Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995 Vísnaþáttur______ Taxtakaupið tíðum brást Bjarni Ásgeirsson fæddist 1. ág- úst 1891 í Knarrarnesi á Mýrum. Foreldrar hans voru Ragnheiöur Helgadóttir og Ásgeir bóndi Bjarnason. Bjarni lauk prófi í Verslunarskólanum í Reykjavík 1910 og í Bændaskólanum á Hvann- eyri 1913. Bjarni var bóndi í Knarr- arnesi 1915-1921 og á Reykjum í Mosfellssveit 1921 til dauöadags en dvaldist erlendis síðustu ár æfinnar. Bjarni gegndi ýmsum ábyrgðar- stöðum í þágu samfélagsins. Hann var formaður Búnaðarfélags ís- lands 1939. í bankaráði Landsbank- ans 1928-30. Landbúnaðarráðherra var hann um skeið og síðast sendi- herra í Noregi, svo að eitthvað sé nefnt. Skúli Guömundsson gekk jafnan berhöfðaður og þegar hann kom til þings 1940 var hann kominn með yfirvaraskegg. Voru menn ekki á einu máli um prýði þessa búnings. Þá kvað-Bjarni: Skúli yrði alþjóð hjá í æði háu mati, ef hann skipti í skyndi á skeggi og höfuðfati. í umræðunum um þegnskyldu- vinnuna var Jóhannes úr Kötlum meðal andmælenda og kom fyrir í ræðu hans orðið „taxtakaup". Bjarni henti þetta á lofti og sendi honum þessa vísu: Teygað hefur þorstlát þjóð af þínu boönarstaupi. Ortir þú samt öll þín Ijóð undir taxtakaupi. Jóhannes úr Kötlum, sem fullu nafni hét Jóhannes Bjarni Jónas- son, svaraöi þannig: Taxtakaupið tíðum brást tregu ljóösins barni, en ef það skyldi eitt sinn fást yrði ég þægur Bjarni. Bjarni kvað er Jón á Akri flutti sig úr sæti viö hlið hans á Alþingi: Hann flutti yfir fjöll til mín í félag drottins barna, en hélt svo aftur heim til sín helvítið að tarna. Áki Jakobsson lögfræðingur flutti ræðu sína á sumarþinginu 1942. Þótti forseta neðri deildar, EmO Jónssyni, þingmanni Hafn- firðinga, Áki svo hvassyrtur að hann taldi sig knúinn til áminning- ar. Þá kvað Bjarni: Rægimála rýkur haf, - rastir hvítar brýtur. Reiðiskálum Emils af Áka-víti flýtur. Svo lýsir Bjarni haustkvöldi á Reykjum: Alltaf kvöldar meir og meir, myrkriö völdin þrífur. Andar köldu um rós og reyr. Reykur í öldum svífur. Bjarni og Guðmundur Jónsson, skólastjóri á Hvanneyri, deildu um færslu búreikninga. Taldi Guð- mundur að bændur ættu að færa Vísnaþáttur Valdimar Tómasson þá sem nákvæmast en Bjarni kvað bændur hafa lítinn tíma til þess og enn minni áhuga. Guðmundur mótmælti þessu. Spyr þá Bjarni hvernig ætti þá að færa ef bóndi kæmist yfir fé á vafasaman hátt. „Og hiklaust tekjumegin," svaraði Guðmundur um hæl. Þá kvað Bjarni: Nákvæmt allt mitt uppgjör sé eignin mæld og vegin en mundu að illa fengiö fé færist tekjumegin. Bjarni og Sigurður búnaöarmála- stjóri voru eitt sinn saman í klefa á skipi en vínföng voru geymd í skáp einum þar inn af. Var Sigurð- ur að aðstoða sjóveikar konur þar. Sagði skipstjóri í gamni við Sigurö að hvorki væri víni né konum óhætt fyrir honum og yrði hann því settur í land í næstu höfn nema aö Bjarni vildi ábyrgjast hann. Svaraði Bjarni því svo: Sigga halda fæstir frá flöskum eða konum. Ég skal taka ábyrgð á öllu nema honum. Gísli Jónsson alþingismaður kvað eitt sinn nokkuö fast að orði í ræðu. Var hann þá spurður hvort hann talaði fyrir hönd síns flokks. Kvað hann svo ekki vera heldur talaði hann fyrir hönd skynsem- innar. Þá orti Bjarni: Þar gekk einn fram ófeiminn ávarpaði hina ekki fyrir flokkinn sinn en fyrir skynsemina. Afnot af íbúð í Davíðshúsi, Akureyri Eins og áður hefur komið fram gefst fræðimönnum og lista- mönnum kostur á að sækja um 1-6 mánaða dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi til að vinna að fræðum sínum eða listum. Ákveðið hefur verið að frestur til að skila umsóknum um afnot af íbúðinni árið 1996 renni út 15. september nk. Umsóknir ber að senda til Akureyrarbæjar, c/o Ingólfur Ármannsson menningarfulltrúi, Strandgötu 19 b, 600 Ak- ureyri. Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála, sími 462 7245. Matgæðingur víkuimar___________________________dv Kjúklingarétt- ur frá Hollandi „Ég ákvað að bjóða upp á uppá- haldsmat dætra minna, þær eru miklir sælkerar en er einnig annt um hvað þær borða. Þessi kjúkl- ingaréttur hefur fylgt mér frá því ég var barn og kemur frá föður mínum sem bjó í Hollandi og var með filippíska heimilishjálp. Mikill hvitlaukur er í þessari uppskrift og var það stundum til vandræða á meðan íslendingar borðuðu ekki hvítlauk en það hefur nú breyst, sem betur fer,“ segir Hildur Sveins- dóttir, félagsráðgjafi hjá Félags- málastofnun Reykjavíkur og mat- gæðingur vikunnar. Hildur segist hafa verið mjög dugleg hér áður fyrr að prófa nýja rétti en sé orðin frekar löt við það nú orðið. „Dætur mínar, Eva Bryndís, Ásthildur og Þóra, eru duglegar í eldhúsinu, sérstaklega ef um pastarétti er að ræða,“ segir Hildur. Eista dóttir hennar, Eva Bryndís, er laganemi en hinar tvær þekktar íþróttakonur og aö sögn Hildar vandlátar á hvað þær setja ofan í sig. En þá er það uppskriftin: Adopo 1 kjúklingur 1/2 bolli Kikkoman sojasósa 1/4 bolli vínedik 3 lárviðarlauf 1 hvítlaukur 10 hvít piparkorn 1/2-1 kjúklingateningur hnetuolía eða ólífuolia til steiking- ar (salt og pipar eftir smekk en Hinhliöin Hildur Sveinsdóttir er matgæöing- ur vikunnar. sojasósan er sölt þannig að salt er oftast óþarft). Kjúklingurinn er brytjaður niður og lagður í sojasóuna og edikið ásamt mörðum hvítlauknum. Látið bíða í um þaö bil eina klukku- stund. Þá er kjúklingurinn steiktur í olíunni þar til hann verður fallega brúnn. Allt látið í pott ásamt legin- um sem kjúklingurinn var marin- eraður í, piparkornunum, lárviðar- laufi og kjúklingateningi og soðið í 45 mínútur. Ef uppskriftin er margfölduö þá ráðlegg ég hálfan hvítlauk fyrir hvern aukaskammt. Með þessu eru borin fram hrís- grjón og hrásalat, einnig mæli ég með rætunni sem hún Steinunn var með í síðasta blaði. Ég er með sérvisku varðandi hrísgrjónin og nota því helst þau tælensku úr Blómavali. Uppáhaldsostakaka íjölskyld- unnar er frá samstarfskonu minni, Sólveigu Jónsdóttur sálfræðingi, aðeins breytt þó. S'\ Ostakaka 400 g rjómaostur 250 g skyr 1/3 bolli sykur 3 tsk. vanilludropar 1 peli þeyttur rjómi Osti, skyri, sykri og vanilludrop- ar hrært vel saman og þeyttum rjómanum bætt varlega út í. Botn 1 2/3 bolli hafrakexmylsna 7 msk. brætt smjör 5 msk. sykur 100 g Siríus suðusúkkulaði (brytj- að). Þessu er blandað saman og sett í botninn á formi. Ostaskyrblandan er sett ofan á og látin bíða í ísskáp svolítinn tíma. Áður en borið er fram er sett týtu- berjasulta yfir frá Den gamle fabrik eða sólberjasulta. Hildur ætlar að skora á æskuvin sinn, Sigurð Árnason krabba- meinslækni, að vera næsti mat- gæðingur en hún segir að hann sé besti kokkur sem hún viti um. Aldrei á ævinni fengið sumarfrí - segir dr. Gunnar Lárus Hjálmarsson úr hljómsveitinni Unun „Alltaf þegar ég hef lesið „Hina hliöina" í Helgarblaöi DV hef ég ímyndað mér að ég væri í sporum þess sem sýnir á sér hina hliðina. Ég var því ekki seinn á mér að segja já þegar blaðamaður DV spurði mig aö því hvort ég væri til,“ sagði Gunnar Lárus Hjálmarsson, bassa- leikari í hljómsveitinni Unun. Flestir sem þekkja til Gunnars kannast helst við hann undir nafn- inu „dr. Gunni“. Fullt nafn: Gunnar Lárus Hjálm- arsson. Fæðingardagur og ár: 7. október 1965. Maki: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Engin, ég nota Hreyfil og strætó. Starf: Plötusali og poppari. Laun: Yfir hungurmörkum. Áhugamál: Notkun skilningarvita. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Já, minnsta vinning í HHÍ og 3 rétta í lottói. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að sinna frumþörfum líkam- ans. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér leiöast svo eldhúsverkin. Uppáhaldsmatur: Spergill og tún- fiskur. Uppáhaldsdrykkur: ískalt krana- vatn. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur i dag? Grímur Atlason Gunnar Lárus Hjálmarsson. badmintonmeistari. Uppáhaldstímarit: Film Threat, Option Private og Húsfreyjan. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Heimur- inn er fullur af fallegu kvenfólki sem ég get ómögulega gert upp á milli. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Klónað eintak af sjálfum mér. Uppáhaldsleikari: Pee Wee Her- man. Uppáhaldsleikkona: Edith Massey. Uppáhaldssöngvari: Hallbjörn Hjartarson. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Zhír- inovskíj. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tinni. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ren & Stimpy og Simpsons. Uppáhaldsmatsölustaður/veitinga- hús: Mokka (kaffi og samloka) og Grænn kostur (réttur dagsins). Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ljóðabókina hennar Diddu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 1. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þessi á X-inu er fínn og þessi dimmraddd- aði sem sér um harmoníkuþáttinn á Gufunni. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hemmi Gunn er bestur en Bogi er töff í fréttunum. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Kaffi list, 22 og Kaífibarinn eru allt ágætisbúllur. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Breiða- blik og QPR. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að skúra gólfið heima hjá mér. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég hef aldrei á ævinni fengið sumarfrí en þegar ég fæ frí er það til að fara að spila einhvers staðar. Menningarfulltrúi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.