Þjóðviljinn - 27.06.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27,—28. júní 1981
Roger Rees sem Nicholas og David Threlfall sem Smike i
sýningu RSC á Nicholas Nickelby, byggt á sögu Dickens í
leikgerö David Edgar.
Francis du la Tour i hlut-
verki sínu sem Stephanie
Abrahams, dauðvona tóri-
listarsnillingur, í leikritinu
„Duet for one"
Lundúnaborg hefur
jafnan verið nefnd
fremsfa leiklisfarborg í
heimi. Að minnsta kosti er
hvergi jafnmikið af leik-
húsum, þótt það segi auð-
vitað lítið um gæðin. En
leiklist dregur fjölda
ferðamanna til London, og
hefur síst úr þeim straumi
dregið eftir að hið glæsi-
lega Þjóðleikhús Breta var
opnað 1976. En ýmsar
blikur eru á lofti í breskum
sem betur fer ekki allt
þegar listsköpun er annars
vegar, þótt oft geti þær
skipt sköpum. En er Lon-
don háborg leiklistar í
heiminum í dag? Skyldi
maður vera einhverju nær
um það eftir vikulangt og
stanslaust leikhúsgláp?
Hér er stutt skýrsla um
nokkuð af því sem fyrir
augun bar í London eina
vorviku á dögunum.
leikhúsum og fær járn-
frúin almennt kaldar
kveðjur frá enskum leik-
húsmönnum, enda hefur
hún séð svo um að leikhús í
Bretlandi hafa orðið að
herða sultarólina meira en
nokkru sinni fyrr, og mörg
hafa hreinlega gefist upp.
Þvi eins og flestir vita
hefur frú Thatcher dregið
mjög úr fjárveitingum til
lista.
En fjárveitingar segja
Allir söngtextar í „Cats" eru
eftir T.S. Eliot, byggðir á bók
hans „Old Possum's Book of
Practical Cats", Þessi blökku-
stúlka eraö syngja um „Griza-
bella the Clamour Cat".
Lundúnavika
í leikhúsum
Þórunn Siguröardóttir skrifar
EVITA
baö er vissulega vandi að velja
úr þeim fjölda leiksýniga sem i
boði eru i London þessa dagana.
Það fer þó jafnan svo, að maður
velur ekki aðeins þaö sem maður
telur áhugaverðast, heldur ekki
síður það sem maður á sist kost
á að sjá hér á Islandi. Það fór þvi
svo að við hjónin lögðum mikla á-
herslu á að ná i miða á þá tvo
söngleiki sem ganga nú i London
með hvað mestum myndarbrag,
en það er Evita og Cats. Cats er
nýjasti söngleikur Andrew Lloyd
Webber, en hann samdi tónlistina
i Jesus Christ Superstar og Evitu.
Kettir
sem geta allt
Það er óhætt að benda ferða-
mönnum i London á aö þótt upp-
seit sé á þessa söngleiki margar
vikur fram i timann, er mjög oft
hægt að fá miða samdægurs, sem
skilað er til baka, þótt það kosti ef
til vill að biða i biðröð dagstund.
Viö létum okkur hafa það og
þurftum ekki að iðra þess. Cats er
einhver glæsilegasti söngleikur
sem ég hef séð og frammistaða
leikenda með ólikindum. Allir
leika ketti og hafa örlitla, þráö-
lausa hljóðnema á hálsbandinu.
Með þennan útbúnað geta þau
sungið um leið og þau taka dans-
stökkin og var ótrúlegt hversu
jafnvigt þetta fólk var á söng og
dans. Enda kom i ljós viö lestur
leikskrár að flestir leikenda eru
með 15-20 ára dansþjálfun aö baki
ogannaðeins isöng. Þau hafa t.d.
dansað i Konunglega ballettinum
og sungið i óperunni, svo kunn-
Rayoi Siwikespeqre Compony
áttan og þjálfunin er eins og best
verður á kosiö.
Verkið fjallar sem sagt um
ketti og er byggt á textum
T.S.Eliot ,,01d Possum 's book of
practical cats”. Leikstjórinn er
enginn annar en Trevor Nunn,
leikhússtjóri á Royal Shake-
speares Company, en kóreógraf
Gillian Lynne. Verkiö er alveg
nýtt, var frumsýnt 11. mai s.l. og
virðist eiga langa lifdaga fyrir
höndum. I þvi er nánast engin
saga eða talaður texti, heldur
brugöið upp myndum úr lifi og
samskiptum ýmisskonar katta-
karaktera, —söngur og dans með
ýmsum stilbrigöum.
Ekki er hægt að skilja svo við
„Kettina” að ekki sé minnst á
leikmynd og ljós sýningarinnar.
Aö sjálfsögðu verður hver nýr
söngleikur að „toppa” þann
siöasta með uppátækjum i tækni.
Þarna fara tækniundrin fram úr
öllu sem maður hefur áður séö,
risadekk svifur upp úr gólfinu og
hverfur undir þak hússins, loftið i
leikhúsinu opnast og stigi svifur
niöur Sem i lausu lofti undir æðis-
legri tónlist og isþoka legst niður
yfir allt sviðið. tsþoka er raunar
alls ekki gerð til að nota i leikhús-
um, heldur er þetta fryst loft-
blanda, sem notuð er i erfiðum
uppskurðum t.d. augnuppskurð-
um og er hún mjög dýr. Hún gufar
upp á skömmum tima, en hefur
mjög sérkennileg áhrif i leik-
sýningum, fellur niöur og hverfur
á mjög skömmum tima. Ekkert
óloft verður eftir, en hins vegar er
vissara fyrir ieikarana aö fá hana
ekki á sig, þvi hún frystir allt sem
hún kemur við.
Söngleikur á
síðasta snúningi
Svo vikiö sé beint að næsta
söngleik er röðin komin að Evitu,
sem gengið hefur i London frá þvi
vorið 1978. Siðan hefur verkið
verið sett upp á Broadway með
sama leikstjóra, kóreógraf og
ieíkmyndateiknara. Þaö heíur þó
ekki fariðmikið viðar (t.d. ekki til
Norðurlanda) þar sem höfundarn-
ir vilja hafa hönd i bagga með
uppseíningu verksins i öðrum
löndum, gera „standard upp-
setningu” á þvi, sem flest
skapandi leikhús sætta sig ekki
við. Enda kom i ljós að þessi
Evita er orðin ansi lúin, og sagði
eiginmaðurinn, sem hafði séð
Broadwaysýninguna að þessi
væri ekki svipur hjá sjón. Þetta er
vissulega tilkomumikill söng-
leikur með skemmtilegri tónlist
og snjöllum sviðslausnum, en nú
hafa leikararnir sem voru i frum-
uppfærslunni veriö leystir af
nýjum kröftum, sem standa þeim
fyrri mjög aö baki. Einkum og sér
i lagi fór þó i taugarnar á mér að
sjá hvernig Mark nokkur Rya-n
fór með Che sem er ein þýöingar-
mesta persóna verksins. Hann
gerði hann að hálfgeröu strákfifli,
i stað þess að nýta kaldhæðnina
sem i hlutverkinu liggur og gefur
manni aukna innsýn i það sam-
félag sem gerði Evu Peron að
þjóðhetju. Eins og flestir vita
fjallar verkið um Evu Peron,
konu Juan Peron Argentinu-
forseta. Verkið er miskunnarlaus
afhjúpun á valdagræðgi hennar
allt frá þvi að hún selur sig til
valda þar til hún deyr úr krabba-
meini árið 1952, þá aðeins 32ja ára
gömul.
Dickens á
RSC
Sýningar Royal Shakespeare
Company komu þægilega á óvart
og virðist talsveröur munur á
andrúmsloftinu i þvi leikhúsi og á
Þjóðleikhúsinu, þar sem mun
meiri drungi var yfir sýningunum
og samband leikaranna við áhorf-
endurílágmarki.
Einkum og sér i lagi var
ánægjulegt að sjá sýningu RSC á
„Nicholas Nickelby” byggða á
sögu Dickens, en sú sýning hefur
slegiö öll met i aðsókn.
Þessi gamla saga verður ákaf-
lega skemmtileg og eftir-
minnileg i meðförum RSC, en
leikstjórar eru Trevor Nunn og
John Card. Verkiö er flutt i
tvennu lagi og tekur hvor helm-
ingur um 4 tima. Við sáum aöeins
fyrri helminginn og satt að segja
var maður orðinn svo meötekinn
af örlögum Nikulásar og hins
vangefna vinar hans Smikes að
maður hefði vel geta setið aðra
fjóra klukkutima til að fá að vita
hvað um þá verður. Þessi sýning
hefur aukið mjög hróður RSC og
eru uppi áform um að taka hana
alla upp fyrir sjónvarp og senda
út á fyrsta kvöldi nýrrar sjón-