Þjóðviljinn - 09.08.1980, Page 5
Helgin 9,—10. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Kókmálið í Guatermla:
Auðhringurinn lætur undan
Coca Cola samþykkir kröfur starfsfólksins og IUF
Eftirfarandi greinargerö hefur Þjóðviljanum borist frá Hauki
Má Haraldssyni/ blaöafulltrúa Alþýðusambands Islands. Er hér
um að ræða upplýsingar um ákvæði samnings, sem verið er að
ganga frá milli Coca Cola Company í Bandaríkjunum, og Alþjóða-
sambands starfsfólks í matvælaiðnaði (sem er aðili að Alþjóða-
sambandi frjálsra verkalýðsfélaga), vegna kókmálsins í Guate-
mala. Kemur fram í greinargerðinni að Alþjóðasamband starfs-
fólks í matvælaiðnaði hefur farið þess á leit við aðildarfélög sin, að
hætt verði aðgerðum gegn Coca Cola út ágústmánuð a.m.k. þar til
endanleg undirritun samkomulagsins hefur farið fram og það hlot-
ið staðfestingu.
Eins og flestir vita hefur und-
anfarið ár verið i gangi herferð
gegn Coca Cola viöa um heim,
vegna ástandsins i kókverksmiðj-
unni i Guatemala, þar sem morð,
mannrán og pyntingar hafa við-
gengist um þriggja ára skeiö.
Astæðan til þess að Coca Cola
hringnum var blandað i máliö
með þvi að hefja herferð gegn
neysluog framreiöslu, — og raun-
ar framleiöslu einnig, — á þess-
um vinsæla drykk, var að Coca
Cola Company i Atlanta neitaði
alfarið að skipta sér af ástandinu
og sagði Verksmiðjureksturinn
óviðkomandi kókhringnum.
Nú hefur Coca Cola Company
hins vegar viðurkennt ábyrgð
sina i þessu máli með þvi að sam-
þykkja að skrifa undir samkomu-
lag sem felur i sér samþykki viö
allar þær kröfur sem gerðar hafa
verið til fyrirtækisins af verka-
fólki við kókverksmiðjuna i
Guatemala og Alþjóðasambandi
starfsfólks viö matvælaiðnað
(IUF).
Vegna þessa hefur IUF sent út
beiðni um það, að aðgerðum gegn
Coca Cola veröi hætt út ágúst-
mánuð, eöa þar til endanleg
undirritun og staöfesting á samn-
ingum þessum hefur farið fram.
Aðalatriðin i væntanlegum
samningum eru eftirfarandi:
1. Coca Cola Company fjármagn-
ar sameignarfélag, þar sem
þaö verður minnihlutaaðili
(35%), en félagið mun festa
kaup á Embodelladora Guate-
malteca SA (kókverksmiöjan i
Guatemala, EGSA).
2. Coca Cola Company mun skipa
nýja stjórnendurEGSA og hafa
yfirumsjón með rekstri verk-
smiðjunnar um 5 ára skeið.
3. Coca Cola Company mun
ábyrgjast fullan rétt verka-
lýðsfélags viö EGSA. Til frek-
ari undirstrikunar þessu sam-
komulagi hefur Coca Cola
Company samþykkt að afhenda
IUF eftirfarandi gögn skrif-
lega:
1. Afrit af yfirlýsingu þar sem
kaupin eru staöfest, og afrit af
kaupsamningnum.
2. Bréf frá formanni sameignar-
félagsins, þar sem staöfest
verði samþykki hans við nauö-
synlegum skilyrðum þess að
tryggður sé fullur réttur verka-
lýðsfélagsins, þaö er
a) — að fjarlægður sé allur lög-
regluafli frá verksmiðjunni,
b) — að endurráðið verði i stöður
allra þeirra yfirmanna sem
tengdir voru John Trotter,
c) — að endurráðnir verði allir
þeir verkamenn sem sagt var
upp störfum af John Trotter
(þetta hefur þegar verið fram-
kvæmt),
d) — að verkalýðsfélagið við
verksmiöjuna verði viðurkennt
Kókakólaskilti á vegg i Gúatemala — risafyrirtækið hefur séð þann
kost vænstan að láta undan siga fyrir mótmælum verkaiýðssamtaka.
og hætt sé öllum stuðningi viö
svonefnt „asocoation” (félag
sem John Trotter stofnaði fyrir
verkafólk sem ráðið var til
verksmiðjunnar, til höfuðs hinu
raunverulega verkalýösfélagi),
e) — að gengiö verði til kjara-
samninga við verkalýðsfélagið,
og þeir bættir.
3. Bréf frá Coca Cola Company,
þar sem allir þessir efnisþættir
veröi staöfestir og tryggðir
4. Persónulegar upplýsingar um
alla þá aöila sem sæti eiga i
stjórn eöa eignaraöild að nýja
sameignarfélaginu.
Coca Cola Company hefur einn-
ig samþykkt að gera það sem
nauösynlegt er til að fá yfirvöld i
Guatemala til að virða þetta sam-
komulag og hætta ofbeldisverk-
um gegn verkafólkinu. Þá hefur
Coca Cola Company einnig tekið
jákvætt f hugmynd um að það
stofni sjóö til aö styrkja fjölskyld-
ur þeirra starfsmanna EGSA sem
níyrtir hafa veriö,t.d. kosta nám
barna þeirra.
Fyrir sitt leyti hefur IUF sam-
þykkt að senda Coca Cola
Company yfirlýsingu þess efnis,
að aögerðirnar gegn EGSA skapi
ekki fordæmi aö þvi leyti, að sam-
tökin ætli sér ekki undantekn-
ingarlaust aö blanda sér i hvern
þann „eðlilegan” ágreining sem
upp kann að koma milli verka-
fólks og atvinnurekenda. Jafn-
framt er einhugur milli aðila um
að koma á upplýsingastreymi
milli Coca Cola Company og IUF,
þannig að hægt verði að koma
timanlega á sáttum I ágreinings-
málum sem á siðari stigum gætu
orðið alvarleg og leitt af sér svip-
að ástand og raunin varð i Guate-
mala.
Loks má geta þess, að fengist
hefur um það vitneskja, að Coca
Cola Company er að endurskoöa
fastasamning þann sem fyrirtæk-
iðgerir við handhafa framleiðslu-
leyfis á drykkjum sinum. Endur-
skoðun þessi er gerð með þaö fyr-
ir augum, aö kynna framleiöend-
um félagslegar skyldur sinar og
nauðsyn þess að varðveita gott
„mannorð” Coca Cola. 1 þessu
felst einnig skyida til að virða rétt
verkalýösfélaga.
Síðasttalda atriðið er ekki sist
fróðlegt fyrir þá sök að ekki er
lengra siöan en I maimánuði, að
hluthafafundur Coca Cola
Company felldi með 97.5% at-
kvæða gegn 2.5% tillögu, sem
gerði ráð fyrir að i umrædda
framleiðsluleyfissamninga yrði
sett grein um að framleiöendur
skyldu virða mannréttindi starfs-
fólks sins.
Norðmenn hafa sitt á þurru-
hvað með okkur Islendinga?
í Noregi rignir mikið og þar blása líka vindar
eins og kunnugt er. Þess vegna er þeim nauð-
syn á að eiga góð og þétt þök, sem þola hin
hörðustu átök veðurguðanna.
Dúkurinn er styrktur með glertrefjum eða vef
úr polyester. Samskeyti eru brœdd saman
með heitu lofti og er sú vinna nánast óháð
veðri.
Fyrir sjö árum hóf norska fyrirtækið
PROTAN & FAGERTUN framleiðslu á
SARNAFIL- svissneskum PVC-dúk- og nú
hafa margir Norðmenn allt sitt á þurru.
SARNAFIL er flokkur afburða góðra plast-
efna. Meira en 15 ára reynsla og fjöldi til-
rauna og rannsókna sanna þessa fullyrðingu.
Það sem öðru fremur einkennir SARNAFIL
er öndunarhæfni þess og að það rýrnar ekki
en heldur mýkt og formi hvort heldur er i
sterkri sól eða í hörku frosti.
SARNAFIL má leggja út laust og fergja með
möl, líma með Sarnacol-lími eða festa með
skrúfum og sérstökum skífum.
Sérstakar gerðir SARNAFIL eru notaðar á
þök með léttri og þungri umferð, til grunn-
vatnsþéttingar, til þéttinga i jarðgöngum,
undir olíutanka og svo framvegis.
Allt að 10 ára ábyrgð á efni og vinnu.
SARNAFIL er aðeins lagt af sérhæfðum iðn-
aðarmönnum.
Samafi!
—fagtun
FAGTÚN HF, BORGARTÚN 18, 105 REYKJAVlK, SlMI 28230