Þjóðviljinn - 15.05.1982, Blaðsíða 3
Helgin 15.— 16. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi:
Opnað á fimmtudag
A uppstigningardag verður
Hjúkrunarheimili aldraðra i
Kópavogi tekið i notkun og um
leið opnað 22 sjúklingum en siðar
bætast 16 við.
Opnun Hjúkrunarheimilisins
verður haldin hátiðleg á fimmtu-
daginn með fagnaði, þar sem
boðið verður upp á kaffi og kökur
um leið og húsnæðið verður sýnt.
öllum Kópavogsbúum er boðið að
koma, svo og hinum fjölmörgu
vinum og velunnurum sem
Hjúkrunarheimilið hefur eignast.
Er óhætt að fullyrða að sjaldan
hafi meiri fjöldi verið boðið til
vigsluhátiðar hérlendis þvi þús-
undir manna hafa lagt hönd á
plóginn við fjársöfnun og sjálf-
boðaliðastarf til þess að gera
byggingu Hjúkrunarheimilisins
að veruleika.
Fyrsta skóflustungan að Hjúkr-
unarheimilinu var tekin 26. jan.
1980, og siðan hefur verkið gengið
samkvæmt áætlun allar götur
siðan. Er stefnt að þvi að nýta
aðstöðuna með dagvistun fyrir
aldrað fólk sem býr i heima-
húsum.
Hjúkrúnarheimili aldraðra i
Kópavogi er byggt fyrir frjáls
framlög bæjarbúa i Kópavogi og
annarra velunnara. Riki og bær
hafa einnig iagt hönd á plóginn.
Enn er ekki að fullu séð fyrir end-
ann á fjármögnun þessara fram-
kvæmda.
Frambjóðendur ræða
um kirkjuna í dag
t dag 15. maí gengst Reykja-
vikurprófastdæmi fyrir fundi með
fulltrúum frambjóðenda við
borgarstjórnarkosningarnar i
vor. Munu oddvitar listanna
flytja ávörp og siðan sitja fyrir
svörum.
Fundurinneropinnöllum þeim,
sem hafa áhuga á stöðu kirkj-
unnar i borginni og vilja fræðast
um afstöðu frambjóðendanna til
hins kirkjulega starfs og þeirra
menningar- og lfknarmála, sem
kirkjan telur miklu skipta.
Fundurinn hefst kl. 10 árdegis
og verður i Safnaðarheimili
Bústaðakirkju við Tunguveg, og
eru allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Fatlaðir boða fram-
bjóðendur til fundar
Nokkur félög fatlaðra hafa
tekið sig saman um að boða fram-
bjóðendur i komandi Borgar-
stjórnarkosningum á sinn fund.
Þar munu talsmenn allara flokk-
anna halda stutta ræðu og sitja
fyrir svörum um málefni fatl-
aðra.
Fundarstjóri verður Sigurður
Magnússon, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra
Fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 18. mai kl. 20.30 i
Domus Medica við Egilsgötu.
Þau félög sem standa að
þessum fundi eru, Sjálfsbjörg,
félag fatlaðra i Reykjavik og
nágrenni, Blindrafélagið, samtök
blindra og sjónskertra, Félag
heyrnarlausra, Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra og Styrktar-
félag vangefinna.
Diskósönghópurinn „Verónika”. Gina og Gaby Kreuty, Lis'a
og Mandred Köhler.
„Veronica” syngur
í Broadway í kvöld
1 kvöld troða upp i veitingahús-
inu Broadway skemmtikraftar
frá meginlandi Evrópu, söng- og
danskvartettinn Veronica, sem
syngur rokkað ,,popp-diskó”.
Ekki er þó alveg rétt að hér sé
eingönguum Evrópubúa að ræða,
þvi að aðalsöngkonan er áströlsk
(og auk þess góð söngkona).
Restin er þýsk, einn karlmaður
og systur tvær.
I.Veronica” hefur átt nokkur
lög á vinsældarlistum á megin-
landinu og i Japan, og varð i öðru
sæti i sönvakeppni sem haldin var
i Hong Kong i fyrra.
LmM .
dier pepsi
SYKURLAUST 1 1
MN VEGNA!
Ertþúáréttrí tínu?