Þjóðviljinn - 19.09.1981, Qupperneq 3
Helgin 19.— 20. september 1981 ÞJóÐVILJINN — StÐA 3
Gamlar fundargerð-
arbækur Reykjavikur-
borgar eru margar
hverjar skemmtilesn-
ing. Ætlunin er að birta
brot úr slikum bókum
frá fyrri tið i Sunnu-
dagsblöðum á næstunni
og er hér fyrsti skammt-
ur.
„Samþykkt að banna allan
þvott á mottum og pokum i laug-
unum.”
(Fundargerð veganefndar
24. febr. 1980)
„Guðrúnu Jónsdóttur var með
meiri hluta atkvæða falið að hafa
á hendi ræstingu laugarhússins
með for og vanhúsinu frá 1. júni
og svo lengi sem um semur fyrir
26 kr. á mánuði hverjum.”
—Fundargerð veganefndar
1. júni 1908)
„Kæra kom fram á íundinum
frá Sigurbirni A. Gislasyni yfir
Guðrúnu Jónsdóttur, umsjónar-
konu þvottahúsanna við Laugarn-
ar. Frú Briet Bjarnhéðinsdóttur
var falið að rannsaka að hve
miklu leyti kæran er á rökum
byggð.’tFundargerð veganefndar
31. jan. 1910)
framferði í laugunum
„Kærumál Guðrúnar Jónsdótt-
ur þvottakonu. Lagt var fram
svar frá Guðrúnu gegn kærunni
svo og mörg vottorð frá ýmsum
konum um óiastanlegt framferði
Guðrúnar i laugunum. Vega-
nefndin sér ekki ástæðu til að
sinna þessu máli eða gera ráð-
stafanir i tilefni af þvi og visar
kæranda til dómstólanna ef hann
þykist órétti beittur.”
(Fundargerð veganefndar
28. febr. 1910)
Vatnsþörf
minni
vegna
votviðra
„Akveðið að grennslast eftir
þvi hvort ekki sé unnt að fá
brunnpumpur betri og sterkari en
þær sem tiðkast hafa. Til bráða-
birgða var samþykkt að panta 2
pumpur i tvo stærstu brunnana,
Prentsmiðjubrunn og Skálholts-
lind, fyrir 70—80 kr. hverja
þeirra.”
(Fundargerð veganefndar. 14. okt.
1902).
„Bæjarstjórn hafði falið vega-
nefnd að semja við Bjarna
trésmið Jónsson um leigu á
brunni hans. Vill Bjarni leigja
brunninn til almenningsafnota
fyrir 50 kr. á mánuöi og með þvi
skilyrði að bæjarstjórn láti
pumpa vatninu úr brunninum
gegn um pipu i eitthvert ilát fyrir
utan húsagarðinn.
Veganefnd telur þetta óað-
gengilegt, enda þörfina nú minni
vegna votviðra.”
(Fundargerð 18. nóv. 1903).
(Þess skal hér getið að Prent-
smiðjubrunnur var þar sem nú er
húsið Miðbæjarmarkaður i Aðal-
stræti 9 en Skálholtslind var
nánast þar sem nú er högg-
myndin Móðurást eftir Ninu
Sæmundsen i skrúðgarðinum við
Lækjargötu. Bjarni Jónsson
trésmiður er sá sem reisti
Bjarnaborg við Hverfisgötu og er
húsið kennt við hann. Bjarni lét
gera þar brunn einn mjög stóran
fyrir utan húsið og er það um-
ræddur brunnur).
Sex nýir
herramenn
Iðunn hefur nú gefið út sex ný
hefti um hina viðkunnu herra-
menn, en texti og teikningar eru
eftir Roger Hargreaves. Bækur
þessar hafa komið út i mörgum
löndum, verið þýddar á ein
þrettán tungumál og gerðir um þá
sjónvarpsþættir. Þrándur
Thoroddsen hefur þýtt og endur-
sagt texta bókanna.
Ljósm.: Sigfús Eymundsson
Daihatsu Charade
1. Þú ræður við
aðeignast hann
Verð kr. 79.956
meö ryövörn, skráningu og
FULLUM BENZÍNTANKI.
Viö lánum þér 30.000 kr. eöa
skoðum möguleika á aö taka
gamla DAIHATSUINN upp í.
2. Þú ræður við að
reka hann
DAIHATSU CHARADE er sem
kunnugt er margfaldur sigurveg-
ari í sparaksturskeppnum í flokki
bíla meö 1000 cc vél. Meöal-
eyösla í innan- og utanbæjar-
akstri er 6—7 lítrar pr. 100 km.
Þegar hver lítri kostar 7,85 kr. og von á meiri hækkunum, skiptir gífurlegu máli í heimilisútgjöldum
aö benzínkostnaður sé í lágmarki. Ef eitthvað kemur upp á, veitum viö viðurkennda og alhliöa
varahluta og verkstæöisþjónustu í bækistöövum okkar aö Ármúla 23, auk fjölda umboösaðila úti á
landi.
3. Hann fullnægir öllum þörfum meðalfjölskyldu
Hann er skráöur 5 manna, dyrnar eru 5 eöa þrjár. Aftursætin leggjast niöur í heilu eöa hálfu lagi
hann er framhjóladrifinn og framúrskarandi duglegur í snjó og ófærð. Hann er sérlega hannaöur
meö tilliti til öryggis ökumanns og farþega, og umfram allt er hann kraftmikill og leikandi léttur í
akstri um leiö og sparneytnin er í öndvegi.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, símar 85870—39179.