Þjóðviljinn - 19.05.1982, Qupperneq 5
Miðvikudagur 19. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Til vinstri á kortinu er „tllfarsfellsheiðar” (málfar Davfðs Oddssonar), þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vill byrja að byggja samkvæmt „strandskipulaginu”.
Sjálfstæðisflokkurinn vildi byggja strax við Úlfarsfell
Ekki síður sprungið þar
heldur en við Rauðavatn
Þjóðviljinn birtir hér tvö sprungukort, annarsveqar af
Rauðavatnssvæðinu upp úr áróðursbæklingi Sjálfstæðis-
flokksins og hinsvegar af tveimur athugunarsvæðum i
Mosfellssveit en annað þeirra nær yfir úlfarsfellssvæðið
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að byrjað verði
að byggja samkvæmt svokölluðu „strandskipulagi"
Davíðs Oddssonar. Er sýnt af þessum tveimur kortum
að Mosfellssveitin og úlfarsfellssvæðið er ekki siður
sprungið heldur en Rauðavatnssvæðið.
Sprungukortiö sem birt er i á-
róðursbæklingi Sjálfstæðisflokks-
ins er teiknað eftir korti Halldórs
Torfasonar jaröfræöings af
Rauðavatnssvæðinu. Kortið af
Mosfellsveitinni er úr lokaprófs-
ritgerð dr. Helga Torfasonar
jarðfræðings, og er þaö unniö meö
hliöstæðum aðferðum. Athugun-
arsvæðið til vinstri á kortinu sem
m.a. nær yfir tJlfarsfell og ná-
grenni, kannaði dr. Kjartan
Thors og birti sprungukort af þvi i
ritgerð.
Hér er aðeins um tvö svæði i
Mosfellssveit að ræöa og ekki
kannaö til neinnar hlitar hvort
önnur svæði eru jafnsprungin,
enda sprungur viða huldar af
lausum jarðvegi. Þó geta vegfar-
endur gert sér það til gamans aö
skoða með berum augum opna
sprungu sem sést við Vestur-
landsveginn rétt ofan við brúna á
Korpu.
Hinsvegar skal það tekiö fram
aö þrátt fyrir allan þennan
sprungusveim i Mosfeilssveit og
við Oifarsfell er ekki vitað til þess
aö hús hafi raskast þar á grunn-
um, eöa lagnir skekkst vegna
sprunguhreyfinga.
Enda er það álit fagmanna aö
algjörlega sé út I hött aö dæma
byggingarland eingöngu eftir
kortum af þessari tegund.
— ekh.
Úr áróöursbæklingi Sjálfstæðisflokksins. Eftir þessu að dæma er
Rauöavatnssvæöið ekki eins mikiö sprungiö og Mosfellssveitin og tJlf-
arsfelissvæöiö.
r
i
Baráttusamkoma AB, Akureyri
er í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 20. maí kl. 20.30.
Stutt ávörp:
Sigriöur Stefánsdóttir
Margrét Björnsdóttir
Soffla Guðmundsdóttir
Sigriður
Setið fyrir svörum:
Helgi Guömundsson svarar spurning-
um fundarmanna um bæjarmál.
Listaskáldin rauðu og rímsnill-
ingarnir:
Rósberg G. Snædal
Einar Kristjánsson og
Stefán Jónsson
koma fram undir traustri stjórn óttars
Einarssonar.
llelgi
Margrel
Rósberg
Soffia
Tónlistaratriði frá Tónlistarskól-
anum
Flaututrió eftir Tsjerepnin. Flytjendur
Fanný Tryggvadóttir, Aðalheiöur Egg-
ertsdóttir og Kristln Guðrún Gunnlaugs-
dóttir.
Einar
Stcfán
Akureyri — Akureyri — Akureyri — Akureyri — Akureyri — Akureyri — Akureyri