Þjóðviljinn - 19.05.1982, Side 1
UOWIUINN
Miðvikudagur 19. mai, 112. tbl. 47. árg.
Kort qf sprungusvœði
Sjálfstæðisflokksins
Sjá síðu 5
Sigurjjón Pétursson, forseti borgarstjórnar:
Stöndum vörð um
Alþýðubandalagið
Þessi kosningabarátta nú
stendur fyrst og fremst um það<
hvort Sjálf stæðisf lokkurinn
komist á ný til valda i borgar-
stjórn Reykjavíkur eða ekki. Al-
þýðubandalagið er eina aflið á
vettvangi stjórnmálanna, sem
stöðvað getur þá leiftursókn
afturhaldsaflanna, sem nú er
reynt að blása til.
Þetta sagbi Sigurjón Pétursson, forseti
borgarstjórnar þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann i gær.
— Við spurðum Sigurjón á hvað hann
vildi leggja áherslu nú þegar liður að
lokum kosningabaráttunnar.
Sigurjón sagði:
— Sjálfstæöisflokkurinn hefur alltaf
litið á það sem slys að hann skyldi tapa
valdaaðstöðu sinni i Reykjavik voriö 1978
og leggur nú ofurkapp á að ná þeim
völdum á ný. Valdaaðstaðan i Reykjavik
var sameiningartákn þeirra voldugu pen-
ingaafla sem að Sjálfstæðisflokknum
standa, þess atvinnurekendavalds, sem
Sjálfstæðisflokkurinn þjónar.
Nú er barist um það, hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn eigi á ný að fá aðstöðu til að
nota völd sin yfir Reykjavikurborg sem
viöspyrnu og stökkpall i stéttaátökum við
verkalýðshreyfinguna.
Harðnandi stéttaátök eru framundan.
Ekki sist þess vegna leggja Vinnuveit-
endasambandið og Verslunarráðið nú
ofurkapp á að tryggja Sjálfstæðis-
flokknum meirihlutavöld i Reykjavik á
ný-
Allt launafólk þarf nú að skipa sér i eina
órofa fylkingu til varnar og sóknar gegn
pólitisku áhlaupi atvinnurekendavalds-
ins. Peningaöflin að baki Sjálfstæðis-
flokknum þekkja sina hagsmuni, verka-
fólk þarf lika að þekkja sina.
Þótt reynt sé að beina athyglinni að
sprungum viö Rauðavatn i þessum kosn-
ingum, þá snúast kosningarnar ekki um
jarðfræði. Kosningarnar snúast hins
vegar um það hvort pólitiskir bandamenn
Vinnuveitendasambandsins og Versi-
unarráðsins eigi á ný að fá öll völd yfir
borgarmálefnum Reykjavikur, eða hitt að
verkalýðshreyfingin eigi þar samherjum
að mæta.
Jafnframt þvi sem kosið verður um
borgarmálin, þá verður fólk einnig i þess-
um kosningum aö taka afstöðu til ann-
arra höfuðmála, —til baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar við harðsnúið atvinnu-
rekendavald, til baráttunnar gegn er-
lendri hersetu og gegn erlendri stóriöju.
Framboðsaöilar sem ekki taka af-
stöðu til þessara höfuðmála á vettvangi
islenskra stjórnmála eru vitandi eöa óaf-
vitandi að styrkja Sjálfstæðisflokkinn i
sessi.
Það er ljóst, að Alþýðubandalagið er
eini flokkurinn, sem stefnir ákveðið að
þvi, aö halda Sjálfstæöisflokknum frá
stjórn borgarmálanna. Allir aðrir fram-
boðsaðilar hafa gefið tviræð svör i þeim
efnum.
Valiö stendur i raun eingöngu milli Al-
þýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokks-
ins. Atkvæði þau sem falla á aðra lista
bjóða aðeins upp á óvissu.
Enn er mikili fjöldi fólks óráðinn þótt
aðeins séu þrir dagar til kosninga. Þess-
um óráðna fjölda þurfum viö að fylkja
með Alþýðubandalaginu, nú eins og 1978,
og hindra þannig að atvinnurekenda-
valdiö nái á ný alræðisvaldi yfir Reykja-
vikurborg.
Stöndum öll vörð um Alþýðubandalagið
i komandi borgarstjórnarkosningum og
notum timann hvert og eitt, þá fáu daga
sem eftir eru.
Þá er sigur vis á laugardaginn kemur.
— k.
Látum ævintýríd frá 1978 lifa
Leikur
Flokkaleikskólinn:
Forstöðumaður:
Þórhallur Sigurðsson
Flytjendur:
Sigrún Edda Björnsdóttir
Asa Helga Ragnarsdóttir
Þórunn Sigurdardóttir
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Jón Júlíusson
Karl Agúst Úlfsson
Söngur Ræður
Ölöf K. Harðardóttir Stutt ávörp:
Garðar Cortes Alfheiður Ingadóttir, blaðamaður
Guðrún A. Kristinsdóttir Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Baráttusöngsveit Landssambands iðnverkafólks
undir stjórn Sigurjón Pétursson, forseti
Sigursveins Magnússonar borgarstjórnar Guörún Agústsdóttir, ritari
Ljóð Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins
Elisabet Þorgeirsdóttir
Rokk
GRÝLURNAR
Húsið verður opnað kl. 20.30
og Lúðrasveit verkalýðsins
hefur leik sinn kl. 20.45.
Guðrún Helgadóttir borgarfuiltrúl
setur gleðina kl. 21.00.
Kynnir: Kristin Ólafsdóttir.
Höldum g/eði hátt á loft i Höllinni — Komið, sjáist, sannfæríst.
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins i Reykjavik.
Við bjóðum
til baráttugleði G-listans
■ I anarorrlalchnll