Þjóðviljinn - 27.06.1981, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. júni 1981
ÞEKKIR
ÞÚ ÞESSI
ANDLIT?
ÁSKRIFENDA
ÞRAUT
ÞIÓÐVILIANS
I.HLUTI
1. Skrifiö rétt nöfn undir mynd-
irnar.
2. Sendiö lausnina til Þjóövilj-
ans — áskrifendaþraut —,
Siðumúla 6, Reykjavík ásamt
nafni og heimilisfangi ykkar
fyrir 15. næsta mánaöar.
3. Þeir sem ekki eru áskrifend-
ur, veröa þaö sjálfkrafa meö
þvi aö senda lausn á þraut-
inni.
4. Verðlaun veröa dregin út 25.
næsta mánaðar, aukaverö-
laun i hverri viku og aöal-
verölaunin, hljómflutnings-
tæki, fyrir réttar lausnir á öll-
um þrautunum, 25. septem-
ber.
5. Næsta þraut birtist helgina
25.-26. júli
GANGI
YKKUR
VEL
---------------------------------------— V
Nafn: ___________
Heimilisfang:
V_____________
Sími:
VERDLAUN í
ÁSKRIFENDA
ÞRAUTINNI
Verðlaun i júlí:
Aðalverðlaun:
Kenwood Sigma-Drive magn-
ari.
Kenwood KD-1600 plötuspilari
og AR-18s hátalarar frá Fálkan-
um.
í ÞRAUTINNI
Alvar Aalto vasi frá Kristjáni
Siggeirssyni h.f.
Norskar skiðapeysur frá Geysi
h.f.
10 hljómplötur aö eigin vali frá
Steinun h.f. og hljómdeild
Karnabæjar.
TAKIÐ ÞÁTT
FRÁ BYRJUN
ritstjórnargrein r Arni
Hin bandaríska hræsni Bergmann skrifar
Carter, fyrrum Bandaríkja-
forseti, geröi mannréttindamál
að verulegum þætti i málflutn-
ingi sfnum um hlutverk Banda-
rikjanna i' heiminum. Og hann
var það heiðarlegur aö viður-
kenna, að ekki var stætt á því að
láta sem mannréttindabrot
væru einkamál kommiinista-
stjórna — ekki sist þar sem
mjög mikið af þeim glæpum
gegn mannréttindum sem
heimurinn þekkir er framið i
vina- og viðskiptarikjum
Bandarikjanna i Rdmönsku
Ameriku. Það var ekki nema
sjálfsagt aðBandarikin tækju til
máls um hlutskipti þeirra tiu
þúsund samviskufanga sem nú
eru i haldi i Sovétrikjunum
(talan er komin frá ritstjóra
fréttablaðs um mál þessara
fanga á Vesturlöndum, Ljtib-
arski). En þau mótmæli hlutu
að hafa jafn holan hljóm og
þegar t.d. sovésk blöð býsnast
yfir atvinnuofsóknum eða fang-
elsunum á róttæklingum ein-
hvers staðar á Vesturlöndum —
ef að um leið væri látið sem —
til dæmis þær tuttugu þúsundir
manna sem herforingjaklikan i
Argenti'nu hefur rænt, pvntað og
myrt skiptu litlu sem engu máli.
Carterstjórnin reyndi ýmis-
legt, þóttekki væri framgangan
einarðleg, til að siða kllku-
stjórnir I Rómönsku Ameriku.
Og náði vissum árangri. Meira
að segja I Argentinu og Chile
bar á þvl, að valdamenn vildu
hressa upp á mannoröið og losa
sig við verstu böölana, fækka
handtökum, bæta meðferð á
föngum. En nú er stjórn Reag-
ans tekin við, og nú versnar
ástandið aftur að^miklum mun.
Tvöfalt siðferði
Astæðan er i stuttu máli
þessi:Reaganog ráögjafar hans
telja, að þótt mannréttindi séu
merkileg, þá skuli áhyggjur af
þeimaldrei trufla hernaöarlega
eða viðskiptalega hagsmuni
Bandarikjanna. 1 annan stað er
gerður greinarmunur á „harð-
stjórn” og „alræöi”.
Harðstjórnir eru einræðis-
stjórnir, vinveittar Bandarikj-
unum. Það á að sýna þeim um-
burðarlyndi á þeirri forsendu,
að þrátt fyrir allt geti þær bætt
ráö sitt (Siðan er ekkert gert til
að stuðla að slikum breyting-
um). Alræöisstjórnir eru aftur á
móti þær, sem kenndar eru við
einhvers konar sósialisma. Þær
skulu fordæmdar harðlega — á
þeim forsendum, að úr þvi að
kammúnistar eru I forsvari
fyrir þeim, þá geti þær aldrei
breyst.
Eitt skiptir
máli
Þessi skipting, sem einatt er
kennd við Jeane Kirkpatrick,
fulltrúa Reagans hjá Samein-
uöu þjóðunum, þýðir m.a. að
ekkert tillit er tekið til raun-
verulegs ástands i löndum sem
fá stimpilinn „harðstjórnar-
riki” eða „alræðisriki’.’. Þaö er
afstaöa viökomandi stjórna til
Bandarikjanna sem öllu máli
skiptir, staða þeirra i vigbúnaö-
ardæminu.
Þannig eru rikí eins og Kúba
og Nicaragua, sem hafa hvað
sem ávirðingum þeirra liður,
ráöist i stórfelldar félagslegar
umbætur og menntunarherferð-
ir, sem grannriki þeirra hefðu
brýna þörf fyrir — þau eru óal-
andi og óferjandi. Eftir sömu
bandarisku hagsmunarökum
eru riki eins og Guatemala og
Chile miklu meira aðlaðandi.
pessi tviskinnungur nær einnig
til kommúnistaríkjanna sjálfra:
Bandarikin hafa ekki hátt um
mannréttindamál i Kina, þar
sem er þó afar svipað þjóðfé-
lagskerfi og i Sovétrikjunum og
þar sem andófsmenn hafa verið
dæmdir i allt að fimmtán ára
fangelsi nýlega. Astæðan a- ein-
f(3d: Kina er komiö I hernaðar-
samvinnu við Bandarikin — allt
annað eru smámunir.
Gleðitið hjá harðstjór-
um
Afleiðingarnar af þessari
undarlegu skiptingu rikja og
þar eftir synda þeirra gegn
mannréttindum i „þolanleg”
eða „vond” hefur svo hinar
hörmulegustu afleiöingar I
þeirri álfu þar sem Bandaríkja-
menn hafa einatt ráðið flestu
sem þeir vildu, Rómönsku
Ameriku. Harðstjórarnir hafa
ekki veriðlengi aö átta sig á þvi,
að nú þyrftu þeir ekki, hvorki
með falsi eða alvöru, að halda
sig til fyrir stóra bróður I norðri
og umheiminum yfirleitt.
Argenti'num enn hættu við aö
hreinsa verstu bófana burt i
hernum. Skýrt dæmi um að
stefna Reaganst jórnarinnar
losarum þærveiku hömlur sem
komnarvoru á grimmilega kúg-
un er svo Chile. I Washington,
segir vikublaðið Newsweek, er
nýbúið að sýkna tvo Chilemenn
sem tóku þátt I að myrða Leteli-
er, fyrrum utanrikisráðherra
vinstristjórnar Allendes i Chile.
Bandarikin afnámu nýlega viss-
ar refsiaðgerðir gegn stjórn
Pinochets, sem Carterstjórnin
kom á. Bandarikin hafa greitt
atkvæöi gegnþvi að Sameinuöu
þjóðimar fordæmdu mannrétt-
indabaráttu i Chile. Og allt þetta
„vekur ótta um að Pinochet for-
setafinnist hann frjálsari en ella
til að láta undan harðstjórnar-
tilhneigingum sinum”, segir
blaðið ennfremur.
Það finnst honum svo sannar-
lega, ef marka má sama blað.
Valdhafar i Chile beita aftur I
vaxandi mæli handahófshand-
tökum og útlegðardómum
innanlands til að halda uppi
þeim ótta sem þeir þurfa til að
halda völdum. Pyntingar eru
mjög algengar enn á ný. Eftir-
litið er enn hert með þeim sem
lausir ganga: til dæmis hafa nú
verið settir rektorar frá hernum
yfir alla háskóla — og 300 há-
skólakennarar hafa verið reknir
til viðbótar öllum þeim sem
áður höföu veriö settir I starfs-
bann. Þröngt var málfrelsið —
nú er þaö enn þrengra.
111 stefna og röng
Stefna Réagansstjórnarinnar i
þessum málum er bæði ill og
röng. Hún er ill vegna þess, að
hún þýðir það i raun, að fleiri
menn eru handteknir, barðir og
drepnir i'þeim rikjum þar sem
mestar likur eru til að banda-
risk tilmæli séu virt. Hún er
röng vegna þess, að skipting I
breytanleg og óbreytanleg riki
gengur ekki upp. 011 riki breyt-
ast — Bandarikin sem Kina,
Suður-Amerika og Sovétrikin.
Og einnig svokölluð óbifanleg
kommúnistariki hafa sýnt
merkilega endurnýjunarmögu-
leika: Ungverjaland er annað
riki en það var fyrir tuttugu
árum, t Tékkóslóvakiu hófst
1968 merkileg lýðræðisþróun, og
meira að segja að frumkvæöi
hins rikjandi kommúnista-
flokks. Sú þróun var bæld niður
af erlendu stórveldi — rétt eins
og lýðræðisþróun hafði nokkru
fyrr verið kæfð i Dóminikanska
lýðveldinu með bandariskri sjó-
liðainnrás. OgPólland er einnig
allt annað rfki nú en það var
fyrir ári.
Möguleikar lýðræðislegrar
þróunar eru aðrir og meiri en
Reaganliðið vill vera láta —
hvort sem litið er i suöur eða
austur. En hitter svo rétt, að til
þess að þeir geti ræst, orðið aö
veruleika, þurfa sem flestir að
leggjast á eitt um að takmarka
þau umsvif, þann valdhroka
risaveldanna, sem vill læsa alla
i þann vitahring sem segir: Sá
sem er ekki með mér er útsend-
ari andskotans. AB