Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995
7
Engar ákvarðanir teknar 1 máli Lífeyrissjóðs bænda:
Verður hugs-
anlega kært
til lögreglu
- segir Guðríður Þorsteinsdóttir, formaður stjómar sjóðsins
„Það eru mjög ákveðin ákvæði í
reglugerðum allra lífeyrissjóðanna
og um Lífeyrissjóð bænda gilda lög
um það hvernig megi íjárfesta. Sett
eru ákaflega þröng skiíyrði og yfir-
leitt má bara fjárfesta í fasteigna-
tryggðum bréfum upp að ákveðnu
marki, í ríkistryggðum bréfum og
í bæjarfélagabréfum. Fyrri
skömmu voru hlutabréf einnig tek-
in inn í þessi skilyrði. Þessi ákvæði
eiga að vera kunn þeim mönnum
sem starfa í stjórnum og fram-
kvæmdastjórnum lífeyrissjóða,"
sagði Pétur H. Blöndal stærðfræð-
ingur, aðspurður hvaða reglur
giltu almennt um íjárfestingar líf-
eyrissjóða. Hann sagði ljóst að
strangari ákvæði vantaði um líf-
eyrissjóði, lík þeim sem til væru
um banka og verðbréfafyrirtæki.
Nú velta menn því fyrir sér hvort
Benedikt Jónsson, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs bænda, sem
baðst í liðinni viku lausnar frá
störfum eftir að hafa upp á sitt ein-
dæmi lánað flugfélaginu Emerald
Air 90 milljónir króna, muni þurfa
að bera ábyrgð á gerðum sínum á
annan hátt en þann að hann missi
vinnuna. Benedikt var kosinn
stjórnarformaður í eignarhaldsfé-
lagi íslenskra hluthafa í Emerald
Air í kjölfar þess að Lífeyrissjóður-
inn lagði 10 milljóna króna hlutafé
í flugfélagið. í gegnum stjórnarfor-
mennsku í eignarhaldsfélaginu fór
Benedikt í stjórn Emerald og lánaði
síðan flugfélaginu peninga í algjöru
heimildarleysi. Um er að ræða 10%
af ráðstöfunarfé sjóðsins.
„Benedikt leyndi okkur þessu allt
þar til á mánudaginn í liðinni viku
en þá játaði hann fyrir mér að hafa
gert þetta. Hann baðst lausnar frá
störfum en honum hefði aö sjálf-
sögðu annars verið vikið frá. Við
erum búin að ráða lögmann og
endurskoðendur og þeir munu
kanna hvort máhð verður kært til
lögreglu. Ákvörðun um það verður
tekin í vikunni," sagði Guðríður
Þorsteinsdóttir, formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs bænda. Guðríður
sagði að verið væri að kanna hvort
féð fengist endurgreitt, hún vonaði
það besta en ekkert væri öruggt í
því sambandi. Hún sagði að fyrsti
gjalddagi væri 20. september og
annar og þriðji 15. október og 15.
nóvember.
-sv
Fréttir
Hér sjást sýnishorn af spilunum sem prýdd eru myndum af islenska
hestinum i sinu upprunalega umhverfi.
íslenski hestur-
inn á spilum
„Ég geri mér vonir um að geta
komið þessu á markað í útlöndum
og við höfðum það sérstaklega i huga
þegar við vorum að velja myndirnar
að þær sýndu hestinn í sínu upp-
runalega umhverfi. Ég vona að okk-
ur hafi tekist að sýna samspil hests
og íslenskrar náttúru," segir Hjörtur
Sandholt en hann er um þessar
mundir að koma á markað spilum
með myndum af íslenska hestinum.
Hjörtur gaf út lýðveldishátíðarspil
á síðasta ári og segir að hestaspilin
séu gott innlegg í minjagripaflóru
íslenska hestsins. Eiríkur Jónsson
tók myndirnar.
„Ég hef fengið mjög góð viðbrögð
við þessum spilum og á þeim eru 54
mismunandi myndir. Að sjálfsögðu
er sama myndin á baki allra spil-
anna. Stokkurinn kostar líklega á
milli 700 og 800 krónur, svipað og
önnur sérmerkt spil sem eru á mark-
aðnum,“ segir Hjörtur. -sv
Hyundai Pony GLSi 1500 '93,
5 g„ 4 d., blár, ek. 27 þús. km.
Verð 880.000. Einnig til sjálfsk.
Hyundai Pony LS 1300 '93, 5
g„ 3 d„ grænn, ek. 23 þús.
km. Verð 700.000.
Hyundai Pony LS 1300 '94, 5
g„ 4 d„ grænn, ek. 15 þús. km.
Verð 820.000.
Ford Ranger '91, 5 g„ 2 d„
rauður, ek. 46 þús. km. Verð
1.090.000.
Renault Express 90, 5 g„ 4 d„
hvítur, ek. 62 þús. km. Verð
550.000.
BMW 518i '86, 5 g„ 4 d„ hvít-
ur,. ek. 133 þús. km. Verð
450.000
Volvo 740 GLE 2300 '86, 5 g„
4 d„ blár, ek. 106 þús. km.
Verð 760.000.
Hyundai Elantra 1800 '93, 5
g„ 4 d„ blár, ek. 52 þús. km.
Verð 1.010.000.
Hyundai Elantra 1600 '93,
ss„ 4 d„ vínrauður, ek. 37
dús. km. Verð 1.100.000.
Hyundai Elantra 1800 '94 5
g„ 4 d„ hvítur, ek. 14 þús.
km Verð 1.190.000
Hyundai Pony GLSi 1500 '93,
5 g„ 5 d„ vínr., ek. 18 þús.
km. Verð 840.000
Lada station 1500 '94, 5 g„
5 d„ hvítur, ek. 17 þús. km
Verð 550.000
Hyundai Pony GLSi 1500 '93,
ss„ 4 d„ grár. ek. 33 þús. km.
Verð 920.000
Suzuki Swift GLi 1000 '91 5
g„ 3 d„ rauður, ek. 35 þús.
km. Verð 590.000.
Subaru Justy 1000 '87, 5 g„
3 d„ hvítur, ek. 87 þús. km
Verð 300.000