Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1995, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995
Stuttar fréttir
Serbar skipta um stef nu
Bosníu-Serbar, sem eiga yfir
höíði sér loftárásir NATO vegna
tilræðisins í Sarajevo í gær,
sWptu um skoðun og fögnuðu
friðarumleitunum Bandaríkja-
manna.
Pete Wiison í framboði
Pete Wilson,
ríkisstjóri í
Kaliforníu,
lýsti opinber-
lega yfir fram-
boði sínu til for-
setaembættis-
ins í gær og hélt
ræðu í New
York þar sem hann veittist að
ólöglegum innflytjendum.
Sendiherraivinnuna
Kínversk stjóravöld hafa sent
sendiherra sinn í Bandaríkjun-
um aftur til Washington eftir
tveggja mánaða fjarveru og þyWr
það benda til að samsWptin séu
að batna.
Alsírbúi grunaður
Alsírbúi, sem sagður var hafa
sWpulagt rán á franskri flugvél
um jólin í fyrra, hefur verið
nefndur sem aðili aö tilræðinu á
IestarStööinni í'París í júlí.
Bankasamruni
Bandarísku bankamir Chase
Manhattan óg Chemical Bank
verða bræddir saman i einn, hinn
stærsta í Bandaríkjunum og einn
hinn stærsta í heimi.
Samið um skipsf örgun
Danir og Grænlendingar ætla í
sameiningu að sWpuleggja förg-
un gamalla skipa á Grænlandi
svo umhverfið beri ekki skaða af.
Viijaflýta viðræðum
Sendifulltrúi
Borísar Jeltsíns
Rússlandsfor-
seta hvatti upp-
reisnarmenn í
Tsjetsjeníu til
að hraða friðar-
viðræðum svo
enda mætti átta
mánaða ófrið í lýðveldinu.
Fimmti hver atvinnulaus
Fimmti hver vinnufær Dani er
án atvinnu, annaðhvort atvinnu-
laus, í leyfi eða á eftirlaunum.
Gegnfíkniefnum
Frakkar og Þjóðverjar vilja
þrýsta á Hollendinga að taka upp
harðari stefnu gagnvart fikniefn-
Uin. Heuter, Ritzau
Útlönd____________________________________________________DV
37 létu lífið í mannskæðustu árás á óbreytta borgara í Saraj evo í hálft annað ár:
Mamma, ég er búin
að missa höndina
„Mamma, ég er búin að missa
höndina, ég er búin að missa hönd-
ina,“ sagöi lítil stúlka í fangi móður
sinnar í Sarajevo í gærmorgun. Hún
var eitt fórnarlamba sprengjunnar
sem varð 37 manns að bana og særði
á níunda tuginn í höfuöborg Bosníu.
Litla stúlkan var með blóði drifna
ábreiðu yfir stubbnum. Móðir henn-
ar missti auga í sprengjuárásinni og
kveinaði: „Hvar er maðurinn minn,
ég er búin að týna manninum mín-
um.“
Sprengjuárásin í gær var sú
mannskæðasta á Sarajevo í hálft
annað ár, eða frá því að sprengjur
grönduðu hátt í sjötíu manns á mark-
aðstorgi skammt frá þeim staö þar
sem sprengjan sprakk í gær.
Gjöldum í sömu mynt
Bosnísk stjórnvöld lofuðu skjótum
hefndum fyrir blóöbaðið í gær, sem
þeir kenndu Bosníu-Serbum um.
„Hvað morðingjana áhrærir, vil ég
segja þetta: við munum gjalda í sömu
mynt og þaö fljótt," sagði Alija Izet-
begovic Bosníuforseti áður en hann
hélt til fundar viö Richard Holbrook,
sendimann Bandaríkjastjórnar, í
París.
Haris Silajdzic, forsætisráðherra
Bosníu, krafðist þess að Atlantshafs-
bandalagið gerði þegar í stað loft-
árásir á sveitir Bosníu-Serba.
Það var 120 millímetra sprengikúla
sem olli mestu tjóninu við ingang
innimarkaðar þar sem úði og grúði
af viðskiptavinum. Um tíu manns tO
viðbótar særðust þegar önnur
sprengja sprakk við þjóðleikhúsið
skammt þar frá. Nokkrum klukku-
stundum síðar lenti sprengja á
sjúkrahúsi þangaö sem hinir særðu
höfðu verið fluttir og særði tvo sjúkl-
inga.
Kenna hverjir öðrum um
Stjórn múshma og Bosníu-Serbar,
sem hafa setið um Sarajevo frá því í
aprO 1992, voru ekki seinir á sér að
kenna hverjir öðrum um ódæðis-
verkið.
Alexander Ivanko, talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna, benti á að sprengj-
unni heföi verið skotið frá stöðvum
sunnan við borgina. Bosníu-Serbar
ráöa mestu á þeim slóðum. Heimild-
armenn í starfshði SÞ sögðu hins
vegar að óvíst væri hvort nokkurn
tíma yrði hægt að finna þá seku þar
sem báðir deiluaðilar heföu bæki-
stöðvar á þeim slóðum þaðan sem
sprengjunni var skotið.
Izetbegovic Bosníuforseti og
Holbrook, sendimaður Clintens,
ræddust við í eina klukkustund í
París í gær og sagði bandaríski sendi-
maðurinn aö hann heföi flutt samúð-
arkveðjur frá Bandaríkjaforseta.
Einnig ræddu þeir um hvernig
NATO gæti svarað árásinni. Izet-
begovic snæðir síðan hádegisverð
með Chirac Frakklandsforseta í dag.
„Þetta mun ekki stöðva friðarvið-
leitni okkar, heldur munum ganga
tvíefldir til verks," sagði Holbrook.
Óþokkar og morðingjar
Muhamed Sacirbey, utanríkisráð-
herra Bosníu, sagðist vona að hinir
látnu yrðu ekki „grafnir og fljótlega
gleymdir".
Tengslahópurinn svokallaði um
fyrrum Júgóslavíu, sem í eiga sæti
fuOtrúar frá Bretlandi, Frakklandi,
Þýskalandi, Rússlandi og Bandaríkj-
unum, hittist í París í dag og slást
embættismenn frá Kanada, Spáni og
Ítalíu í hópinn.
Vestrænar ríkisstjórnin fordæmdu
árásina í gær og vönduðu morðingj-
unum ekki kveðjurnar. Hið sama
gerðu óbreyttir borgarar í Sarajevo.
„Morðingjar. Óþverrar. Þeir eiga
allir skilið að vera slátrað,“ hrópaði
blóði drhin kona fyrir utan markað-
inn þar sem hWn lágu eins og hrá-
viði aht um kring.
Reuter
Látnir og særðir voru úti um allt við markaðstorgið í Sarajevo eftir árásina í gær og var aðkoman hroðaleg, eins og þessi mynd ber glöggt vitni. Ekki er
vitað hverjir vörpuðu sprengjunni sem varð 37 manns að bana en deiluaðilar voru ekki seinir á sér að kenna hverjir öðrum um ódæðið. Símamynd Reuter
Laus staða á skrifstofu
Dagvistar barna
Starf fjármálastjóra er laust til umsóknar.
Starfið felst í daglegri stjórnun fjármála- og rekstrarsviðs.
Umsækjandi þarf að hafa:
• Menntun á sviði viðskipta og/eða hagfræði.
• Reynslu í Qárhagsáætlunargerð og skyldum verkefnum.
• Þekkingu og reynslu í stjórnun og samskiptum.
• Áhuga til að takast á við ábyrgðarmikið starf í stofnun
þar sem fram fer viðamiki! endurskipulagning.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum
sem fást á skrifstofu Dagvistar barna, Tryggvagötu 17,
sími 552-7277.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri kl. 10-12 daglega.
Umsóknarfrestur um starfíð er til 18. september.
Tjáningarfrelsi settar frekari skorður á kvennaráðstefnu:
■ ■
Oll mótmæli bönnuð
Kínversk yfirvöld settu tjáningar-
frelsinu á kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Beijing og óháöri
kvennaráðstefnu fyrir utan borgina
frekari skorður í gær meö setningu
sérstakra reglna. Bönnuðu þau hvers
kyns mómtæli sem brytu í bága við
kínverskt alræðisvald eða rægðu
kommúnistastjórnina. Talsmaður
stjómvalda sagði að slík mótmæli
yröu einnig bönnuð á fundarstað
óháðu kvennaráðstefnunnar í Hua-
irou, skammt frá Beijing.
Yfirmaður öryggsimála á ráöstefn-
unum sagði að mótmæli yröu ein-
ungis leyfð á íþróttcdeikvangi við
skóla í Huairou en þau mættu ekki
fela í sér ógnun við alræðisvald Kín-
veija né rægja stjórnvöld. Talsmað-
urinn forðaðist að útskýra hvað fæh
í sér róg um stjórnvöld eða ógnaði
alræði stjórnvalda. Vísaði hann ein-
ungis í reglur um aðgang útlendinga
að Kína. Sagði hann að blaðamanna-
fundir yrðu háðir samþykki sWpu-
leggjenda ráðstefnunnar og kín-
verskra yfirvalda í sameiningu, eng-
ar hömlur yrðu settar við hvað þar
yrði sagt. Talsmaður stjórnvalda
sagði Kínverja áskilja sér rétt til að
grípa til hvers kyns nausynlegra að-
geröa til að tryggja að stærsta alþjóð-
lega samkoma í Kína yrði árangurs-
rík.
Hinar nýju reglur um skerðingu
tjáningarfrelsis þykja sýna þær
áhyggjur sem kínversk stjórnvöld
hafa haft af ráðstefnu SÞ og óháðu
kvennaráöstefnunni. Óháða ráö-
stefnan var flutt frá Beijing í apríl
en ráðamenn óttuðust þá að sjá kon-
ur mótmæla á Torgi hins himneska
friðar. Heimildir segja að Li Peng
hafi verið afar skelkaður að sjá hörð
mótmæli kvenna gegn sér á félags-
málaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í Kaupmannahöfn og hneykslaðist á
aðgerðaleysi yfirvalda gagnvart mót-
mælendunum.
Kínverjar þóttu gefa forsmekk af
því sem í vændum er á sunnudag.
Þá leituðu tollverðir í tvo tíma í far-
angri meðlima mannréttindasam-
taka. Neituðu tollverðir að skila bók
í farangrinum fyrr en skopmyndir,
sem hæddust af Deng Xiaoping,
höfðu verið rifnar úr bókinni.
Reuter