Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995 Fréttir Stingur 1 augu að sjá kindur í tveimur reyfum: Ullin getur borgað áburð- inn hjá sauðfjárbændum - ef vel er á málum haldið, segir Jón Viðar Jónmundsson hjá Bændasamtökunum Verð á ull til bænda Haustrúin ull á landlnu öllu í tonnum 30 '89 Verð á ull til bænda eftir gæðamati — verð í krónu 623 1 523 -1 «c «5 e o O 5= jse o Þegar ferðast er um landið, að minnsta kosti suma landshluta, er eftirtektarvert hve mikið er um að sauðfé sé í tveimur reyfum. Að sjá kindurnar að sumrinu í gömlu ull- inni, sem náttúran ætlast ekki til að endist nema til vorsins, ber ekki vott um góða umhirðu á skepnunum þar sem þeim líður illa í svo þykkri ull. Auk þess getur þaö beinlínis verið hættulegt, þar sem úr ull, sem er að losna af, getur auðveldlega myndast ullarhaft. Þá þvælist ullin um fætur kindanna og heftir þær. Tími hagalagða liðinn Þar sem sá tími er liðinn að böm tíni hagalagða til að selja í kaup- staðnum verður ullin sem kindurnar skilja eftir eins og hver önnur meng- un í náttúrunni. Þetta vekur upp þá spurningu hvort bændur nenni ekki að rýja lengur eða hvort hreinlega fáist ekk- ert verð fyrir ullina. Það heyrist nefnilega að sauöfjárbændur séu ekki of vel haldnir fjárhagslega. DV leitaði til Jóns Viðars Jón- mundssonar hjá Bændasamtökun- um til að reyna að fá svar við þessu. „Það er nokkuð víst að margir sem ekki sinna þessu hafa ekki nógu góð- ar aðstæður til að fá verðmikla ull. Húsin þurfa að vera hlý og góö, það þarf að rýja kindurnar um leiö og þær fara inn á haustin. Þannig fæst ullin hrein og fyrsta flokks," sagði Jón Viðar Jónmundsson. Rúið á haustin „Það eru um það bil tíu ár síðan farið var að rýja á haustin. Afgangur- inn af gömlu ullinni er síðan tekinn af í marsmánuði, svokallað snoð, en þá eru ullarskilin komin, þ.e. nýja ullin farin að vaxa. Ef menn hafa aðstöðu til og sinna þessu vel gerir ullin betur en borga áburðarverðið sem er stærsti út- gjaldaliður sauðfjárbænda. Það sem aðallega fellir ullina í verði er hlandbruni og flóki,“ sagði Jón Viðar. Hann sagði enn fremur að það væri ágætt að ná þremur kílóum af ull á kind en það væri ekki svo mik- ið að meðaltali yfir landið. Sumir bændur rýja sjálfir en aðrir fá sérstaka menn til að vinna verkið. Verð á fjárklippum er mismunandi og þær eru til á 34 til 36 þúsund krón- ur og síöan alveg upp í um það bil 85 þúsund krónur en þær eru meira fyrir atvinnumenn. 800-1.000 krónur af hverri kind „Það hefur orðið gífurleg breyting á síðustu árum, við erum að fá mjög góða ull og hún er alltaf að batna. Ég held nú að bændur haldi margir hverjir að húsin hjá þeim séu ekki nógu góð fyrir haustrúning en það er oft á misskilningi byggt. Það þyrfti kannski að kynna þetta betur. Það er hægt að fá 800-1.000 krónur fyrir ull af hverri kind yfir árið. Þær þurfa eitthvað meira fóður og ekki er hægt að stóla eins á vetrarbeit meö því að rýja á haustin en flestir hafa nú nóg af heyjum síðan sauðfé fækkaði svona rnikið," sagði Þórar- inn Þorvaldsson, bóndi á Þórodds- stöðum i Hrútafirði og stjórnarfor- maður í ístexi. Fyrirtækið ístex er eina fyrirtækið á landinu sem safnar ull hjá bændum á skipulagðan hátt. Handverksfólk sækir þó stöðugt í sig veðrið en það er ekki mikið magn sem það kaupir. Guðjón Kristinsson, framkvæmda- stjóri ístex, vildi leggja sérstaka áherslu á að stórstígar framfarir hefðu orðið í meðhöndlun bænda á ull á síðustu árum. Munaði þar mest um haustrúninginn en hann gæfi langbestu ullina. Hundrað tonna aukn- ing á einu ári Arið 1989 voru 30 tonn af ull tekin af fénu að haustinu á landinu öllu, 430 tonn 1993 og 530 tonn árið 1994, þar var aukningin 100 tonn á milli ára. Verð á ull til bænda er mjög mis- munandi eftir gæðum og einnig lit- um. Hvíta ullin er verðmest en ef tveir litir eru í sama reyfinu fellur verðið verulega. Fyrir besta flokk, úrvalsull, fá bændur 623 krónur fyrir kílóiö, 1. flokk 523 krónur og 2. flokk 434 krón- ur. Guðjón sagði að yfir 60% af allri ull færu í þessa þijá flokka. Verð á ull í hreinum sauöalitum, svörtu, gráu og mórauðu, er 434 krónur á kílóið, 3. flokks ull er á 109 krónur kílóið og mislit ull, þ.e. með tvo liti í sama reyfinu og einnig grámórauð ull, á 74 krónur kílóið. Fyrir kíló af 3. flokks mislitri ull fást 7 krónur og ef ullin er mjög hlandbrunnin eða mikið af heyi í henni og mikill flóki fæst ekkert fyrir hana. Norðlenskir bændur standa sig best Emma Eyþórsdóttir, formaður ull- armatsnefndar, sagði að ef rúið væri á vorin eins og tíðkaðist áður á ís- landi væri ullin oft ónýt, hún væri þófin, sérstaklega ef raki væri í hús- um, og heymoð í henni. Emma sagði að bændur á Norður- landi stæðu sig best með haustrún- inginn. í Borgarfirði og á Suður- landi, þar sem veðrátta væri mildari en fyrir norðan, væri tregða hjá sum- um bændum að taka upp haustrún- ing þar sem þeir væru vanir að láta féð liggja við opið. Hún sagði að ef kindurnar fengju að vera inni í 2-3 vikur eftir rúning væri komin það mikil ló á þær að þær gætu farið út nema í sérlega vondum veðrum. Ennfremur sagði Emma að bændur væru óðum að taka við sér með haustrúninginn en auðvitaö tæki þetta tíma. Texaco-Hydro: Skulda- bréfin seldustá fyrstadegi Skuldabréf Texaco-Hydro, sem boðin voru út hjá Kaupþingi hf. á fimmtudag, seldust upp sam- dægurs. Skuldabréfaútboðið var að nafnveröi 260 þúsund krónur og var ætlunin aö útboöiö stæöi í einn mánuð. Bréfin eru til fimm ára, verðtryggð með 6,5 prósenta nafnvöxtum. Friðrik Halldór Þorsteínsson, starfsmaður hjá Kaupþingi hf., segir að bréfm hafi svo til eingöngu farið til stofnanafjárfesta enda minnsta eining fimm milljónir króna. Skuldabréfaútboöið átti að standa í einn mánuð en fékk svo góðar viðtökur aö skuldabréfln kláruðust strax á fyrsta degi. Þetta er í annað skipti sem haldið er útboð á skuldabréfum fyrir erlent stórfyrirtæki hér á landi en skuldabréf AGA ab í Svíþjóð voru boöin út í vetur. „Viðtökurnar voru góðar og við fógnum því náttúrlega. Þetta er vísir að þvl að erlend fyrirtæki sæki sér fjármagn hingað í tengslum við starfsemi sina á ís- landi. Það er aö okkar raati mjög gott fyrir fjármagnsmarkaðinn hérna,“ segir Friðrik Halldór. -GHS Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið: Margir vilja verða ráðuneytisstjórar - ýmsir framsóknarmenn taldir liklegir umsækj endur Taugatitringur er innan heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytisins vegna óvissu um hver hreppir stöðu ráðu- neytisstjóra sem auglýst var laus til umsóknar nýverið. Umsóknarfrest- ur um stöðuna rennur út 20. sept- ember og er sýnt að margir sýna henni áhuga. Páll Sigurðsson lætur af starfinu fyrir aldurs sakir í lok ársins. Innan ráðuneytisins telja menn lík- legt að Guðjón Magnússon skrif- stofustjóri og Dögg Pálsdóttir lög- fræðingur og dóttir Páls Sigurðsson- ar, muni sækjast eftir stöðunni. Ófriður og valdabarátta hefur hins vegar ríkt í ráðuneytinu um nokk- urra missera skeiö og þykir því mörgum vænlegur kostur fyrir ráð- herra að leita út fyrir ráöuneytið. Ýmsir framsóknarmenn þykja lík- legir umsækjendur um stöðuna, þar á meðal þeir Haukur Ingibergsson, sem veitt hefur Hagsýslu ríkisins forstöðu, Guðmundur G. Þórarins- son, formaður stjórnar Ríkisspítal- ánna, Bolli Héðinsson, fyrrverandi formaður stjórnar Tryggingastofn- unar, og Valdimar K. Jónsson pró- fessor. í Ijósi þess skipulagsvanda sem ríkt hefur innan heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytisins þykir mörgum vafasamt að læknir verði ráðinn í stöðuna þrátt fyrir að læknar sæki það stíft. Vænlegra þyki að ráða mann til starfsins sem reynslu hafi af stjómun og rekstri. -kaa Frá Egilsstöðum til Suðumesja: í starf þingmannsins Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; „Þetta leggst vel í mig. Það er mik- ið að gerast í skólanum - mjög öílugt og gott starf þar,“ sagði Ólafur Arn- björnsson í samtali við DV. Hann tekur við starfi skólameist- ara við Fjölbrautaskóla Suðumesja af Hjálmari Árnasyni alþingismanni. Hjálmar fékk leyfi frá störfum viö skólann í fjögur ár. Ólafur Árnbjörnsson var áður skólameistari við Menntaskólann á Egilsstöðum. Á áttunda hundrað nemendur stunda nám í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja í vetur og hátt í 200 verða í kvöldskóla þar. Djúpavík: Hóteliö í kvennabragg- anumlOára Regína Thorarensen, DV, Selfosá: Tíu ár eru nú frá því Eva Sigur- björnsdóttir hóf hótelrekstur í kvennabragganum á Djúpuvík ásamt Ásbirni eiginmaimi sínum. Afmælisins var núnnst um helg- ina og mættu á annað hundrað manns, flestir úr Árneshreppi, til afmælisveislunnar sem tókst með miklum ágætum. Þau hjón, Eva og Ásbjöra, hafa getið sér gott orð fyrir hótelrekst- ur sínn. Eru vinsæl í hreppnum eins og hjá ferðamönnum viða um land sem hafa sótt kvenna- braggann skemmtilega á Djúpu- vik heim. Reykholtsskóli: Umsóknirof Daníel Ólafeson, DV, Akranest Sjötíu umsóknir um skólavist hafa borist Fjölbrautaskóla Vest- urlands um nám við nýja náms- braut við Reykholtsskóla í Borg- arflrði. Að sögn Þóris Ólafssonar skólameistara hafa umsóknir borist jafnt og þétt. Ekki verður hægt að verða viö þeim öllum því gert er ráð fyrir 55-60 nemendum í skólanum í vetur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.