Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Page 26
42
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
Trimm
Reykjavíkurmaraþon:
Odhiambo
r
i
Korir
Júlíus Korir, Keníubúinn tind-
ilfætti sem átti aö hlaupa í
Reykjavíkurmaraþoni, veröur
ekki með. I stað hans hefur
Reykjavíkurmaraþon samið viö
ungan fótfráan Keniumann,
Jackton Odhiambo aö nafni.
Þessi skrefdrjúgi Afríkubúi er
aöeins 22 ára gamaU en varö í 10.
saeti. á meistaramóti Keníu í víða-
vangshlaupi og það er nokkuö
hörð keppni. Hann er nýlega
byrjaður aö keppa á Vesturíönd-
um og tók þátt í Stokkhólms-
maraþoni á dögunum. Hann var
fyrstur eftir 40 kílómetra en fékk
kveisu, missti flugiö og lauk
hlaupinu í 10. sæti á 2.18. Besti
tími Odhiambo í 10 km er 28.48
en 13.38 í 5 km. Það er því sýnt
að íslenskir hlaupavíkingar og
skokkberserkir verða að bíta í
eitthvaö annað er skjaldarrendur
til að hanga í afrísku þrumunni
Odhiambo.
Góðaf-
sökun er
gulli betri
Ekkert er eins neyðarlegt og aö
villast af leið í hlaupi, koma
klukkutíma seínna en búist er við
eöa koma í mark þegar búið er
að slökkva á klukkunni og allir
famir heim. Fyrir þá sem reísa
sér hurðarás um öxl á hlaupavell-
inum og takast á við lengri vega-
lengd en þeir ráöa viö er fátt betra
en aö hafa góðar og sannfærandi
afsakanir á hraðbergi. Margir
hlauparar og skokkarar eru afar
slyngir í þessu og hafa komið sér
upp lager af sannfærandi afsök-
unum fyrir því að hætta hlaupi i
miðjum klíðum eða koma í mark
löngu seinna en eðlilegt má telj-
ast. Litum aðeins á hvað þessar
afsakanir þýöa í raun og vem.
Égvilltist = elti konu meö bama-
vagn úti á Seltjarnamesi og fann
ekki hlaupabrautina aftur. Ég
var mjög þungur = lenti i grill-
veislu kvöldið áöur og drakk sig
fulian. Ég fékk krampa = flækt-
ist í skóreimunum og datt. Fékk
í raagann af íþróttadrykknum =
svelgdist á við fyrstu drykkjar-
stöð og var fluttur í sjúkratjaldið.
Drakk ekki nóg á leiðinni = villt-
ist og fann ekki drykkjarstöðina.
Sneri mig illa á leiðinni = datt
og flórir næstu menn hlupu yflr
hann. Ofhitnaði = fór óvart í ull-
arnærbuxur um morguninn. Jók
hraðann of seint = tók GSM-
símann með sér og lenti á spjall-
inu við viðhaldið á miöri leið.
Gleymdi að taka millitimann =
fór inn í garð að sinna kalh nátt-
úrunnar og gleymdi sér við að
horfa á ítalska boltann inn um
kjallaraglugga.
Maraþon í Nuuk:
Islendingar
slógu í gegn
„Það var tekið frábærlega vel á
móti okkur. Við vorum stærsti ein-
staki hópurinn sem kom frá útlönd-
um í hlaupiö og okkur var boðin frí
gisting í tvær nætur og stjanað við
pkkur á alla lund. Það má segja að'
íslendingar hafi slegið í gegn þótt
Umsjón
Páll Asgeir Ásgeirsson
ekkert okkar kæmist á verðlauna-
pall,“ sagði Inga Sólnes, skokkari og
driffjöður, í samtali við trimmsíðuna.
Inga átti stóran þátt í því að skipu-
leggja hópferð 19 íslendinga til Nuuk
á Grænlandi um síðustu helgi til þess
að taka þátt í hinu árlega Nuuk-
maraþoni sem þar var haldið í sjötta
sinn.
Nuuk er höfuðborg Grænlands en
hét áður Godtháb. Borgin er á vest-
urströnd Grænlands og þar búa 14
þúsund af 54 þúsund íbúum lands-
ins. Þessi fjörlega hópferð áhuga-
samra skokkara er enn ein staðfest-
ing þess að þátttaka í almennings-
hlaupum erlendis nýtur vaxandi vin-
sælda meðal skokkara. Þannig geta
menn víkkað sjóndeildarhring sinn
í fleiri en einum skilningi, kynnst
nýju landi, nýjum hlaupaslóðum og
nýjum skokkurum og gert skemmti-
legt og óvenjulegt sumarferðalag úr
öllu saman.
Inga Sólnes hefur um tveggja ára
skeið skokkað með Trimmklúbbi
Seltjarnarness, undir stjórn Mar-
grétar Jónsdóttur skokkvíkings og
eldhuga. „Vegna þess að ég starfa að
ferðamálum á svæðinu sem kallast
Vest-Norden og nær m.a. til Græn-
lands var oft verið spjalla um ýmsa
möguleika á ferðum eins og þessum.
Síðan frétti ég aö skokkarar úr
Hópurinn sem fór og keppti í maraþoni í Nuuk á Grænlandi á Reykjavíkurflugvelli við brottför.
DV-mynd GVA
Námsflokkunum hefðu viljað fara til
Grænlands en hætt viö vegna kostn-
aðar. Þá var allt sett á fullt, þátttak-
endum safnað og byijað að semja við
styrktaraðila. Mér til halds og trausts
var Grétar Guðmundsson sem er
formaður Vináttufélags Grænlands
og íslands. Hann vann ómetanlegt
starf og er það ekki síst honum að
þakka að þetta tókst. Eimskip styrkti
okkur og við hlupum öll í merktum
bolum þaðan.
SAMIK, sem er samstarfssamning-
ur íslands og Grænlands á sviði
feröamála, styrkti okkur einnig. Mér
vitanlega er þetta í fyrsta sinn sem
íslendingar fara til Grænlands gagn-
gert til þess að hlaupa. Einnig komu
nokkrir hlauparar frá Bandaríkjun-
um og Noregi en við slógum í gegn.
Alls tóku um 300 manns þátt í hlaup-
inu. Skráningargjaldið var 150
danskar krónur og innifahö í því var.
bolur og pastaveisla eins og algengt
er. Með dyggri aöstoð styrktaraðila
tókst okkur að koma fluginu meö
íslandsflugi niður í rúmar 20 þúsund
krónur á mann.“ Enginn í hópnum
fór í heilt maraþon, sex fóru í hálft
maraþon og hinir í 10 kílómetra
hlaupið en þátttaka var langmest í
því. Hlaupaleiðin var hringur sem
var 10,5 kílómetrar þannig að kepp-
endur hlupu einn, tvo eða fjóra
hringi eftir því í hvaða vegalengd
þeir kepptu. „Leiðin var býsna erfið,
mjög miklar brekkur á hringnum,
mun meiri en við eigum að venjast."
Hlaupið fór fram á laugardegi og
þrátt fyrir slæma veðurspá reyndist
vera besta veður, 15-20 stiga hiti og
sólskin þegar á hólminn var komið.
Gott veður átti sinn þátt í skemmti-
legri stemningu. „Fólk sat í stórum
hópum á torginu og naut veðursins
og klappaði fyrir hlaupurunum þeg-
ar þeir komu í mark.
Þetta var á allan hátt frábært ferða-
lag og ég er hreint viss um að annar
slíkur leiðangur verður farinn að ári
til þess að hlaupa maraþon í Nuuk,“
sagði Inga Sólnes að lokum.
í
í
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Ágætt að hlaupa eftir tímaáætlun
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
Flestir setja sér ákveöið tímatak-
mark í Reykjavíkurmaraþoni og
hlaupa eftir fyrir fram gerðri tímaá-
ætlun. Það er mjög skynsamlegt að
gera shka tímaáætlun þar sem
ákveðið er fyrir fram á hvaða hraöa
viökomandi ætlar að fara sérhvern
kílómetra. í Reykjavíkurmaraþoni
er sérhver kílómetri vel merktur
þannig að auðvelt er að fylgjast með
hvað tímanum hður miöaö við
hlaupna vegalengd. Gera má ráð fyr-
ir því að seinni helmingurinn í öhum
þremur vegalengdunum sé um það
bil 5% lakari heldur en fyrri hlutinn
hjá mörgum og er það eðhlegt. Fáir
hlauparar í heiminum hlaupa t.d.
seinni hringinn í fullu maraþoni á
betri tíma en fyrri hringinn.
Jakob Bragi Hannesson
11. vika 6/8-12/8
lOkm 21 km 42 km
Sunnudagur • 8 km ról. 10kmról. 14km ról.
Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6km (hraðaleikur) 8 km (hraðaleikur) 8km (hraðaleikur)
Fyrst2km ról.og Fyrst2km ról.ogsíðan Fyrst 2 km ról. og síðan
síðan 2 km hratt og 1 km hratt og síðan 1 km 1 km hratt, síðan 1 km
síðan2km ról. ról. Síðan2kmhrattog ról. Síðan 2 km hratt og
2 km ról. 2 km ról.
Miðvikudagur 4 km ról. 8 km ról. 12km ról.
Sri Chinmoy-hlaupið hefst við Ráðhúsið kl. 20.00.
Fimmtudagur 5km ról. 5 km ról. 5 km ról.
Föstudagur 4 km ról. 6km ról. 8km ról.
Laugardagur 5km 8km 8km'
jafnt og frísklega jafnt og frísklega jafnt og frisklega
Samt.: 32 km 45 km 55 km
4
«
4
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FLUGLEIDIR/S& 0^9$
clSiCS^ mMM
-f