Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Side 29
28
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
37
„Ég vissi ekkert um handbolta
þegar ég kom tU íslands, enda er
handbolti nær óþekkt íþrótt í
Skotlandi. Það sama gildir um
Bandaríkin þar sem mjög fáir
þekkja íþróttina. Ég kom fyrst ná-
lægt handbolta í gegnum fyrirtækið
Athygli sem ég hef unnið nokkuð
fyrir,“ sagði Skotinn Rab Christie
sem hefur búið hér á landi í meira
en áratug. Rab var annar ritstjóra
fréttabréfs sem gefið var út fyrir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik fyrr í sumar. Fram-
kvæmdaaðilar ólympíuleikanna í
Atlanta tóku eftir því hve vel tókst
til með útgáfu fréttabréfsins og hafa
farið þess á leit við Rab Christie að
hann sinni upplýsingamálum fyrir
handboltann þegar leikarnir fara
fram.
Kom til að
læra málið
„Ég kom hingað til íslands árið
1982. Tilgangurinn með því þá var
að læra málið því ég hafði mikinn
áhuga á landinu, sögu og menningu
þjóðarinnar. Ég er með masterspróf
í sagnfræði og hafði lært ýmislegt
um sögu íslands og Skandinavíu
áður en ég kom hingað til lands. Ég
er einnig menntaður geðhjúkrunar-
fræðingur. Sagnfræðin er nú einu
sinni þannig, þó skemmtileg sé, að
maður lifir sjaldnast á henni og þess
vegna tók ég einnig geðhjúkrunar-
fræðina.
Ég fór ekki í skóla þegar ég kom
hingað heldur fór ég bara að vinna.
Ég starfa núna í 40% starfi við geð-
hjúkrun en undanfarin ár hefur að-
alstarf mitt verið í blaðamennsku,
svokallaðri lausablaðamennsku
(„freelance"). Ég hef verið svo hepp-
inn að hafa alveg nóg að gera hing-
að til. Ég hef til dæmis skrifað frétt-
ir fyrir knattspyrnutímaritið World
Soccer, fréttir fyrir blaðið Scots-
mém, kynningarefni fyrir ferðaþjón-
ustu og fleiri störf.
Ég er alltaf kallaður Robert
Christie hér á íslandi þó að ég heiti
Rab Christie. Það er vegna þess að
Rab hljómar svo svipað og Hrafn og
Rafn og það veldur misskilningi."
Mikil vinna
samhents hóps
„Athygli tók að sér fyrir tveimur
árum að skrifa kynningarefni um
HM í handbolta á íslandi til að
kynna keppnina erlendis og ég tók
þátt í því. í mars í fyrra fékk At-
hygli það verkefni að sjá um pressu-
málefni keppninnar undir stjórn
Guðjóns Arngrímssonar. Ég var
með í þessu verkefni og ákveðið var
að gefa út fréttabréf á hverjum degi
HM-keppninnar.
Ég var annar ritstjóri þess frétta-
bréfs og skrifaði í það. Hinn ritstjór-
inn var Fjalar Sigurðarson og við
áttum mjög gott samstarf. ^rétta-
bréFið var upphaflega hugsað sem
efni fyrir blaðamenn en fljótlega
fóru þjálfarar og leikmenn að sækja
í það. Það endaði með því að upplag-
ið fór upp í 1000-1100 eintök á dag,
svo mikill var áhuginn."
„íslenskur" Skoti ráðinn sem upplýsingafulltrúi á ólympíuleikum:
Landsliðið tapaði
en þjóðin sigraði
- segir Rab Christie sem segir fslendinga slá öðrum þjóðum við í forritunarmálum
að búa hér á landi. Ég fer reyndar
minnst einu sinni á ári til Skotlands
en ég á heima á íslandi. Ég hef samt
sem áður ekki hug á því að sækja
um íslenskan ríkisborgararétt en
vildi helst hafa ríkisborgararétt
beggja þjóða. Mér skilst að það gæti
reynst torsótt. Þegar ég fer í heim-
sóknir til Skotlands finnst mér ég
vera orðinn hálfgerður túristi í
framandi landi.
Mér finnst eitt nokkuð óþægilegt
hérlendis - hvað það er dýrt að ferð-
ast héðan. Ég fer til Skotlands á
hverju ári og þær eru ómældar fúlg-
urnar sem maður hefur greitt Flug-
leiðum fyrir fargjöldin þangað.
Ég ætla mér að búa áfram héma
á íslandi því ég kann mjög vel við
mig hér, enda er ég giftur íslenskri
konu, Sigríði Tómasdóttur. í
Reykjavík er til dæmis mun hlýrra
veður á vetuma heldur en í Edin-
borg þar sem ég bjó áður. Þar næða
ískaldir heimskautavindar frá Sí-
beríu en á íslandi sér Golfstraumur-
inn um að aldrei verði mjög kalt.
mörgu leyti skemmtilegra að horfa
á þá leiki en leiki úr íslensku knatt-
spyrnunni í sjónvarpi. Lýsingar á
knattspyrnuleikjum á Bretlandseyj-
um eru heldur betri en lýsingar á
leikjum hér - góðir lýsendur gera
leikinn mun áhugaverðari.
Vill fá ódýran bjór
Þó að ég kunni vel við margt
héma á íslandi þá hefur til dæmis
alltaf verið skortur á góðum bjór!
Það væri til dæmis yndislegt að geta
teygað Guinness af krana hérna eða
margar aðrar góðar tegundir.
Bjórúrvalið er smám saman að lag-
ast en verðið er alltaf jafn hátt. Það
er hrein geðveiki að borga 5-6 pund
eða 8-9 dollara fyrir eitt glas af bjór.
Bjórverðið hér á landi er samt ekk-
ert annað en það sem viðgengst ann-
ars staðar á Norðurlöndunum.
Mér fmnst þetta undarleg árátta
yfirvalda að reyna að stjóma áfeng-
isdrykkjunni á þennan hátt með því
að hafa ölið á miör iu verði. Fólk
Áhangandi
Skagamanna
„Eins og allir Skotar
er ég mikill knatt-
spyrnuáhugamaður.
Mitt lið í Skotlandi
er Partick Thistle.
Það hefúr lengst af
verið í úrvalsdeild-
inni en hefur ekki
verið að gera nein-
ar rósir. Hins vegai
er ég orðinn mikill
aðdáandi Skagaliðs-
ins í knattspyrnu og
læt ekkert tækifæri
ónotað til þess að fara
á völlinn. Ég geri mér
til dæmis oft ferðir upp
á Skaga til að fylgjast
með liðinu.
ÍA er búið að byggja
upp ótrúlega góðar aðstæð-
ur á sínum velli fyrir félags-
menn sína. Akranesliðinu
gengur mun betur hér á ís-
landi en Partick Thistle í
Skotlandi.
Annars sakna ég þess nokkuð að
horfa ekki á skosku knattpyrnuna
og ég læt senda mér myndbands-
spólur af skoskum leikjum einu
sinni í hverjum mánuði. Það er að
sem ætlar að drekka drekkur það
sem það vill og lætur engan segja
sér fyrir verkum. Það er ótrúlegt en
satt en fyrir um 20 árum var talað
um það af fullri alvöru í Skotlandi
að gera eitthvað gróft til að minnka
drykkju, hækka verðiö eða gera alls
kyns kúnstir. Skotar sverja sig í ætt
við aðrar keltneskar þjóðir hvað
drykkju varðar - það er stór part-
ur af menningu kelta að drekka
hressilega.
Margar skoðanir voru uppi er
ákvörðun var tekin um að fara öf-
uga leið í áfengismálunum:
rýmka allar reglur um áfengi,
hafa krár og vínveitingastaði
opna alla daga og leggja enga
áherslu á að hækka verð. Ár-
angurinn er sá að drykkjan hef-
ur minnkað ef eitthvað er. Því
er alls ekkert sjálfgeflð að
drykkja minnki þó verðið
hækki og reglur séu settar
sem þrengja að þeim sem
þykir sopinn góður.
En þó að ég telji að ísland
sé aftarlega á merinni í áfeng-
islöggjöfinni eru íslendingar
samt mjög framarlega í ýms-
um málum. Ég hef til dæmis á
fáum stöðum kynnst eins
góðri póstþjónustu, síma-
kerfið hér er mjög full-
komið og mörg tækni-
mál hérlendis eru á
mjög háu stigi eins
og ég var áður bú-
inn að minnast á.
'lér finnst ís-
endingar og
kotar eiga
nargt sameig-
inlegt og vera
líkir um
margt.
Útlit fólks er svipað enda er skyld-
leikinn áreiðanlega fyrir hendi.
Ég er ekki í vafa um að
samskipti íslands og
Bretlandseyja voru
töluverð á land-
námsöld.
-ÍS
»«,, iBv.
„Ég vissi ekkert um handbolta þegar ég kom til Islands, enda er handbolti nær óþekkt íþrótt í Skotlandi," segir Rab Christie í viðtalinu, en hann hefur samt
sem áður verið ráðinn sem upplýsingastjóri („Information manager") handboltans á ólympíuleikunum í Atlanta á næsta ári. DV-mynd JAK
„Þetta var mikil vinna sem við
lögðum á okkur, menn unnu 17-18
tíma á dag á meðan keppnin stóð
yfir. Þarna komu ýmsir góðir við
sögu: Skafti Jónsson, Sylvía Briem í
Laugardalshöllinni, Hallur Hallsson
og Magnús Bjarnfreðsson í Kópa-
vogi, Vilborg Gunnarsdóttir og
Bragi Bergmann á Akureyri. Þetta
var mikil
hópvinna sem
gekk framar
vonum og
mæltist mjög
vel fyrir.
Rekja má
vinsældir
fréttabréfsins
aðallega til
tveggja
ástæðna. Önn-
ur var hið rit-
aða mál, sem
þótti gott efni,
og kannski
ekki síður hin
að í hverju
blaði birtist
statistik eða
töluleg grein-
ing um alla
leiki. Hún var
unnin á vegum
fyrirtækisins
Hewlett
Packard og
hönnuð af Vai-
garði Guðjóns-
syni. Útprent-
un kerfisins
var hönnuð af
Aðalsteini Þór-
arinssyni og
Eiríki
Sæmundssyni.
Menn í
handbolta-
hreyfingunni
voru á einu
máli um það
að forrit Val-
garðs væri það
besta í heimin-
um í dag og al-
gjör bylting
hvað varðar
statistik í
handboltaleikj-
um. Ég er ekki
í vafa um að
möguleikar ís-
lendinga til
sölu á þessu
forriti eru
miklir. Reynd-
ar hefur þegar
reynt á það því
forritið verður
sennilega not-
að á HM í
kvennahand-
bolta sem fram
fer í desember í Austurríki og Ung-
verjalandi.
Því miður verður forritið ekki
notað á ólympíuleikunum í Atlanta
í Bandaríkjunum því búið er að
gera samning um að IBM sjái um
tölvumálin þar. Það er óhætt að
segja að Valgarður er algjör snill-
ingur í forritun. Valgarður vann
sjálfur við forritið ásamt Eiríki og
Aðalsteini á meðan HM fór fram og
þeir hafa sennilega unnið um 400
klst. á þremur og hálfri viku. Móts-
haldið og framkvæmd keppninnar
tókst svo vel og gerði svo mikla
lukku hjá handboltamönnum og
hreyfingunni allri að ég hef viljað
halda því fram að þó að landsliöið
hafi tapað á HM hafi þjóðin sigrað!“
fréttabréfi sem gefið var út á HM á
íslandi. Ég fór út með eintök af því
til Bandaríkjanna og allir voru sam-
mála um ágæti þeirra.
Á tímabili var neikvæð umræða í
gangi um HM á íslandi, talað var
um vandræði í miðasölunni og ým-
islegt fleira sem betur mætti fara.
Sú umræða náði samt ekkert út fyr-
ir landsteinana. Menn fóru héðan
mjög jákvæðir og ánægðir. Ég talaði
við frammámenn margra þjóða á
HM, til dæmis Frakka, Bandaríkja-
menn og Svíá, og allir voru ánægð-
ir.
Blaðamenn voru einnig hæstá-
nægöir með dvölina hér á landi því
svo mikið var gert fyrir þá þegar
leikir voru ekki í gangi. Það átti við
um alla keppnisstaði: Reykjavík,
Kópavog, Hafnarfjörð og Akureyri,
alls staðar voru menn önnum kafn-
ir að sinna fréttamönnum og hafa
ofan af fyrir þeim. Þrátt fyrir að
nánast allir blaðamennirnir sem
voru hér á HM væru íþróttafrétta-
ritarar fékk ísland mikla umfiöUun
i blöðum. Það er ekki sist þvi að
þakka hve mik-
ið var gert fyrir
blaðamennina.
Á meðan keppn-
in fór fram á ís-
landi fylgdist
Bryant Johnson,
framkvæmda-
stjóri ÓL í hand-
bolta, með af
áhuga. Stað-
reyndin er sú að
það er buUandi
skortur á ensku-
mælandi blaða-
mönnum í heim-
inum sem geta
skrifað um
handbolta. Hann
spurði mig
hvort ég væri til
í að koma til
Atlanta til að
kíkja á fram-
kvæmdamálin
þar. Það þurfti
náttúrlega ekki
að spyrja mig
tvisvar að því.
Ég fór 5. ágúst
utan til við-
ræðna og kom
heim 15. ágúst.
Eftir viðræðurn-
ar við fram-
kvæmdaaðila í
Atlanta varð
það úr að ég var
ráðinn til þess
verkefnis að
verða upplýs-
ingastjóri
(,,In-formation
manager“)
handboltans á
ÓL. Ég á að sjá
um að safna og
dreifa upplýs-
ingum um alla
leikina. Ég er
mjög spenntur
fyrir þessu verk-
efni. Ég verð
ekki eini maður-
inn frá íslandi
sem verð þarna
því dómarapar-
ið Rögnvald Er-
lingsson og Stef-
án Arnaldson
munu dæma
leiki á mótinu.
Þeir eru taldir
vera meðal bestu dómarapara heims
í dag. Á ólympíuleikunum í Atlanta
verða 20 handboltaþjóðir, 12 karla-
landslið og 8 kvennalandslið."
Heim á hverju ári
„Ég ve'it eiginlega varla af hverju
ég settist aö hérna á íslandi, ég er
einhvern veginn orðinn vanur því
Viðurkenning
fyrir íslendinga
„í mínum augum er það sem gerð-
ist einstakt. Yfirlýsing frammá-
manna í handboltanum um góða
framkvæmd á HM er rosaleg viður-
kenning fyrir íslendinga. Ég komst
að því þegar ég var í Atlanta að
menn voru ofsalega hrifnir af því