Þjóðviljinn - 27.06.1981, Page 20
20 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 27.-28. júní 1981
skáH
Eins og í Portoroz forðum:
Friðrik hitti á
besta leikinn
Helgi
Olafsson
skrifar
Augu skynsamra manna
eru nú aöopnast fyrir þeim
sannindum, að í komandi
heimsmeistaraeinvigi á
italíu má það aldrei gerast
að titilhafinn hafi þjóð að
baki sem haldi fjölskyldu
mótstöðumannsins i þraut
og pinu, þ.e. fangabúðum
og stofufangelsi. Slíkt er
svo f jarri allri skynsemi og
siðalögmálum, að heims-
meistari sovésku þjóðar-
innar mun tef la með grímu
ófreskju, ef þá af einvig-
inu verður. Hann einnig er
sekur, því með smávegis
viðleitni af hans hálfu væri
hægt að koma málum svo,
að öllum henti.
Saga Viktor Kortsnojs og deilna
hans við sovésk skákyfirvöld er
orðin býsna löng, og mikið vatn
hafði runnið til sjávar þegar
stökkið stóra kom fyrir réttum
fimm árum á skákmóti i Amster-
dam, sem haldið var á vegum
IBM-fyrirtækisins. Lesendur
blaða hafa fengiö nokkuð einlita
mynd af viðureign Kortsnojs við
vindmyllurnar eystra, en meðan
máliö er komið i þá biöstöðu sem
raun ber vitni væri e.t.v. ekki úr
vegi að rifja eilitið upp mál
áskorandans sem spanna nær tvo
áratugi:
1
1962 1 Curacao, eyju i Kara-
biska hafinu hefur Kortsnoj i
fyrsta sinn á skákferli sinum unn-
ið sér rétt til þátttöku i áskor-
endakeppninni, en hún ákveður
mótstööumann Mikhael Botvinn-
iks heimsmeistara. óheflaður
Bandarikjamaður, Robert Fisch-
er, aöeins 19 ára gamall, hefur
gefiö út þá yfirlýsingu að á eyj-
unni verði veldi Sovétmanna á
skáksviðinu jaröað. Ameriku-
maðurinn gat trútt um talaö,
hann hafði unniö millisvæöamót i
Stokkhólmi með óheyrilegum yf-
irburðum, og vist var að sovésku
skákmennirnir óttuðust þennan
dreng meira en litiö. Hann kemur
einn til leiks, vopnaöur eigin stál-
vilja, en á Curacao eru ekki að-
eins fimm Sovétmenn i keppni
stórmeistaranna átta, heldur
einnig fjöldi laumulegra manna
frá leyniþjónustunni. Eftir
tveggja mánaða taugaslitandi
keppni stendur Armeniumaður-
inn, Tigran Petrosjan, uppi sem
sigurvegari. Fischer kallar Guð
til vitnis um það, að Sovétmenn-
irnir hafi svindlað og úrslitin hafi
verið ráöin fyrirfram. Þessar. yf-
irlýsingar láta Sovétmenn sem
vind um eyru þjóta.
Seinna meir, þegar Kortsnoj er
kominn vestur, upplýsir hann, að
Fischer hafi haft ýmislegt til sins
máls. Um miöbik mótsins hafi
Fischer verið farinn að nálgast
efstu menn meira en góðu hófi
gegndi og þá hafi sér veriö
„fórnað”, ekki sist fyrir þá sök
að KGB-mennirnir hafi komið aö
sér I spilaviti, sem var illa séð.
Hvað sem þvi liður, þá var Korts-
noj i hópi efstu manna fram undir
mitt mót, en tapaði þá þremur
skákum i röð, fyrir Keres, Geller
og Petrosjan, en þessir þrir börð-
ust svo hatrammlega um efsta
sætið.
2
Það liður og biöur, Kortsnoj
vinnur mörg glæsileg afrek á
skáksviðinu, en annað tækifæri
lætur biöa eftir sér. 1968 er hann i
eldlinunni aftur, en i einvigjum
sinum við Tal og Spasski gerðist
sá atburöur að hjálparkokki hans,
Furman, sem seinna varð aðstoð-
armaður Karpovs, var kippt út úr
myndinni.
3
Olympiumótið i Siegen. Atvik
sem mörgum hefur yfirsést, en
varð ekki til að bæta ástandið.
Sovétmenn eiga að tefla við Spán-
Baturinski, einn valdamesti mað-
ur i skákmálum Sovétmanna um
langt skeiö. „KGB-maður og böð-
ull frá hreinsunum Stalinstim-
ans,” — segir Kortsnoj. —
Ljósm.: -eik. (Tekin á Möltu)
verja snemma morguns og klukk-
urnareru settar i gang. En Korts-
noj sést hvergi. Þegar hann loks
mætir á skákstaðinn, úrillur i
meira lagi, er hann fallinn á tima.
Hann ásakar þjálfara, liðsstjóra
og félaga sina fyrir að hafa ekki
vakið sig. Sovésku liðsmennirnir
yppa öxlum og segjast ekki hafa
vitaö hvar Kortsnoj hélt sig. Enn
þann dag i dag er þaö ekki ljóst
hvort Kortsnoj var á hótelher-
bergi sinu eða einhversstaðar
annarsstaðar.
4
1971. Töfrar Robert Fischers
eiga nú hugi manna um allan
heim. Hann malar pianóleikar-
ann Mark Taimanov 6:0 og ein-
vigið við Danann djarfa, Bent
Larsen, fer á sömu lund. 1 einvigi
Kortsnojs og Petrosjans er allt
slétt og fellt á yfirborðinu. Petro-
sjan vinnur, 51/2:4 1/2 og lendir i
klóm undramannsins frá Brook-
lyn. Kvefpest Bandarikjamanns-
ins veldur i upphafi bjartsýni i
herbúöum Armeniumannsins, og
staðan er 2 1/2:2 1/2, en þá lækn-
ast kvefið og lokatölur veröa 6
1/2:2 1/2. Menn standa á öndinni.
Fyrir einvigiö hafði Petrosjan
boðið Kortsnoj að gerast aöstoð-
armaður sinn i einviginu, en þvi
boði er hafnaö.
5
1974. Kortsnoj vinnur Brasiliu-
manninn Mecking i fyrstu hrinu
áskorendaeinviganna og teflir við
Petrosjan. Einvigið sem fram fer
i Odessa tekur óvænta stefnu.
Þegar i fyrstu skák kvartar
Kortsnoj yfir þvi við Petrosjan,
að hann valdi titringi á fimmta
tima setunnar meö stöðugum
fótahreyfingum (kækur margra
skákmanna, sennilega krónisk-
ur). Petrosjan kvartar við dóm-
arann en Kortsnoj lætur sér ekki
segjast, og deilurnar magnast.
Þegar staöan er 3 1/2:11/2 Korts-
noj i vil, er Petrosjan búinn að fá
nóg. Hann yfirgefur einvigið með
mótmælum og Kortsnoj fær
áminningu frá sovéskum skákyf-
irvöldum fyrir ósæmilega hegöun
i einviginu.
6
Sundurleitur hópur bestu skák-
manna Sovétrikjanna heldur til
Nizza þar sem Olympiuskákmót-
ið fer fram. Karpov teflir d 1.
borði, hann hafði sigrað Spasski
næsta auöveldlega, 7:4 en seinna
lýsir Spasski þvi yfir, að aðstæöur
hafi veriö óbærilegar. M.a. hafi
aöstoðarmaöur hans frá einvig-
inu við Fischer, Efim Geller,
gerst aðstoðarmaður Karpovs.
Eitthvert kúalegasta bragö sem
skákheimurinn þekkir, þvi
Spasski var þarna með öllu óvar-
inn fyrir upplýsingum Gellers.
Atvikið rennir að miklu leyti stoö-
um undir þá fullyröingu Korts-
nojs, að sovésk yfirvöld hafi valið
Karpov úr hópi hinna bestu i Sov-
étrikjunum, i þvi augnmiði aö ná
titlinum úr hendi Fischers.
1 Nizza vinna Sovétmenn einn
sinn stærsta sigur á Olympiumóti
og sveitin tapar ekki einni einustu
skák. Geller hefur umsjón meö
öllum skákrannsóknum, en
Kortsnoj er var um sig þvi hann
veit sem er að Geller verður aö-
stoöarmaður Karpovs i siðasta liö
áskorendaeinvigjanna, sem hald-
inn veröur i Moskvu á hausti
komanda.
7
Einvigi Karpovs og Kortsnojs
lýkur með naumum sigri þess
fyrrnefnda, 12 1/2:111/2.1 viötali
viö júgóslavneskt blað gefur
Kortsnoj út ýmsar yfirlýsingar
um framkvæmd einvigisins.
Hann segir sovéska skáksam-
bandið hafi útilokað að honum til
aðstoðar veldust ámóta menn og
Karpov haföi. Meðal annars naut
hann leiösagnar fyrrum aöstoð-
armanns Kortsnojs, Semion Fur-
mans. Eftir aö viðtaliö haföi birst
er Kortsnoj dæmdur i eins árs
keppnisbann á erlendri grund!
Nú er mælirinn loks oröinn fullur.
8
1975. Um áramótin 1975 - ’76 fær
Kortsnoj loksins leyfi til að tefla
aftur erlendis. Þar er um að ræða
jólaskákmótið i Hastings. Það er
á fárra vitorði, að i farangri
Kortsnojs eru ýmis gögn sem
hann er vanur að láta ósnert.
Flóttin er i undirbúningi.
9
1976. IBM-skákmótið i Amster-
dam. Sigurvegarinn, Viktor
Kortsnoj, gengur inná lögreglu-
stöð i Amsterdam og biður um
hæli sem pólitiskur flóttamaöur.
Fréttin er fljót aö ná eyrum
blaðamanna, og i sjálfri heims-
pressunni þenur fréttin forsiðu
„The New York Times”. Þjóð-
viljinn á þvi láni að fagna aö
flytja lesendum sinum ýtarlegar
fréttir af gangi mála, þvi frétta-
haukurinn Gunnar Steinn Pálsson
er kominn á sporið og hann er
meira að segja siðasti blaðamaö-
urinn sem nær viðtali við kapp-
ann, áöur en hann hverfur augum
umheimsins.
Friðrik ólafsson.
10
Fyrstu viðbrögð Sovétmanna. 1
opnu bréfi frá flestum af sterk-
ustu stórmeisturum Sovétrikj-
anna er Kortsnoj harðlega for-
dæmdur og kallaður föðurlands-
svikari, liðhlaupi og fleira i þeim
dúr. Það vekur athygli að hvorki
Boris Spasski né Mikhael Bot-
vinnik skrifa uppá þennan vixil.
Heimsmeistarinn, Anatoly
Karpov, skrifar annað bréf þar
sem hann segir að liðhlaup Korts-
noj hafi gert hann ósegjanlega
hryggan i bragði. Kortsnoj hafi að
visu oft vakið hneykslan manna
með furðulegri framkomu, en nú
hafi hann gengiö yfir strikið.
Karpov og sonur. örlögin hafa
komið syni áskorandans fyrir i
fangabúðum i tlralfjöllum. —
APN-mynd.
11
Áskorendakeppnin 1977 hefst
meö „einvigi hatursins”, þar
sem þeir eigast viö, Tigran Petro-
sjan og Viktor Kortsnoj. And-
rúmsloftiö er spennu þrungið, og
fyrir vikið tefla báðir langt undir
getu. Kortsnoj vinnur, 6 1/2:5 1/2
og i siöustu skákinni býður hann
Petrosjan jafntefli i vinnings-
stöðu! Petrosjan haföi nefnilega
gert slikt hið sama þegar siðasta
skák þeirra i einviginu 1971 fór i
biö. Loks voru þeir kvittir.
Eftir sigurinn yfir Petrosjan er
leiöin að einvigi viö Karpov greið.
Kortsnoj malar Polugajevski,
lokatölur veröa 81/2:4 1/2, en siö-
an tekst hann á viö Spasski.
Kortsnoj sigrar en tapar góöum
vini. Einvigið leysist upp i hreina
og klára vitleysu sem nær há-
punkti sinum þegar Spasski i siö-
ustu skák einvigisins — sem farið
hefur i bið — steytir hnefann
framan i Kortsnoj. Hvað fékk
prúömennið, sem vann hugi og
hjörtu allra viöstaddra þegar
hann kljáðist viö Fischer i
Reykjavik 1972, til þess arna er
mönnum ekki aö fullu ljóst. Þessi
sorglegi atburður sýnir e.t.v. best
hvilika stefnu keppnin um æðstu
metorð skákarinnar hafa tekið.
12
1978. Karpov og Kortsnoj eigast
viö i meir en þriggja mánaöa ein-
vigi I Baguio á Filippseyjum.
Karpov sigrar, 6:5, en jafnteflin
sem eru 21 talsins eru ekki talin
með. Þetta einvigi er mönnum
enn i fersku minni, en nú i fyrsta
sinn berst Kortsnoj fyrir þvi að
fjölskylda sin fái aö flytja yfir
járntjald.
13
Friðrik Ólafsson er kosinn for-
seti FIDE sögulegri kosningu i
Buenos Aires. Kosning hans gefur
Kortsnoj nýja von, en fyrsta kast-
iö einbeitir hann sér þó aö þvi aö
fá ógildingu á siðustu skák ein-
vigisins viö Karpov. Þegar sú
barátta ber engan árangur taka
fjölskyldumálin við. Kortsnoj
deilir harðlega á Friðrik fyrir aö-
gerðarleysi i þeim málefnum.
Snemma árs 1980 birtast i fjöl-
miölum islenskum viðtöl við
Kortsnoj og opið bréf frá Bellu
konu hans þar sem Friðrik er
harðlega fordæmdur. Það er út af
fyrir sig athyglisvert, aö a.m.k.
eitt viðtalanna við Kortsnoj var
birt fyrir milligöngu aðila sem af
einhverjum ástæðum sáu hag
sinn i þvi að klekkja á Friðrik.
Þaö sem Kortsnoj deilir á er m.a.
þaö, að Friðrik skyldi fara til Sov-
étrikjanna án þess að ræða sin
mál. Friðrik svarar þvi til, að
hann sé enginn sérlegur sendi-
maður Kortsnoj, heldur forseti
FIDE sem þurfi i mörg horn að
lita. Hann áréttar þaö, að hann
muni vinna að farsælli lausn mála
Kortsnojs.
14
Viktor Kortsnoj kemur hingað
til lands og fær höfðinglegar við-
tökur. Þeir menn sem stóðu i
hvaö hatrömmustum deilum við
Friðrik eftir kosninguna i Buenos
Aires taka, ásamt fleirum, Korts-
noj opnum örmum. Hann heldur
blaðamannafund, en er nú sýnu
varkárari i oröum en fyrr. Meöal
þess sem hann segir, er að mál
fjölskyldu sinnar varði framtið
Alþjóðaskáksambandsins, FIDE.
Eftir heimsóknina komast
nokkrir menn aö þvi fullkeyptu að
Kortsnoj er ekki alltaf „vinur
vina sinna”. Þau urnmæli Korts-
nojs spyrjast, að nokkrum þeirra
er stóöu að heimsókninni hafi
ekki þótt verra ef heimsóknin
kæmi forseta FIDE illa. Vekja
þau ummæli að sönnu mikla at-
hygli.
15
Friðrik kemur heim dr heim-
sókn sinni frá Sovétrikjunum.
Stutt er til heimsmeistaraeinvig-
isins og er kominn i timahrak.
Hafa Sovétmenn hann i rassvas-
anum eins og marga þá pótintáta
sem tiöum heimsækja Sovétrik-
in? Maður sem svarar Kortsnoj
fullum hálsi og virðist dável lika i
Rússariki? Og hann finnur besta
leikinn: einviginu um heims-
meistaratitilinn frestað um einn
mánuö, svo að timi vinnist til að
leysa mál Kortsnojs og fjölskyldu
hans. Menn virðist reka i roga-
stans. Eftir öll stóru orðin hlýtur
Kortsnoj að fara að hugsa sinn
gang, og það gera sovésk (skák)
yfirvöld einnig. Eftir tiu daga yf-
irlegu er Tass-fréttastofan látin
boða svarleikinn, sem er öllum
kunnur.
En hvernig er staðan? Mönnum
er þaö til efs að Sovétmenn hafi
komist i verri klemmu. Ljóst er
að þeir njóta fyrst og fremst góðs
af Alþjóðaskáksambandinu og
það án þess að gefa ýkja mikið til
baka. Klofningur FIDE yrði
þeirra ósigur — ekki þeirra skák-
sambanda og skákmanna sem til-
heyra hinum vestræna heimi, svo
mikiö er vist. Mönnum þarf ekki
aö láta sér til hugar koma, aö af
einviginu verði, ef fjölskyldan fær
ekki grænt ljós.
Eins og i Portoroz forðum, i
buliandi timahraki, i viösjár-
veröri' stöðu gegn Gligoric, hitti
Friðrik á besta leikinn og mátaði
mótstööumann sinn upp i borði!
Fá Sovétmenn sömu meöferð?
Verða þeir einnig mát i borði?