Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDÁGUR 26. ÁGÚST 1995 Fréttir Fjárdráttarkæra HSÍ á hendur HaUdóri Jóhannssyni hefur refsingu að meginmarkmiði: Virðast telja litlar líkur á að f á peningana - 400 Svíar dæmi um þá sem sneru við vegna gullgrafaraæðis Islendinga, segir Valdimar Grímsson Eins og staðan er í dag í kærumáli Handknattleikssambands íslands á hendur Halldóri Jóhannssyni, einka- söluaðila aðgöngumiða á leiki HM í handbolta, er nokkuð ljóst að HSÍ telur sig ekki eiga miklar líkur á að innheimta þær 17-19 milljónir króna sem það telur Halldór skulda sér. Kæran, sem er fyrir íjárdrátt, það er undanskot á miðasölupeningum, fel- ur í sér að meginmarkmiði aö Hall- dór verði á endanum dæmdur til refsingar í sakamáli - ekki að meg- inkröfu að hann greiði skuldina - peninga sem Halldór segir að um standi ágreiningur um uppgjör. Við að forsvarsmenn HSÍ, sem standa að kærunni, höfða ekki einka- mál til greiöslu á skuldinni eða reyna enn til þrautar að innheimta hana og höfða þess í staö kæru- og þar með sakamál er því ljóst að refsing er aðalatriðið. Hins vegar hefur HSÍ sagt að það vilji fá RLR til að rann- saka „hvar peningarnir séu“. Peningarnir viröast ekki til Samkvæmt upplýsingum DV hefur Halldór ekki getað sýnt fram á að þær 17-19 milljónir sem HSÍ telur sig eiga hjá honum samkvæmt samningi séu yfir höfuð til. Skuldin átti að vera greidd í júní. Halldóri hefur verið boöið að greiða peningana inn á sérstakan geymslureikning á meö- an ágreiningur hans og HSI yrði til lykta leiddur fyrir gerðardómi sam- kvæmt ákvæðum samningsins en því var hafnað. í viðtali í DV í gær sagði Halldór eftirfarandi: „Þetta er einkamál sem ber að reka sem slíkt vegna þess að þarna er ágreiningur um það hver skuldi hverjum. Á þeim nótum á að vinna þetta mál en ekki ata mig auri með því að kæra mig sem saka- mann.“ Gullgrafaraæðið fældi ferða- menn frá Þegar Halldór fékk einkasöluleyfi á miðum lagði hann fram áhættufé Svíunum vonbrigðum - þeir ákváðu síðan að fara á Lotto-cup í Danmörku í staðinn. Þar með komu 400 færri handboltaáhugamenn en ella varð til íslands í vor. „Þetta er bara eitt dæmið. Það voru miklu fleiri svona dæmi. Verðið var allt of hátt, það ætluðu allir að græða,“ sagöi Valdimar sem hefur ekki fengið öll sín laun greidd hjá Halldóri. Tók mesta áhættu og er nú kærður í fjölmiðlum í vetur og vor var Halldór yfirleitt talsmaður þess að miðaverðið væri ekki of hátt. Hvað sem því líður var reiknað með hátt í 100 prósent fleiri erlendum ferða- mönnum á HM í vor en raun bar vitni. Slöku gengi íslenska hðsins er einnig kennt um minni tekjur. Það var hins vegar ekki aöeins Halldór sem ætlaði sér um of heldur einnig aörir íslenskir aðilar sem komu að því að laða handboltafólk til landsins. Valdimar Grímsson bendir í þessu sambandi á að allar aðstæður heföu verið fyrir hendi hér á landi, þekking og kunnátta. Talandi dæmi um áhugann og eftirspumina eru t.d. sjónvarpsútsendingamar héðan sem hafa aldrei verið eins miklar eins og frá HM á íslandi í vor. Kunnátta og aðstæður vora fyr- ir hendi hér á landi til að taka á móti fjölda fólks og áhugi ferða- mannanna - en þeir voru fældir frá vegna gróöavonar íslendinga. Samkvæmt öllu framansögðu ligg- ur fyrir að Halldór tók áhættu, reikn- aði eins og aðrir með of mörgu fólki til landsins, átti í rekstraröröugleik- um og gerir nú ágreininig við HSÍ um samning sem hann gerði sjálfur, væntanlega vegna breyttra for- sendna, en er nú kærður og refsingar krafist þar sem hann hefur ekki get- að sýnt fram á að þeir peningar sem hann skuldar séu til. Fyrir utan handbolta og þá kunnáttu og reynslu sem mótshaldarar HM á íslandi hlutu I vor einkennast endalok mótsins af því I dag að eigandi aðgöngumiðanna, HSÍ, hefur kært einkasöluaðilann til lögreglu fyrir að standa ekki skil á peningum. Ljóst þykir að mun færri erlendir áhorfendur komu til landsins vegna þess að flug, gisting og miðar voru á of háu verði. DV-mynd BG og saup vissulega af því seyðið t.a.m. síðastliðinn vetur. í þessu sambandi er talað um a.m.k. tugmilljóna króna áhættufé. Miöasöluframkvæmdir fóru í gang með sínum tilkostnaði þegar á síðasta ári án þess að Halldór fengi af því nokkrar tekjur. Starfs- fólk Halldórs fór tvisvar í setuverk- fall í vetur vegna þess að hann greiddi því ekki laun. Þau hafa þó að mestu leyti verið gerö upp nú enda fór sumt af fólkinu með máliö til lögfræðings. Til að gera langa sögu stutta gerðu menn sér verulegar hagnaðarvonir áöur en HM á íslandi var haldiö - a.m.k. var reiknað með miklum mun fleiri útlendingum til landsins. Radd- ir heyröust allt fram yfir keppni að Fréttaljós Óttar Sveinsson miðasöluverð væri of hátt, svo og verð á gistingu og flugferðum. Alhr sem gátu ætluðu að græða. Þetta þýddi að verðið varð svo hátt að út- lendingar sem hugðust koma hættu við. Ég missti af 400 Svíum Valdimar Grímsson, landsliðsmað- ur í handbolta, starfaði sem sölumaö- ur hjá Halldóri Jóhannssyni síðast- liðinn vetur. Til hans leituðu for- svarsmenn 400 skólakrakka sem höfðu safnað peningum í eitt ár til að komast á HM ’95 á íslandi. Valdi- mar var tjáð að hver Svíi hefði safn- að 8.500 krónum sænskum og gert ráð fyrir því að eyða þeirri upphæð í flug, gistingu og aðgöngumiða. Valdimar sagði við DV að samkvæmt „meðalsanngjörnu" verði sem ís- lendingar njóta t.a.m. í flugferðum til útlanda hefði þessi upphæð ekki verið óraunhæf hjá þessum stóra sænska hópi. Valdimar kannaöi það verð sem honum hafði verið uppálagt að selja sínar ferðir á og varð síðan tilneydd- ur að tilkynna Svíunum að því miður fengist hver pakki á mann ekki und- ir 12.000 krónum sænskum. Þetta olli Evrópukeppnin í knattspymu: Góður möguleiki hjá Skagamönnum -mætaskoskaliðinuRaithRovers - KR leikur gegn Everton Dregið var á Evrópumótunum í knattspyrnu í gær. Bikarmeistarar KR-inga mæta ensku bikarmeist- urunum í Everton í Evrópukeppni bikarhafa og íslandsmeistarar Skagamanna drógust gegn skoska úrvalsdeildarliðinu Raith Rovers í UEFA-keppninni. Skagamenn eiga fyrri leikinn í Skotlandi 12. september og síðari leikurinn á fara fram á Akranesi 26. september. KR á fyrri leikinn á heimavelli sínum 14. september og síðari leikurinn á að fara fram á Goodison Park 28. september. í UEFA-keppninni em helstu leikirnir þessir: Barcelona (Spáni)-Hapool Cheva (fsrael) Lazio (ítaliu)-Omonia Nicosia (Kýpur AC Milan (ftalíu)-Zaaglelbie (Póllandi) Volgograd (Rússl.)-Man. Utd (Englandi) MyPa-47 (Finnlandi)-PSV (Hollandi) Bayern M (Þýskal.)-Lokomotic (Rúss- landi) Malmö (Svíþjóð)-Nott. Forest (Englandi) Monaco (Frakklandi)-Leeds (Englandi) Bröndby (Danmörku)-Lilleström (Noregi) Raith Rovers (Skotlandi)-ÍA (íslandi) Inter (Ítalíu)-Lugano (Sviss) W. Bremen (Þýskal.)-Glenavon (N-írlandi) Vladikavkaz (Rússl.ý-Liverpool (Englandi) i Evrópukeppni bikarhafa eru helstu leikir þessir: Liepaja (Lettlandi)-Feyenoord (Hollandi) Molde (Noregiý-Paris SG (Frakklandi) Gladbach (Þýskal.)-FC Sileks (Mekedóniu) KR (fslandi)-Everton (Engiandi) FC Teuta (Albaníu)-Parma (Ítalíu) Deportivo (Spáni)-Apoel Nicosia (Kýpur) Dyn. Batumi (Georgiu)-Celtic (Skotlandi) Bratislava (Slóvakíu)-Zaragoza (Spáni) AEK Aþena (Grikklandi)-Sion (Sviss) í meistaradeildinni, sem hefst 13. september, eru riðlarnir þannig skipaðir: I A-riðli leika: Nantes, Porto, Dynamo Kiev og Panathinai- kos. í B-riðh: Legia Varsjá, Rosen- borg, Blackburn og Spartak Moskva. í C-riðli em: Borussia Dortmund, Juventus, Steaua Búk- arest og Glasgow Rangers. í D-riðli eru svo: Ajax, Real Madrid, Grass- hoppers og Ferencvaros. Nýliðar í Evrópukeppni Mótherjar Skagamanna í UEFA- bikarnum, Raith Rovers frá Skot- landi, era að leika í Evrópukeþpni í fyrsta skipti. Þeir mættu fær- eysku meisturunum GÍ frá Götu í forkeppninni og sigruðu, 4-0, í Skotlandi en liðin skildu síðan jöfn í Færeyjum, 2-2. Raith Rovers er 112 ára gamalt félag en vann síðasta vetur sinn fyrsta stóra titil í skosku knatt- spyrnunni þegar það lagði Celtic að velh í úrslitaleik deildabikar- keppninnar, 6-5, eftir framleng- ingu og vítaspyrnukeppni, og það færði félaginu Evrópusætið. Raith sigraði ennfremur í skosku 1. deild- inni síðasta vetur og tryggði sér með því sæti í úrvalsdeildinni eftir eins árs fjarveru. Raith, sem kemur frá bænum Kirkcaldy á austurströnd Skot- lands, miðja vegu milli Glasgow og Aberdeen, hefur yfirleitt leikið í neðri deildunum. Liðið komst í úr- valsdeildina á ný fyrir tveimur árum eftir 24 ára hlé en féll rak- leitt aftur. Síðasta vor vann Raith 1. deildina með einu stigi og er því aftur á meðal þeirra bestu. Sérfræðingar spá Raith erfiðum vetri í skosku úrvalsdeildinni og liðiö þykir líklegt til að falla á ný. Framkvæmdastjóri félagsins er Jimmy Nicholl sem á árum áður lék meö Manchester United og norður-írska landsliöinu. Heima- völlur Raith, Stark’s Park, rúmar aðeins 9.200 áhorfendur. Attfaldir meistarar Lið Everton þarf varla að kynna fyrir íslenskum knattspyrnu- áhugamönnum en það hefur löng- um verið í fremstu röð í ensku knattspyrnunni þótt það hafi sloppið naumlega við fall í fyrra. Everton hefur átta sinnum orðið enskur meistari og varð bikar- meistari í fimmta sinn síðasta vor með því að sigra Manchester Un- ited, 1-0, í úrslitaleik á Wembley. Everton varð Evrópumeistari bik- arhafa árið 1985. Everton hefur áður leikiö hér á landi en liðið sigraði Keflvíkinga í Evrópukeppni meistaraliða haust- ið 1970, 3Á) á Laugardalsvellinum og 6-2 í Liverpool. Everton leikur á hinum fræga velli, Goodison Park, sem rúmar 40 þúsund áhorf- endur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.