö Vals á mjög erfiða fallbar-
áttu framundan og ef ekki verður breyt-
ing á leik þess í komandi leikjum bíður
liðsins ekkert annað en fall í 2. deild.
Fari hins vegar gæfuhjólið að snúast Val
í hag og leikmenn öðlast sjálfstraustið
að nýju á liðið vissulega möguleika á að
bjarga sér.
íslensku kynbótadó
neituðu að skrif a un
- mikið uppistand á heimsleikuni
Mikil rekistefna upphófst á heimsleik-
unum í Sviss í gær þegar íslensku kyn-
bótadómararnir Jón Vilmundarson og
Þorkell Bjarnason neituðu að skrifa
undir kynbótadóma mótsins. Jón dæmdi
hryssur en Þorkefl stóðhesta.
Jón neitaði að skrifa undir dóma á
tveimur hryssum, Brynju frá Hafsteins-
stöðum og Hnosslottu von Wiesenhof,
og Þorkell dóma allra stóðhestanna.
„Jón var mjög óánægður með dóma á
tveimur hryssum, Brynju frá Hafsteins-
stöðum og Hnosslottu von Wiesenhof,"
sagði Þorkell.
„Ég sagðist styðja hann og neitaði að
skrifa undir dóma á stóðhestunum, þó
svo að ekkert hafi verið að í okkar dóm-
nefnd.
Brynja er fíngerð hryssa með fingerð-
an háls og Jón gaf henni 9,0 en þýski
dómarinn 7,5. Allir dómararnir gáfu
þýsku hryssunni Hnosslottu 7,0 fyrir
bak og tölt en þýski dómarinn 8,5 fyrir
bæði atriði. Ég sagði að íslensku dómar-
arnir væru alltaf fagdómarar, kæmu
ekki til að pota fram hrossum frá sínu
landi á heimsmeistaramótum. Við sæj-
um engan tilgang með að halda áfram
kynbótadómum á næstu mótum ef þessu
þjóðernissjónarmiði linnti ei.
Við Jón ræddum þessi mál betur og
sáum að það væri erfitt að halda þessu
til streitu, að þaö hefði þurft að mót-
mæla strax því svona óanægja verður
að koma fram jafnóðum. Við ákváðum
því að skrifa undir dómana og mótshald-
arar voru greinilega mjög fegnir," sagði
Þorkell Bjamason aö lokum.
Fimmgangurinn gefur vel
Keppt var í fjórgangi og fimmgangi í
gær. Islensku knapamir stóðu sig með
prýði en keppni var hörð. í fjórgangi er
Vignir Jónasson í 4.-5. sæti og í 6. sæti
Gísli G. Gylfason og í fimmgangi er Sig-
urður V. Matthíasson í 2. sæti, Einar
Ö. Magnússon í 3. sæti, Sigurbjörn Bárð-
arson í 4. sæti og Hulda Gústafsdóttir í
6.-7. sæti. í efsta sæti er Karly Zingsheim
efstur á Feyki von Ringscheid.