Þjóðviljinn - 04.10.1980, Síða 21
Helgin 4.-5. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
Jón Viöar Sigurðsson ræðir
við Bubba Morthens um nýja
plötu og poppið á íslandi
Poppstjarnan
%
í kvöld hann á að fara á stóra sviðið
Hann ferðast bara á fyrsta klassa.
Á bak við sviðið bíður lítil stúlka,
með falsaðan passa.
Hér kemur hann klæddur í silki,
tjásuklipptur með kókaín í hylki.
Firrtur raunveruleikanum, týndur,
stjörnukomplex, píndur.
Þeir búa til sextákn, poppstjörnur sem klæðast
glimmer á sviði og vaða reyk.
Hann vill ekkert skilja, hann vill ekkert sjá.
Hann er í stjörnuleik.
Að morgni eftir nautnanótt hann vaknar,
í lofti hanga hrímgrá tóbaksský.
örvandi lyf jum í sig hakkar
til að komast buxurnar í.
Náhvitur með bláa bauga.
Spegillinn er hans stóra synd.
Sannleikanum gefur illt auga
því poppstjarnan er blind.
Utangarðsmenn standa
nú á krossgötum tónlist-
arferils síns. Nýja litla
platan sem kom út nú í
vikunni sýnir að um
mikla stefnubreytingu er
að ræða frá fsbjarnar-
blúsinum. f tilefni af út-
komu þessara litlu plötu
og væntanlegri upptöku á
nýrri plötu, brá blaða-
maður Sunnudagsblaðs-
ins undir sig betri fætin-
um og náði tali af Bubba
AAorthens.
Einlægir
reggae-aðdáendur
Blm.Hvað olli þvi að þið fóruð
að spila ,,reggae”-músik?
B.M. Utangarðsmenn hafa
lengi verið einlægir „reggae”-
aðdáendur. Okkur þótt þvi sjálf-
ságt að reyna. Að minu mati er
það sama að gerast i reaggae-
músikinni i dag og þegar Bitl-
arnir og Rolling Stones komu
fram. Ahrif ,,reggae”-músikur-
innar eru alveg ótviræð á nær
allra hestu nýbylgju- og pönk-
hljómsveitirnar. Góð dæmi eru
Public Images Limites og Plice,
hjá þeim er sterkur „reggae”-
taktur. Það sama má segja um
Clash og fleiri nýbylgjuhljóm-
sveitir. Þær spila allar
„reggae”.
Rolling Stones hafa spilað
„reggae”, við spilum „reggae”,
„reggae-ið” verður rikjandi.
En að sjálfsögðu verður rokkið
alltaf nærri, það er sigilt.
Rækju-reggae
er grín
Blm. Hvað er „Rækju-
Reggae”?
B.M. Það er töluverður
mórall i islenskri dægurmúsik
gagnvart okkur. Þaö má aldrei
segja neitt, allir eru hræddir um
sitt bak og sitt nafn, „Rækju-
Reggae” er grin hjá mér. Ekki
alls fyrir löngu kom til mln „vel
metinn” tónlistarmaður og
sagði að þaö sem hann spilaði
væri „rækju-rokk” en það sem
við spiluðum væri „gúanó-
rokk”. Með þessu var hann að
gefa i skyn að sú músik sem
Utangarðsmenn fremdu væri
bölvaður úrgangur.
Mér fannst þetta frábær vit-
leysa i manninum og ákvaö að
nefna lagið „Rækju-Reggae”
honum til heiðurs en ekki Ha-
Ha-Ha-Ha eins og lagiö átti að
heita upphaflega.
Árið 1974 lagðist
íslensk dægurtónlist
lœgst
Blm.Hver er meiningin á bak
við linurnar „Ég er löggiltur
öryrki, hlusta á Brimkló og
H.L.H.”?
B.M. Þegar ég var 10, 11, 12
ára þá voru minir uppáhalds
tónlistarmenn á Islandi, Bjöggi,
Addi, Rúni Júl. og Gunni Þórð-
ar. Þá hafði ég engan skilning á
textum. Skipti þar engu hvort
veriö var að segja eitthvað eða
ekki.
Þegar ég óx upp sá ég i gegn-
um þaö sem þeir voru að gera
þá. Ég tala um timabilið 1974,
en það ár tel ég að islensk dæg-
urtónlist leggist hvað lægst og
er þó úr miklum árafjölda að
moöa. Þetta er áriö sem Digga-
ligga-læ-ló og Seinasta sjóferðin
komu út. En þó eru tvær undan-
tekningar, Megas og Stuðmenn.
Ég var þá á vertiö I Vest-
mannaeyjum og fór að velta
þessu fyrir mér. Ef hægt væri að
taka erlent lag og syngja digga-
ligga-læ-digga-ligga-ló-allt er I
stuöi-hæ-hó, eða eitthvað i lik-
ingu við þetta, setja það á plötu
sem fer á markað og selst, þá er
öll þessi skrif þar sem reynt er
að gera kyntákn úrmérerueitur
i minum beinum. Ljósm.: eik.
um. Ég vona að meö þvi sé hægt
að opna augu yngri krakkanna.
Sem dæmi um einfaldan texta
sem segir það sem ég hugsa, þá
er hér gott dæmi:
„Hún er ekki rauðsokka og
dansar sýrutangó.”
Hún var alin upp tii þess
að giftast
liggja á bakinu og fjölga sér,
hún var aiin upp sem
Aristókrat dama
upp á punt til að þóknast þér.
Við gefum skft í það
Blm. Nú hljótið þið að gera
ykkur grein fyrir þvi að það er
ætlast til mikils af ykkur?
B.M.Við gefum skit i það. Við
förum ekki eftir þvi sem fólk
segir eða gagnrýnendur ællast.
E:- Bubbi þetta séni sem af er
látið, en það mun koma i ljós á
Ég frétti að Halli og Laddi
hafi búið til þátt um mig: Subbi
Skorsteins. Ég er harðánægður.
eitthvað að. Það verður alltaf
hópur i þjóðfélaginu sem mun
kaupa svona plötur. Spurningin
er, hversu stór verður hann?
Það er kjarni málsins.
Almenningur verður að átta
sig á þvi að þessir menn eru
meö mikil völd i höndunum
meðan þeir eru I sviðsljósinu.
Sá hópur sem heldur uppi
plötumarkaðnum i dag eru
krakkarnir. Að bjóða krökkun-
um upp á svona drasl væri að
minu mati nákvæmlega það
sama að ganga að einhverjum
krakka og miga á hausinn á
honum.
Alæta á íslenska
nútíma-ljóðlist
Blm.Lestu mikið af ljóðabók-
um?
B.M. Já, segja má að ég sé
hálfgerð alæta á islenska nú-
tima ljóðlist. Það kom mér mik-
ið á óvart hversu góðar ljóða-
bækur Einars Más eru. Ahrif
þessara bóka eru fyllilega sam-
bærilegar við þau áhrif sem
fyrsta ljóðabók Þórarins Eld-
járns hafði á mig. Til dæmis
finnst mér kvæðið „Sósialismi i
einu herbergi” eitt besta ljóð
sem ég hef lengi lesið og er ég
innilega sammála höfundi.
Blm. Hverjir eru þinir eftir-
lætis-tónlistarmenn og textahöf-
undar?
B.M. Minir eftirlætis-
,,reggae”-listamenn eru
Gregory Isacs og Linton Kwasi
Johnson. 1 rokkinu held ég mest
upp á Clash og Sham 69. Af
textahöfundum finnst mér Bob
Dylan, Ray Davis, Leonard
Cohen og Mike Pollock bestir.
Ég er sannfærður um það að
textar Mikes eigi eftir að verða
okkur mikil lyftistöng erlendis.
Blm.A Mike mikiö efni á nýju
plötunni?
B.M.Á þeirri plötu sem verð-
ur gefin út i Hollandi (af C.B.S.)
á Mike alla textana. Þessir text-
ar eru frumsamdir, með smá
undantekningum þó.
Blm. Eruö þið á leiö út fyrir
landsteinana?
B.M.Þegar nýja stóra platan
kemur út i Hollandi er ætlunin
aö fylgja henni eftir meö tón-
leikum. C.B.S. mun sjá um alla
fyrirgreiðslu fyrir okkur ytra.
Siðan er ætlunin að halda eitt-
hvað áfram og jafnvel ferðast
um Norðurlönd.
Uppgjör við
fortíðina
Blm. Hvenær er þessi ferð á
döfinni?
B.M. Þessi ferð verður farin
eftir áramót, ef allt gengur vel
og allar áætlanir standast.
Blm.Verður nýja platan frá-
brugðin tsbjarnarblúsinum?
B.M. Alveg eins og svart og
hvitt. A tsbjarnarblúsinum er
ég að losa mig við farand-
söngvara-tilfinninguna og þá
hugmynd að ég ætti að hlaupa i
skarð Megasar. A þeirri plötu er
ég einnig að losa mig undan
áhrifum frá blues og raggtime
músik. Segja má aö tsbjarnar-
blúsinn sé uppgjör mitt við for-
tiðina.
A nýju plöunni verður geysi-
lega hratt og kröftugt rokk. Auk
þess verða fjögur ,,reggae”-lög.
„Kinverskt reggae”, „Nuclear
reggae”, „Blóðið er rautt” og
„Barnið sefur”. öll lögin verða
með islenskum texta nema tvö
lögsem Mike syngur. Þau verða
á ensku, enda er enskan hans
móðurmál og ef til vill syng ég
eitt lag á ensku.
Textar Megasar
of langir
Blm. Nú voru textar á ts-
bjarnarblús mjög góðir, má
búast við aö textar nýju plöt-
unnar verði eitthvað i likingu
við þá?
B.M. Ég hef einfaldað text-
ana, þvi þegar komið er út i
þessa músik, nýbylgjurokk, þá
gengur ekki að hafa textana of
margbrotna.
Ég tel meistara Megas hafa
flaskað á þvi i sinu rokki, að
textar hans voru of langir. Of
djúpir og yfir höfuð of góðir til
aö hægt væri að nota þá með
músikinni. Þeir voru nefnilega
mun betri en músikin og stóðu
einir sér. Músikin var aukaat-
riði. Textar og lög eiga aö falla
saman en ekki vera tveir að-
skildir hlutir.
Ég reyni að einfalda textana,
segja meira i sem fæstum orð-
Svona i lok þessa samtals er
ætlunin aö gefa landsmönnum
örlitið sýnishorn af næstu plötu
Utangarðsmanna:
næstu plötu. Svona hugsa hlægi-
lega margir. Okkur er nákvæm-
lega sama hvað fólk heldur og
ætlast til.
Þessi þörf blaðamanna fyrir
kyntákn og poppstjörnur er mér
hulin ráðgáta. öll þessi skrif
kringum mig þar sem reynt er
að gera kyntákn úr mér er eitur
i minum beinum.
A móti
peningamúsík
Blm. Hvaöa augum lituröu á
islenskan tónlistariðnað i dag?
B.M. Ég hef gagnrýnt menn
fyriraðspila peningamúsik. Við
höfum verið óvægnir við að
gagnrýna islenska tónlistar-
menn. Við viljum hrista upp i
islensku tónlistarlifi, láta menn
vita af þvi að það er ekki enda-
laust hægt að gefa út plötu fyrir
óskalagaþættina. Viö viljum
koma við kaunin á islenskum
tónlistarmönnum og islenskum
tónlistarsmekk, hrista upp i
þeim fá þá til að hugsa sjálf-
stætt og veita þvi athygli sem er
að gerast i kringum okkur. Okk-
ar draumur er að brjóta niður
islenska músikhefð eins og hún
er i dag.
Blm. Hafiö þið orðið varir við
einhvern árangur?
B.M. Ég frétti að Halli og
Laddi hafi búiö til þátt um mig,
Subbi Skorsteins. Ég er harð-
ánægður, þvi að minu mati sýnir
þetta að þeir taka þetta til sin og
að við höfum ekki skotið yfir
markið.
Blm. Hvenær kemur nýja
platan út?
B.H.Alveg nógu snemma.