Þjóðviljinn - 01.05.1975, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 01.05.1975, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. maí 1975. Verkalýðsfélagið BALDUR, ísafirði. óskar öllum verkalýð til hamingju með daginn. Gleðilega hátið! Iðja, félag verksmiðju- fólks á Akureyri sendir öllum verkalýð landsins stéttar- legar kveðjur og heillaóskir i tilefni dags- ins. Gleðilega hátið! Verkamannafélagið ÁRVAKUR, Eskifirði sendir öllum verkalýð landsins stéttar- legar baráttukveðjur i tilefni dagsins. Verkalýðsfélagið VÍKINGUR Vik i Mýrdal flytur öllum launþegum árnaðaróskir i til- efni af 1. mai. Gleðilega hátið! Alþýðubandalagið Ámessýslu sendir öllum verkalýð stéttarlegar kveðj- ur i tilefni dagsins. Sveinafélag húsgagna- smiða, Reykjavik sendir öllum islendingum árnaðaróskir i tilefni 1. mai. Gleðilega hátið! glens Sálfræðingurinn fékk póstkort frá sjúklingi sínum, sem var á ferðalagi í suðurlöndum: „Líður stórkostlega. Hvað getur verið að?” Jón var á ferðinni i bilnum sin- um i mikilli þoku. Þokan varð æ þéttari svo hann tók það að lokum til bragðs að aka sem fastast á. eftir afturljósunum á næsta bil á undan. En skyndilega bremsaði hann og Jón lenti aftaná. — Hvernig dettur yður i hug að bremsa svona allt i einu ástæðu- laust? spurði hann fjúkandi reið- ur. — Ástæðulaust? Ég hef þó lik- lega leyfi til að keyra inni minn eigin bilskúr! Eiginmaðurinn kemur til lög- fræðingsins. — Konan min heldur framhjá mér. — Hafið þér sannanir? — Já auðvitað. 1 morgun kom hún heim og hélt þvi fram, að hún heföi verið hjá systur sinni i alla nótt. — Og hvað með það? — Hún lýgur, þvi ég var sjálfur hjá systur hennar! Danskur flutningabilstjóri sendi blaði nokkru eftirfarandi sögu (við verðum að vona að les- endur skilji þetta litilræði i sænsku sem hér verður slett): Ég er flutningabilstjóri og keyri mikið i þvi ágæta landi Sviþjóð. Einu sinni, fyrir nokkrumárum var ég á leiðinni heim frá Stokk- hólmi og viðurkenni fúslega að mér hafi seinkað. Þetta var föstu- dagsnótt og ég ætlaði mér að eyða helginni heima, svo ég gaf dug- lega inn og ofbauð hraðatak- mörkunum sem nam nokkrum kilómetrum á klukkustund. Nú, já, hugsaði ég með mér, þetta gengur fint, ekkert að sjá framundan eða fyrir aftan. En skyndilega ók lögreglubill framúr mér og gaf mér stöðvun- armerki. Ég sá sjálfan mig i anda með nokkrum hundraðkrónuseðl- um færra i launaumslaginu, og nú voru góð ráð dýr. Ég ákvað að spila mig gjör- samlega úti að aka á sænskri tungu, og þaðgekk merkilega vel. Annar lögreglumannanna i bilnum kom til min. — God afton, sagði hann. — Ni kjörer fort. —• Ha, hvaseiru? sagði ég og gerði mig eins skilningsvana á svip og ég gat. — Jag ságer, ni kjörer fort. — Nei, sagði ég, — ég keyri Volvo. — Nej, nej, sagði hann. — Jag mener ni kjörer for fort. — Fjandinn fjarri mér, sagði ég, — ég keyri fyrir Sören Sören- sen I Kaupmannahöfn. — Ah, dra át helvete, sagði hann. Og þar með var það mál leyst. Vér sendum starfs- fólkf voru og öðru vinnandi fólki bestu árnaðaróskir á há- tiðisdegi verkalýðsins 1. mai. Blikk- smiðjan Vogur h.f. Auðbrekku 65. Verkakvennafélag Keflavikur og Njarðvíkur óskar öllum meðlimum sinum og landslýð öllum til hamingju með daginn. Gleðilega hátið! Verkalýðsfélag Hólmavikur óskar öllum verkalýð til hamingju með daginn. Gleðilega hátið! Verkakvennafélagið FRAMSÓKN flytur félagskonum sinum og öllum verka- lýð landsins bestu árnaðaróskir i tilefni 1. mai. Gleðilega hátið! Landssamband iðnverkafólks hvetur meðlimi sina til að taka þátt i há- tiðahöldum dagsins. Gleðilega hátið! IÐNNEMAR! Stöndum saman á baráttudegi verkalýðs- ins 1. mai i baráttu okkar fyrir bættum kjörum og betra námi Iðnnemasamband íslands Sjómannafélag Eyjafjarðar sendir öllum meðlimum sinum og verka- lýð öllum stéttarlegar heillaóskir i tilefni dagsins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.