Þjóðviljinn - 27.06.1981, Blaðsíða 17
BANDARÍSKIR UNGLINGAR
Furðu margir
hvorki læsir
né skrifandi
17 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.—28. júni 1981
Skóli i Harlem i New York: Miðstéttin flýr með
börn sin i dýra einkaskóia. — Myndin t.v. Braut-
skráning i bandariskum ,,high school".
Lélegir kennarar —
Mikið sjónvarpsgláp
og mismunun eftir
efnahag foreldra
Bandaríkjamenn hafa af
því vaxandiáhyggjur að út
úr skólum þeirra komi ó-
trúlegur f jöldi fólks sem á
í verulegum erfiðleikum
með að lesa og skrifa;
samt er hið bandaríska
skólakerfi hið dýrasta í
veröldinni og um 2500 doll-
urum varið á ári f hvern
nemanda. Um er kennt lé-
legum kennurum og svo
gífurlegri sjónvarpsneyslu
(eins og kunnugt er alast
Bandaríkjamenn upp við
hina sönnu paradís
„frjálsra" sjónvarps-
stöðva og geta valið um
margar rásir allan sólar-
hringinn).
Bandariski herinn hefur sinar
áhyggjurtþað er ekki nóg að ný-
liðar eigi erfitt með að lesa og
skrifa — það kemur i ljós, að þaö
er beint samhengi milli þeirrar
kunnáttu og hæfni þeirra til að
hitta i mark þegar nauðsyn kref-
ur! Skýrsla Carnegie-stofnunar-
innar frá 1979 um menntunarmál
lvsir bvi vfir að briðjungur
bandariskra æskumanna sé illa
skólaður, fái vond störf eða engin
og muni hreint ekki geta staöið
sig i bandarisku samkeppnisþjóð-
félagi.
Skólakerfið
1 stuttu máli sagt lftur banda-
riskt skólakerfi þannig út, að
fyrst kemur leikskóli einskonar
fyrir fimm ára börn, sem er eins-
konar aödragandi að barnaskóla.
Barnaskólabekkirnir eru svo
fimm. Þá koma „junior high
school” eða sjötti-niundi bekkur
og siðan „senior high school” sem
tekur þrjú ár til viðbótar. Alls tólf
ár. Æöri menntun fer siöan fram i
„college” eða háskóla. Þar fær
nemandi B.A. próf eftir fjögurra
ára nám (það segja Þjóðverjar aö
svari til áfangaprófs eftir tveggja
ára háskólanáms i vestur-þýsk-
um háskóla). Meistarapróf eeta
stúdentar siöan fengiö eftir tvö ár
til viðbótar.
Uppeldisfræðingar sem á-
hyggjur hafa af ástandinu telja
miðskólatimann (high school)
einna veikasta hlekkinn i
keðjunni, en fjórði hver unglingur
á þeim aldri gefst upp. Hundruð
þúsunda nemenda geta ekki,
þegar þeir fara i „efri” bekki
(tiunda bekk) lesiö og gert grein
fyrir textum sem að réttu lagi
ættu að vera á meðfæri
fjórðu-bekkinga.
Illa lesnir
kennarar
Sem fyrr segir er ábyrgð á þessu
ástandi skipt milli kennara og ým
issa þátta bandarisks neysluþjóð-
félags. Bandariska vikuritiö Tim-
es heldur þvi fram, að af 2,4 mill-
jónum kennara i landinu séu „um
það bil 20% ófærir um að kenna
þaö sem nemendur eiga að læra.
Þeir kunna sjálfir ekki að lesa,
skrifa og reikna”. Þetta hljómar
undarlega, en hvað um þaö —
þetta kemur „beint úr hrosskjaft-
inum” eins og enskir segja.Alt-
ént er þaö svo, að tólf riki i
Bandarikjunum hafa nú tekið upp
hæfnispróf fyrir kennara, sem
hafa veifað prófskirteinum við
umsókn um stööu, og um það bil
helmingur þeirra fellur á sliku
prófi i fyrstu atrennu.
Eins og
í auglýsingu
Ýmsir benda á þá veigamiklu
skýringu á vankunnáttu banda-
riskra unglinga, að nemandi sem
kemur úr miöskóla (high school)
hefur setið um þaö bil 11 þúsund
stundir i skóla en 15 þúsund
stundir fyrir framan sjónvarp.
Um þetta segir dr. Alwin von
Eurich, forseti Kennslumálaaka-
demiunnar bandarisku, aö liklega
„erum viö fyrir sakir tæknivæð-
ingar miðlunarinnar orðnir að
„fyrirsagnanemendum”. ” Þeir
sem t.a.m. standa að fræösludag-
skrám um visindi i sjónvarpi á
vegum hins opinbera, telja sig
Hægt er að vera á hálum ís þótt hált sé ekki á vegi. Drukknum manni er voði vís víst á nótt sem degi.
5
hafa komist að þvi, að ungt fólk
sem horfir á dagskrárnar „3-2-1
Contact” geti þvi aðeins skilið
það sem þeim er sýnt, að gerð
texta með þáttunum sé sniðin að
auglýsingatextum i sjónvarpi.
Skólarnir sjálfir
Þá er og talað um ofbeldi i skól-
um, eiturlyfjaneyslu og önnur
þau vandamál sem gera jafnvel
sæmilegum kennurum illa lift i
skólum stórborganna og tortima
öllum aga. Velviljaðar umbætur
eins og að gefa nemendum aukiö
valfrelsi hafa gjarna öfug áhrif á
viö það sem til var ætlast: „Nem-
endurnir eru alveg nógu kænir til
þéss að ganga á lagiö og forðast
þær námsgreinar, þau námskeið,
sem krefjast verulegrar vinnu”
segir Edward Feeney (mennta-
málaráðuneyti Marylandrikis).
Arangurinn er svo þessi, segir
sami maður: „Sumir kunna ekki
að lesa. Nú kenna þeir skólanum
um, finnst þeir illa sviknir”.
Einkaskólar
Ekki sýnast menn vita svo
gjörla hvað þeiri eigi til bragðs aö
taka. En þeir sem i betri efnum
eru, millistéttarfólk og aörir,
finna sér eigin leið: senda börn
sin i einkaskóla, en einkaskóla-
kerfið er i mjög hröðum vexti.
Það er lika i ætt viö þá rikjandi
hægristefnu sem staðfestist i
Reagan-stjórninni: hún kemur
fram i þvi að markaðslögmálum
er i vaxandi mæli hleypt inn á þau
svið, þar sem önnur riki leitast
við að beita opinberu fé til aö
jafna möguleika þegnanna.
Einkaskólar launa kennara
betur en rikisskólar, og geta þvi
valiö úr þeim skástu á kennara-
markaði. Þar eru aðstæður allar
betri, minni bekkir og þar fram
eftir götunum. Nemendur úr slik-
um skólum eru miklu betur undir
sérnám búnir — og munu lenda aö
öðru jöfnu i betur launuðum og
eftirsóttari störfum. Skólagjöldin
eru svo 6000 dollarar á ári eða
meir — með öðrum orðum, efna-
hagur foreldra hefur nú um
stundir i vaxandi mæli áhrif i þá
átt að gera söguna um Bandarik-
in sem land hinna „jöfnu mögu-
leika” aö lýgi.
(Byggt á Spiegel)
Úrvals dekk — Einstakt verð
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Vörubíladekk
1100X20 14 pl. Roadstone kr. 3.280.
1100x20 14 pi. Gcneral framdekk kr. 4.109,-
1000X20 14 pl. Roadstonc kr. 3.140,-
825x20 12 pl. Roadstonc kr. 2.240.-
1100X20 Búkkadckk, góó kr. 1.300.
Jeppadekk
FR 78 X 15 i.ada Sport
FR 78x15 l.ada Sport á tclpum
HR 78X15 Bronco, Scout, Willys
LR 78X 15 Bronco, Scout, Will>s
.178X 15 (700) Bronco
10X15
750X16
Sendibíladekk
LR 78x 15 8 pl.
875X16,5
950X16,5
750X 16
Samyang — sumardekk
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
670.
1050.
730.
750.
810.
1050.
1520.
600X12
560 X 13
590X13
í Daihatsu. Corolla
Cortina, l.ada
Corlina, l.ada
kr. 850.
kr. 1030.
kr. 1080.
kr. 1520,-
kr. 350,-
kr. 375.-
kr. 395.
615X13
645X13
600X15
Mazda, Datsun
Cortina, Mazda
Saab. Volvo
kr. 350,-
kr. 435.-
kr. 600.
Sumardekk
A78 X I3gróf Subaru kr. 560.
A78 X 13 kr. 580.
AR60 X 13 brcið kr. 560.
BR78 X 13 Mazda, BMW kr. 670.
C 78 X 14(695) kr. 640.
K 78 X 14(735,700) kr. 670.
F 78 x 14 kr. 650.
G78 X 14 kr. 660.
H 78 X 14 kr. 690.
195/75 R 14 (KR 78 X 14) Fairmont kr. 600.
205/70 R 14 Fairmont kr. 600.
205/75 R 14 (FR 78 X 14)Malibu kr. 610.
225/75 R 14 (HR 78 X 14) kr. 750.
245/60 R 14 brcið kr. 720.
165 RX 15Volvo, Saab kr. 550.
195/75 R 15 (Volvo, Saab) kr. 610.
205/75 R 15 (FR 78x15) Oldsmobilc kr. 640.
225/75 R 15(HR 78X15 H 78x15) kr. 710.
235/75 X 15 (LR 78 X 15L78 X 15) kr. 690.
235/60 X 15 brcið kr. 545.
255/60 X 15 brciö kr. 545.
265/60 X 15 hrcið kr. 555.
J 78 X 15(700 X 15) kr. 840.
Sólaðir vörubíla- og fólcsbílahjóRiarðar í flestum stærðum
Sendum gegn póstkröfu um land allt
GÚMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35. Sími 31055.