Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
Fréttir_________________________________________________________
Tilmæli yfirlögregluþjóns á Vellinum til undirmanna:
Heilsi yf irmönnum
að hermannasið
óeinkennisklæddur yfirmaður svari með því að kinka kolli
„Það er vilji sýslumanns að þessir hlutir séu í lagi og það er yfirlögregluþjóns að sjá um að vilja hans sé framfylgt.
Að auki er það allt of oft sem maður sér lögreglumenn I fjölmiðlum húfulausa og með fráflakandi jakka,“ segir
Óskar Þórmundsson yfirlögregluþjónn.
Yfirlögregluþjónn ríkislögreglunn-
ar á Keflavíkurflugvelli hefur séö
ástæöu til að benda lögreglumönnum
á Vellinum á aö sérstakar reglur gildi
um kveðjur lögreglumanna á Keíla-
víkurílugvelli. Segir í reglunum að
„þar sem aðstæður og efni eru til
skal einkennisklæddur lögreglumað-
ur jafnan gefa kveðju (honneur)" eða
heilsa að hermannasið, eins og það
er kallað. „Ekki er unnt að gefa tæm-
andi reglur um öll tilvik," segir í regl-
unum „og því verða menn að nota
heilbrigða skynsemi þannig að gerðir
hans veki virðingu almennings jafnt
sem yfirmanna. Óeinkennisklæddur
lögreglumaður skal aldrei gefa
kveðju."
Óskar Þórmundsson yfirlögreglu-
þjónn segir að lögreglumönnum beri
aö sýna yfirmönnum sínum tilhlýði-
lega virðingu. Einnig séu reglur sem
þessar nauðsynlegar svo að banda-
rískir hermenn, sem eru á verði í
hliðum með íslenskum lögreglu-
mönnum, verði varir við aga í ís-
lensku lögreglunni og viti hverju
sinni hvenær yfirmenn eru á ferð.
„Það er vilji sýslumanns aö þessir
hlutir séu í lagi og það er yflrlög-
regluþjóns að sjá um að vilja hans
sé framfylgt. Að auki er það allt of
oft sem maður sér lögreglumenn í
fjölmiðlum húfulausa og með frá-
flakandi jakka," segir Óskar.
Jafnframt segir í tilkynningunni
að „þegar yfirmenn embættisins
(sýslumaður, staðgengill sýslu-
manns og yfirlögregluþjónar) eru á
ferð um lögsagnarumdæmið ber öll-
um einkennisklæddum lögreglu-
mönnum að gefa þeim kveðju. Það á
jafnt við hvort þeir eru við störf eða
ekki enda er það ekki á valdi lög-
reglumanns að meta slíkt."
Loks segir að „þegar menn standa
vörð í hliðum, skuli þeir ef það rask-
ar ekki öryggi varðstöðunnar, standa
upp og gefa áður nefndum yfirmönn-
um kveðju. Óeinkennisklæddur yfir-
maður svarar með því að kinka
kolli.“ Við undirskrift yfirlögreglu-
þjóns stendur aö þetta gildi þar til
nánari reglur verði settar.
Elías Jón Jónsson, aöalvarðstjóri
og formaður félags lögreglumanna á
Keflavíkurflugvelh, sagðist hafa ver-
ið í sumarleyfi seinasta mánuðinn.
Hann kannaöist þó ekki við að lög-
reglumenn hefðu verið áminntir fyr-
ir að heilsa ekki yfirmönnum sínum
samkvæmt reglum. „Ég tel ástæðuna
fyrir útgáfu tilkynningarinnar þá að
það hefur verið i umræðunni hvenær
eigi að gefa honneur eður ei. Senni-
lega hefur verið einhver óánægja
meðal æöstu yfirmanna með hegðun
sumra undirmanna og tilkynningin
hafi verið gefin út til að taka af öll
tvímæli." -pp
KærantilEFTA:
Engin gögn
komin frá
íslandi
-segir Bjöm Tore Godal
Gísli Kxistjánsson, DV, Ósló:
„Ég veit ekki til þess aö nokkur
gögn hafi borist frá íslandi vegna
togarans Más. Ég veit því ekki
hvort ástæða er til að hafa miklar
áhyggjur af málarekstri þar, jafn-
vel þótt kæra vegna togarans
Hrafns Sveinbjamarsonar bætist
við,“ segir Bjöm Tore Godal, ut-
anríkisráðherra Noregs, í samtali
við DV í gær vegna kæm íslend-
inga á hendur Norömönnum fyr-
ir brot á EES-samningnum.
NIÐURSTAÐA
Norðmenn gáfust upp eftir 24 tíma þref:
Sátt ranilli okkar sem sjómanna
- segir John Espen Lien, ofursti 1 strandgæslunni
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Jú, ef til vill var þetta fljótfærni í
upphafi en við höfum okkar reglur
að fara eftir og gerðum það,“ segir
John Espen Lien, ofursti í norður-
deild norsku strandgæslunnar um
þá ákvörðun sína að synja beiðni
skipstjórans á Hrafni Sveinbjarnar-
syni um aö leita hafnar í Noregi.
í gær var ákveðið að kúvenda í
málinu og leyfa togaranum að koma
til hafnar í Noregi. Lien ofursti neit-
aði í samtali við DV í gær að hann
hefði verið beittur þrýstingi af hálfu
yfirmanna sinna í Ósló.
„Ég átti langt samtal viö Hilmar
Helgason skipstjóra og eftir að hann
.
Á Reykjavíkurborg ab
niðurgrelba dagvlstun
bama hjá dagmæörum?
Nel
hafði lýst ástandi vélarinnar fyrir
mér var það að samkomulagi milli
okkar sem tveggja sjómanna aö hann
sækti aö nýju um heimild til að leita
hafnar án þess að formlega væri tal-
að um neyðarhöfn. Mitt mat var það
að neyðarástand gæti skapast á leið-
inni til íslands ef togaranum væri
siglt þangað" sagði Lien.
Hrafni Sveinbjarnarsyni var snúið
til hafnar í Hönningsvogi þegar eftir
hádegi aö norskum tima í gær. Fylgdi
varðskipið Stálbass togaranum.
Ákveðiö var að fara frekar til Honn-
ingsvogs en Hammerfest vegna hót-
ana sjómanna á síðarnefnda staðn-
um. Formaður sjómannafélagsins
þar sagöi í samtali við DV í gær aö
„öllum sem aðstoðuöu togarann yrði
refsað".
Aðspurður um hvort ekki hefði
verið betra að kynna sér ástandið um
borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni þegar
í upphafi svaraði Lien bara: „Ef til
vill, ef til vifl.“
Útboö á inflúensubóluefni:
Náðu með því fram 30
prósenta verðlækkun
„Þetta er í fyrsta skipti sem útboð
af þessu tagi er haldið og árangurinn
er mjög góður. Viö náðum fram 30
prósenta verðlækkun á hverjum
skammti af inflúensubóluefni með
útboðinu," sagði Bjarni Þórólfsson,
verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum.
Ríkiskaup efndu til þessa útboðs á
inflúensubóluefni fyrir Heiisuvernd-
arstöð Reykjavíkur og Landssamtök
heilsugæslustöðva. Um er að ræða í
útboðsgögnum loforð um kaup á 10
þúsund skömmtum en Bjarni segir
að þeir verði trúlega fleiri.
Það var Stefán Thorarensen hf.
sem átti lægra boðið sem er um 350
krónur fyrir hvern skammt. Hitt fyr-
irtækið sem tók þátt í útboðinu var
Lyfjaverslun íslands.
í fyrra voru greiddar um 500 krón-
ur fyrir skammtinn af inflúensu-
bóluefni. Bóluefnið sem boðið var
inniheldur mótefnavaka sem mælt
er með af Alþjóða heilbrigðisstofnun-
inni gegn inflúensustofnum fyrir
komandi vetur.
Bjarni Þórólfsson segir að í ljósi
þeirrar góðu reynslu Sem af þessu
útboði fékkst megi gera ráð fyrir að
farið verði þessa leið meö fleira sem
heilsugæslustöðvarnar í landinu
þarfnast.
DV
Fréttastofa Sjónvarps:
Hef ráðið
hingaðtil
- segirBogiÁgústsson
„í þau átta ár sem ég hef scarfað
sem fréttastjóri hef ég fengiö að
ráða því hvaða fréttamenn eru
ráðnir til starfa. Það er nauðsyn-
legt þegar menn standa í kapp-
róðri og þurfa að stjóma fleyinu
að þeir fái að ráða því hverjir sitja
undir áram,“ segir Bogi Ágústs-
son fréttastjóri vegna þeirrar
samþykktar útvarpsráðs að
mæla með öðrum í íast starf
fréttamanns en hann hafði óskaö
eftiraðyrðiráðinn. -rt
Útvarpsstjóri:
Hef engin við-
brögðuppi
„Ég hef engin viðbrögö uppi af
þessu tilefni,“ segir Heimir
Steinsson útvarpsstjóri vegna
umsagnar útvarpsráðs um fastr-
áðningar fréttamanna á frétta-
stofu Sjónvarpsins og mótmæla
Félags fréttamanna vegna af-
skipta ráðsins.
Heimir segist ekki hafa tekið
ákvörðun um þaö hveijir veröi
ráðnir í þær stöður sem i boöi
era.
- Munt þú fara að tillögu út-
varpsráðs varðandi mapnaráðn-
ingar á fréttastofu Sjónvárpsins?
„Ég svara því engu að svo
stöddu." _rt
Stuttar fréttir
Sniglarmedsýningu
Bífhjólasamtök lýðveldisins,
Sniglarnir, efna til viðamikillar
mótorhjólasýningar á Keflavík-
urvelli í dag. Sýningin verður
haldin á skemmtistaðnura Top of
Rock og hafa 110 hjól verið skráð
til þátttöku.
Offitan hættuleg
Nýjar rannsóknir á samhengi
milli blóðtappa og offitu benda til
að hættan á myndun blóðtappa
minnki um helming ef fólk léttist
umtalsvert. Likamsþjálfun dreg-
ur ekki úr hættunni en eykur
vellíðan fólks.
TapárekstriÚA
Alls 92,8 milljóna króna halli
varð á rekstri Ötgerðarfélags
Akureyringa hf. fyrstu 6 mánuði
ársins. Dótturfélag ÚA í Þýska-
landi, Mecklenburger Hochsee-
fischerei, skilaði hins vegar 87
milljóna króna hagnaöi.
Forsvarsmenn Fiskverkunar
Jóhannesar og Helga hf. á Dalvík
segjast treysta Kristjáni Ólafs-
syni, forseta bæjarráðs, að fullu
en sjálfstæöismenn fluttu nýver-
ið vantrauststillögu á hann vegna
meintra vanefnda við Fiskverk-
únina. Vantrauststillöguna segja
þeir ómaklega.
Brautskráning á Hólum
í dag brautskráist 21 búfræð-
mgur frá Hólaskóla. Af þeim sem
brautskrást eru 4 af fiskeldis-
braut og 17 af búfræöibraut, þar
af 16 meö hrossarækt, reið-
mennsku og tamningar sem aðal-
svið.
Moggasjónvarp?
Árvakur, útgáfufélag Morgun-
blaðsins, hefur ákveðið að leggja
hiutafé í nýja sjónvarpsstöð sem
verið er að koma á laggirnar.
Bylgjan skýrði frá þessu.
-kaa/rt