Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Side 34
,42 Trimm Sannir karl- menn borða rétt - nokkur atriði um rétt fæðuval karlmanna „Þú ert það sem þú étur. Enginn nær árangri í íþróttum nema þekkja grundvallaratriði i réttu fæðuvali. Spakur maður sagði: Þú ert það sem þú étur. Þetta eru orð að sönnu. Nútímamaðurinn stendur frammi fyrir flóknu úrvali margra fæðuteg- unda og það vefst fyrir mörgum að Þorða rétt samsetta fæðu. Sumir segja að konur séu samviskusamari í þessum efnum meðan karlmönnum hætti til að grípa það sem hendi er næst og borða á hlaupum og treysta því að þeir fái næga orku úr fæö- unni. Lítum á nokkur atriði sem Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson karlmenn skyldu hafa í huga ef þeir stunda skokk eða hlaup reglulega eða aðra hreyfingu. Kynlíf Heilbrigt líferni leiðir til betra kyn- lífs. Þjálfaður líkami styrkir sjálfs- mynd og eykur kynorku. Mikil þjálf- % un óg of hröð megrun getur þó leitt til þess að hormónabirgðir lækki og athafnaleysi fylgi í kjölfarið. Gegn þessu má vinna með því að borða nóg. Ekkert er sannað um samhengi milli einstakra fæðutegunda og kyn- lífs en sink, sem finnst í ostrum, kjöti og heiiu korni, er líkamanum nauð- synlegt til sæðisframleiðslu. Nægt C-vítamín er nauðsynlegt fyrir sund- hraða sæðisfrumanna. Blöðruhálskirtill Einn af hverjum tíu karlmönnum fær frumubreytingar í blöðruháls- kirtli sem getur leitt til verri veik- inda. Fituríkt fæði eykur áhættuna _^3n rannsóknir sýna að í Japan er krabbamein í blööruhálskirtli fátíð- ara en á Vesturlöndum og er það tal- ð stafa af mikilli neyslu soja- og insubauna. Stress Stress leiðir af sér mörg heilsu- ,'andamál. Þeir sem vinna undir álagi þurfa því aö gæta þess að fá nægan svefn, borða nóg af trefjaríkri fæðu vegna meltingarinnar og minnka kaffidrykkju. Vöövar Sá sem þjálfar mjög mikið hleypur í tvo tíma eða meira í einu, þarf að gæta þess aö ganga ekki á vöðva- massa líkamans. Undir slíku álagi þarf að gæta þess að líkaminn fái nægar hitaeiningar á hverjum degi, sérstaklega kolvetni. Ný orka Sá sem hleypur eða skokkar einu sinni á dag þarf að gæta þess að lík- aminn fái aftur þá orku sem eytt var. Best er að borða eitthvað smá- vegis fljótlega eftir að æfingu lýkur þegar vöðvarnir þurfa mest á nær- ingu að halda. Það skal vera kol- vetnaríkt snarl, t.d. eins samloka, einn banani eða álíka. Vatn er víni betra Hóflega drukkið vín skaöar engan og rannsóknir hafa sýnt að rauðvín inniheldur phenol sem hindrar æöa- kölkun. En of mikið áfengi hindrar- eðlileg efnaskipti líkamans og eyðir B vítamín forða hans. Alkóhól, líkt og kaffi og te, er þvagdrífandi og eyð- ir vatnsbirgðum líkamans sem hann þarf svo nauösynlega á að halda. Boröið reglulega Sá sem borðar ekkert í fjóra tíma eða meira byrjar að ganga á orku- forða líkamans meira en eðlilegt get- ur talist. Því er sérlega óhollt að sleppa máltíðum og best er að borða eitthvað á þriggja tíma fresti. Eldum sjálf Sá sem eldar sjálfur fær ferskan og hollan mat og veit nákvæmlega hvað hann lætur ofan í sig. Sá sem kann ekki mikið að elda gerir rétt í því að gæta þess að fjölbreytni sé næg í eldamennskunni, ekki sé alltaf ver- ið að borða sömu þrjá réttina til skiptis. Maraþon: Hlaupið í misjöfnu veðri Jafnvel harður hlaupari, eins og Hugh Jones, sigurvegari í Reykjavík- urmaraþoni 1995, lét þau orð falla að þetta væri eitt erfiðasta hlaup sem hann hefði tekið þátt í. Þegar horft var á hlaupara streða inn Sæbraut- ina móti rokinu og rigningunni, rennblauta en þijóska á svip, eins og votar mýs í mótþróakasti, fer ekki hjá því að á hugann leituðu spurn- ingar eins og: Hver vegna gera menn þetta? Sá sem hefur mánuðum saman far- ið út að skokka í misjöfnu veðri, bæði í regni, sól og snjókomu, stund- um í myrkri, sá sem hefur af harð- fylgi trimmað af sér tugi aukakílóa og trimmaö sig gegnum kvalafull álagsmeiðsli, lætur ekki nokkra regndropa á hlýjum sumardegi í suð- austan andvara i Reykjavík stoppa sig af. Ónei. Þaö stóð aldrei til að það yrði auðvelt að hlaupa maraþon. Það datt engum í hug. Datt ekki Fippfei- des, fyrsti maraþonhlauparinn, dauður niöur að loknu hlaupi? Ójú. Þó allir fetum vér í fótspor hans forðumst við auðvitaö slík öriög. En við þá sem vorkenndu hlaupurum síðasta sunnudag segi ég þetta: Þetta var ekki erfitt. Þetta var dásamlega gaman. Reimaðu skóna rétt Eins og flestir muna er þaö merk- ur áfangi á braut manns tiJ þroska þegar hann nær valdi á því að reima skóna sína sjálfur. En hélstu að þú kynnir aö reima þá rétt? Bíddu hægur. Sú reimingatækni sem sýnd er á meðfylgjandi mynd er sögð alveg sérstaklega hentug tíl þess að reima að sér skóna þannig að þeir falli vel og þétt að hælnum og gefi ekki eftir þrátt fyrir hlaup, stökk og átök. Vonandi sést vel á mynd- inni hvernig reimunum er brugðiö hvorri utan yfir aðra í efsta gatinu. Rétt aðferö við að reima. LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995 DV Plástur þessi á að auka úthald. Plástur á nefið eyk- urút- hald? Getur verið að það auki úthald- ið að hafa plástur á nefmu? Verð- ur maður ekki að athlægi ef mað- ur mætir með trýnið allt útplástr- að í næsta almenningshlaupi? Ef marka má erlend tímarit er ekki alveg sama hvurslags plástur er notaður til þessa. Umræddur plástur hefur verið markaðssettur vestur í Ameríku undir nafninu Breathe Right. Upphaflega var honum ætlað að koma í veg fyrir hrotur og nef- stíflur af ýmsu tagi sem geta myndað hvimleið ýlfur í sofandi fólki fyrír utan hroturnar. Plást- urinn er sérstaklega hannaður til þess að opna nefgöngin betur og auka þannig súrefnisflæði. Þetta aukna súrefnisflæði fuilyrða menn að auki úthald sé plástur- inn borinn við trimm, hlaup eða líkamlega áreynslu. Ekki verður hér lagður neinn dómur á það hvort þetta er allt saman heilagur sannleikur eða enn eitt dæmið um vel heppnað skrum. Trimmsíðunni er ekki kunnugt um hvort téður plástur fæst á Islandi en sé svo ekki verð- ur þess eflaust ekki langt að bíða. (Runner's World). Hlaupum yfir brúna Laugardaginn 2. september verður mikið um dýrðir á Sel- fossi. Ekki svo að skilja að það sé neitt eínsdæmi. Það er oft mik- iö um dýrðir í þessari höfuðborg flatneskjunnar á Suðurlandi en á þessum laugardegi verður þó sannarlega stungin tólg í þeim efnum. Þennan dag fer nefnilega hiö árlega Brúarhlaup fram á Sel- fossi og byrjar að vanda klukkan tvö við Ölfusárbrú sem hlaupið er kennt við eins og skarpa les- endur var trúlega farið áð gruna. Umrætt hlaup hefur notið vax- andi og verðskuldaðra vinsælda undanfarin ár, einkum vegna þess að enn hefur ekki fundist brekka á Selfossi eða í nágrenni og ekki síður fyrir gott skipulag og stemningu á hlaupadag. Að þessu sinni verður skondraö 5 krn, 10 km og hálfmaraþon. . Styttri hlaupaleiðirnar liggja að mestu innanbæjar á Selfossi en hálfa maraþonið er hiaupið í átt- ina að Stokkseyri og til baka aft- ur. ■ Við sama tækifæri verður keppt í 10 km hjólreiöum og hefst sú keppni kl. 13.00. Skráning og upplýsingar i síma 482-1768 hjá Guðmundi Jónssyni en einnig á skrifstofu UMFÍ i Fellsmúla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.