Þjóðviljinn - 27.06.1981, Page 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. júni 1981
Flestir munu sammála
um að daglegt umhverfi
skipti afar miklu máli fyr-
ir andlega og líkamlega
velferð manna. Þvi hljóta
skipulags- og umhverfis-
mál að varða hvern mann
miklu. Samt er það svo að
þau mál eru að mestu í
höndum sérfræðinga# aðal-
lega tæknimanna,og er það
hald margra# að í ýmsum
greinum hafi þessum
fræðingum verið æðimis-
lagðar hendur bæði fyrr og
síðar. Sérstaklega að því
er varðar uppbyggingu
stórborga eftir stríð. Þarf
ekki annað en litast um í
borgum bæði í vestri og
austri til að verða var við
marga handvömmina svo
að vægt sé til orða tekið.
Gautaborg í Sviþjóð er ein
þessara borga. Hún stækk-
aði og þandist út með ótrú-
legum hraða fyrst eftir
Þróun
í byggingalist
og skipulagi
borga
eftir stríö
strið,en stendur nú í stað.
Með því að rekja nokkuð
skipulags- og bygginga-
sögu þeirrar borgar, sem
reyndar átti að verða borg
borga í Sviþjóð/ má fá all-
gott yfirlit yfir stefnur og
strauma í skipulagsmálum
i hinum tæknivædda heimi
frá því um 1920 og fram á
þennandag. Þessi grein og
önnur sem birtist i næsta
helgarblaði er samantekt á
umræöum, sem fram hafa
farið meðal nokkurra Is-
lendinga sem búa í borg-
inni og hafa áhuga á skipu-
lags- og umhverfismálum.
Þeir heita Elin Árnadóttir,
Helga Sigur jónsdóttir,
Leifur Rögnvaldsson, Sig-
rún Magnúsdóttir, Unnur
Halldórsdóttir og Þorgeir
Jónsson. Helga skrásetti
textann, en Leifur gerði
myndirnar.
Funktionalismi
Uppúr fyrri heimsstyrjöld tek-^
ur að ryðja sér til rúms ný stefna i
byggingalist, svokallaður funkt-
ionalismi (nytsemistefna), sem
er ein grein modernismans. Einn
af forgöngumönnum stefnunnar
var Svisslendingurinn Le Corb-
usier. en hann var arkitekt að
mennt. Hann vildi að byggt yrði
einfalt og ódýrt, einingar áttu að
vera stórar og allt skraut og flúr
bannlýst. Fyrir honum og öörum
talsmönnum þessarar stefnu
vakti að útrýma lélegu óg heilsu-
spillandi húsnæði og byggja ann-
að stærra og betra. Til að svo
mætti verða, þurfti byggingalist-
in að iðnvæðast. Hús og húshluta
skyldi hér eftir framleiða i verk-
smiðjum.
Trúlega hefur Le Corbusier
gert sér grein fyrir ýmsum ann-
mörkum á þessum hugmyndum
þvi a6 eftir honum er haft: „Safn-
ið saman 2000 manns og ég mun
færa þeim einmanaleikann”.
Hvað sem þvi lfður er ekki að orð-
lengja það að á árunum milli 1920
og 1930 veröur einhver mesta
bylting i byggingalist og bygg-
ingaiönaði sem um getur i sög-
.
Uppi á hæðinni sér í
hverfið Gardsten, sem er
eitt hinna sex hverfa i
Angered. Þarbúa margir
islendingar. Þarna mæt-
ast svo sannarlega gamli
og nýi tíminn.
Skipulagsmálin rædd af
kappi. Frá vinstri: Sig-
rún, Helga, Þorgeir, Unn-
ur og Elin.
11 Sl: