Þjóðviljinn - 27.06.1981, Síða 11
Helgin 27.-28. júni 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Greta
og
Freda
Einn persónu-
leiki — tveir
likamar
Övandað fólk kallar þær
„vitlausu tvíburana". Þær
heita Greta og Freda
Chaplin og eru 37 ára
gamlar og nánast alveg
eins. Þær eru eineggja tví-
burar og klæða sig eins,
ganga í takt, tala samtímis
og blóta meira að segja
samtímis. Ef þær eru
skildar að, þá öskra þær
báðar og væta buxurnar
samtímis.
Uppeldið
mistókst
Chaplin-tviburarnir hafa veriö
talsvert rannsakaðir af læknum
og sálfræðingum i Bretlandi og
kemur flestum saman um að þær
séu dæmi um tvibura þar sem
persónuþroski hvorrar um sig er
mjög litill, en þær hafa eignast
eins konar sameiginlegan
persónuleika. Um það hvort þær
séu vangefnar eða geðveikar eru
læknar ekki sammála, en flestir
hallast þó að að svo sé ekki,
heldur hafi uppeldi þeirra mis-
tekist algerlega og beint athygli
þeirra og öryggi til hvorrar ann-
arrar i stað þess að hjálpa þeim
til að þroskast sem sjálfstæðir
einstaklingar. Vissulega eru
mörg dæmi um tvibura sem eiga
miklu meira sameiginlegt en
systkini almennt, en Greta og
Freda eru orðnar svo samgrónar
hvor annarri andlega, að þaö er
talið að það myndi riða þeim að
fullu ef þær yrðu skildar að.
Alltaf eins
klæddar
Þær ganga alltaf eins klæddar,
þær fara saman i bað og boröa
með sama hraða. Ef þeim eru
gefin föt sem eru ekki alveg eins,
hætta þær ekki fyrr en þau eru
eins. ^>ær fengu kápur, aðra með
gráum tölum en hina meö græn-
um og þær klipptu helming taln-
anna af og saumuðu á hina káp-
una til að vera alveg eins.
Þær eru taldar hafa fremur
lága greindarvisitölu en þær hafa
verið i meðferð i Coxton og búið
þar á heimili fyrir andlega fatlað
fólk. Starfsfólkið lýsir þeim sem
dálitið erfiðum, en hættulausum.
Einu sinni lentu þær þó i kasti við
lögin, þegar 57 ára gamall bil-
stjóriog fyrrum nágranni þeirra,
ásakaði þær um aö hafa elt hann á
röndum i 15 ár, hrópandi ýmiss
konar dónaskap að honum. Þær
höfðu enga einbeitingu i réttar-
salnum, gripu stanslaust fram i
og oftast báöar i einu. Þær fengu
stuttan, skilorðsbundinn dóm, en
hafa ekki þurft aö sitja hann af
sér. Nú dveljast þær á heimilinu i
Coxton og dútla mest við aö raða
blómum og hita te. En enginn veit
hvaö i rauninni biður þeirra eða
Hraunaætt
Föðurnafn misritaðist i ættar-
tölunni i siðasta sunnudagsblaði.
Þar stóð Björn Kristinsson i stað
Grétarsson. Björn Grétarsson er
kvæntur Þóru Gylfadóttur.
Greta og Freda eru alltaf eins klæddar þegar þær leiðast og ganga i
takt um göturnar.
hvert þeirra hlutskipti verður i
framtiðinni. Ljóst er að persónu-
leiki þeirra er eins og i barni og
þær eru fullkomlega háðar hvor
annarri. Geölæknar segja að þær
séu ranghverfan á hinum eölilegu
tviburum, sem yfirleitt vilja
losna hvor viö annan til að styrkja
sina eigin sjálfsvitund og sjálf-
stæði. Þá leið fóru þær Greta og
Freda aldrei og þær verða aö öll-
um likindum enn háöar hvor
annarri i framtiðinni.
(Byggtá Time — ÞS)
Lokað á
laugardögum
Að gefnu tilefni vill Verzlunarmannafélag
Reykjavikur vekja athygli félagsmanna á
þvi að skv. reglugerð Reykjavikurborgar
og samningum V.R. er óheimilt að hafa
verzlanir opnar á laugardögum til 1.
september næst komandi.
Vinna við afgreiðslustörf á laugardögum
brýtur þvi i bága við landslög og samn-
inga V.R.
V.R. treystir félagsmönnum til að virða
landslög og samninga félagsins.
Verzlunarmannafélag
Reykjavikur.
Litur er ekki
lengur lúxus
Bræðraborgarstíg1-Sími 20080- (Gengiöinn frá Vesturgötu)
Skagaradíó, Akranesi - Jón B. Hauksson, Bolungarvík
Straumur h/f., Isafirði - Oddur Sigurðsson, Hvammstanga
Hallbjörn Björnsson, Skagaströnd - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Hilmar Jóhannesson, Ólafsfirði - K.E.A., Akureyri - K.Þ.H., Húsavík
K.N.Þ. Þórshöfn - Sigurjón Arnason, Vopnafirði - Rafsjá, Neskaupstað
Rafeind s/f., Egilsstöðum - Eiríkur Ólafsson, Fáskrúðsfirði
Radíóþjónustan, Höfn - Hornafirði - Neisti h/f., Vestmannaeyjum
Mosfell, Hellu - Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50, Keflavík
UMBOÐSMENN: