Þjóðviljinn - 29.04.1978, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 29.04.1978, Qupperneq 11
Chevrolet Malibu er vinsælastur Segir Grétar Hansson hjá Véladeild Sambandsins Þeir eru margir glæsilegir vagnarnir sem StS hefur upp á aö bjóöa. Hér er einn þeirra Cadillac Seville. Sá aðili sem stærstan sýningar- bás hefur á bilasýningunni Auto ’78 er Véladeild Sambands islenskra Samvinnufélaga'eða StS. Þeir eru i raun réttri þrir básarnir þar eð SIS sýnir á báð- um hæðum i aðalsýningarhúsinu og svo einnig i sýningarhúsi tvö. Þjóðviljinn hafði i gær sam- band við Grétar Hansson sölu- stjóra véladeildar Sambandsins og lagði fyrir hann nokkrar spurningar sem hann svaraði góðfúslega. Við báðum hann fyrst að segja okkur i stuttu máli frá þvi helsta sem Sambandið hefur upp á að bjóða og til sýningar er á Auto ’78. „Við erum t.d. með hér vinsæl- asta bilinn sem við seljum. Hann heitir Chevrolet Malibu og er öll- um sem hann hafa reynt og séð að góðu kunnur. Það sem einna helst greinir hann frá öðrum bifreiðum okkar er það að hann er ekki með hinn venjulega fjaðraútbúnað sem nú tiðkast. Hann er nefnilega með gorma á öllum hjólum sem gerirbilinn mjög mjúkan i akstri. Hann er knúinn hvort sem kaup- andanum hentar betur 8 eða 6 strokka vél og kostar 8 strokka billinn um 4.7 milljónir en hinn minni 4.3 og er hann með svokall- aðri V 76 vél sem er vinsæl i dag. Nú,annar bill sem hér er til sýn- is er Vuxhall Chevette sem er að minu mati ekki nægilega mikið selt af miðað við hversu góður bill er þar á ferð. Hann gefur japönsku bilunum ekkert eftir nema siður sé. Hann er meö 70 hestafla vél og kostar um 2.5 milj. Nú ef við förum siðan i stærri bilana þá eru það helst Chevrolet Impala og Chevrolet Capris sem við höfum upp á að bjóða. Impala billinn er fáanlegur með öllum hugsanlegum þægindum, fyrir utan rafmagn,og kostar þá um 4.7 miljónir en hann er einnig hægt að fá með rafmagnsupphölurum á rúðum og sætum o.s.frv. en kostar þá u.þ.b. 5.5 milljónir. Sendibila og jeppa erum við einnig með hér af GMC gerð og einnig hina vinsælu Pickup bif- reiðar sem þessa dagana eru mikið seldar. Sérstaklega eru sendibifreiðarnar 12manna með sætum og gluggum vinsælar og eru það þá helst þeir sem bila- dellu hafa sem gaman hafa af þvi að setja undir þá framhjóladrif.” Þið hafið ykkar „kóng” hér á sýningunni er ekki svo? „Jú það er nú rúsinan i pylsu- endanum. Við erum nýbyrjaðir að flytja inn alveg nýja gerð af Olds Mobil sem er knúinn disel* vél sem, ekki er venjulegt frá Chevroletverksmiðjunum. Leigu- bilstjórar hér eru þegar farnir að taka hann i sina þjónustu og hef- ur hann reynst einstaklega vel. Hann er svo til hljóðlaus en það eru disel bilar yfirleitt ekki. Hann eyðir mjög litlu, svona þetta 8-10 litrum á hverja 100 km. Hann kostar til leigubifreiðastjóra um 4.2 miljónir en til almennings kostar hann 6 miljönir. Ég held að mér sé alveg óhætt að segja þennan bil býltingu i bilaframleiðslu i heiminum. Hann er einstakur i sinni röð og á eftir að gera og hefur nú þegar gert það gott.” Hvernig list þér á sýninguna? „Sýningin hefur sannað það að minu mati að hún hafi átt fullan rétt á sér. Mér list að öllu leyti mjög vel á hana en tel það ekki hafa verið rétt að framlengja hana.” Hver er þinn draumavagn hér? Það er nú bill sem ég þegar á. Það er bill af GWC gerð og er hálfgerður station bill. Það er óhætt að segja að i honum sam- einist Pickup billinn, jeppinn og fólksbillinn” sagði Grétar Hansson að lokum. SK Laugardagur 29. apríl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Borgarfulltrúar Alþýöubandalagsins. Þorbjörn Broddason, Adda Bára Sigfúsdóttir og Sigurjón Péturs- son. Ljósm.— eik. ATVINNUMÁLIN í REYKJAVÍK Stefna að því að ausa fé í einkareksturinn Meirihluti borgarstjórnar samþykkti tillögur sínar um stefnumótun í atvinnumálum Flestir Reykvikingar muna ef- laust eftir skýrslu um atvinnumál i lteykjavik, scm gerð var opin- ber i s.l. haust. í henni kcmur berlega fram að Reykjavik stendur höllum fæti í atvinnulegu tilliti, þjónustuiðnaður og verslun hefur vaxið á kostnað fram- leiðsiuiðnaðar, gróin fyrirtæki hafa flúið borgina með iðnrekstur sinn og sterk einkafyrii-tæki hafa lagt upp laupana þegar erfingjar taka við rekstrinum. Þessi skýrsla sem hagsýslu- deild borgarinnar gerði var þung- ur áfellisdómur yfir borgar- stjórnarmeirihluta Sjálfstæðis- flokksins, sem áratugum saman hefur hafnað hvers konar stefnu- mótun eða frumkvæði borgar- innar sjálfrar i atvinnumálum. Vanhugsaðar tillögur Eftir að skýrslan kom fram, sáu menn þó að við svo búið mátti ekki standa. Þegar Alþýðubanda- lagið i borgarstjórn Reykjavikur hafði tilkynnt að væntanlegar væru tillögur flokksins að at- vinnumálum i borginni, tók borgarstjóri sig saman i andlit- inu, kallaði blaðamenn inn i Höfða og kynnti þeim plagg sem innihélt tillögur hans að stefnu- mótun i atvinnumálum. Ekki hafði borgarstjóri fyrir þvi að kynna borgarráði eða borgarstjórn þessar tillögur áður en hann fór með þær i fjölmiðla, enda var timinn naumur, — til- lögur Alþýðubandalagsins voru væntanlegar innan viku, og þvi hristi hann tillögurnar fram úr erminni á þennan hátt. Tillögurnar báru þess fyllilega merkiaöþær voruunnar i flýti og litt til þeirra vandað. Þær hlutu þó mikla auglýsingu i rikisfjöl- miðlunum auk Moggans, og allir lofuðu framtak borgarstjóra og frumkvæði, þegar svo illa horfði i atvinnumálum borgarinnar. Minna var hins vegar rætt um hvað vantaði i þessar tillögur, hvað þá um tillögur annarra flokka i borgarstjórn um úrbætur i atvinnumálum. Við fyrstu umræðu um atvinnu- málin, sem fram fór i borgar- stjórni janúar, lágu fyrir tillögur frd Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum, auk tillagna borgarstjóra. Vinnubrögð meirihlutans Tillögunum var að vanda visað til borgarráðs og annarrar um- ræðu, sem fram fór á fimmtu- dagskvöldið var. A þeim tima sem leið milli umræðnanna hafði borgarstjóri tint eitt og annað úr tillögum Alþýðubandalagsins og sett inn i sinar, og að svo búnu samið frávisunartillögur við til- lögur Alþýðubandalagsins og Alþýðuílokksins og kynnt sér breytingatillögur frá Fram- sóknarmönnum með nokkuri vel- þóknun. Undirrituð nennti ekki að bfða eftir afgreiðslu borgarstjórnar- meirihlutans á þessumftillögum á fimmtudag, heldur fór af vett- vangi um bálf-tólfleytið. Það er nefnilega einu sinni regla að allar tillögur sem koma frá Sjálf- stæðisflokknum eru samþykktar með 9 atkvæðum, og öllum tillög- um minnihlutaflokkanna er visað frá með þessum sömu 9 atkvæð- um. Aðfaranótt föstudagsins veittu atkvæðin 9 tillögum sinum að sjálfsögðu brautargengi, en aukþess samþykktuþaueittbvað af breytingartillögum Fram- sóknarmanna, breyttu öðrum og á endanum greiddu fulltrúar Framsóknarmanna atkvæði með tillögum ihaldsins, með sérstakri bókun. Fulltrúi Alþýðuflokksins vissi greinilega ekki hvernig hann ætti að greiða atkvæði og sat þvi hjá. Fulltrúar Alþýðubandalagsins greiddu atkvæði gegn tillögum borgarstjóra i heild, en samþykktu að visa einni af tillög- um Alþýðubandalagsins til borgarráðs. Þessum mótatkvæð- um fylgdi eftirfarandi bókun: „Á fundi borgarstjórnar 15. desember s.l. boðuðu borgarfull- trúar Alþýðubandalagsins að þeir myndu leggja fram itarlegar til- lögur um atvinnumál i byrjun þessa árs. Þær tillögur voru siðan lagðar fram i borgarstjórn 19. janúar. s.l. Þann 10. janúar kynnti borgar- stjóri á blaðamannafundi tillögur sinar að atvinnumálum. Borgarfulltrúír Sjálfstæðis- flokksins hafa nú lagt fram frá- visunartillögu við at-innumála- tillögur Alþýóubandalagsins. Jafnframt hafa þeir flutt ýmsar breytingartillögur við tillögu borgarstjóra, sem flestar hverjar eru teknar litt breyttar úr tillög- um okkar Alþýðubandalags- manna. Þótt borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins reyni þannig að bæta fyrir flaustursverk borgar- stjóra, munum við borgarfulltrú- ar Alþýðubandalagsins greiða at- kvæði gegn tillögum borgar- stjóra. Þótt einstaka afmarkaðar til- lögur séu að okkar dómi góðar (enda margar frá okkur komn- ar), þá er sú meginhugsun, sem þar kemur fram um aðstoð við einkaatvinnureksturinn án aðild- ar eða áhrifa borgarinnar and- stæð okkar grundvallarsjónar- miðum. „Munum við því greiöa atkvæði á móti tillögunum i heild.” Áhrii minnihlutans Sigurjón Pétursson, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins vakti viðumræðuna athygli á þviaötil- Framhald á 18. siðu Aöur en borgarstjórnarfundir hefjast er vitaö hvernig afgreiösla ein- stakra mála veröur.Sé tillagan frá Sjálfstæöisflokknum fær hún 9 at- kvæöiogersamþykkt, sé hún frá öörum borgarfulltrúum greiöa þessir sömu 9 atkvæöi gegn henniog hún er felíd. Ljósm.— eik Borgarstjóri ásaint tveimur em- bættLsmönnum sinum á biaöa- mannafundinuin i Höfða I vetur, þarsem liann kynnti upphaflegar tillögur sinar i atvinnuináluin. Ljósm.- eik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.