Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995 / Þau eru ósköp venjuleg hjón um fimmtugt, eiga fjögur börn og koma vel fyrir. Ekkert bendir til þess að þau hafi átt við mikil vandamál að stríða. En síðustu ár hafa verið þeim mjög erfið vegna yngstu dóttur þeirra. Fjórtán ára fór hún að týn- ast um helgar, hlutir hurfu af heim- ilinu, vln sem foreldrarnir áttu hvarf og að sögn þeirra var stelpan oft mjög undarleg í háttum þegar hún lét sjá sig heima. Þau reyndu að tala við hana um þetta en ekkert gekk. Stelp an þvertók fyrir að hún væri í einhverri neyslu. En hún var farin að líta mjög illa út. Einkunnir hennar í skóla hröpuðu niður úr öllu valdi, hún hljóp út úr tímum og var í alla staöi mjög erfið bæði heima fyrir og í skólanum. í lokin var hún hætt að mæta í skólann. „Hún var mikið hjá sálfræðing- um á þessum tíma,“ segir móðir hennar. „Hún var mjög ör í skapi og átti við agavandamál að stríða. Þeg- ar vínið bættist við fyrir um tveim- ur árum, þegar hún var á fjórtánda ári, versnaði allt til muna. Það var hræðileg upplifun þegar hún lét sig hverfa i nokkra daga. Við vissum ekkert hvar hún var og gátum lítið gert. Það gekk ekkert að tala við hana. Hún æsti sig upp og svaraði okkur fullum hálsi og venjulega endaði allt í hávaðarifrildi." Lifðum í stöðugum ótta „Helgamar voru virkilega erfiðar fyrir okkur,“ segir móðirin. „Á föstudögum beið maður eftir hvort hún kæmi heim úr skólanum og í Rætt er um að loka meðferðarheimili unglinga, Tindum. Margt ungt fólk hefur fengið hjálp þar eins og meðfylgj andi viðtöl sýna. Mynd þessi er þó óviðkomandi viðtölunum og samsett á DV. DV-tölvumynd ÞÖK heim af hræðslu við að einhver kæmist að því hvernig ástandið var,“ segir faðirinn. „Við einangr- uðum okkur og fórum aldrei neitt. En með hjálp prógrammsins á Tind- um fórum við að þora að opna okk- ur örlítið og tala um vandamálið. Hægt og rólega gerðum við okkur grein fyrir að við þyrftum ekkert að skammast okkar fyrir að senda barnið okkar í meðferð. Það hjálp- aði okkur mikið að vita að við vor- um ekki ein um þetta vandamál. Það voru fleiri sem áttu við þetta vandamál að stríða. Og það var al- veg meiri háttar að geta loksins tal- að um hvemig okkur hafði liðið all- an þennan tíma og þurfa ekki að setja upp einhverja grímu og frosið bros. Ég get sagt að núna þegar ég brosi meina ég það virkilega. Og ef mér líður illa þá sýni ég það. Til hvers að vera að fela tilfinningar sínar, byrgja þær inni þangað til maður springur? Samkvæmt prógramminu er nauðsynlegt að fara að hugsa um sjálfan sig á nýjan leik. Ef manni líður ekki vel er mað- ur alls ófær um að hjálpa öðrum og gerir jafnvel illt verra." Hrikalegt að loka eigi Hndum „Sumarið hefur verið frekar sveiflukennt hjá dóttur okkar,“ segja þau. „Stundum virðist hún detta í sama gamla farið. Hún nær sér þó alltaf upp aftur en á heildina litið er þetta vægast sagt allt annað líf. Hún hefur gjörbreyst, er miklu rólegri og það er loksins hægt að tala við hana. Nú er hún á leið í Foreldrar stúlku sem lenti í fíkniefnavandamálum: Við lifðum í stöðugum ótta hvernig skapi hún væri. Myndi hún láta sig hverfa þessa helgina? Ég vakti oft heilu næturnar og beið eft- ir að síminn hringdi, skíthrædd um að það yrði hringt frá spítulunum. Við lifðum í stöðugum ótta. Þetta var ömurlegt ástand. Vi$ vissum ekkert hvert við áttum að snúa okk- ur eða við hvern við áttum að tala. Ég fór einu sinni niður í bæ og leit- aði að henni og fann hana klukkan fjögur að nótfu blindfulla. Þetta var ömurlegur tími og okkur leið hrika- lega illa,“ segir móðir stelpunnar. Að lokum var hún send á fóstur- heimili úti á landi, fiórtán ára göm- ul. Þar var hún í hálft ár og líkaði ágætlega dvölin þar. „Hún sagði okkur þó að hún hefði drukkið nokkrum sinnum á meðan á þeirri dvöl stóð,“ segir faðir hennar. „Það fór allt í sama farið aftur þegar hún kom heim. Og gamla vanlíðanin tók völdin á heimilinu." „Maður tiplaði á tánum í kring- um hana og reyndi að gera allt til að þóknast henni,“ segir móðirin, „allt til þess að hafa hana góða.“ „Félagsfræðingar og sálfræðingar bentu okkur á að við mættum ekki kenna okkur um hvernig farið hafði en það var erfitt,“ segir faðirinn. „Við vorum full sjálfsásökunar og okkur fannst þetta allt saman okkur að kenna. Okkur fannst við hafa brugðist henni.“ Fj ölskyldu vandamál sem enginn mátti vita um Síðastliðinn vetur fór hún í nokk- ur viðtöl við ráðgjafa sem vinnur á Tindum. í framhaldi af því var ákveðið að hún færi í áfengismeð- ferð þar. Meðferðin þar var erfið og hún strauk nokkrum sinnum en kom þó alltaf aftur. Hún lauk fullri meðferð og flutti síðan á áfanga- heimili og var þar út skólaárið. Hún flutti svo heim aftur nú í vor. „Það var erfið ákvörðun að senda hana í meðferð á Tinda," segir móð- irin. „Okkur fannst eins og við vær- um húin að stimpla hana alkó- hólista fimmtán ára gamla. En eitt- hvað þurfti að gera. Það var ekki hægt að lifa við þetta lengur.“ Á meðan stelpan var í meðferð tóku foreldrar hennar fullan þátt í fiölskylduprógramminu. „Ég sæti ekki hér í dag ef ég hefði ekki tekið þátt í þessu fiölskylduprógrammi,“ segir móðirin, „því þetta prógramm hefur hjálpað mér alveg rosalega mikið. Það var komið þannig fyrir mér að ég var hætt að tala við nokkurn mann. Þetta var fiölskyldu- leyndarmál og enginn mátti komast að því. Á yfirborðinu sýndist allt slétt og fellt, maður brosti og lét eins og allt væri í himnalagi. Á sama tíma var maður með stöðugan kvíöahnút í maganum, titrandi og skjálfandi," segir móöirin. „Við veigruðum okkur við að taka gesti áframhaldandi nám sem er alger- lega hennar ákvörðun.“ „Okkur finnst alveg hrikalegt að það eigi að loka Tindum," segir fað- ir inn. „Það er fullt af fólki, bæði börnum og foreldrum, sem þurfa á þessari hjálp að halda. Ég skil ekki af hverju á að loka þama. Þetta virðist vera einhver samkeppni um peningana en á endanum bitnar þetta á börnunum okkar. í lokin vil ég benda á að það er búið að stofna Alanon-deild fyrir foreldra og aðstandendur barna með vímuefnavandamál. Deildin er til húsa í Hallgrímskirkju og er fundur haldinn einu sinni í viku, klukkan fimm á laugardögum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.