Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Síða 29
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
45
London (lög)
Bretland (plötur/diskar)
Bandaríkin (piötur/diskar)
t 1.(3) Cracked Bear View
Hootie and the Blowfish
| 2. (2) PocahantasPoverty's
Úr kvikmynd
1 3. (4) Crazysexycool
TLC
I t. (1 ) History-Past Prescnt and Futun
Michacl Jackson
t 5. ( 6 ) Batman Forevcr
Úr kvikmynd
t 6. ( - ) The Woman in Mo
Shania Twain
| 7. ( 7 ) Throwing Copper
Live
t 8. (10) John Michael Montgomery
John Michael Montgomcry
t 9. ( - ) Four
Blues Traveler
«10. ( 8 ) The Hits
Garth Brooks
tó
Hvað er Exem?
- Kjöttromman kominlít
Hljómsveitin Exem gaf nylega út 11 laga plötu sem nefnist Kjöttromman.
„Exem varö til um verslunar-
mannahelgina 1993 á Kirkjubæjar-
klaustri þar sem heiðnir landsmenn
gátu aldrei búið án þess að detta
dauðir niður og þar sem systumar
glenntu sig árlega yfir glennugjána í
viðurvist munkanna frá Þykkvabæj-
arklaustri er stóðu hinum megin. Til
að afsanna þjóðsögur um landnáms-
mennina námu Exemfélagar andlegt
land á Kirkjubæjarklaustri þar sem
Einar Melax var tónhstarskólastjóri.
Exem fæddist um miðja sumamótt
með einni trommu við Systrafoss,
sem var að vísu nær vatnslaus þá en
ef vel var hlustað heyrðust nokkrir
dropar faila með mikilvæg skiiaboð.
Að sögn Exems var einn hvatinn að
myndun þessa félagsskapar þau leið-
indi sem þeir viðkvæmu félagar þjáð-
ust af yfir þeirri fátækt sem þeim
fannst rikja í útgáfú fyrir íslenska
jaöarhópa - þeir Exemistar taka allt
til sín.“
Þetta er einungis hluti af því svari
sem Jafet Melge gefúr við spuming-
imni hvað er Exem? Afganginn er að
finna í innvolsi Kjöttronummnar.
Heiðingjar?
Kjöttromman er nýútkomin 11
laga plata með hljómsveitinni Exem
sem er skipuð þeim Einari Melax og
Þorra. Báðir þessir menn era nánast
óþekktir almenningi vegna tilvistar
þeirra í jaðarsveitum íslands til
lengri tíma. Einar var i Oxmá, Kukli,
Sykurmolunum og Melódíu en
starfar nú sem tónlistarskólastjóri.
Þorri stofiiaði Lnfemo 5 árið 1984, rek-
ur gemingaþjónustu og hefur lengi
aðhyllst indóevrópska heiðni og hef-
ur reynt að bjarga heiðnum sið á ís-
landi frá skriffinnum og eingyðings-
trúarmönnum síðustu ár.
Einar Melax sér mn tölvur, hljóm-
borð, blástur og fiðlur á þessari ný-
útkomnu hljómskífu en Þorri sér um
röddina, marokkóskt og tyrkneskt
slagverk. Auk þeirra em á plötunni:
Þór Eldon (gítar), K. Máni (gítar),
Guð Krist (gítar), Andrew McKenzie
(gítar), Kristín Þorsteinsdóttir og
Þórarinn Kristjánsson (slagverk),
Einar Pálsson (franskt hom), Jóel
Pálsson (tenór, saxófónn), Birgir
Mogensen (bassi), Bjarney Gunn-
laugsdóttir, Erla B. Einarsdóttir,
Ragnheiðm Elín, Hallveig og G.G.
Gimn (bakraddir).
Mikið er lagt upp úr textaflutningi
á plötimni og fyrir þá sem em ensku-
mælandi en vilja njóta þeirrar visku
sem Exem hefúr fram að færa hafa
G.G. Gunn, Þorri og Júlía þýtt alla
textana en þá má finna i innvolsinu.
Verði ykkur að góðu!
GBG
Fjölmargar þekktar hljómsvertirflytja tónlist í Batmanmyndinni sem nú er verið að
sýna hér á landi.
Batman að eilífu
Stórmyndir þarfnast umtals og
imitalið þarf að vera gott. Framleið-
endum Batman Forever hefúr greini-
lega ekki þótt nóg að hafa stjömur á
borð við Val Kilmer, Jim Carrey,
Tommy Lee Jones og Nicole Kidman
innanborðs við gerð myndarinnar.
Til að fá aukiö umtal fengu þeir
einnig til liðs við sig stjömur úr
heimi tónlistarinnar. Nú er komin
út geislaplata með tónlistinni úr Bat-
man Forever og má þar finna 14 ólík-
ar hljómsveitir flytja jafn mörg og
ólík lög.
Hverjir flytja?
Efst á listanum er írska
súpergrúppan U2 með lagið Hold Me,
Thrill Me, Kiss Me, Kill Me sem út-
varpshlustendur ættu að vera fam-
ir að kannast við. Nýjustu fréttir af
sveitinni herma hins vegar að ný
plata sé væntanleg á haustmánuðum
í samstarfl við Brian Eno - í eigin
persónu. Söngkonan P.J. Harvey
flytur lag eftir sjálfa sig sem titlast
One Time too Many og bandaríska
stúlknasveitin Brandy flytur lagið
Where Are You now? eftir Lenny
Kravitz.
Breski söngvarinn Seal setur nafii
sitt við myndina og eftirlætur fram-
leiðendimum lag af síðustu sólóplötu
sinni. Lagið kannast allir við, það
heitir Kiss from a Rose og var mjög
vinsælt á síðasta ári. Danssveitin
Massive Attack flytur lagiö The
Hunter Gets Captured hy the Game
ásamt Tracey Hom og Eddi Reader
á lagið Nobody Lives without Love.
Rólynda sveitin Mazzy Star setur
svip á plötuna með laginu Tell Me
now til móts við kraft hljómsveitar-
innar Offspring sem flytur lagið
Smash It up (titillinn segir allt sem
segja þarf).
Hinn ofurdjúpraddaði söngvari
Nick Cave á lagið There is a Light og
rappsveitin Method Man flytur The
Riddler. Söngvari INXS, Michael
Hutchence, endurgerir gamla Iggy
Pop-lagið, The Passenger, auk þess
sem hljómsveitirnar The Devlins,
Sunny Day real Estate og Flaming
Lips eiga sitt lagið hver.
Þetta er tilkomumikill listi flytj-
enda sem hefur vakið upp mikið um-
tal. Spumingin er bara: Hvers vegna
heyrist svona lítið af tónlistinni í
myndinni sjálfri?
GBG
vikunnar