Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1995, Page 44
60
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995
nn
Elizabeth Hurley hefur lent I
ýmsu upp á síðkastið.
Varð fyrir
skoti
„Mér fannst eins og ég hefði
orðið fyrir skoti. Ég hljóp út af
heimili mínu og ég held að ég
hafi orðið fyrir miklu áfalli.“
Elizabeth Hurley, kærasta Hughs
Grants, um viðbrögð sin við fréttum
af framhjáhaldi Grants, í DV.
Ummæli
Á asnaeyrunum
„.. .nú höfum við staðið í þessu í
þrjú ár og látið teyma okkur
áfram á asnaeyrunum."
Hjónin Hjördis Ásgeirsdóttir og Pétur
Þorvaldsson garðyrkjubændur er átt
hafa i striði við menntamálaráðuneyt-
ið, i DV.
Mjög glaður
„Ég hef ekki verið svona glaður
í mörg ár.“
Sigurbjörn Bárðarson hestamaður
sem vann vann heimsmeistaratitil í
gæðingaskeiði, í DV.
Það voru hátt I gúgól heilafrumur
I hausnum á honum Albert Ein-
stein.
Gúgól
Tiu í hundraðasta veldi er tals-
vert stór tala og tæki það menn
ansi langan tíma að telja svo hátt.
Þessi merkilega tala ber hið
furðulega nafn gúgól. Það var níu
ára gamall frændi Bandaríkja-
mannsins dr. Edwards Kasners
sem gaf tölunni þetta skrýtna
auðkenni.
Til aö gefa einhverja hugmynd
um stærðs eins gúgols má benda
á að í öllum alheiminum eru að-
eins um það bil tíu í áttugusta og
fjórða veldi frumeindir.
Blessuð veröldin
Hæsta tala með nafn
Hæsta tala sem hefur sjálfstætt
nafn er tíu í hundrað og fertug-
usta veldi sem er kölluð asank-
heya af búddatrúarmönnum.
Hnífjafnt
Ekki hafa allir miklar áhyggjur
af gúgolum og asankheyum.
Nambiquara-indíánar í Brasilíu
nota ekkert talnakerfi né tölur.
Þó er til í máli þeirra sagnorð sem
táknar „þetta tvennt er jafnt“
Hlýjast á Austurlandi
í dag verður suðvestlæg átt, gola eða
kaldi. Súld eða rigning verður um
Veðrið í dag
landið vestanvert. Dálítil rigning
verður norðanlands fram yfir hádegi
en síðan léttir til víða norðan- og
austanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýj-
ast á Austurlandi.
Sólarlag í Reykjavík: 22.23
Sólarupprás á morgun: 4.45
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.04
Árdegisflóð á morgun: 00.04
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyrí úrkoma 17
Akurnes þoka 10
Bergsstaöir alskýjað 15
Bolungarvík úrkoma 11
Keílavíkurílugvöllur þoka 10
Kirkjubæjarklaustur alskýjað 11
Raufarhöfn alskýjað 13
Reykjavík súld 10
Stórhöföi súld 10
Bergen hálfskýjað 13
Helsinki léttskýjað 19
Ka upmannahöfn léttskýjað 21
Ósló hálfskýjað 16
Stokkhólmur skýjað 16
Þórshöfn skýjað 10
Amsterdam skýjað 17
Barcelona þokumóða 22
Berlín alskýjað 17
Chicago alskýjað 23
Feneyjar léttskýjað 20
Frankfurt léttskýjað 18
Glasgow skýjað 15
Hamborg skýjað 17
London skýjað 17
Lúxemborg léttskýjað 19
Mallorca þokmnóða 21
New York skýjað 26
Nice léttskýjað 23
Nuuk rigning 4
Orlando skýjað 24
París léttskýjað 19
Róm þokumóða 23
Valencía þokumóöa 22
Vín léttskýjað 17
Winnipeg léttskýjað 13
Einar
Eínar Örn Benediktsson er einn
af forsprökkum stórtónleikanna
Uxa sem haldnir verða rétt hjá
Kirkjubæjarklaustri um helgina. :
Það þarf víst ekki að kynna Einar
fyrir neinum. Hann hefur verið
einn mest áberandi tónlistarmaður
íslendinga seinustu ár og náð meiri
frægð á erlendri grund en flestir
íslendingar geta státað af.
Hvemig hefur undirbúningurinn
tónleikanna gengið?
„Þctta cr búið að vera eins og ég _________________________________
vissi að þetta myndi vera, mikíl Einar Örn Benediktsson.
vinna, sérstaklega þegar nær dreg-
ur. Við emm búin að vera að vinna stærra. Stefnan er að gera þetta að
í þessu síðan í marslok. árvissum atburði á íslandi. Að
Við eigum von á því að tónleik- þetta verði sett á rokkkort Evrópu
amir geti veriö byrjunin á ein- sem sambærilegur atburður og
hverju miklu meira, betra og Hróarskelduhátíðin, Reading-
hátíðin og fleira."
Hvað skyldi Einar vera að starfa
núna annað en að undirbúa Uxa?
„Ég vinn hjá Listahátíð í Reykja-
vík viö undirbúning að Listahátíð
’96. Þar fyrir utan hef ég flækst
svolítiö inn á netið með Internet-
kaffihúsinu Síberíu.
Ég er menntaður fjölnúðlafræð-
ingur. Er með próf í fjölmiðlafræði
frá Polytechnic of Central Lon-
don.“
Hver em helstu áhugamál Ein-
ars?
„Ég hef engin áhugamál nema að
liggja í leti,“ segir Einar.
„Konan min heitir Sigrún Guð-
mundsdóttir. Hún er ballettdans-
arí.“
Þau Einar og Sigrún eiga einn
dreng:
„Hann heitir Hrafnkell Flóki og
erþríggjaára." -ÚHE
Myndgátan
Matmaður
! ! 1 St-Á
\
/Z8Y
--------------------Ey POR
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Lítið er að gerast í íþróttunum
hér heima um helgina. Aftur á
móti stendur nú yfir í Gautaborg
heimsmeistaramót í frjálsum
íþróttum. Sex keppendur frá ís-
landi taka þátt í mótinu, þau Pét-
ur Guðmundsson kúluvarpari,
Sigurður Einarsson spjótkastari,
íþróttir
Vésteinn Hafsteinsson kringlu-
kastari, Jón Arnar Magnússon
tugþrautarmaður, Martha Ernst-
dóttir langhlaupari og Guðrún
Arnardóttir grindahlaupari.
Sýnt verður beint frá HM í
frjálsum í ríkissjónvarpinu mn
helgina.
Skák
Þessi staða er frá opnu móti sem lauk
nýlega í Brjánsk í Rússlandi. Skákmeist-
arinn Púgatsjév hafði hvitt og átti leik
gegn Lukovnikov, sem lék síðast 24. -
Be6-c4, án þess að gruna hvað hann átti
í vændum:
25. Hxh7! Dd6 Jafngildir uppgjöf en 25. -
Kxh7 er svarað með 26. Df6! og svartur
er varnarlaus. T.d. 26. - DÍ8 27. Hhl +
Dh6 28. De7+ og vinnur. 26. Hchl Kf8
27. Dh6+ Ke8 28. Dg7 og svartur gafst
upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Tveir bikarleikir í 16 liða úrslitum fóru
fram í gær. Sveit Roche vann stóran sig-
ur á sveit Valdimars Elíassonar og sveit
Estherar Jakobsdóttur vann nauman 10
impa sigur á sveit Páls Þórs Bergssonar.
Sveit Páls hafði rúmlega 40 impa forystu
að loknum 10 fyrstu spilunum en þau
dugðu ekki tO sigurs. Hér er eitt spil úr
leik Roche og Valdimars Elíassonar.
Sagnir gengu þannig í lokuðum sal, suður
gjafari og AV á hættu:
♦ G732
V D86
♦ 10986
4. G7
♦ 10
V KG1073
♦ ÁG75
+ D105
♦ Á64
V 95
♦ 432
+ K9864
Suður Vestur Norður Austur
Valdimar ísak Óli Helgi
pass 1» pass 2+
pass 24 pass 24
pass 3+ pass 3»
pass 4» pass 4 G
pass 3f p/h
Hönd vesturs er nægUega góð í opnun,
þó aðeins séu 11 punktar tO staðar. En
vegna opnunarinnar var erfitt fyrir aust-
ur að stöðva fyrr en á fimmta sagnstigi.
Tvö lauf var gervisögn og geimkrafa og
fjögur grönd fimm ása Blackwood. Fimm
hjörtu lofuðu tveimur ásum af fimm
(trompkóngur talinn sem ás) og Helgi lét
þar við sitja. Óli Bjöm spfiaði út tígli í
upphafi og sagnhafi sá að samgangur var
nokkrum erfiðleikum bundinn í spUinu.
Hann ákvað að spUa hjarta að tiunni i
öðrum slag, norður drap á drottningu og
spUaði laufgosa. Nú vom góð ráð dýr og
útlitið oröið svart. Sagnhafa leist ekki á
að hleypa laufinu og ákvað að gera ráð
fyrir einni ákveðinni legu tíl að stnda
spilið. Drepiö á laufás, tígulkóngur tek-
inn, hjarta á kóng, tígulás og gosi teknir
og laufi hent í blindum og spaðatíunni
síöan hleypt yfir tU suðurs. Og viti menn,
óskalegan fyrir hendi og samningurinn
slapp heim. Á hinu borðinu vom spUuð
6 hjörtu, 3 niður.
ísak Örn Sigurðsson