Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 38
46 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995 %■ M Straumur ungs fólks úr landi: Þolum ekki annan vetur eins og í fyrra - segir Magnús Már Sigurðsson trésmiður sem er farinn til Noregs þar sem næg atvinna bíður „Það eru fjórir mánuðir síðan við fórum að huga að því að sennilega væri eini kosturinn fyrir okkur að leita aö vinna í útlöndum. Afkoman hefur alls ekki veriö nógu góð. Síö- asti vetur var mjög erfiður fyrir iðnaðarmenn yfirleitt og búast má við að sá næsti verði jafnvel enn verri. Svo virðist vera aö ekkert sé að gera i þessari grein nema smá- ræði á sumrin en síðan virðist botninn detta úr þessu. Við gætum ekki þolað annað vetur eins og í fyrra,“ segir Magnús Már Sigurðs- son trésmiöur sem hélt til Noregs í gær þar sem hann hefur fengið atvinnu. Sambýliskona hans, Eyr- ún Eyþórsdóttir, bíður í starthol- unum meðan húsnæði er fundið og vonast til að innan mánaðar geti hún einnig flutt út með barnið, búslóð og bíl. Eyrún og Magnús eru ein af þeim fjölmörgu ungu hjónum sem hafa gefist upp á lífsbaráttunni hér á landi og ætla að reyna fyrir sér annars staðar. Fjölmargir kunn- ingjar þeirra, allir úr stétt iönaðar- manna, eru þegar farnir utan. All- nokkrir til Noregs en einnig til Danmerkur og Þýskalands. Aðrir kunningjar eru að hugleiða flutn- ing en ætla fyrst að sjá hvemig vinunum vegnar á erlendri grundu. Landflótti ungs fólks Um það hafa verið fróttir að und- anförnu að stórir hópar af iðnaðar- og flskvinnslufólki hafi farið utan í atvinnuleit. Skipafélögin hafa fengið á milli fimmtíu og sextíu fyrirspurnir um búslóðaflutninga í hverri viku og muna ekki eftir öðru eins. Þessi flótti frá landinu er ákaf- lega slæmur fyrir þjóðfélagið því reynslan hefur kennt íslendingum að þegar heilu fjölskyldurnar fara utan kemur aldrei nema hluti hennar til baka aftur. Þetta er fólk sem íslendingar eru búnir að ala upp og mennta og þess vegna sorg- legt að sjá á eftir því til útlanda. ísland, þetta fámenna land, hefur ekki efni á að missa allt þetta unga fólk. Magnús Már segir aö þó atvinnu- ieysið sé versti hlutinn þá séu laun- in, ef vinna gefst, það lág aö von- laust sé fyrir ungt fólk, sem er að koma þaki yfir höfuðið, að ná end- um saman. Magnús og Eyrún festu kaup á nýrri lítilli íbúð í Grafar- vogi og töldu sig vel getá ráðið við afborganir af henni. Hins vegar hafi vinna dregist svo mikið saman á síðasta ári að nær vonlaust var fyrir þau að standa í skilum. Þau hugðust reyna að selja íbúðina en þá kom í ljós að fasteignasala er lítil sem engin. Nú hafa þau leigt íbúðina og telja að með því geti hún rekið sig sjálf. „Ef maður vill vinna sjálfstætt sem atvinnurekandi er áhættan mjög mikil þar sem langur tími getur liðið milli verkefna. Þegar maður vinnur hjá öðrum eru laun- in svo lág að engin leið er aö lifa af þeim,“ segir Magnús. Litlar framkvæmdir „Ég fann fyrst fyrir þessu ástandi í fyrravetur. Allir halda að sér höndum og litlar framkvæmdir eru Buslooin er komin ofan í kassa og bíður þess að verða flutt til Noregs. Magnús er þegar kominn til Noregs og Eyrún fer með barnið á næstu dögum þegar húsnæði verður klárt. Þau eru bara ein af fjölmörgu ungu fólki sem er að yfirgefa landið. DV-mynd JAK í gangi. Ef næg atvinna hefði verið hér á landi væri maður ekki á leið úr landinu og þá hefði verið auð- velt fyrir okkur að borga af íbúö- inni og lifa.“ Magnús segir að það séu ungu iðnaðarmennirnir sem eru að ílýja landið, hinir eldri þola frekar áfall- ið. Hann segir að það sé auðvelt að fá vinnu annars staðar, atvinnutil- boðin hafa streymt til hans á und- anfömum dögum. Magnús hafði sent flestum at- vinnumiðlurum á Norðurlöndum fyrirspumir og einnig hafði hann samband við íslending sem starfar við uppbyggingu í A-Þýskaiandi. Sá aðili hafði fengið atvinnubeiöni frá nokkrum íslendingum en þar sem dróst að hann svaraði um- sóknunum voru allir þeir menn sem óskuðu eftir vinnunni farnir úr landi þegar hann hafði samband og komnir í vinnu annars staðar. Magnús hafði þá einnig fengið at- vinnutilboð frá Noregi. „Eg hef fengið jákvæð svör frá öllum aðil- um sem ég sendi til,“ segir hann. Um það hefur verið rætt að svo margir iðnaðarmenn séu þegar farnir úr landi að á sumum stöðum á landinu hafi skapast vandræði vegna þess. Magnús segist hafa heyrt þetta og telur að ástandið eigi jafnvel eftir að versna enn. Næg vinna í Noregi Það var í gegnum kunningja sinn sem Magnús fékk vinnuna í Ósló. Þar er mikill uppgangur og mörg atvinnutækifæri. Hann mun starfa við byggingu í miðborg Óslóar þar sem verið er að steypa gipsveggi. Launin eru tvöfalt hærri en hér á landi, skattar lægri, barnabætur hærri en lífsnauðsynjar á svipuöu veröi. „Ég tel að viö munum geta lifað ágætislífl af launum mínum þar,“ segir hann. „Hér heima höf- um við ekkert getað veitt okkur, einstaka sinnum farið í bíó á þriðjudögum þegar hægt er að kaupa tvo miöa fyrir einn.“ Magnús og Eyrún eru með barn á öðru ári og eiga von á öðru barni sínu um áramótin. „Alhr okkar kunningjar, sem þegar eru farnir út, segja aö það sé mun auöveldari lífsbaráttan í Noregi og samfélagið barnvænna."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.