Þjóðviljinn - 19.05.1982, Side 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 19. mai 1982'
viðtalið
Rabbað við Kristin
fvarsson húsasmið
í Neskaupstað um
byggingarmál
og bæjarstjómar-
kosningar
Neskaup-
staður er
ungur bær
„Það er mikil húsnæöisekla I
bænum, og þótt töluvert hafi
verið byggt á undanförnum ár-
um, þá hefur litið sem ekkert
verið um það, að nýtt fólk hafi
sest hér að, þvl nýbyggingarnar
hafa varla gert annað en að
mæta kröfum fólks um rýmra
húsnæði. Fólk hefur þvi bara
farið úr þrengslum i rúmbetra
húsnæði”, sagöi Kristinn Ivars-
son húsasmiður i samtali við
Þjóöviljann fyrir skemmstu.
Kristinn skipar 10. sætið á fram-
boðslista Alþýðubandalagsins I
komandi bæjarstjórnarkosning-
um; hann hefur átt drjúgan þátt
istefnumótun AB i Neskaupstað
i húsnæðis- og skipulagsmálum
og hann starfrækir ásamt föður
sinum og þriðja manni bygg-
ingafélagið Byggð.
.,Ef maöur skoðar eldri
kjarna bæjarins hér, þá er þar
viða að finna ein hjón eftir i
stórum húsum, þannig að rýmið
á hvern einstakling miðað við
fermetrafjölda er afskaplega
mikiö.
Nú gerir fólk að visu kröfu til
þess að mega búa rúmt, en það
verður aö lita á, að hér hefur
ekki veriö húsnæði sem eldra
fólk gæti fengiö i þvi skyni aö
minnka viö sig. Þaö má þó
segja, að á siöustu fimm árum
hefur verið byggt töluvert af
smærri ibúðum, og okkar bygg-
ingafélag hefur núna byggt 18
ibúöa hús — og þar eru eiginlega
fyrstu smærri ibúðirnar, sem
koma á markaö.”
— Hvernig ætlar Alþýðu-
bandalagið að bregðast við
þessu ástandi?
Kristinn tvarsson, húsasmiður. í baksýn sést sunnan Norðfjarðar I Búlandið, sem minnst cr á I viðtal-
inu. Ljósm.: — jsj.
skömmum fyrirvara, jafnt daga ar vel staðsett i bænum, hún er
sem nætur. Byggingin er reynd- beint fyrir ofan elsta hluta bæj-
„Það er náttúrulega okkar
stefna að hafa ávallt til taks
nægilega margar lóðir og reyna
að nýta þau kjör, sem sveitar-
stjórnum er boöið upp á með
hinum nýju lögum um sölu- og
leiguibúðir. Fólk þarf að eiga
kost á þvi að eignast góðar ibúð-
ir á viðráöanlegu verði. Og það
þarf að stefna að þvi, að húsa-
kostur verði sem fjölbreyttast-
ur, þannig að fólk eigi kost á þvi
aö velja um þaö, i hvers konar
húsnæði það vill búa.”
— Er þá til nægilegur fjöldi
lóða hér fyrir framtiðarbyggð?
„Það er til staðfest aðalskipu-
lag fyrir Neskaupstað, sem nær
til ársins 1999, og i þvi kemur
fram að það er nóg rými til
aldamóta. En bærinn er þó aö-
þrengdur, þvi hann á ekki land
nema að Noröfjarðarhreppi, og
það veldur okkur vandræöum.
Að visu á Neskaupstaður Bú-
landið inn að Grænanesi sunnan
megin i firðinum, en við kom-
umst ekki i það land til að nýta
það, vegna þess að það vantar
brú við Grænanesið.
En það eru að visu til lausar
lóðir viða inni i bænum, en þær
eru frekar erfiðar vegna þess
hve bæjarstæðið allt er bratt.
Landið hérna er yfirhöfuð býsna
erfitt fyrir húsbyggingar, nema
þá kannski helst nýja einbýlis-
húsahverfið neðan Bakka, sem
kallast reyndar Bakkahverfi.”
Um þessar mundir eru Krist-
inn og félagar hans að byggja
ibúðir fyrir aldraða, sem veröa
reistar i tengslum við sjúkra-
húsið. Innangengt veröur á milli
húsanna, þannig að ibúarnir
eiga að geta notið allrar þeirrar
þjónustu, sem sjúkrahúsið hefur
upp á að bjóöa, meö mjög
arins, hið gamla Nesþorp, út-
sýnið yfir fjörðinn og hafnirnar
er gott, og áreiðanlega sakar
ekki, að spölkorn frá er barna-
skólinn, þar sem börnin eru aö
leik alla daga.
Þannig er stöðugt unnið að
uppbyggingu á sviði ibúöarhús-
næöis, þótt við augljósa örðug-
leika sé aö striða: byggingatim-
inn er stuttur, oft aöeins yfir há-
sumarið, þegar frost fer seint úr
jörðu og snjóar snemma, eins og
dæmi eru til um.
,,Og það verður reyndar lika að
hafa i huga, að Neskaupstaður
er afskaplega ungur bær, þegar
á allt er litiö. Hér er meðalaldur
húsa mjög lágur ef miðað er t.d.
viö Seyðisfjörðinn”, sagði
Kristinn ennfremur.
— En svona að lokum: Hvern-
ig leggjast kosningarnar i þig?
„Þær leggjast bara ágætlega I
mig. Ég á ekki von á ööru en að
bæjarbúar kjósi það, að traust-
ur og samhentur hópur vinni að
þeirra sameiginlegu málum til
heilla, eins og verið hefur”.
— jsj
Svínharöur
IUUG-1, STipu(E
THAf-P/o 1
/cosM/þkýoro,^ Þftí?
EKKI?
Eftir Kjartan
Arnórsson
eimfalt..
... HW-Die> V/CL p|£> BfiNÞflRlSKfl
HEj2STÖ£>iM VE/?£>/ H£/R fíFRPfU,
BR Þfí£> EKM ?
N/o, mR
Kooo/m/
3ö..
■ BF KfíNfíRNlR. FFi.RU,
Þfí mypiDU UKuRNfíR
fí KlfíRRoRKuSTRÍ&i
HéRLERMS STÖR-
mipíPJKR!
h
rs
nnnaíi
© BVLLS 54B
llla er komið mann-
legum samskiptum.'
Ryksugan stjórnar
heimilislíf inu!_
Fugl dagsins
Óðins-
hani
Oöinshani er af sundhanaætt-
inni sem samstendur af aðeins
tveim fuglum, óðinshana og
þórshana. Þessum tveim fugl-
um er oftsinnis ruglað saman en
óðinshaninn er þó auðþekkt-
astur á mjóu alsvörtu nefi og
svartleitum fótum. Framháls er
hvitur, að neðan með skærgul-
rauðum hálskraga, vængbeltið
hvitt á dekkri væng. Hann
verpir i mýrum,flóum og i þurru
graslendi. Afar algengur á Is-
landi. Utan varptimans er hann
úthafsfugl einsog þorshaninn.
Rödd þessara tveggja fugla er
mjög svipuð, mjóróma „húit”
eða „prip”
Rugl dagsins:
Arið 1933
eða 1982?
„Allt siðan vinstrimennsk•
unni tókst að nauðga þjóötung-
unum og ranghverfa þar meö
hugsunarhætti fólks, siöan hún
lét borgarastéttirnar kokrenna
tungutaki sinu, þvinga þær nán-
ast til að tala sósialisku i stað
mannamáls, hefir nálgazt út-
skúfun að láta sér detta i hug,
hvað þá að hafa orð á, aö tiltek-
inn kynþáttur, þ.e. hviti kyn-
þátturinn, hafi verið, og sé
máski enn, öðrum kynþáttum
fremri, hæfari úrræðabetri,
hugsjónarikari og framtaks-
samari á mörgum sviöum en
aörir kynþættir að vitnisburði
skráðrar sögu”.
Morgunblaöið
Gætum
tungunnar
Sagt var: Hann vann sér
góðan orðstý
Rétt væri: Hann gat sér
góðan orðstír.