Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Blaðsíða 36
14 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995 íslensk kona, búsett í Bandaríkjunum síðastliðin 24 ár: Kom til að taka þátt í Reykjavík- urmaraþoni - sagði Amfríöur Kristjánsdóttir, eina íslenska konan í heilu maraþoni Maraþonhlauparinn Arnfríður Kristjánsdóttir hefur verið búsett í Bandarikj- unum í 24 ár. Hún var að vonum ánægð með þau verðlaun sem hún fékk í hlaupinu. DV-mynd JAK Það vakti athygli í Reykjavíkur- maraþoninu að af þeim 10 konum sem skráöu sig til keppni var aðeins ein íslensk kona. Hitt vita færri að íslenski keppandinn, Arnfríður Kristjánsdóttir Bhasker, hefur verið búsett í Bandaríkjunum siðustu 24 árin. Arnfríður náði ágætum tíma í hlaupinu og endaði í þriðja sæti kvenna og í fyrsta sæti í sínum ald- ursflokki (40^49 ára). „Ég kom úr rúmlega 40 stiga hita í kuldann hér á landi. Mér fannst þó ekkert sérstaklega kalt í hlaupinu en rokið gerði manni erfitt fyrir. Ég hef reyndar aldrei hlaupið erfiðara uta.usi i m\k I Hafið þið einhvern tíma skrökvað krakkar? Ef þið segið nei, þá eruð þið örugglega að skrökva. Flestir hafa skrökvað einhvern tíma, en eins og þið vitið, þá er það alls ekki fallegt. Fyrir utan það að alltaf kemst upp um ykkur fyrr eða síðar þegar þið hafið sagt ósatt. Allir þekkja eflaust ævintýrið um hann GOSA, hann var stundum óheiðarlegur og sagði ósatt, og-við það lengdist nefið á honum. Við skulum vona að það sama hendi ykkur ekki. Krakkaklúbbur DV og Sam-mynd- bönd efna til litaleiks í tilefni af útgáfu myndbandsins GOSA. Litið myndina og sendið inn til okkar merkt: Krakkaklúbbur DV. Gosa-litalelkur Þverholti 14, 105 Reykjavík Verðlaunin eru 5 Gosa videospólur 10 Gosa úr 10 Gosa bakpokar 30 Gosa veggspjöld Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 6. sept. Dregið verður úr pottinum 7. sept. og hljóta 55 meðlimir glæsileg verðlaun frá Sam-mynd- böndum. Nöfn vinningshafa verða birt lau- gardaginn 9. sept. í Krakkaklúbbshorninu. BJBfBJBJBlBJBJBJBlBlBlBJBlBfBJBlBJBJBlBJBlBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBlBJBlBJBJBJBJBlBJBJBJBl maraþon á ævinni, enda á versta tíma hingað til frá því ég byrjaði að keppa í maraþoni," sagöi Arnfriður Kristjánsdóttir en tími hennar í hlaupinu var 3 klst., 45 mín. og 40 sekúndur. Hún fékk fjölda verð- launagripa fyrir afrekið, 300 dollara verðlaun og forláta hlaupaskó. Bleytan til vandræða „Ég átti samtal við bróður minn, Kristján, og hann sagði mér aö hann stefndi á að hlaupa 21 km í Reykja- víkurmaraþoninu. Ég sagði honum að ef hann væri til í að hlaupa heilt maraþon þá myndi ég koma til lands- ins og hlaupa með honum. Hann var til í það og þess vegna varð af þess- ari ferð. Ég mátti til með að prófa hvernig væri aö hlaupa maraþon á íslandi því ég hef hlaupiö viö allt aðrar að- stæöur hingað til. Rigningin var ekki svo mikið mál en það var rokið sem gerði mér erfiðast fyrir. Besti tími minn hingað til í mara- þoni er um 3 klst. og 25 mínútur, Þó tíminn hafi verið frekar slakur nú gæti ég vel hugsað mér að reyna aft- ur við maraþon hér á íslandi." Au pair til aó læra ensku yÞegar ég var 17 ára gömul og bjó á Islandi ól ég með mér þann draum að læra ensku. Til þess að láta þann draum rætast ákvaö ég að gerast au pair-stúlka úti í Bandaríkjunum. Ég var að vinna á hóteli á þessum tíma og hafði þá engin áform um að flytj- ast til Bandaríkjanna, ætlaði bara að vera í eitt ár þar. Ég fékk vinnu hjá fjölskyldu sem bjó í New Jersey og var hjá henni í 7 mánuði. Fjölskyldan fluttist búferl- um á þeim tima frá New Jersey alla leið til Albaquerque í Nýju-Mexíkó. Þar kynntist ég fyrri manni mínum. Eftir 7 mánaða dvöl ytra kom ég aft- ur til íslands og var þar í 3 mánuði. Á þeim tíma gerði ég mér grein fyrir að ég vildi búa úti í Bandaríkjunum. Mig langar ekkert sérstaklega til að flytja heim til íslands aftur en ég sakna þó alltaf fjölskyldu minnar. Það er nú fyrst og fremst af því að ' engir íslendingar hafa verið nálægir þar sem ég hef búið. Síöustu 12 árin hef ég búið í bænum Socorro sem er um 70 mílur suður af Albaquerque. Nýja-Mexíkó er frekar gróður- snautt en ef farið er til næsta ríkis, Colorado, er þar mun gróðursælla og mun líkara því sem gerist á ís- landi.“ í samtalinu tók blaðamaður eftir því að Arnfríður þurfti nokkrum sinnum að hugsa sig um áöur en hún fann réttu orðin á íslensku. „Ég er aðeins farin að tapa íslensk- unni og þarf að hugsa um hvert orð sem ég segi, enda er enskan orðin mitt móðurmál. Eina íslenskan sem ég tala er þegar ég hringi heim til íslands. Tvö elstu börnin mín skilja nokkuð í íslensku, enda hafa þau verið á íslandi sumarlangt." Heilsugæslu- stöð og hótel „Eiginmaður minn er læknir og við rekum heilsugæslustöð i bænum Socorro. Það eru ekki einu umsvifm hjá okkur því við opnuðum, í sam- vinnu við önnur hjón, Holiday Inn- hótel í bænum sem er með 80 her- bergjum. Það gengur mjög vel og hefur verið nánast fullbókað frá því að við opnuðum. Ég á tvö börn með fyrri manni mínum og tvö börn með núverandi eiginmanni mínum en hann á eitt fyrir. Það eru því fimm börn á heimilinu núna, ef börn má kalla, því þau eru á aldrinum 10-21 árs.“ - Hvers vegna viltu frekar eiga heima í Bandaríkjunum en á íslandi? „Það er auðveldara að gera hina og þessa hluti úti og mun ódýrara að framfleyta sér. Auk þess hefur munurinn á veðrinu mikið að segja. í Nýju-Mexíkó er mjög oft sól en rign- ingin kemur á ákveðnum tímabilum og þá rignir mikið. Ég kann miklu betur við þaö heldur en hið óvissa veðurlag á íslandi. Hitasveiflur eru samt miklar í Nýju-Mexíkó og þar verður nokkuö kalt á veturna. Með- altal köldustu mánaöa er um 5 gráð- ur á Celcius og er ekki óalgengt að snjói þar. Svo er algengt aö hitinn fari yfir 40 gráður á heitustu mánuð- um. Maðurinn minn hefur komið tvisv- ar hingaö til lands og ferðast heilmik- ið. Honum fmnst það gaman en hann getur ekki hugsað sér að flytja hing- að, til þess er Island allt of kalt. Hann er vanur miklum hitum, enda af ind- versku bergi brotinn." Breyta hlaupaleiðinni - Varstu ánægð með skipulagningu Reykjavíkurmaraþonsins? „Ef ég réði skipulagningunni í Reykjavíkurmaraþoni myndi ég breyta hlaupaleiðinni. Það er mjög leiöinlegt að þurfa að hlaupa tvisvar sinnum s_ama hringinn. Þaö er þó kannski ekki hægt aðstæðnanna vegna því þá yrði sennilega að hlaupa mikiö í brekkum. Ég hóf að æfa hlaup fyrir um tveim- ur og hálfu ári og þetta er fimmta maraþonkeppnin sem ég tek þátt í. Ég æfi nokkuð stíft, hleyp 6 daga vik- unnar en tek mér alltaf frí á sunnu- dögum. Þegar ég byrjaði að æfa var þetta nokkuð erfitt en ég hef 'orðið mjög gaman af þessu. Ég fer alltaf út að hlaupa eldsnemma á morgnana, kortér yfir sex. Ætli ég hlaupi ekki að meðaltali um 100 km á hverri viku. Hlaupin gera mér svo sannar- lega gott. Mér líður mjög vel, hef meiri kraft til allra verka, gengur betur að vakna á morgnana og frá því að ég byrjaði hef ég ekki orðiö lasin 1 yfir 2 ár. Ég er alveg ákveðin í að hlaupa þangaö til ég er orðin áttræð. ^ Ég hef reyndar alltaf verið mikið fyrir íþróttir þó að stutt sé síðan ég fór að æfa langhlaup. Ég spilaði fót- bolta í mörg ár og hef mikið verið á skíðum, bæði venjulegum og snjó- bretti. Ég hleyp annað heilt maraþon í St. George í Utah þann 7. október en hljqp fyrr á árinu í Las Vegas. Ég næ því þremur á þessu ári. Ég stefni aö því að taka þátt í Boston-maraþoninu á næsta ári á 100 ára afmæli hlaups- ins í borginni," sagði Arnfríður. -ÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.