Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Side 23
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
23
dv___________________Bridge
Bikarkeppni Bridgesambands íslands:
Átta liða úrslit
Fyrsti leikur í átta liöa úrslitum
bikarkeppni Bridgesambands ís-
lands var spilaöur fyrir stuttu og þar
áttust viö sveitir Hjólbaröahallarinn-
ar og Roche.
Viöureignin var nokkuö jöfn en
þegar upp var staðið höfðu þeir fyrr-
nefndu skorað 3 impum meira, 77-74,
og Hjólbarðahöllinn tryggt sér sæti í
undanúrslitakeppnina.
Aörar viðureignir í átta liða úrslit-
um eru þessar:
Sveit Estherar Jakobsdóttur, Rvk,
gegn sveit Samvinnuferða-Landsýn-
ar
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Sveit Potomac, ísafirði, gegn sveit
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka
Sveit Siguröar Viihjálmssonar,
Súðavík, gegn sveit Landsbréfa, Rvk
Þegar liggur fyrir að sveitir Sigurð-
ar og Landsbréfa munu spila sunnu-
daginn 3. september kl. 11 í húsnæði
Bridgesambandsins við Þönglabakka
1 en öllum leikjunum á að vera lokið
fyrir 4. september. Undanúrlit og
úrslit verða síðan helgina þar á eftir,
einnig að Þönglabakka 1.
En við skulum skoða eitt skemmti-
legt spil frá leik Roche og Hjólbarða-
hallarinnar.
Spil 30, A/Allir
♦ 87
V G9643
♦ D86
+ K76
♦ ÁK10
V ÁK10875
♦ G
+ D85
♦ D9643
V 2
♦ K9543
+ G10
Norður Austur Suður Vestur
pass pass llauf
pass 21auf pass 2 hjörtu
pass 3 tíglar pass 41auf
pass 4 tíglar pass 4 hjörtu
pass 61auf Allir pass
í opna salnum sátu n-s Jónas P.
Erlingsson og Einar Jónsson en a-v
Gylfi Baldursson og Sigurður B. Þor-
steinsson. Gylfi og Sigurður spila
Precision sagnkerfið og sagnirnar
útskýra sig sjálfar.
Auðvitað er slemman í harðara lagi
en ég hefi séð margar verri vinnast.
Jónas spilaði út spaðaáttu, gosa,
drottningu og ás. Ef hjartað liggur
illa þarf sagnhafi að trompa einn tíg-
ul til þess að fá tólf slagi. Hann má
hins vegar aöeins gefa einn slag á
tromplitinn og því held ég að Gylfi
hafi valið rétta leið, þegar hann fór
heim á hjartadrottningu, til þess að
spila litlu laufi að drottningunni.
Einar lét gosann, drottningin úr
blindum og Jónas drap með kóngi.
Það var ekki auðvelt fyrir hann að
spila hjartanu, sem var banabiti
Gylfa, og hann spilaði trompi. Nú var
lítið annað að gera en drepa á laufás
og vona að tían kæmi því enn þurfti
aö trompa einn tígul til þess að fá
tólfta slaginn. Þegar tían kom var
spilið unnið og 12 impar græddir því
á hinu borðinu voru sþiluð íjögur
hjörtu i vestur og unnin fimm.
Þar sátu n-s Helgi Sigurðsson og
ísak Sigurðsson en a-v Hjalti Elías-
son og Páll Hjaltason. Sagnir gengu
þannig :
Norður Austur Suður Vestur
pass 2tíglar* dobl
31auf dobl 3 tíglar- 4hjörtu
pass pass pass
* Einhverjir tveir fimmlitir
Þaö er ljóst aö þrír tíglar doblaöir heföu
gefið betri tölu en fiögur hjörtu enda var
opnun suðurs í djarfara lagi. Páll gerði
hins vegar vel þegar hann fékk yfirslagi
í fiórum hjörtum.
Fjölskylduferð meö ss. Árnesi
sunnudag kl. 15.00 fró Ægisgarði.
Allar veitingar um borb.
3 tíma fero kr. 1.500
Bókanir í síma 893 6030.
PHIUPS
pekkist
ekki betri!
PHILIPS kynnir margar
nýjar gerðir af
ryksugum, hlaðnar
nýungum sem
auðvelda þér
heimilisstörfin enn
frekar. Við hjá
HEIMIUSTÆKJUM vitum
að ryksuga frá
PHILIPS veitir þér
ánægju og stenst
allar kröfur þínar
fullkomlega. Þess
vegna veitum við
þér árs ábyrgð og
30 daga skilafrest
sem við köllum
ánægjuábyrgð.
Þannig er tryggt
að þú færð það
sem þú sækist
eftir. Sterka og
kraftmikla ryk-
sugu í hæsta
gæðaflokki, á
góðu verði!
senvtterf
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
Ökuskólj
íslands
MEIRAPROF
Ökuskóli
íslands
AUKIN ÖKURÉTTINDI - AUKIN ATVINNUTÆKIFÆRI
LEIQUBIFREIÐ - VÖRUBIFREIÐ - HÓPFERÐABIFREIÐ (RÚTA).
Fyrsta námskeið vetrarins hefst föstudaginn 1. sept. kl. 18.00 að Dugguvogi 2. Einnig höldum við
námskeið annars staðar á landinu þar sem næg þátttaka fæst.
Innritun stendur yfir á skrifstofu skólans. Nánari upplýsingar í síma 568 3841.
Mörg verkalýðsfélög taka þátt í námskeiðskostnaði. Góð greiðslukjör.
Ökuskóli Tslands hf. - Dussuvoeur 2 -104 Revkiavík - Sími: 568-3841