Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1995, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
59 ^
Afmæli
Bjöm Eysteinsson
Björn Eysteinsson, Hjallabraut 25,
Hafnarfiröi, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Björn fæddist í Meöalheimi í Ás-
um í Austur-Húnavatnssýslu og ólst
þar upp fyrstu átta árin, síðan á
Hofsstöðum í Skagafiröi til 1936, átti
heima á Hnausum í Þingi 1936-39
og á Guðrúnastöðum í Vatnsdal
1939-41.
Björn stundaði nám við unglinga-
skóla hjá séra Þorsteini Gíslasyni í
Steinnesi í tvo vetur, tók inntöku-
próf í Samvinnuskólann í Reykjavík
1938 og lauk þaðan prófum 1940.
Hann flutti til Reyðarfjarðar 1941,
stundaði afgreiðslu- og skrifstofu-
störf hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á
Reyðarfirði 1941-16, var aðalbókari
og skrifstofustjóri þar 1947-67, full-
trúi kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði
1967-76 og var deildarstjóri Reyðar-
fjarðardeildar KHB og fulltrúi á að-
alfundum um árabil.
Björn flutti til Hafnarfjarðar 1977
og hefur átt þar heima siðan. Hann
starfaði á endurskoðunarskrifstofu
SÍS í Reykjavík 1977-89.
Björn sat í hreppsnefnd Reyðar-
fjarðarhrepps 1955-58 og 1963-74 og
var endurskoöandi sveitastjórnar-
reikninga 1955 og 1958-63, hafði
umsjón með byggingu félagsheimil-
is á Reyöarfirði og var formaður
byggingarnefndar 1952-55, var
bókavörður Lestrarfélags Búðar-
eyrarþorps 1946-76, sat í stjórn þess
1943-76, hafði með höndum fram-
kvæmdir fyrir Byggingarfélags
verkamanna á Reyöarfirði frá stofn-
un 1952-74 er lögum um byggingar-
félögin var breytt og sat í stjórn fé-
lagsins á sama tíma, var formaður
Ungmennafélagsins Vals á Reyðar-
firði í nokkur ár, sat í stjórn Ung-
menna- og íþróttasambands Austur
lands og var fulltrúi á þingum þess
í nokkur skipti, var endurskoðandi
útgerðarfélagsins Austfirðings hf.
meðan það starfaði og hafði umsjón
með ýmsum framkvæmdum á veg-
um sveitarfélagsins, s.s. byggingu
barnaskóla.
Fjölskylda
Björn kvæntist 3.3.1945 Sigrúnu
Jónsdóttur, f. 7.5.1925, d. 10.4.1973,
húsmóður. Hún var dóttir Jóns
Árnasonar, skipstjóra á Reyðarfirði,
og Gunnlaugar Sölvadóttur hús-
móður.
Börn Björns og Sigrúnar eru Erna
Guðrún, f. 9.2.1944, gift Ellert Borg-'
ari Þorvaldssyni skólastjóra og eru
börn þeirra Sigrún lyfjafræðingur,
í sambýli með Ágústi Leóssyni við-
skiptafræðingi og eiga þau soninnn
Arnar Leó, Kristín fóstra, í sambýli
með Páh Scheving Ingvarssyni
kaupmanni og eiga þau soninn Ell-
ert Scheving, og Björn Valur; Ey-
steinn, f. 26.2.1954, innkaupastjóri
hjá Bóksölu stúdenta; Hanna Ragn-
heiður, f. 25.2.1960, MA í barnasál-
fræði en sonur hennar er Jóhann
Bimir Sigurðsson.
Systkini Björns: Helga, f. 2.7.1916,
húsfreyja að Hrauni í Olfusi, gift
Ólafi Þorlákssyni bónda og eiga þau
sex börn; Brynhildur, f. 4.2.1918,
húsfreyja að Hrauni í Ölfusi, gift
Karli Þorlákssyni bónda og eiga þau
sex börn; Hólmfríður, f. 18.4.1919,
nú látin, húsfreyja á Vilmundar-
stöðum í Borgarfirði og í Reykjavík
en sambýlismaður hennar var Sig-
urður Geirsson sem einnig er látinn
og eignuðust þau sex börn; Svan-
hildur, f. 19.11.1921, nú látin, hús-
móðir í Þorlákshöfn, var gift Georg
Agnarssyni bifreiðastjóra sem einn-
ig er látinn og eignuðust þau átta
börn; Gestur, f. 1.5.1923, lögfræðing-
ur í Hveragerði, og á hann tvö börn;
Björn Eysteinsson.
Kári, f. 14.1.1925, rannsóknarmaður
hjá Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins, var kvæntur Fjólu
Brynjólfsdóttur húsmóður sem er
látin og á hann eitt fósturbarn; Ás:
dís, f. 13.9.1927, kennari í Reykjavík,
gift Ásmundi Kristjánssyni kennara
og eiga þau tvö fósturbörn.
Foreldrar Björns voru Eysteinn
Björnsson, f. 17.7.1895, f. 2.5.1978,
bóndi í Meðalheimi og á Hofsstöð-
um, og k.h., Guðrún Gestsdóttir, f.
11.12.1892, d. 30.8.1970, húsfreyja.
Til hamingju
með afmælið
27. ágúst
85 ára
Jónína Sæmundsdóttir,
Skólastíg 5, Akureyri.
Július Danielsson,
Hrafnistu v/Skjólvang, Hafnar-
firði.
Kristján Hreinsson,
Eyrargötu 26, Eyrarbakka.
80 ára
Kristín Örnólfsdóttir,
Efstalandil6, Reykjavík.
75ára
Jóhann Jóhannsson,
Byrgi, Akureyri.
70 ára
Jón Einar Hjaltested,
Furugerði 11, Reykjavík.
Hanneraðheiman.
60ára
JökullKrist-
insson(áaf-
mæli 28.8),
Ægisgötu 26.
Akureyri.
Hanntekurá
móti gestum á
heinúli sínu
sunnudaginn
27. ágúst fra kl. 15-18.
Sigmar Jóhannesson,
Sléttahrauni 27, Hafnarfiröi.
Auður Hermannsdóttir,
Lágafelli, A-Landeyjahreppi.
Óli Þ. Guðbjartsson,
Sólvöllum 7, Selfossi.
Ólöf Erla Kristinsdóttir,
Víðimel 35, Reykjavik.
50 ára
Steingrímur Steingrimsson,
Hátröð 6, Kópavogi.
Ásrún Zophoníasdóttir,
Álftamýri 34, Reykjavík.
Ingibjörg Árnadóttir,
Árvöllum 16, ísafirði.
Hallgrímur
Guðmundsson
húsasmíða-
meistari,
Birkibergi34,
Hafnarfirði.
Eiginkona
hanserRe-
bekka Gunn-
arsdóttírlistakona.
Þau taka á móti gestum á heimili
sínu á aímælisdaginn eftir kl. 16.
Björn Eiríks-
sonrafvirki,
Vogagerðil9,
Vogum.
Kona hans er
KolbrúnÞórar-
ínsdóttirsund-
laugarvörður.
Þau taka á móti
gestum laugardaginn 26. ágúst í
Glaðheimumi Vogumeftirkl. 19.
Geir Ólafsson,
Hólagötu 35, Njarðvík.
Snjólaug Þóroddsdóttir,
Geithömrum, Svínavatnshreppi.
Viðar Þormóðsson,
Hlégerði 23, Kópavogi.
Kolbrún Úlfarsdóttir,
Njaröarholti 6, Mosfellsbæ.
BjarniSigurjónsson,
Njálsgötu 50, Reykjavík.
40ára
Bjarni Ástvaldsson,
Vallargötu 15, Sandgerði.
Hlynur Ómar Svavarsson,
Fálkagötu 17, Reykjavík.
Birgir Árdal Gislason,
Lóurima 1, Selfossi.
Halldór Ólafsson,
Hábergi 7, Reykjavík.
Elisabet Kristín Einarsdóttir,
Brúnalandi 3, Bolungarvík.
Jón Guðni Guðmundsson,
Hjallastræti 16, Bolungarvík.
Grimur Andrésson,
Álakvísl 14, Reykjavík.
Björk Tryggvadóttir,
Hofslundi 15, Garðabæ.
Sigríður Lovisa Sigurðardóttir,
Svarthömrum 30, Reykjavik.
Trausti Axels Haraldsson,
Rimasíðu 25d, Akureyri.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐfl /í\
VflLDfl ÞÉR SKflÐfl!
Amdís Bjömsdóttir
Arndís Björnsdóttir framhalds-
skólakennari, Ásvallagötu 52,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Arndís fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavoginum. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Flensborg í Hafnar-
firði, stundaði nám viö íþróttahá-
skólann í Ollerup 1963-64 og tók
próf frá íþróttakennaraskóla ís-
lands 1965. Þá lærði hún spænsku
við háskólann í Malaga 1984, lauk
B.Ed.-prófi frá KHÍ og stundaði nám
í viðskiptafræði við HÍ.
Arndís var íþróttakennari við
grunnskóla Kópavogs 1965-85 og
hefur síðan verið kennari við Voga-
skóla í Reykjavík frá 1989.
Arndís var margfaldur íslands-
meistari og íslandsmethafi í spjót-
kasti kvenna. Þá lék hún með ís-
lenska landsliðinu á árunum
1968-70. Hún hlaut garpsmerki ÍSÍ
1974.
Fjölskylda
Eiginmaður Arndísar var Pétur
Einarsson, f. 4.11.1947. Þau skildu.
Hann er sonur Einars Péturssonar
og Sigríðar Karlsdóttur.
Börn Arndísar eru Sigrún Yrsa,
f. 5.1.1969, flugumferðarstjóri, en
maður hennar er Grétar Símonar-
son og synir þeirra Pétur Geir og
Brynjar; Sigríður Hrund, f. 12.1.
1974, nemi í Frakklandi; Einar Pét-
ursson, f. 19.4.1978, nemi í Reykja-
vík; Arndís Pétursdóttir, f. 2.1.1982,
nemi í Reykjavík.
Systkini Arndísar: Hildur Guðný,
f. 26.4.1944, kennari, gift Þórarni
Tyrfingssyni og eiga þau fjögur
börn; Birna, f. 8.1.1947, húsmóðir
og á hún tvö börn; Gunnvör Braga,
f. 1.2.1951, atvinnurekandi, gift
Gesti Þorsteinssyni og eiga þau fjög-
ur börn; Einar Valgarð, f. 16.4.1952,
bóndi, kvæntur Hafdísi Þórðardótt-
ur og eiga þau sex börn; Guðbjörg
Halla, f. 8.8.1953, húsmóðir, gift
Marteini Jónssyni og eiga þau tvö
börn; Hjalti Þór, f. 6.3.1956, staðar-
haldari á Staðarfelli, kvæntur Mar-
íu Mörtu og eiga þau fjögur börn;
Halldóra Kristín, lést níu mánaöa;
Sigurður Benedikt, f. 28.10.1959,
verkamaður.
Foreldrar Arndísar voru Björn Ó.
Einarsson, f. 10.5.1924, d. 8.1.1993,
Arndís Björnsdóttir.
rafmagnstæknifræðingur og Gunn-
vör Braga Sigurðardóttir, f. 13.7.
1927, d. 1.7.1992, dagskrárstjóri hjá
RÚV.
Ætt
Björn var sonur Einars, útvegsb.
og símstöðvarstjóra á Ekru í Stöðv-
arfirði, Benediktssonar og Guð-
bjargar Erlendsdóttur.
Gunnvör var dóttir Sigurðar Ein-
arssonar, skálds og prests í Holti
undir Eyjafjöllum, og Guðnýjar
Jónsdóttur hjúkrunarkonu.
Arndís tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn.
T
Brynjólfur Þorsteinsson
Brynjólfur Þorsteinsson, fyrrv.
bóndi í Hreiðurborg, til heimilis að
Háengi 9, Selfossi, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Brynjólfur fæddist í Stykkishólmi
og ólst þar upp og í Reykhólasveit.
Hann stundaði nám viö barnaskóla
og var nokkra mánuði í unglinga-
skóla hjá séra Árelíusi Níelssyni á
StaðáReykjanesi.
Brynjólfur stundaði ýmis störf i
Reykhólasveit, vann hjá setuliðinu
í Reykjavík og starfaði í eitt sumar
á Reykjum í Mosfellssveit hjá
Bjarna Ásgeirssyni.
Brynjólfur flutti með foreldrum
sínum að Hreiðurborg i Sandvíkur-
hreppi 1944, starfaði þar hjá foreldr-
um sínum en tók við búinu 1955 og
var þar bóndi til 1994.
Brynjólfur sat í hreppsnefnd
Sandvíkurhrepps í tuttugu og fjögur
ár. Þá var hann fóðurskoðunarmað-
ur og sá um hundahreinsun hrepps-
ins.
Fjölskylda
Kona Brynjólfs er Anna Guðrún
Guðmundsdóttir frá ísólfsskála, f.
16.7.1932, húsmóðir oghestakona.
Hún er dóttir Guðmundar Jóhanns-
sonar, sem er látinn, og Ámfríðar
Vilhjálmsdóttur sem býr með seinni
manni sínum í Reykjavik.
Börn Brynjólfs og Önnu Guðrúnar
eru Herdís Kristín, f. 14.9.1954, yfir-
kennari við Laugabakkaskóla í Miö-
Brynjólfur Þorsteinsson.
firði, gift Pétri Ágústi Hermanns-
syni og eiga þau tvö börn; Arnar, f.
17.1.1956, sendibílstjóri í Reykjavík,
kvæntur Hildi Björnsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Þorsteinn Júlíus Jó-
hann, f. 11.9.1959, b. á Hreiöurborg
í Sandvíkurhreppi, býr með Sigur-
laugu Katrínu Unnsteinsdóttur og
eiga þau þrjá syni; Magga Sigur-
björg, f. 1.1.10.1964, b. á Túnsbergi í
Hrunamannahreppi, gift Gunnari
Kristni Eiríkssyni og eiga þau þrjá
syni; Guðmundur Helgi, f. 3.8.1967,
járnsmiður á Selfossi, kvæntur
Bergljótu Sævarsdóttur og eiga þau
saman eina dóttur, auk þess sem
hann á dóttur frá því áður; Hulda,
f. 3.8.1967, gjaldkeri á Selfossi, en
hún býr með Þórði Stefánssyni.
Systir Brynjólfs er Karólína Þor-
steinsdóttir, f. 27.1.1927, kaupmaður
á Seyðisfirði, gift Garðari Eymunds-
syni og eiga þau íjögur börn.
Hálfsystir Brynjólfs er Ragnheið-
ur Þorsteinsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Brynjólfs voru Þor-
steinn Brynjólfsson, f. 8.6.1887, d.
14.4.1961, bóndi í Hreiðurborg, og
Júlíana Jóhanna Sturlaugsdóttir, f.
3.9.1890, d. 30.10.1979, húsfreyja.
Brynjólfur er að heiman á afmæl-
isdaginn.
Bjóðum
afmælisbörnum
á öllum aldri
ókeypis
fordrykk og
veislukvöldverð
allan ársins hring.
Islttóm
ÖDK
Hveragerði
I^S. 483 4700, fax 483 4775j