Þjóðviljinn - 27.06.1981, Blaðsíða 28
DWÐVIUINN
Helgin 27.—28. júni 1981
nafn
víkunnar
Davíð Á.
Gunnarsson
Langvinnri deilu
læknastéttar við rikið
vegna launakjara er
lokið. Deilan stóð i
rúmar 6 vikur og truf I-
aði mjög almenna
starfsemi sjúkrahúsa i
Reykjavík.
Davíð Á. Gunnarsson
forstjóri Ríkisspítal-
anna hefur verið í eld-
línunni undanfarnar
vikur við að finna
lausn á þessari kjara-
deilu.
Davið var fyrst
spurður hvort búið
væri að reikna út
hversu miklar launa-
hækkanir verða sam-
kvæmt hinum nýgerðu
samningum.
„Það helur enn ekki verið
gert”, sagði Davið, ,,en vita-
skuld verðum við að gera
það hið fyrsta. Viö verðum
aö vita hver verður
kostnaðarauki Rikisspital-
anna vegna þessara hækk-
ana. Hitt er svo annaðmál að
allan þann kostnað má ekki
reikna beina launahækkun til
handa læknum. Liður eins og
t.d. bilastyrkur er leiðrétting
og greiðsla fyrir útlagðan
kostnað lækna vegna starfa
sinna. É;g held að talan 30-
35% sem Morgunblaöiö nefn-
ir sem meðallaunahækkun
hjá læknum sé of há. Það
getur verið að einstakir
menn fái þá hækkun en ekki
allir.
Hvernig gengur á spitölun-
um, er lifið þar að færast i
samt lag?
„Mér viröist að það gangi
allt miklu hraðar og betur
fyrir sig að koma öllu i fastar
skoröur en ég bjóst við. Mað-
ur sér það þegar gengið er
um spitalana að allt er að
færast i eðlilegt horf, öllum
til ánægju að sjálfsögðu. Það
eru algerar undantekningar
að mennséu ekki komnir til
starfa sinna. Það tekur aftur
á móti nokkurn tima að
vinna upp ýmislegt sem varð
aö fresta á meðan á deilunni
stóð.”
Hefur þessi deila bitnað
alvarlega á sjúklingum?
„Nei, ég get fullyrt að svo
er ekki. Sjálfsagt verða sum-
irsjúklingar að biða eitthvað
lengur en ella og vissulega er
það slæmt, en það er hin
mesta firra sem haldið hefur
verið fram að læknar hafi
verið „með hnifinn á barka
sjúkiinga”. Læknar eins og
aðrar heilbrigðisstéttir eiga
aftur á móti erfitt með að
heyja launabaráttu, það
veröa menn aö hafa i huga,
miklu erfiðara en aðrar
stéttir.
— hs
Aðalsími Kvöldsími
81333 81348
Abalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags.
Utan þess tima er hægt að ná i blaóamenn og aöra starfsmenn
biabsins i þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaösins I slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Frá Danmörku hittum viö þrjár
kynslóðir, móður, son og barna-
barn sem öll eru Kristiansen.
Sonurinn Tony hefur dvalist á
lslandi i eitt ár og móðir hans og
barnabarn hennar eru komnar i
heimsókn.
„Við höfum gist i tjaldinu á
leiðinni frá Akureyri til Reykja-
vikur og það hefur gengið ágæt-
lega. En Island er dýrtJand, þótt
það sé vissulega þess viröi að
skoöa þaö,” sagði Kiss Kristians-
sen.
Tony kvaðst hafa unnið i fiski á
Akureyri og ætlar að vera hér
áfram, en Kiss og Tanya veröa
flognar af landinu þegar þetta
birtist. Tanya litla sagðist ekkert
kviða fyrir að fljúga, þvi hún hef-
ur áður flogiö alla leið til Gran
Kanaria.
Á milli siðhærðra útlendinga,
sem paufast um með potta sina og
pönnur á tjaldsvæðinu rákumst
við á einn islenskan upp á gamla
mátann. Hann var að slá með orfi
og ljá og punta til i kringum út-
lendingana. Reyndar voru þeir
fjórir þegar betur var að gáö sem
voru að klippa og slá grasiö og
reyta arfann frá trjánum með-
fram svæðinu. Þeir sögðust heita
Baldur, Björn, Sigurjón og Einar
og vera i bæjarvinnunni.
„Við höfum ekki undan. Arfinn
sprettur stöðugt þótt litil spretta
sé i öðru,” sögðu þeir.
„Og hvað skyldi svo vera gert
við afraksturinn, hjá sláttumann-
inum?”
„Blessuð vertu, þetta fer bara
i tunnuna,” sagði Einar og hélt
áfram aö slá.
_ „Hvar lærðirðu að slá með orfi
og ljá?”
„Maður er alinn upp i sveit,
hvaö heldurðu?”
Með naumindum tókst okkur að
tæla þá félaga i myndatöku áður
en þeir geystust áfram með ljáinn
og hrifuna.
— þs.
Þetta er Patrick Rainbault, sem ætlar að ferðast um heiminn á hjóli
aleinn i tvö ár. Ljósm. — eik —
Einar slær með orfi og ljá.
Baldur, Björn, Sigurjón og Einar snyrta i kringum tjaldstæðið.
Ekki er beinlínis hægt aö
öfunda þá sem dvalist hafa
ítjöldum i Laugardalnum í
vor, þótt heldur sé nú aö
birta til eftir allmarga sól-
arlausa daga í júni.
„Það er allt i lagi þótt það sé
sólarlaust, bara ef það væri ekki
alltaf þetta rok,” sagði Torbjörn
Johansson, einn þriggja Svia,
sem undanfarnar vikur hafa ferð-
ast i kringum ísland og jafnan
gist i tjöldum, nú siðast inni i
Laugardal.
„Verst var þetta fyrir norðan,
þá fraus meira að segja i vatns-
.tankinum hjá okkur.”
En hvað dregur þrjá unga
skólanema i sumarleyfi til Is-
lands?
„Eiginlega var þetta bara hug-
detta. Við vissum fremur litið um
landið. Nú vitum við heilmikið.
Við fórum með rútu i kringum Is-
land og það var mjög skemmti-
legt. Okkur finnst alls ekki svo
dýrt að ferðast á Isiandi, en auð-
vitað spörum við mikið með þvi
aö elda sjálfir og búa i tjöldum,”
svarar Dan Tugen.
Hvað finnst ykkur skemmtileg-
ast að skoða á Islandi?
„Leiðin frá Mývatni yfir til
Egilsstaða var mjög heillandi, en
Torbjörn Johanson, Ake Tugen
og Dan Tugen bróðir hans, allir
frá Stokkhólmi.
Á tjaldstæðinu í Laugardal:
íslenskur sláttumaður
og franskur
ferðagarpur
ekki held ég að ég vildi búa þarna
fyrir noröan.”
Og viö kveðjum þá félaga og
vonum að þeir komi reynslunni
rikari heim til sin, en þeir fljúga
héðan á föstudag.
„Ég vinn viö tölvur, en hef nú
tekið mér tveggja ára fri til að
hjóla um heiminn,” sagði næsti
feröalangur, alskeggjaður og sið-
hærður Frakki sem var að sækja
sér vatn i vatnsból þeirra Laug-
ardalsbúa.
Patrick Rainbault heitir hann
og hefur veriö á hjólinu sinu um
Skandinaviu i 9 mánuði.
„Héðan fer ég til Kanada en þar
ætla ég að vera i ár og hjóla um
allt landið.”
„Er þetta skemmtilegt lif?”
„Já, miklu skemmtilegra en að
vinna við tölvur,” sagöi þessi
brosmildi Frakki.