Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995 íþróttir_________________ Fyrstileikurinn hjjá Eyjóifi Eyjólfur Sverrisson lék um helgina sinn fyrsta leik meö Hertha Berlín í þýsku knatt- spyrnunni en Hertha vann þá auöveldan sigur á Mettlach, 0-4, í bikarkeppninni. Eyjólfur, sem hefur verið að jafna sig eftir meiösli sem hann hlaut í lands- leiknum við Sviss, kom inn á sem varamaöur 10 mínútum fyrir leikslok. Araavanntvöfalt Opna Bakkakotsmótið í golfi fór fram á laugardag. Kort Asgeirs- son, GKG, sigraöí í karlaflokki án forgjafar á 86 höggum og Gúst- af Alfreðsson, GKG, sigraði i keppni með forgjöf á 52 höggum. Arna Kr. Hilmarsdóttir, GKJ, sigraöi bæði í keppni án og með forgjöf á 83 og 56 höggum. FaldoogOlazabal í Evrópuúrvalið Kylfingarnir Nick Faldo og Jose Maria Olazabal voru valdir í Evr- ópuúrvalið i golfi í gær sem mæt- ir því bandaríska í Ryder-keppn- inni í næsta mánuði. Fyrirliði Evrópuúrvalsins er Bernard Gal- lagher og hann valdi þessa tvo snjöllu kylfinga í lið sitt. Þjálfarinn hættur hjáSalzburg Otto Baric, þjálfari austurrisku meistaranna SV Salzburg, sagði starfi sínu lausu í gær. Baric, sem er 62 ára gamall Króati, var mjög óánægður með lið sitt eftir 0-3 tap fyrir Austria Vín um helgina og eftir ágreining við stjórnarmenn ákvað hann að segja upp störfum. Hermann Stessel mun taka við liðinu í stað Baric. Góðþátttaka í Reykjalundar- hlaupinu Góð þátttaka var i Reykjalund- arhlaupinu ’95 sem haldið var um helgina. Sjö hundruð manns tóku þátt í þessu almenningshlaupi sem haldið var nú í 8. skiptið. Flestir fóru skokkandi eða gang- andi en 43 hlauparar hlupu 14 km leiðina. Helga Zoega varð fyrst í mark kvenna en Sigurður P. Sig- mundsson varð fyrstur í karla- flokki. Tryggviog Sveinbjörn unnu Opna sparisjóðsmótiö í golfi var haldið á Hvaleyrarholtsvelli sl. laugardag. Tryggvi Traustason, GK, sigraði í keppni án forgjafar á 70 höggum. I öðru sæti varð Guðmundur Sveinbjörnsson, GK, á 74 höggum og í þriðja sæti varð Þórdís Geirsdóttir, GK, á 75 högg- um. i keppni með forgjöf sigraði Sveinbjörn Jóhannesson, GO, á 64 höggum, x öðru sæti hafnaði Kjartan Einarsson, GR, á 65 og þriðji varð Lúðvík Arnarson, GK, á 66 höggum. Eurocard-mótÍFA Þriðja Eurocard-sveitakeppni ÍFA í golfi verður haldin fimmtu- daginn 31. ágúst nk. á golfvelli Oddfellowa í Urriðavatnslandi í Heiðmörk. Ræst verður út klukk- an 9. Upplýsingar og skráning lijá ÍFA í síma 581 3377. Firmakeppni FH Firmakeppni knattspyrnu- deildar FH fer fram nk. sunnu- dag. Mótiö hefst klukkan 11 og þeir sem vilja taka þátt eru beðn- ir að hringja í síma 565 2534. DV Bjami Fríðrlksson júdómaður á enn þá nóg inni: „Ólympíuleikarnir freista mín mikið" - frábær árangur í Bandaríkjunum kom honum þægilega á óvart ég ætla að stefna á ólympíuleikana í Atlanta þarf ég að taka þátt í svoköll- uðum A-mótum en þau eru tíu talsins á hverju ári, þrjú bestu mótin telja hjá keppendum. Fyrsta A-mótið, sem byri- ar að telja, verður í Sviss í desember. Þessi mót eru þau einu sem gefa mönn- um keppmsrétt á ólympíuleikum fyrir utan sjö efstu sætin á heimsmeistara- móti. Það er í og með þess vegna sem ég hef áhuga á að fara á heimsmeist- aramótið í Japan. Það er auðveldara að ná þar réttindum á ólympíuleikum heldur en á A-mótunum. í dag segja reglumar fyrir um að aðeins megi níu keppendur frá Evrópu keppa í hverj- um þyngdarflokki. Þanrng að sam- keppnin um sætin níu er gífurlega hörð og má segja aö menn leggi allt undir því þetta er mun erfiðara en áður.“ Fullur áhugi fyrir þátttöku á heimsmeistaramótinu „Það kemur stundum yfir mig að ég nenni þessu hreinlega ekki en samt kitlar þetta mig óneitanlega. Það er óhemjuvinna sem fer í æfingar og artn- að því tengdu en engu að síður væri gaman að kljást við verkefnin sem framundan eru. Eins og er er fullur áhugi fyrir þátttöku á heimsmeistara- mótinu ef ég fæ heimild. Ef allt gengur upp get ég ekki neitað því að ólympíu- leikar freista mín mikið," sagði Bjarni í spjallinu við DV. \ Frá árinu 1993 hefur Bjarni tekið þátt í fjórum mótum: HM í Hamilton, Opna írska, þar sem hann sigraði, mót í Austurríki og loks Opna bandaríska. í máli Bjarni kom fram að júdóið væri sterkt um þessar mundir. Keppendur legðu meiri rækt við lyftingar og hlaup en áður þekktist og það skilaði mönn- um sterkari þegar á hólminn væri komið. Bjarni Friðriksson, okkar sterkasti júdómaður um árabil, sýndi það og sannaði á dögunum á Opna bandaríska meistaramótinu að hann er ekki dauð- ur úr öllum æðum. Á þessu móti voru samankomnir allir bestu júdómenn heimsins og var það nokkurs konar prufumót fyrir ólympíuleikana í Atl- anta næsta sumar. Bjarni gerði sér lít- ið fyrir og hreppti bronsverðlaunin í -95 kg þyngdarflokki. Fyrir tveimur árum hafði Bjarni í hyggju að hætta, eða í það minnsta að draga mikið úr æfingaiðkun og þátttöku á mótum hér heima og erlendis. Árangur Bjarna vekur grun margra um að hann hafi æft í sumar og sé jafn- vel með hugann við þátttöku á ólymp- íuleikunum í Atlanta. Er þessi grunur ýmsra á rökum reistur, Bjarni? Árangurinn kom mér þægilega á óvart „Ég tók mig til í júnímánuði að fara aö æfa af fullum krafti með hlaupum og lyftingum. Ég veit satt best að segja ekki hvað býr mikil alvara að baki þessu. Árangurinn á Opna bandaríska meistaramótinu kom mér þægilega á óvart og ýtir jafnvel undir það að ég helli mér út í þetta af fullri alvöru. Ég er að gæla við þátttöku á heimsmeist- aramótinu í Japan í lok september. Þar yrði ég að keppa í þungavigt því aðeins einn keppandi frá hveiju landi má keppa í sínum þyngdarflokki," sagði Bjami Friðriksson júdókappi í samtali við DV. Bjarni sagði að styrkleiki mótsins í Bandaríkjunum hefði komi sér mjög á óvart. Þarna hefðu mætt sterkustu júdómenn heimsins. Georgíumenn hefðu verið með geysilega öfluga sveit en í þeim hópi eru heims- og ólympíu- meistarar. Bretar, Kanadamenn og Brasilíumenn voru líka með sín sterk- ustu lið. Ákvað á síðustu stundu að skella mér með „Þegar ég fór að æfa í júní af ein- hveiju viti var þátttaka á Opna banda- ríska ekki markmið. Ég ákvað bara á síðustu stundu að skella mér með. Ef • Bjarni Frirðiksson júdókappi í kunnuglegri stellingu. Kominn með andstæðing sinn í fastatak og að innbyrða enn einn sigurinn í löngum ferli. DV-mynd Brynjar Gauti Frjálsaríþróttlr: FH og UMSS sigurvegarar -1 bikarkeppni FBÍ í tugþraut og sjöþraut Bikarkeppni FRI í tugþraut karla og sjöþraut kvenna fór fram á Laug- arvatni um helgina, FH-ingar sigr- uðu í karlakeppninni þar sem tveir bestu tugþrautarárangrarnir gilda til stiga og UMSS varð í öðru sæti. UMSS sigraði síðan í kvennakeppn- inni en FH varð í öðru sæti. Sveinn með tvö sveinamet Sveinn Þórarinsson, FH-ingurinn efnilegi, setti tvö íslensk sveinamet í flokki 15-16 ára þegar hann hljóp 110 m grindahlaup á 16,4 sekúndum og náði 5636 stigum í tugþraut. í báðum tilvikum sló Sveinn met Stefáns Þórs Stefánssonar sem sett voru fyrir 16 árum. Björn vann tugþrautina Sigurvegari í tugþrautarkeppninni varð Bjarni Þór Traustason, FH, en hann hlaut 6239 stig og sýndi svo ekki verður um villst að tugþraut er hans framtíðargrein. Theódór Karls- son náði 6 þúsund stiga markinu og varð í öðru sæti og Sveinn Þórarins- son varð þriðji af 9 keppendum sem kláruöu tugþrautina. Þórunn vann sjöþrautina Þórunn Erlingsdóttir, UMSS, sigraði í sjöþrautinni og Silja Úlfarsdóttir, FH, varð í öðru sæti. Báðar stúlkurn- ar eru aöeins 14 ára og hafa mikla hæfileika til að verða afburða góðar sjöþrautarkonur í framtíðinni. Þór- unn hlaut 3495 stig en Silja 3367 stig. Golf: Helgivarð Bláalónsmeistari Hundrað tuttugu og þrír kylf- ingar tóku þátt í lokamóti Bláa- lónsgolfmótsins í Leirunni um helgina. Þetta er í þriðja skipti sem Bláalónsmótin em haldin á þremur golfvöllum á Suöumesj- um, hjá GG, GSG og GS. Öll mót- ín em sjálfstæð hvað verðlaun varðar en að þeim loknu'm em efstu menn með og án forgjafar valdir úr og þeim gefin stig eftir árangri. í lokamótinu voru þeim síðan veitt vegleg verðlaun og sæmdir heiðrinum Bláalóns- meistari. Helgi Birkir Þórisson, GS, klúbbmeistari, tryggði sér titilinn í keppni án forgjafar og telst því Bláalónsmeistari. Hann lék mjög vel um helgina eins og reyndar hann er búinn að gera í allt sum- ar. Hann fékk 63 stig en í öðru sæti varð Guðmundur R. Hall- grímsson, GS, með 44 stig og þriðji varð ívar Hauksson, GKG, með sama stigafjölda. i keppni meö forgjöf sigraöi Halldór Svan- bergsson, GK, með 50 stig, annar varð Sæmundur Hinriksson, GS, með 40 stig og þriöji varð Ólafur Skúlason, GKG, með 33 stig. Þorvaldur fær góða dóma Þorvaldur Örlygsson, sem leikur með enska 1. deildar liðinu Stoke, hefur fengið mjög góða dóma í enskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína í fyrstu þremur leikjum liðsins. Þorvaldur fékk 8 í einkunn hjá ensk- um dagblöðum í leikjum Stoke gegn Reading og Leicester og hann fékk ýmist 7 eða 8 í einkunn eftir leik gegn Port Vale á sunnu- dag þar sem Stoke tapaði, 0-1. Lárus Orri fékk þokkalega dóma fyrir sömu leiki og einkunnina 6 í flestum enskum dagblöðum. Gautaborg í ef sta sæti Eyjólfur Harðarson, DV, Sviþjóð: Gautaborg er eitt í efsta sæti í sænsku úrvalsdeildinni en 17. umferðinni lauk í gær með fjórum leikjum. Úrslitin í gær urðu þessi: AIK - Trelleborg 3-0, Gautaborg- Öster 3-1, Malmö - Halmstad 2-1, Norrköp- ing-Hammarby 1-1. Gautaborg er með 30 stig, Malmö 29, Helsingborg 28, Halmstad 26, Djurgárden 25, Örebro 24, AIK 22, Nor- rköping 22, Örgryte 22. Boskamp til Anderlecht Hollendingurinn Johan Boskamp tók í gær við þjálfun belgísku meistaranna í Aqd- erlecht. Hann tekur viö starfi Þjóðveijans Herberts Naumanns sem rekinn var frá fé- laginu í síðustu viku í kjölfar slaks árangur liðsins í fyrstu leikjunum á tímabilinu. ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995 17 DV DraumaliöDV: Essoskálinn jókforskotið Essoskálinn er kominn meö 20 stiga forystu í draumaliðsleik DV eftir að áður frestaður leikur ÍBV og Fram bættist við í síðustu viku. Þar bætti Essoskálinn við sig finim stigum á meðan skæð- asti keppinauturinn um toppsæt- ið, Þrándur þrumari, fékk ekki stig. Það voru fyrst og fremst lið með Leif Geir Hafsteinsson innan- borðs sem græddu á leik ÍBV og Fram. Hann skoraði annað marka ÍBV og var valinn maður leíksins i DV og hlaut því 7 stig. Staöa efstu þátttakenda í leikn- um er þannig þegar 13 umferðum er að fullu lokið í 1. deíld: 1. Essoskálinn......126 2. Þrándurþrumari...106 3-4. Alltbúiö.......100 3-4. NTF......... 100 5-6. Bland í poka....97 5-6. Bibbi...........97 7. Leggurinn.........96 8. Ragnarl.......... 95 9-10. Fontur.........93 9-10. Viggóviðutan...93 Ingi Björn Albertsson stjórnaði sinni fyrstu æfingu hjá FH í Kaplakrika í gær og hér er hann ásamt nokkrum leik- mönnum FH í lok æfingarinnar. DV-mynd ÞÖK Enn ein þjálfaraskiptin í 1. deildinni í knattspyrnu: Aukinspennaí ágústkeppninni Spennan í keppninrú um titilinn „þjálfari ágústmánaðar" jókst hins vegar. Ragnar I„ sem var með 15 stiga forystu, tapaði tveímur stigum á ieik ÍBV og Fram á meðan önnur bættu við sig. Þar er Essoskáiinn orðinn harðasti keppinauturinn, 9 stig- um á eftir Ragnari. Segja má að iandsbyggðin sláist um sigur- launin í ágúst þvi Ragnar I. er frá Bolungarvík en Essoskálinn frá Blönduósi. Stigahæstu þátttakendur í ág- ústkeppninni þegar einni umferð er ólokið þar: 1. Ragnarl 49 2. Essoskáúnn 40 3. Sumarliðið 37 4.-5. Cremmbeóll 36 4.-5. Skallarnir 36 6. Ammanýja 35 7.-9. Koddinn ......33 7.-9. Jökull 33 7.-9. Blesa 33 .0. K.hvöt 32 Leifur Geir kominn í fjóróa sætið í stigakeppni leikmanna 1. deild- ar í draumaliðsleiknum fór Leif- ur Geir Hafsteinsson upp í 4. sæti með frammistöðu sinni gegn Fram en haim var í 7.-9. sæti fyr- ir leikínn. Tryggvi Guðmunds- son, félagi hans, bætti enn fremur við sig 2 stigum. Þessir eru stigahæstir: Ólafur Þórðarson, ÍA........38 Páll Guðmundsson, Leiftri...29 Haraldur Ingólfsson, ÍA.....24 Leifur Geir Hafsteinsson, ÍBV...23 TryggviGuðmundsson, ÍBV.....19 Ólafur Ingólfsson, Grindavík...,17 Jón Þór Andrésson, Leiftri..17 Gunnar Oddsson, Leiftri.....16 Guömundur Benediktsson, KR.16 Rastislav Lazorik, Breiðabl.15 Umferð annað kvöld Fjórtánda umferð 1. deildar er leikin á morgun og á fimmtudag og með henni lýkur ágústkeppn- imú í draumaliösleiknum. •! eifur Geir Hafsteinsson skaust upp í 4. sætið í stiga- keppni leikmanna. Ingi Björn til FH - í stað Ólafs Jóhannessonar sem sagði upp störfum 1 gær Þjálfaraskipti urðu hjá 1. deildar liði FH í knattspyrnu í gær. Ólafur Jóhannessön lét þá af störfum og við starfi hans tók Ingi Björn Albertsson, sem fyrr í sumar var vikið frá störf- um sem þjálfari 1. deildar liðs Kefl- víkinga. Knattspyrnudeild FH sendi frá sér fréttatilkynningu um málið í gær og þar stendur: „Ólafur Jóhannesson þjálfari 1. deildar liðs FH hefur sagt upp starfi sínu. Viöskilnaður Ólafs við Knattspyrnudeild FH er gerður með samþykki beggja aðila og í fullri vinsemd og sátt. Knattspyrnudeild FH þakkar Ólafi fyrir vel unnin störf.“ í þriðja skiptið sem Ingi þjálfar hjá FH Ingi er ekki alveg ókunngur FH en Ensku meistararnir í Blackburn Rovers töpuðu sínum þriðja leik í röð í gærkvöldi þegar þeir töpuðu á heimavelli fyrir Manchester United, 1-2, í fjórðu umferð ensku úrvals- deildarinnar. Sigur Manchester Urúted var í heildina sanngjarn en í þrígang björguðu leikmenn Blackburn á marklínu. Lee Sharp kom United yfir á upp- hafsmínútum síðari hálfleiks eftir mjög þunga sókn en Alan Shearar jafnaði metin fyrir meistarana 10 þetta er í þriðja skiptið sem hann- gerist þjálfari hjá félaginu. Hann þjálfaði og lék með liðinu í 1. deild 1981, í 2. deild 1985 og í 1. deild 1986. Það bíður Inga erfitt verkefni hjá FH en liöið er í neðsta sæti 1. deildar þegar fimm umferðum er ólokið. FH byrjaði íslandsmótið vel, vann KR og Grindavík í fyrstu tveimur um- ferðunum en síðan 27. maí hefur lið- inu ekki tekist að vinna sigur og er með aðeins 8 stig. Sannfærður um að liðið bjargarsér „Ég geri mér alveg grein fyrir því að staðan er ekki góð en þrátt fyrir það er engin ástæða til þess að vera með svartsýni. Eina sem menn þurfa að gera er að taka sig saman í andlitinu og hafa trú á sjálfum sér. Þetta er svo mínútum síðar með góðu skoti utan vítateigs. Það var síðan hinn ungi David Beckham sem skoraði sigur- markið af stuttu færi eftir stórsókn United 20 mínútum fyrir leikslok. Skömmu síðar fékk Roy Keane, mið- vallarleikmaður Manchester United, sitt annað gula spjald og var vikið út af en manni færri tókst „rauðu djöflunum" að halda fengnum hlut. Þar með hefur Manchester United unnið þrjá leiki í röð eftir slæmt tap gegn Aston Villa í fyrstu umferðinni. nýtilkomið að dagurinn á morgun (í dag) mun fara í að átta sig á hlutun- um og skoða mannskapinn betur. Eina markmiðið hjá mér er auðvitað að halda liðinu uppi og ég er sann- færður um að það muni takast,“ sagði Ingi Björn við DV í gær en hann gerði eins mánaðar samning við knattspyrnudeild FH. Þetta er fjórða þjálfarabreytingin í 1. deildinni í sumar. Ingi Björn Al- bertsson var látinn hætta með Kefla- vík í upphafi íslandsmóts og við starfi hans tóku Þórir Sigfússon og Þorsteinn Bjarnason. Framarar létu Martein Geirsson fara og réðu Magn- ús Jónsson og fyrir skömmu ákváðu Valsarar að gera breytingu með því að láta Kristin Björnsson taka við starfi Harðar Hilmarssonar. í kvöld 1. deild kvenna í knattspyrnu: ÍA-Breiðablik............18.30 ÍBV-Valur................18.30 KR-ÍBA...................18.30 Stjarnan-Haukar..........18.30 3. deild karla: Dalvík-Leiknir...........18.30 Höttur-Haukar............18.30 Fjölnir-Selfoss..........18.30 BÍ-Þróttur N.............18.30 Ægir-Völsungur...........18.30 4. deild - úrslitakeppni: Tindastóll-Reynir S......18.00 Ármann-Sindri............18.00 KVA-KS...................18.00 Grótta-Léttir............18.00 • Leikurin fer fram á Varmár- velli Enska knattspyman: United á skriði - vann Blackbum sem tapað hefur þremur 1 röð Skagamenn ekki sáttir Stjórn knattspyrnudeildar ÍA var ekki ánægð með að þurfa að fresta 1. deildar leik sínum gegn KR sem fara átti fram á morgun. Leiknum var frestað til fimmtudags vegna bik- arúrslitaleiksins á sunnudag. Ein ástæða óánægju Skagamanna er sú að þeir ætluðu að senda Loga Ólafs- son þjálfara til Skotlands og fylgjast með Raith Rovers í deildarbikarleik gegn Celtic á fimmtudagskvöld en það eru eins og kunnugt er andstæð- ingar Skagamanna í UEFA-keppn- inni. mr Urslitakeppni 4. deildar Ármann-Sindri Ármannsvellinum, Sigtúni kl. 18 í dag Mætum öll, frftt inn! Netfang Ármanns FC Http://www.rhi.hi.is./~magnusjo __________Iþróttir Daum undirpressu Daníel Ólaísson, DV, Akranesi: Christoph Daum, þjálfari Be- siktas í Tyrklandi, fyrrum liðs Eyjólfs Sverrissonar, er undir mikúli pressu þessa dagana. Lið- ið var slegið út í forkeppni Evr- ópukeppni meistaraliða og hefur ekkert gengið sérstaklega í tyrk- nesku deildinni. Hafa tyrkneskir fjölmíðlar gert mikið úr því að Daum ætti að segja af sér sem fyrst. Miklar vonir voru bundnar við lið Besiktas í Evrópukeppn- inni og einnig í tyrknesku deild- arkeppninni. Vilja kaupa sjón* varpsréttáHM Sjónvarpsfyrirtækið Bertel- mans og bandaríska markaðsfyr- irtækið IMC vilja kaupa sjón- varpsréttinn að heimsmeistara- keppninni í knattspyrnu árið 2002. Verðið er 1,5 milljarðar þýskra markra eða sem svarar 67,5 milljarðar íslenskra króna. Leik Englandsog Króatíuaflýst Hætt hefur verið við vináttu- landsleik Englendinga og Króata sem fara átti fram 6. september nk. en í stað þess munu Englend- ingar leika landsleik við Kólumb- íumenn. Eins og kunnugt er þurfa Englendingar ekki að taka þátt í undankeppni EM-landsliða í knattspyrnu þar sem þeir eru gestgjafar. Englendingar hafa einnig ákveðið að leika vináttu- landsleiki við Norðmenn og Svisslendinga í október og nóv- ember. Walter Zenga úr leik Walter Zenga, markvöröur it- alska 1. deildar liðsins Sampdor- ia, meiddist úla á hné á æfingu fyrir helgina og verður að öllum Úkindum ekki með í baráttunni í vetur. Læknir Sampdoria sagði að Zenga, sem er oröinn 35 ára gamall, gæti fyrst farið að spá í að leika aftur eftir 6 mánuði en hann gekkst undir aðgerð um helgina. Stöðu Zenga í markinu tekur Angelo Pagotto og lék hann sinn fyrsta leik í 1. deild á sunnu- daglnn þegar Sampdoria gerði 1-1 jafntefli gegn Roma. Breytingar á leikjum Vegna bikarúrslitaleiks Fram og KR á sunnudaginn hefur þurft að gera breytingar á leikdögun- um í l. deildinni. Leik KR og ÍA, sem íram átti að fara á miðviku- dag, hefur verið seinkað um einn dag og sömuleiös viðureign Fram og Grindavíkur. Þá hafa þrír leik- ir verið færðir frá laugardeginum yfir á mánudag. Það eru leikir Keflavíkur og Fram, ÍA og Grindavíkur og Vals og KR. Gottskorí Stykkishólmi Opna Hótel Stykkishólmur golfmótið var haldiö sl. laugardag á Víkurvelli golfklúbbsins Mostra í Hólminum. Alls tóku 67 kylfingar þátt í mótinu og var skor með besta móti. Úrslit urðu þau að Ólafur Guðmundsson, GMS, sigraði með forgjöf í karla- flokki á 59 höggum og Sigurður O. Sigurðsson, GMS, vann í keppni án forgjafar á 73 höggum. í kvennaflokki sigraði Ragnhild- ur Sigurðardóttir, GR, bæði í keppni með og án forgjafar á 67 og 70 höggum. íslandsmótöldunga íslandsmót öldunga i fijálsum íþróttum fer fram í Laugardaln- um um næstu helgi. Keppni hefst klukkan 18 á föstudaginn og verð- ur íramhaldið á laugardeginum. Keppt verður í landskeppnis- greinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.